Tíminn - 29.08.1982, Qupperneq 19
og fremst verið alvarlegt tómstundagam-
an fyrir Duchamp, sem hann stundaði
til að mynda á kaffihúsum eða hjá vinum
sínum. Það er misskilningur. Á árunum
1923-33 gerði hann nefnilega mjög
alvarlega tilraun til þess að ná frama á
skáksviðinu og þennan áratug var hann
í raun atvinnuskákmaður. Hann lagði
mjög hart að sér við rannsóknir og
þjálfun mánuðum saman á hverju ári og
tefldi á öllum þeim mótum sem hann átti
kost á. Árið 1928 tefldi hann til dæmis
á fjórum mótum, í Hyéres, París, Haag
og Marseilles.
Reyndar voru fæst þeirra móta sem
Duchamp tók þátt í mjög öflug á
alþjóðamælikvarða en hann var þó í
hópi sterkustu skákinanna Frakklands
og tók fjórum sinnum sæti í ólympíu-
sveit landsins, í Haag 1928, sem fyrr var
nefnt, Hamborg 1930, Prag 1931, og
Folkestone 1933. Ekki tókst honum
sérlega vel upp. Á mótinu í Hamborg
1930 vann hann aðeins eina skák, tapaði
átta og gerði sex jafntefli, eitt þeirra að
vísu við Frank Marshall, bandaríska
stórmeistarann sem var um áratuga
skeið í hópi sterkustu skákmanna heims.
Eftir ólympíumótið í Folkestone 1933
þótti Duchamp hins vegar sýnt að hann
næði aldrei að komast í fremstu röð
skákmeistara og dró þá úr opinberri
taflmennsku hans. Hann hafði þó ýmis
afskipti af skákinni eftir sem áður, var í
stjórn franska skáksambandsins allt til
1937 og þýddi kennslubók Snoskó-Bó-
rovskíjs á frönsku, auk þess sem hann
sá um vikulegan skákdálk árið 1937 í
blaðinu Ce Soir, sem Louis Aragon
ritstýrði. 1944 skipti hann sér síðast af
skák opinberlega að því er ég veit til, en
þá teiknaði hann katalóg fyrir skák-
munasýningu í Bandaríkjunum og var
dómari í sex blindskákum sem George
Koltanowski tefldi samtímis við all-
sterka áhugamenn.
Eina skák hef ég grafið upp sem
Marccl Duchamp tefldi en það var á
ólympíumótinu í Haag 1928. Því miður
tapaði Duchamp þeirri skák og það sem
meira er: þetta var stysta skák ólympíu-
mótsins, svo hún gefur varla rétta mynd
af hæfileikum hans. En þetta er
skemmtileg skák og sennilega gefur hún
góða hugmynd um það hvers vegna
Duchamp náði aldrei í hóp hinna allra
bestu - hann teflir ákaflega villt og lætur
sig áhættuna einu gilda; er sýnilega á
höttunum eftir fallegum hasar. Hann
hefur svart í þessari skák en hvítur er
H. Múller nokkur frá Austurríki, sem
tefldi enska leikinn.
1. c4 - e5 2. RC - Rc6 3. Rc3 - Rf6
4. d4 - exd4 5. Rxd4 - Bb4 6. Bg5 - h6
7. Bh4
Nú kemur mjög fallegur afleikur.
7. - Re4? 8. Bxd8 - Rxc3 9. Rxc6 -
Rxdl+ 10. Rxb4
Ach so! Duchamp náði að vísu
drottningunni til baka en er heilum
manni undir, og kaus því að gefast upp.
Rithöfundur einn heitir Samúel Beck-
ett og ég hef víst minnst á hann
nokkrum sinnum áður í blaðinu, en ekki
í skákþætti fyrr en nú! En svo vill til að
Beckett hefur allt frá æsku (en hann er
fæddur sama dag og ég, bara árið 1906)
haft mikinn áhuga á skák og að sögn teflt
mikið við vini sína og kunningja, en
leiddist aldrei út í opinbera taflmennsku
eins og Duchamp. Ég veit heldur ekki
hvort þeir tóku nokkum tíma skák þó
þeir væru samtíða í París í mörg ár. En
skákáhuga Becketts er auðvelt að sjá út
úr verkum hans, ef einhver lesari minn
skyldi hafa böðlast í gegnum þau
leiðindi öll! Nægir þar að minna á
leikritið Endatafl, en Beckett hefur lagt
mikla herslu á að það skuli á öllum
málum bera nafn endataflsins en ekki
Endalok eða eitthvað í þá áttina.
Leikurinn ber líka nokkurn svip af
drungalegu endatafli, þó ekki megi
túlka hreyfingar og/eða gjörðir persón-
anna sem manngang taflmanna líkt og í
Gegnum spegilinn eftir Lewis Carroll
þar sem Lísa (áður í Undralandi) lendir
óforvarandis inní miðri endataflsstúdíu.
Kynnið ykkur það ef þið viljið, það er
mjög áfkáralegt og skemmtilegt. En í
fyrstu skáldsögu sinni birti Beckett, svo
ég snúi mér aftur að honum, skák
nokkra sem aðalsögupersóna hans og
nafngjafi sögunnar, Murphy, tefldi við
mann að nafni Mr Endon. Sú skák er
ekki aðeins idjótískt, hún er geðklofí!
Tökum þar til við frásögnina þar sem
Murphy, að mörgu leyti ekki ólíkur
Beckett sjálfum, hefur fengið sér vinnu
á geðsjúkrahúsinu Magdalen Mental
Mercy og skal aðstoða sjúklingana.
Meðal þeirra er fyrrnefndur Mr Endon,
ákaflega vingjarnlegur geðklofa-
sjúklingur sem lætur svo lítið fara fyrir
sér að Murphy verður stöðugt að vera á
verði, svo Mr Endon fremji ekki
sjálfsmorð með því að hætta einfaldlega
að anda. Þeir tefla skák sem sögumaður
birtir í heild og mætti segja mér að slík
skák hafi aldrei, hvorki fyrr né s íðar,
verið tefld í þessum heimi. Á eftir er
hægt að velta fyrir sér hvað þessi skák á
að fyrirstilla, en hér kemur hún með
skýringum sögumanns. Murphy hefur
hvítt, enda „tefldi" Mr Endon ætíð með
svörtu mönnunum. Ef honum voru
boðnir hvítu mennirnir seig á hann mók
nokkurt, án þess þó að ergelsi væri á
honum að sjá,“ segir sögumaður.
1. e4
Upphafið að öllum erfiðleikum hvíts.
1. - Rh6 2. Rh3 - Hg8 3. Hgl - Rc6
4. Rc3 - Re5 5. Rd5
Þó þessi leikur sé slæmur verður ekki
séð að hítur hafi átt betri kosta völ.
5. - Hh8 6. Hhl - Rc6 7. Rc3 - Rg8
8. Rbl - Rb8
Ákaflega auðugt og fagurt byrjana-
kerfi, sem stundum er nefnt pípuopnar-
inn.
9. Rgl - e6 10. g3
Slæmur leikur.
10. - Re711. Re2 - Rg612. g4 - Be7
13. Rg3-d614. Be2-Dd715. d3 - Kd8
Þessi leikur sást aldrei í Cafék de la
Régence, sjaldan í Simpson’s Divan.
16. Dd2 - De817. Kdl - Rd718. Rc3
Gefur til kynna örvæntingu.
18. - Hb8 19. Hhl - Rb6 20. Ra4 -
Bd7 21. B3 - hg8 22. Hgl - Kc8.
Unaðslega fagur leikur.
23. Bb2 - Df8 24. Kd -Be8 25. Bc3
Það er erfitt að ímynda sér ömurlegri
stöðu en þá sem aumingja hvítur hefur
nú.
25. - Rh8 26. b4 - Bd8 27. Dh6
Hugkvæmni örvæntingarinnar.
27. - Ra8
Svartur hefur nú yfirburða stöðu.
28. Df6 - Rg6 29. Be5 - Be7 30. Rc5
Hvítur á mikið hrós skilið fyrir
þrautseigar tilraunir sínar til að tapa
manni.
30. - Kd8
Þegar hér var komið sneri Mr Endon
hrókum sínum á hvolf, orðalaust og
voru þeir þannig á sig komnir allt til enda
skákarinnar.
31. Rhl
Þó fyrr hefði verið.
31. - Be7 32. Kb2!! - Hh8 33. Kb3 -
Bc8 34. Ka4 - De8
Mr Endon hrópaði ekki „skák“ nc gaf
á nokkurn annan hátt til kynna að hann
vissi af því að hann hefði ráðist gegn
kóngi andstæðingsins, eða öllu heldur
þvert á móti, svo Murphy hefði ekki
þurft að taka tillit til þess; sjá grein 18 í
lögunum um skák. En það hefði verið
að viðurkenna að upphrópunin væri
ekki til neins.
35. Ka5 - Kb6 36. Bf4 - Rd7 37. Dc3
- Ha8 38. Ra6
Það er ekki hægt að lýsa þeirri
sálarkvöl sem fékk hvítan til þessarar
fáránlegu sóknar.
38. - Bf8 39. Kb5 - Rc7 40. Ka4 -
Rb8 41. Dc6 - Rg8 42. Kb5 - Ke7
Endalok þessa kapals teflir Mr Endon
mjög vel.
43. Ka4 - Dd8
Frekari mótspyrna var tilgangslaus
svo Murphy, með heimaskítsmát í
sálinni, dró sig í hlé.
Þessi skák er auðvitað þvættingur! Mr
Endon hefur ekki áhuga á nema hinu
fagurfræðilega gildi uppröðunarinnar og
Murphy reynir í fyrstu að apa eftir
honum hvern leik. Þegar það tekst ekki
reynir hann af öllum mætti að hrista upp
í Mr Endon, fá hann til að taka tillit til
sín en Mr Endon rótar sér ekki og heldur
áfram dútli sínu án þess að taka eftir
Murphy, hvað þá meira. það er
athyglisvert að Murphy gefst upp
einmitt á því andartaki þegar hann hefði
getað neytt Mr Endon til að bregða út
af þessu reglulega kerfi sem hann beitti.
Með því viðurkennir hann að ekkert
samband sé við Mr Endon og verði ekki.
En látum idjótaskák lokið. Það væri
samt gaman ef einhver gæti fært mér
sýnishorn af skákum Humphrey Bog-
arts. já, Bogart var nefnilega slyngur
skákmaður og meðal annars félagi í
skákklúbb Hermans Steiners í Holly-
wood. Við munum líka senuna úr
Casablanca þar sem hann tefldi við Peter
Lorre...
Hér kemur loks hughreysting handa
meðalskussum. Eftirfarandi skák tefldu
tveir meðalskussar í New Orleans árið
1925 og heitir Adams sá er hefur hvítt
en hinn Torre. Fer engum sögum af
þeim, nema þessi skák er töluvert fræg
og s nir að meðaljónarnir eiga séns í
ið fláatta álíka snilldarlega og heims-
meistaramir. Sennilega hefur aldrei
verið reynt að fórna nokkurri drottningu
af þvílíkri þrákelkni.
Förum fljótt yfir sögu:
1. e4 - e5 2. RD - d6 3. d4 - exd4 4.
Dxd4 - Rc6 5. Bb5 - B7 6. bxc6 - Bxc6
7. Rc3 - Rf6 8.0-0 - Be7 9. Rd5 - Bxd5
10. exd5 - 0-0 11. Bg5 - c6? 12. c4 -
Cxd5 13. cxd5 - He8 14. Hfel - a5 15.
He2 - Hc8 16. Hael - Dd7 17. Bxf6 -
Bxf6
18. Dg4!!
Hótar máti ellegar að vinna drottning-
una.
18. - Db5 19. Dc4! - Dd7
Drottningin verður að halda sig á
skáklínunni til að hindra mátið.
20. Dc7! - Dd5 21. a4! - Dxa4 22.
He4! - Db5 23. Dxb7
Svartur gafst upp. Hér hætti ég.
- ij tók saman.
Rómantískt
kæruleysi
■ Nú skulum við slá þessu upp í
kæruleysi og líta á tvær eldgamlar
I skákir, býsna skemmtilegar. Sú fyrri
er frá árinu 1868! Skoðið stöðuna hér
að neðan. Hver er sterkasti leikur
hvíts? Ykkur finnst þetta kannski
létt, en það er allt í lagi svona inn á
milli. Auk þess verður maður að
reikna þó nokkra leiki fram í tímann,
og lokaleikurinn er óvenjulegur.
Skákina tefldu þeir Potter og
Matthews árið 1868, sem fyrr segir,
í London.
1. c4 - e5 2. d4 - exd4 3. Bc4 - c5 (?)
Það er mjög áhættusamt að reyna
að halda þannig í peðið. Svartur
eyðir tíma og veikir stöðu sína.
4. RB - Rc6 5.0-0 - d6 6. c3 - d3
Nú, hann sá eftir öllu saman. Eftir
I 6. - dxc3 7. Rxc3 hefur hvítur fína
stöðu fyrir peðið. Eftir textaleikinn
stendur hvítur samt betur, ef hann
| byggir upp spil kringum veika peðið
á d6 og reitinn d5. En athugið að
| skákin var tefld á rómantíska
tímabilinu. Það hefur að vísu einnig
| verið kallað tími veikrar varnartafl-
mennsku, en ef til vill er skýringin sú
að fjöldi skáka hefur gleymst vegna
| þess að sóknirnar hafa strandað á
góðri varnartaflmennsku!
7. Hel - Bg4 8. e5 - Rxe5??
Sérhver skynsöm manneskja hefði
leikið d5 til að halda línu hróksins að
kóngnum lokaðri. En skynsamar
I manneskjur tapa sjaldan í 13
| leikjum!
9. Rxe5! - Bxdl 10. Bb5+ - Ke7
[ 11. Bg5+ - f6
Eftir 11,- Ke6 hefur hvítur ekkert
öruggt mát, en er náttúrlega manni
| yfir eftir t.d. 12. Bxf8.
12. Rg6++! -107 13. Rxh8 mát!
Að riddari drepi hrók á h8 er næsta
hversdagslegt. En að það sé mát-
leikurinn, það er sjaldgæft...
Hér er önnur gömul og góð. Hver
er sterkasti leikur hvíts?
Hér er rétt að minnast orða
Fischers: Ef þú hefur fundið sterkan
leik, reyndu þá að finna annan
sterkari. Sterki leikurinn hér er
auðvitað Rf7+, en það fyrirfinnst
annar enn betri!
Það má segja að hér sé um að ræða
algenga fléttu, en í öllum þeim sirka
2000 kappskákum sem ég hef teflt á
ævinni hefur þessi flétta aðeins
komið fyrir einu sinni: gegn Niever-
gelt í Amsterdam árið 1954. Svissar-
inn tefldi að vísu ekki algengasta
framhaldið svo ég vann bara eitt peð,
en það reyndist nóg. Þessi skák hér
var tefld árið 1908. Hafið í huga að
þó þessi Alekhine, sem stýrir hvítu
mönnunum, hafi seinna orðið heims-
meistari í skák var hann þegar hér
var komið sögu ekki annað en
efnilegur 17 ára unglingur. Svartur
heitir Köhnlein og þeir félagar tefla
kerfið sem kennt er við belgíska
meistarann Colle. Árið 1908 var
hann að vísu enn aðeins skóladreng-
ur, og þá voru byrjanakerfi með
Bd3, Rbd2 og e4 kölluð drottningar-
peðstafl.
1. d4 - d5 2. Rf3 - Rf6 3. e3 - e6.
Colle er ágætis kerfi, en einkum ef
svartur lætur hjá líða að leika 3. - Bf5!
4. Bd3 - Rbd7 5. Rbd2 - bd6 6. e4
- dxe4 7. Rxe4 - Rxe4 8. Bxe4 - 0-0
9. 0-0 - f5?
Mjög frumstæður leikur sem
veikir stöðuna illa.
10. Bd3 - e511. Bg5 - De812. dxe5
- Rxe5 13. Hel -Dh5
Öllu betra var Rxf3+, en hvítur
stendur samt mun betur. Biskupinn
á c8 er hálfutangátta.
14. Rxe5 - Dxg5 15. Bc4+ - Kh8
16. Dxd6! og svartur gafst upp.
Það er augljóst að framhaldið 16.
- cxd6 17. Rf7+ - Hxf7 18. He8+
leiðir til máts. Drottningarfórnin.
fjarlægði vald biskupsins á f8.
Lokastaðan á alþjóðlega mótinu í
Minsk sem haldið var í sumar:
1. Tseskovskíj 10 5/15, 2. Dolmat-
ov 10, 3. Júdasín 9.5, 4.-6.
Chandler, Kúpreitsjik og Psakhis
8.5, 7. Kúsjmín 8. 8.-9. Júsúpov og
Dídísjkó 7.5, 10.-12. Balasjov,
Groszpeter og Inkjov 7,13. Amador
Roderíguez6.5,14. Rivas5,15.-16.
Marjanovic og Motjalov 4.5
Anthony Miles er nýorðinn enskur
meistari - í fyrsta sinn! Hann vann
enska mcistaramótið með 9 vinning-
um af 11, á undan Speelman með 8
og Keene, Kosten og Ravikumar
með 7.5. Ravikumar er raunar
Indverji.
Þegar síðast fréttist hafði Rússinn
Sókolov svo að segja tryggt sér
heimsmeistaratitil unglinga; hann
var langt á undan öllum öðrum þegar
fáar einar umferðir voru eftir.
Englendingurinn Nigel Short hafði
tapað tvívegis, fyrir Tempone (Arg-
entínu!) og Spánverjanum Gil.
Lítum á innbyrðis skák þessara
Short-bana, hún er æsileg vel. Gil
hefur hvítt.
1. d4 - c5 2. d5 - e5 3. e4 • d6 4.
Rc3 - a6 5. a4 - Be7 6. Be2 - Bg5 7.
Bxg5 - Dxg5 8. Rf3 - Dh6 9. Rd2 -
Rd7 10. Rc4 - Re7 11. 0-0 - 0-0 12.
Dcl - g5 13. Bg4 - Hd8 14. Ha3 -
Rf6 15. Bxc8 - Haxc8 16. Hb3 - Hc7
17. Ddl - Rg6 18. Hb6 - Hcd7 19.
Ra5 - Dh4 20. Rxb7 - Rf4 21. f3 -
Hb8 22. Hxd6 - Hdxb7 23. Hxf6 - g4
24. Hxa6 - g3 25. h3 - Hxb2 26. d6 -
H2b4 27. Rb5 - Kh8 28. d7 - Hg8 29.
Dd6 - Re2+ 30. Khl - Dxh3+ 31.
gxh3 - g2+ 32. Kh2 - gxfl=R+! og
Spánverjinn gafst upp.
Bent Larsen,
stórmeistari,
skrifar um skák