Tíminn - 11.09.1982, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR11. SEPTEMBER1982.
LAUGARDAGUR11. SEPTEMBER1982.
11
10
fréttafrásögn
fréttafrásögn
■ Hestamaður úr höfuðstaðnum sótti haust eitt
brúnskjóttan hest er hann átti í hagagöngu austur í
Árnessýslu og leiddi hann til slátrunar. Síðar það sama
haust leitaði bóndi nokkur úr Árnessýslu lengi vel að
brúnskjóttri hryssu sinni og hélt uppi spurnum um hana
fram á vetur, en árangurslaust. Hins vegar höfðu menn
orðið varir við brúnskjóttan hest, sem enginn kannað-
ist við.
Þessa „skemmtilegu" sögu ásamt
öðrum áþekkum heyrði undirrituð er
hún ásamt hópi búandfólks úr Arnes-
sýslu áði til kaffidrykkju að Hvoli fyrr í
sumar. Brostu menn göðlátlega að
ýmsum dapurlegum ævintýrum „borg-
arbændanna“, sem oft eru heldur ekki
sparir á að gera grín að sveitamann-
inum. Er því ágætt til þess að vita að
hvorugir eigi hjá hinum. Fyrrnefndur
hópur var á ferð um Rangárþing sér til
fróðleiks og skemmtunar, eins og áður
hefur verið sagt frá í Tímanum, þó
dregist hafi úr hömlu að ljúka ferðasög-
unni. En Rangárþing breytist ekki mikið
á nokkrum vikum.
Út um gluggana á Hvoli blöstu
Vestmannaeyjar við í suðri. „Ég réri 14
vertíðir frá Vestmannaeyjum í gamla
daga og langar eiginlega alltaf þangað
aftur. Ekki hef ég þó látið verða af því,
þótt það ætti nú að vera orðið auðvelt
að skreppa þetta með Herjólfi úr
Þorlákshöfn", sagði einn hinna öldruðu
bænda úr Árnessýslu. Er Ijóst af þessu
að sveitafólkið hefur tæpast lagst í
ferðalög í jafn ríkum mæli og algengast
er með íbúa suð-vestur homs landsins.
„Fögur er hlíðin...“
„Fögur er hlíðin svo mér hefur hún
aldrei jafn fögur sýnst, bleikir akrar og
slegin tún, og mun ég heim rfða aftur og
huganum er menn - alsælir eftir
veitingarnar á Hvoli - héldu sem leið lá
inn Fljótshlíðina. Og þar sáust einmitt
fyrstu slegnu túnin - og önnur kafloðin
- þótt víðast hvar væri illa sprottið á
bæjum utar í sýsluni.
Kristinn, tilraunastjóri á Sámsstöðum
tók á móti hópnum er rennt var þar í
hlað og hélt síðan með okkur í
fræðsluferð um staðinn og þar gefur líka
á að líta.
Á Sámsstöðum þekja um 1.500
tilraunareitir gífurleg landssvæði, sem
yfir að líta virðast öll köflótt. Sumir
reitirnir eru kafloðnir en aðrir snöggir.
sumir eru dökkgrænir eða brúngrænir
þar sem mikill.puntur var kominn, en
aðrir fölir. Sumir voru blómum skrýddir
en aðrir eingöngu vaxnir þéttu grasi.
Á reitum þessum eru gerðar: Áburð-
argrasstofna-, korn- og fræræktartil-
raunir, sem Kristinn sagði eiginlega sitt
aðal verkefni. Að fræræktarverkefninu
hefur verið unnið síðan 1975, en það
miðast við að finna hentugar aðferðir til
að rækta fræ af tveim íslenskum grösum
- túnvingli og vallarsveifgrasi. Frærækt-
in fer nú fram á um 85 hektara
landssvæði.
„Við erum að reyna að byggja þetta
upp sem einhverskonar hliðarbúskap.
Við höfum nefnt að hér yrði kannski
hægt að rækta um helminginn af því fræi
sem notað er í landinu, en það er langt
■ Alltaf er freistandi að tylla sér niðor í skjóli grænna skóga. Indriði Indriðason, skógarvörður situr fremst til vinstri á myndinni.
Tumastaðir í Rangárþingi
orðnar 12-25 sentimetra háar. Að sögn
Indriða var um hálf milljón plantna
dreifsctt á Tumastöðum í sumar, en gert
ráð fyrir að seldar yrðu þaðan um
250-300 þúsund plöntur nú í ár.
Plönturnar geymdar í
frysti síðasta veturinn
Það sem kom einna mest á óvart í
frásögn Indriða var að plöntur þær sem
selja á að sumri eru haustið áður teknar
upp og síðan geymdar í frysti, við um
3ja gráðu frost allan veturinn. Bæði
sagði hann þetta gert til að ná
plöntunum upp áður en þær fara að vaxa
að vori, því þær væru miklu viðkvæmari
þegar þær eru að byrja að spretta á
vorin. En einnig vegna þess að þær
varðveitast miklu betur við jafnt frost
allan veturinn heldur en í umhleyp-
ingum vetrarins.
Auk skógarplantna cr nokkuð ræktað
af garðplöntum á Tumastöðum, aðal-
lega víðiplöntum ýmisskonar. bæði í
limgerði og til skjólbcltaræktar fyrir
skóræktarfélögin. Mátti m.a. sjá þar
skemmtilegt limgerði þar sem plantað
hafði verið mörgum tegundura -
nokkrum plöntum af hverri tegund hlið
við hlið á sama árinu svo auðvelt er fyrir
fólk að bera saman tegundirnar. Var
mikill munur á hve hinar einstöku
tegundir höfðu vaxið mikið á þeim
fimm árum síðan plantað var, svo og
kvað Indríði m.a. mikinn mun á því hve
þær væru veikar fyrir skógarmaðki.
Aðspurður kvað Indriði hins vegar
engin jólatré hafa verið seld frá
Tumastöðum. Fyrst og fremst haft þetta
verið gróðrarstöð, en litlu plantað út til
skógræktar á staðnum, vegna land-
þrengsla. Nú sé útplöntun hins vegar að
hefjast f framhaldi af því aðstöðinni hafi
PLONTURNAR GEYMDAR
FRYSTI ALLAN VETURINN!
fara hvergi", sagði Gunnar á Hlíðarenda
forðum. Vafalaust hafa allir ferðafélag-
amir tekið undir með Gunnari í
í að það mark náist. Fer raunar líka eftir hefur frænotkun verið um 200 tonn
því hvort sú stefna verður tekin að rækta árlega", sagði Kristinn.
þennan helming eða ekki. Hingað til Það fræ sem þegar er ræktað á
■ Hinar ýmsu víðitegundir sem plantað var á sama tima í þetta limgerði hafa vaxið ákaflega mis mikið eins og sjá má á
myndinni. Myndir HEI
Sámsstöðum kvað Kristinn fyrst og
fremst notað til landgræðslu á örfoka
landi á vegum Landgræðslunnar. En
einnig munu Reykvíkingar mikið sækj-
ast eftir þessu fræi í lóðirnar sínar, þó
lítið hafi verið selt af því þangað til
þessa. Þeir eiginleikar sem fólk er að
sækjast eftir með þessu fræi er að það
er mjúkt, þétt og harðgert.
Komrækt á um 400
hekturum
Á Sámsstöðum er kornrækt á um 400
hekturum. Þar er cingöngu um að ræða
svonefnt Marybygg. Er það sú korn-
tegund sem ræktuð hefur verið á
Sámsstöðum allt frá árinu 1962 og nú er
einnig farið að rækta í Landcyjum í
auknum mæli. Auk þess fara fram
korntilraunir í um 400 reitum, eða
svokallaðar víxlanir. Að sögn Kristins
hefur mestur vöxtur verið í gömlum
byggafbrigðum, svonefndu Tobbabyggi
og Sigurkorni, sem bæði voru fengin frá
Færeyjum á dögum Klemensar fvrrv.
tilraunastjóra. Gallinn við þau var bara
sá að stöngullinn var veikur og hélt illa
axinu í rysjóttu tíðarfari síðsumars. Er
því unnið að kynbótum með víxlunum
svo það henti okkar rysjóttu veðráttu
betur svo og til að reyna að flýta
þroskanum um nokkra daga. Því
verulega getur munað um hvem dag
þegar sumur eru stutt.
Á Sámsstöðum sýndi Kristinn okkur
einnig hreinsistöð sem þar er verið að
koma upp til fræhreinsunar og á hún í
framtíðinni að geta annað allri þeirri
fræhreinsun. Búnaði þessum er komið
fyrir í gamalli hlöðu, svo ekki þurfti að
leggja í mikla fjárfestingu vegna hús-
næðisins.
Skjólsælt á Tumastöðum
Degi var tekið að halla og kominn
nokkur hrollur í suma í kvöldkulinu
þegar haldið var frá Sámsstöðum áleiðis
að Tumastöðum, sem Skógrækt ríkisins
keypti árið 1944. Hafði fólk á orði að
ekki væri kannski ástæða til að hafa þar
mjög langa viðdvöl. Fararstjóri spáði að
annað ætti eftir að koma í ljós. Sín
reynsla í fyrri ferðunum hefði verið sú,
að fólk fengist varla til að fara þaðan
aftur. Og fararstjórinn átti auðvitað eftir
að hafa rétt fyrir sér. Enda væri það svo
merkilegt - eins stutt og er á milli
þessara tveggja bæja - að inanni fannst
veðrið mörgum stigum hlýrra á Tuma-
stöðum, sem tæpast getur átt sér aðra
skýringu en þá hve skógurinn myndar
þar mikið skjól. Á Tumastöðum var
algert logn, og umhverfið unaðslegt. Að
sögn skógarvarðarins Indriða Indriða-
sonar eru hæstu trén á Tumastöðum nú
orðin um 9,5 metra há. í þeim trjálundi
er orðinn dæmigerður skógarsvörður,
þ.e. gras er hætt að vaxa þar vegna
skugga.
Hálf milljón plantna
dreifsett
Hlutverk Tilraunastöðvarinnar er að
rækta trjáplöntur fyrir stöðina sjálfa og
Skógræktarfélög landsins. Fræið er
fengið víða að, frá Rússlandi, Noregi,
Bandaríkjunum og að litlu leyti er að
byrja að koma fræ af íslenskum trjám
m.a frá Hallormsstað. Aðallega sagði
Indriði ræktaðar fimm tegundir: Mest er
af sitkagreni, síðan stafafura og lerki og
lítillega af rauðgreni og íslensku birki.
Fræinu er fyrst sáð f svonefnd
„sáðbeð“ og plöntunum síðan plantað í
dreifsetningarreiti um 2ja ára gömlum,
en yfirleitt er plönturnar um 4 ára þegar
þær fara frá stöðinni. Þær eru þá aðeins
bæst um 500 hektara land með kaupum
á næstu jörð - Kollabæ.
Orðið var áliðið kvölds þegar farar-
stjóri hafði loks af að mjaka fólki áleiðis
að bílnum, eftir að hafa skoðað
gróðrarstöðina og gengið um skógar-
brekkumar. Allir sem vildu voru að
endingu leystir út með gjöfum. Hver
ferðalangur fékk um 5 furuplöntur til að
taka með sér heim til gróðursetningar.
Er því líklegt að á mörgum bæjum í
Gaulverjabæjar- og Sandvíkurhreppum
eigi á næstu árum og áratugum eftir að
vaxa upp fallegir furulundir til minn-
ingar um þcssa fróðlegu og skemmtilegu
ferð um Rangárþing.
HEI
Myndir
og texti:
Heiður
Helgadóttir
Húsbyggjendur- Verktakar
Loftorka s.f. Framleiðsluvörur:
Frárennslisrör, brunnar — rot-
þrær. Milliveggjaplötur úrgjalli.
Holsteinn til útveggjahleðslu.
Gangstéttarhellur, kantsteinar.
Steinsteyptar húseiningar. Fjöldi
húsgerða. Pantið sýnishorn.
Verktakastarfsemi.
Borgarplast HF. Framleiðslu- og
söluvörur:
Einangrunarplast, allar þykktir
og stærðir. Pípueinangrun úr
glerull og plasti, allar stærðir.
Glerull og steinull, allar þykktir.
Alpappír, þakpappi, útloftunar-
pappi, bylgjupappi, plastfólía.
AAúrhúðunarnet, nethald. Spóna-
plötur í ýmsum þykktum.
Góð verð, f Ijót afgreiðsla ög greiðsluskilmálar við f lestra hæf i. Daglegar ferðir
vöruf lutningabifreiða í gegnum Borgarnes, austur, norður og vestur. Borgar-
plast hf. af hendir vörur á byggingarstað á stór-Reykjavíkursvæðin, kaupendum
að kostnaðarlausu. Ferðir alla virka daga.
Bor^arnesi, simi 93—7113
Kvöldsími og helgarsimi 93—7115 Kvöldsími og helgarsími 93—7355
Byggingarvörur - Einingahús
Auglýsingasími
TÍMANS er 18-300
landsþjónusta
Heimkeyrsla að kostnaðarlausu alla leið
í Borgarnes og nágrenni og austur
á Hvolsvöll og nágrenni.
Sendum samdægurs á öll Suðurnesin:
Fyrir aðra landsmenn pökkum við inn
og sendum á vöruflutningamið-
stöðvar í Reykjavík, og að sjálfsögðu
að kostnaðarlausu.
ÞU KEMUR EÐA HRINGIR -VIÐ SENDUM
□Cl
Opið i dag kl. 9-17 og sunnudag 14-17
Hjónarúm úr furu
Ve ggsamstæða
Or ISAahoni
Pú
Kemur
09
semur
Leðurstólar
Horn-
sófasett
Reykjavikurvegi 66 Hafnarfirði
Sími 54100
Landsþjónustan