Tíminn - 14.09.1982, Blaðsíða 1

Tíminn - 14.09.1982, Blaðsíða 1
Ólga meðal starfsfólks í sláturhúsum - bls. 4 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ Þriðjudagur 14. september 1982 208. tbl. - 66. árgangur. Kvikmynda hornid: hernum — bls. 23 vill sættir — bls. 7 Hlátur lengir lífið — bls. 2 Enski boltinn — bls. 15 Ólafur Jóhannesson veitir f jórum togur- um leyfi til sölu erlendis: „ER ALGJÖRLEGA EALUNN ÞESSIM SOLUM — segir sjávarútvegsráðherra. 16 umsóknir sendar inn til viðbótar ídag ■ Ólafur Jóhannesson sem nú gegnir störfum viðskiptaráðherra hefur veitt fjórum íslenskum togurum leyfi til að selja afla erlendis í lok þessarar viku. Er þetta leyfi veitt í trássi við óskir Steingríms Hermannsonar, sjávarút- vegsráðherra, sem á ríkisstjómarfundi sl. miðvikudag lagði fram tillögu um að allar sölur erlendis yrðu bannaðar á meðan stöðvun fiskiskipaflotans stæði. „Ég vissi ekki betur en að þessar tillögur hefðu verið samþykktar", sagði Steingrímur Hermannson og tók fram að hann myndi mótmæla leyfis- veitingunni harðlega á ríkisstjórnar- fundi í dag. „Ég taldi ekki óeðlilegt að veita þetta leyfi, enda engin samþykkt gerð í ríkisstjórninni um að banna sölur erlendis", segir Ólafur Jóhannesson. „Ég var þess fullviss að þessar umsóknir yrðu samþykktar“, segir Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, en LÍÚ sendir viðskiptaráðuneytinu í dag, 16. nýjar umsóknir um sölur erlendis. -ESE Sjá nánar bls. 3 Fiskiskipaflotinn: STÆKKAD UM 56% SUÐVESTANLANDS — síðasta áratug, á meðan aukningin hefur verið 18% annars staðar ■ íslenski fiskveiðiflotinn stækkaði um 56% á Suð-Vcsturlandi á síðasta áratug á meðan flotinn á Norðurlandi, Austurlandi og á Vestfjörðum stækkaði aðeins um 18%. Þessar upplýsingar koma fram í viðtali sem Tíminn hefur átt við Árna Benediktsson, formann stjórnar Sam- bandsfrystihúsanna vegna rekstrar- vanda útgerðarinnar. f viðtalinu nefnir Árni stækkun flotans og aukna sókn sem einar af höfuðforsendunum fyrir rekstr- arvanda útgerðarinnar í dag og eru tölurnar um stækkun fiskveiðiflotans ekki síst merkilegar fyrir þær sakir að útgerðum á SV-horninu hefur yfirleitt þótt á sig hallað sl. áratug. Um leiðir til úrbóta varðandi rekstr- arstöðu útgerðarinnar segir Árni að hann geti ekki bent á heppilegri leið til að bæta stöðuna á skömmum tíma, en að bæta vörugæðin. Ef netafiskur færi t.d. allur í 1. gæðaflokk myndi það hafa í för með sér 10-15% hækkun á hráefnisverði. Stöðu togaraflotans mætti bæta um 5% á skömmum tíma ef átak yrði gert og gæði hráefnisins bætt. -ESE Sjá nánar bls. 10-11 ■ Ohætl er að scgja að Yigdis Finnhogadóttir, forseti Islands. hafi gert stormandi lukku i Randarikjunum. en liim hel'ur verið mikið i ssiðsljosinu legna opnunar suiingarinnar Seandinasia l'oday i ýnisum borguin þar sestra. Mikið hefur serið skrifað um hana i hloðum, uHarpið hefur gert henni góð skil, og nu siðast \ar sjónvarpað heint um óll Randankin fra hatiðartonleikum i Orehestra Hall i Minneapolis. I’ar mætti Yigdis i skautlnmingi og siigðu norsku lilaðamennirnir að hún hefði sigrað Randarikin ineð skautliuningnum. Sja nanar bls. 12-13 limaimnd: Cí l K

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.