Tíminn - 14.09.1982, Blaðsíða 22

Tíminn - 14.09.1982, Blaðsíða 22
22_________ eftir helgina K irkjugarðs- peningar í iðnaði ■ Veður var með fegursta móti á Suðurlandi á laugardagsmorgun, en þegar líða tók á daginn, sigldu ógnandi vetrarskýin inn yfir Hraunin og inn á landið. í gamla kirkjugarðinum voru fáir á ferli, sem betur fer, kynni einhver að segja, en gamlir kirkjugarðar minna, þótt undarlegt séj meira á lífið en dauðann, einkum þegar gróður er enn í fullum skrúða, en Eilífiðin hefur nú haft þarna aðstöðu í 144 ár ásamt sorginni og blómun- um, sem er hreint ekki svo lítill tími, þegar á allt er litið, og við fengum okkur sæti á steingröf sem hallaðist eins og þar hefði einhver verið kvikscttur. Frostið hafði lyft þessum grunni í áranna rás. Það er viss unaður því samfara að ganga um gamla kirkjugarða, eftir að sorgin er farin úr þeim. Einkum þegar gróður stendur í fullum skrúða. Og það gjörir hann á vissan hátt enn í kirkjugarðinum við Suðurgötu. Allt er svo stabílt ef frá er talin gröf kviksetta mannsins. Ef til vill ættu allar ríkistjórnir að halda þarna fundi öðru hverju, og aðrir, sem verða að byggja líf sitt á skammtímaráðstöfunum. Því þegar allt kemur til alls, þá er það nú eilífðin, sem skiptir mestu máli. Þarna haggast í rauninni ekkert. Alveg sama þótt útgerðin sé að stöðvast og þjóðarbúið hallist eins og gamla lciðið, af því að Alþýðubanda- lagið er búið að kviksetja launþega a.m.k. framyfir veturnætur. En við lifum á erfiðum tímum, eins og kerlingin sagði, og það hefur ávallt gegið illa að segja sannleikann á íslandi. Menn ræddu mest um vanda útgerðarinnar um þessa helgi, en ekki hefur enn fundist viðeigandi lausn á því, hvernig koma eigi rekstrartapi flotans yfir á þjóðina. Sú einkennilega hagfræði er nefni- lega viðhöfð hér, að þjóðin fær náðarsamlegast að tapa á útgerð prívatmanna, en gróða hirða þeir hins vegar sjálfir. Þá er einnig komin ákaflega góð reynsla á það á íslandi, að láta ríkissjóð leysa svo til allan peningalegan vanda, hvort heldur það er í landbúnaði, iðnaði, eða útgerð. Að vísu má segja sem svo, að það sé eitt af verkefnum ríkistjórna að búa þannig um hnútana, að haldið sé uppi atvinnu í landinu. En það eru aðferðirnar, sem menn eiga svo örðugt með að skilja. Mikið er t.d. talað um bókhald Álversins og lágt rafmagnsverð. Enginn maður minnist hins vegar á það, að ríkissjóður varð að leggja fram 13 milljónir dollara á seinasta ári í málmblendið á Grundartanga vegna mistaka iðnaðarráðahcrra, eða 190 milljónir nýjar, en það eru 19 milljarðar í þcim krónum, er notaðar eru í eamla kirkjugarðinum. Og í ár hafa um 9 milljarðar af kirkjugarðspeningum farið í sama málmblendi. Og enginn segir orð, nema hvað iðnaðarráðuneytið hefur nú heitið á alla Íslendinga að taka sæti í nefnd um framtíð rafskauta í þessu landi og heimtar að trúað sé á Cooper og Læbrant og önnur blóðvitni þess. En það er fleira, sem menn hafa á prjónunum til að tapa á í þessu landi, þar á meðal er steinullin á Sauðár- króki. Þar mun ríkissjóður taka að sér að eiga 40% hlutafjár og leggja svo franr 20% í formi góðra lána. Felld verða niður öll aðflutnings- gjöld af vélum til þessarar verk- smiðju. Tollar og svoleiðis. Þetta er gert þótt vitað sé fyrirfram að þessi verksmiðja getur ekki keppt við verksmiðju í Þorlákshöfn, en hvað þarna á eftir að fara mikið af kirkjugarðspeningum ■ framtíðinni skal ósagt látið. En þetta er gert meðan annar iðnaður stynur undan ómxldum þunga og álögum frá ríkisvaldinu. Má þar t.d. ncfna verksmiðjur Sambandsins á Akur- eyri, er veita fleiri hundruð manns atvinnu og skapa gífurlegar gjald- eyristekjur. Þær stefna nú í á- lögugjaldþrot og greiða húsmæðra- taxta fyrir rafmagn á sama tíma og kirkjugarðsfé er dælt í Álafoss, stcinull og málmblendi. Óvinir landsins eru svo útgerðar- menn, álverið og launþegar. Margir telja ríkisafskipti vera af hinu illa. Undirritaður er þó ekki í þeim hópi. Þó er það fyrir löngu orðið Ijóst, að hér ríkir glundroði í iðnaði. Völd eru án ábyrgðar, og ábyrgð er án valda. Það virðist svo til sama hvað menn tapa miklu kirkjugarðsfé, ef ríkið er í spilinu. Mér er til dæmis sagt, að mikið af aðföngum málmblendisins hafi hreinlega verið keypt út úr jámvöru- búð í Osló á búðarverði, sem var helmingi hærra en á sömu hlutum á íslandi í paradís hinna tímabundnu vörugjalda. Að tollfrelsi á vissum föngum málmblendisins hafi oft verið herfilcga misnotað af Noregi. Ekki veit ég sönnur á því, en af hverju eru Coopcr og Læbrant ekki látnir glugga svolítið í annað bók- hald á fslandi? Bókhaldið í Álafossi, Landsvirkjun, Mjólkursamsölunni, útgerðinni og öllum mögulegum firmum er byggja tilveru sína á því að ríkið taki að sér að greiða tapið með kirkjugarðspeningum þjóðar- innar? Á sunnudagsmorgun var byrjað að rigna á Suðurláglendinu og komin var slydda fyrir norðan. Vetur nálgast, og þá mun verða dimmt og kalt í leiðslukjöllurum. Við spáum örðugum vetri, þótt húsmæður greiði skilvíslega rafmagn stóriðjunnar og iðnaðaráðuneytisins. Jónas Guðmundssun Jónas Guðmundsson rithöfundur, skrifar flokksstarf Aðalfundur framsóknarfélaganna í Snæfellsnes og Hnappadalssýslu verður á Breiðabliki fimmtudaginn 16. sept. kl. 21.00. Alþingismennimir Alexander Stefánsson og Davíð Aðalsteinsson mæta á fundinum. Trúnaðarmenn félaganna eru hvattir til að mæta. Stjórnin. Fundir í Vestfjarðakjördæmi verða sem hér segir: Drangsnesi fimmtudaginn 16. sept. kl. 21.00 Árnesi, föstudaginn 17. sept. kl. 16.00 Birkimel, laugardaginn 18.sept. kl. 16.00 Patreksfirði sunnudaginn 19. sept. kl. 16.00 Allir velkomnir. Félag Framsóknarkvenna í Reykjavík Félagsstarfið hefst að nýju með fundi mánudaginn 20. sept. kl. 20.45 að Rauðarárstíg 18. Við munum kynna málfreyjufélagið, ræöa vetrarstarf ið og borgarmál. Mætum vel og eflum félagið Stjórnin Við m innum eldri félagskonur á kaffi og rabbfund mánudaginn 4. okt. kl. 16.00 í félagsherberginu. UMBOÐSMENN Akranes: Guðmundur B|Ornsson Jaðarsbraut 9. s 93-1771 Borgarnes: Unnur Bergsvemsdottir Þoroffsgotu 12. s 93-7211 Rif: Snædis Knstinsdotlrr. Haarift 49 s 93-6629 Ólafsvík: Stefan Johann Sigurðsson Engihhð 8 S 93-6234 Grundarfjörður: Johanrra Gustafsdottir. Fagurholstum 15. s 93-8669 Stykkishölmur: Esther Hansen, Silfurgotu 17. s 93-8H5 Buðardalur: Patreksfjörður: Vigd.s Helgadotlir. Sigtum 8. s 93-1464 Bíldudalur: DagbjOrt Bjarnadottir Longuhlið 37. s 94-2212 Flateyri: Guðnjn Knstiansdotlir. Bnmnesvegi 2, s 94-7673 Suðureyri: Lilja Bernodusdotlir. Aðalgotu 2. s 94-6115 Bolungarvik: Knslrun Benediktsdotlir. Hafnarg 115. s 94-7366 ísafjörður: Guðmundur Svemsson. Engjavegi 24. s 94-3332 Súðavik: Heiðar Guðbrandsson Neðn-Grund. s 94-6954 Hólmavík: Guðbjorg Sfelansdottir. Brotlugotu 4. s 95-3149 Hvammstangi: EyjOtfur Eyjólfsson s 95-1384 Blönduós: Olga Ola Bjarnadottir. Arbraut 10 s 95-4178 Skagaströnd: Arnar Amorsson. Sunnuvegi 8. s 95-4600 Sauðárkrókur: Guttormur Oskarsson Skag firðmgabr 25. s 95-5200 og 5144 Siglutjörður: Friðfmna Simonardotlir. Aðalgotu 21. s 96-71208 Ólatsfjörður: Heiga Jonsdottir. Hrannarbyggð 8. s 96-62308 Dalvik: Brynjar Friðleitsson. Asavegi 9. s 96-61214 Akureyri: Viðar Garðarsson. Kambagerði 2. s 96-24393 Húsavik: Hafliði Jostemsson. Garðarsbraut 53. s 96-41444 Rautarhöfn: Arm Heiðar Gylfason, Sotvollum s 96-1258 Pórshöfn: Kristmn Johannsson Austurvegi 1. s 96-81157 Vopnafjörður: Margret Leifsdotlir, Kolbemsgotu 7. s 97-3127 Egilsstaðir: Pall Pelursson. Arskogum 13. s 97-1350 Seyðisfjörður: Þordis Bergsdottir OkJugotu 11. s 97-2^91 Neskaupstaður: Þorleifur G Jonsson Nesbakka 13. s 97-7672 Eskifjörður: Asdis Valdimarsdonir Reyðarljörður: Marmo SigurbjOrnsson, Heiðarvegi 12. s 97-4119 Fáskrúðsfjörður: Sonia Andresdottir. Þmgholti. s 97 5148 Stöðvarfjörður: Johann Johannsson Varmalanoi. s 97-5850 Höfn: Knstm Sæbergsdottir Kirk|ubraut 46 S 97-8531 Vik: Ragnar Guðgeirsson Kirkjuvegi 1. s 99-7186 Hvolsvöllur: Bara Solmundsdottir Solheimum s 99-5172 Hella: Guðrun Arnadottir Þruðavangi 10 s 99-5801 Vestmannaeyjar: Bima Þorhallsdottir Kirkjuvegi 64 s 98-1592 Stokkseyri: Sturta Geir Palsson Snæfelh s 99-3274 Eyrarbakki: Petur Gislason Gamta-Lækmshusmu. Þorlákshöfn: Franklin Benediktsson Skalhottsbraut 3. s 99-3624 Selfoss: Þuriður Ingolfsdottir. Hiarðarholh 11. s 99-1582 Hveragerði: Stemunn Gisladottir. Breiðumork 11. s 99-4612 Grindavik: Olma Ragnarsdotlir Asbraul 7 s 92 8207 Sandgerði: SnjOUug Sigfusdotiir Suðurgotu 18 s 92-7455 Keflavik: Erla Guðmundsoottir Greniteig45 s 92-1165 Ytri-Njarðvik: Stemunn Snioltsd Ingim Ha'narbyggð 27 s 92-3826 Innri-Njarðvik: Johanna Aðalstemsdonir Stapafefh s 92-6047 Hafnarfjörður: Hilrr.ar Knstmsson Heiga Gestsdonir # Nonnuslig 6 s h 91-53703 s v91-71655 Garðabær: Sigrun Fnðgetrsdontr Heiðarlundi 18. s 91-44876 áhvert heimili AÐALSKRIFSTOFA - AUGLÝSINGAR - RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 15 - REYKJAVÍK - SÍMI 86300 yUMFERÐAR RÁÐ Góð orð ^ duga skammt. Gott fordæmi skiptir mestu máli Bilaleiga |"ÁS CAR RENTAL «o’MÍ^ £* 29090 mazoa 323 DAIHATSU ftEYKJANESBRAUT 12 REYKJAVÍK Kvöldsimi: 82063 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBÉR 1982 Kvikmyndir Sími 78900 Salur 1 Frumsýnir grínmyndina Porkys -. Porkys er frábær grlnmynd sem slegið hefur öll aðsóknarmet um allan heim, og er þriðja að- sóknarmesta mynd I Bandaríkj- unum þetta árið. Það má með sanni segja að þetta er grlnmynd ársins 1982, enda er hún í algjörum sérflokki. Aðalhlutv.: Dan Monahan, Mark Herrier og Wyatt Knight. Sýnd kl. 5,7,9 og 11 Bónnuð innan 14 ára. Hækkað verð. Salur 2 STUNTMAN ÍÉL The Stunt Man var útnefnd fyrir 6 GOLDEN GLOBE verðlaún og 3 ÓSKARSVERÐLAUN. Peter O'Toole fer á kostum I þessari mynd og var kosinn leikari ársins 1981 af National Fitm Critics. Einnig var Steve Railsback kosinn efnilegasti leikarinn fyrir leik sinn. Aöalhlutv. :Peter O’Toole, Steve Railsback, Barbara Hershey Leikstjóri: Rlchard Rush Sýnd kf. 5,7.30 og 10. Salur 3 When a Stranger Calls Pessi mynd er ein spenna frá upphafi til enda. Ung skólastulka er fengin til að passa böm á kvöldin, og lífsreynslan sem hún lendir í er ekkert grín. Blaðaúmmæli: Án efa mest spennandi mynd sem ég hef séð (After dark Magazlne) Spennúmynd érsins. (Dally Trlbute) Aðalhlutverk: Charles Dumlng, Carol Kane, Colleen Dewhurst Bönnuð bömum Innan 16 éra Sýnd kl. 5,7 og 9 Píkuskrækir (Pussy-talk) Þussy Talk er mjög djörf og jafn- framt fyndin mynd sem kemur öllum á' óvart. Myndin sló öll aðsóknarmet i Frakklandi og Sviþjóð. Aöalhlutverk: Penelope Lamo- ur, Nils Hortzs. Leikstjóri: Frederic Lansac. Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 11. Salur 4 Amerískur varúlfur í London Pað má með sannl segja að þetta er mynd I algjðrum sérflokki, enda gerði John Landls þessa mynd, en hann gerði grínmyndimar Kentucky Fried, Delta klíkan, og Blue Brothers. Einnig lagði hann mikið við að skrifa handrif að James Bond myndinni The Spy Who Loved Me. Myndin fékk Óskarsverðlaun fyrir förðun i mars s.l. Sýnd kl. 5,7 og 11.20 Fram í sviðsljósið (Belng There) (7. mánuður) Grínmynd I algjömm sérflokki. Aðalhlutverk: Peter Sellers, Shirley MacLane, Melvin Douglas og Jack Warden. Leikstjóri: Hal Ashby. íslenskur textl. Sýnd kl. 9.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.