Tíminn - 14.09.1982, Blaðsíða 2
MUÐJCDÁGUR 14. SEPTEMBER 1982
HLÁTURINN
LENGIR
■ Hann Ómar hcfur sagt
okkur öllum að hláturinn lengi
lífið hvort sem menn hlæja
hó-hó-hó eða hí-hí-hí, og dr.
Fry prófessor við Stanford
læknaskólann í Kaliforníu er
alveg sammála honum. „Hlát-
ur er bráðhollur“, segir hann
„og það er vísindalega sannað,
að hláturinn minnkar streitu,
örvar blóðrásina og líkaminn
fær meira súrefni. En fyrst og
fremst er hláturinn andlega
hollur. Óánægja og leiðindi
brjóta menn niður, andlega og
líkamlega og ef hægt er að
hlæja að hlutunum verður aUt
miklu léttara og viðráðan-
legra“.
Vísindamenn hafa séð að
kímnigáfan fékk útrás hjá
mönnum í teikningum á hellis-
veggi fyrir fimm þúsund árum,
og sjálfsagt er hláturinn eldri.
- Hressilegur hlátur er hin mesta heUsubót, segja sérfræðingar.
■ Sagt er að dýrin hlæi. Talað er um hrossahlátur, en þá er vist
oftast átt við stórkarlalegan hlátur manna, en hér sjáum við
ósvikinn hrossahlátur!
MEÐ
bifreið er leigð út í Kalifonrníu
til þeirra, sem hafa ráð á að
lcigja hana. Leigan er 1000
krónur á klukkutímann! Eig-
ÖLLUM ÞÆGINDUM
endur bifreiðarinnar er bfla-
leigan Ultra Limos Inc. í
Anaheim í Kalifomíu.
í þessum bfl er dagstofa með
bar, sjónvarpi og fleiri þægind-
um, og meira að segja er
flísalagt baðkar í farangurs-
hólfinu! Vegna þess að bifreið-
in er rúmir 16 metrar á lengd
eru undir henni sex hjól. Að
innan er allt fóðrað með rauðu
plussi, og gluggarnir eru úr
lituðu gleri, svo ekki sést inn,
þótt fólk geti séð út. A milli
bflstjórasætis og afturhluta
bifreiðarinnar er rúða og
gluggatjald svo farþegar geti
verið í næði.
Meðal frægra manna sem
hafa leigt þessa forláta bif-
reið, er píanóleikarinn Liber-
ace, en hann varð geysilega
hrifinn, og sagði að það væri
engu líkara en aHt hefði verið
innréttað eftir sínum smekk.
Hann elskaði rautt pluss, sagði
hann.
Fyrirsætan Vicki Susoeff,
sem sat fyrir, svo Ijósmyndar-
inn hefði eitthvað meira spenn-
andi að taka myndir af, en
aðeins plussklæddan bflinn,
sagði, að hún hefði verið mest
hrifin af því að fara í bað í
bflnum. A eftir hitaði hún sér
mat í örbylgjuofninum og fékk
sér svo drykk á bamum og
slappaði af við að horfa á
sjónvarp.
Bfllinn er af Cadillac-gerð,
en er sérsmíðaður. Það tók níu
mánuði að smíða „boddíið" og
kostaði það og innréttingin yfir
þrjár mUljónir króna.
■ í baði í skottinu!
■ „Dagstofan“ með sófa, bar og sjónvarpi.
■ Glæsibfllinn er yfír 16 metrar á lengd
og Vicki tekur sig vel út á risastóru
vélarhúsinu.
BÍLL
■ Það er ekki gott að segja
hvort heldur á að kaUa þetta
farartæki lúxusbfl - eða heimili
á hjólum. En þessi stórkostlega