Tíminn - 14.09.1982, Síða 13
12
MUÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 19*2
►RIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
13
f réttaf rásögn (
fréttafrásögn
Átta þúsund manna kór söng Finlandiu eftir Sibelius á Metrodom leikvanginum í Minneapolis.
Vigdís gerir stormandi lukku vestra:
Sturtuvagn
Óska eftir að kaupa sturtuvagn 4ra-5 tonna.
Upplýsingar í síma 91-42076, eftir kl 19 á kvöldin
næstu daga.
Til sölu
hópferðabíll Mersedes Bens tveggja drifa. 33ja
manna árg. 1973.
Vetrar-snjóa- og fjallaferðabíll.
Ólafur Ketilsson sími 99-6136.
■ Skautbúningur Vigdísar vakti mikla athygli. Hér ræðir hún við gesti á hátíðartónleikunum í Orchestra Hall.
„SIGRAÐI BANDARIKIN MEÐ SKAUTBUNINGNUM
77
norsku bladamennirnir í Minneapolis
■ „Heimsóknin hefur verið
mér mikil lífsreynsla sem ég
mun aldrei gleyma. En ég hlýt
að játa, að fyrir Norðurlanda-
búa eins og mig er eitthvað
alveg sérstakt við að koma til
Minneapolis“ sagði Vigdís
Finnbogadóttir forseti íslands í
upphafí ræðu sinnar við opnun
sýningarinnar Scandinavia
Today í Minneapolis en for-
setinn og fylgdarlið hennar
dvaldi í þeirri borg um helgina.
Óhætt er að segja að Vigdís hafi gert
stormandi lukku í Bandaríkjunum, mikið hefur
verið skrifað um hana í blöðum, útvarpið hefur
gert henni góð skil og sjónvarpað var beint
um öll Bandaríkin frá hátíðartónleikum í
Orchestra Hall á laugardagskvöldið. Þar mætti
Vigdís í skautbúningi og sögðu norsku
blaðamennirnir eftir þá tónleika að Vigdís
hefði sigrað Bandaríkin með skautbúningnum.
Vigdís flutti opnunarræðu sína á sýningunni
Scandinavia Today á föstudagskvöldið en á
laugardag var norræn hátíðarsamkoma á
Metrodomleikvanginum í Minneapolis þar sem
mættu 55 þúsund manns og fluttu þar allir
fulltrúar Norðurlandanna ávörp. Meðal atriða
á þeirri samkomu var kórsöngur átta þúsund
manna kórs sem flutti Finlandiu eftir Sibelius
en þessi kór mun vera sá stærsti sem nokkurn
tímann hefur sungið.
Á hátíðatón'leikunum komu fram heimsfræg-
ir skemmtikraftar af Norðurlöndum eins og
Viktor Borge og söngkonan Birgit Nilson en
auk þeirra sungu Fóstbræður. Eftir tónleikana
biðu gestir í anddyri eftir að forsetinn kæmi úr
húsinu og gekk hún til þeirra tók í hendur á
mörgum og átti stutt spjall við suma. Öryggis-
verðir þeir sem gæta eiga forsetans urðu víst
nokkuð taugaveiklaðir vegna þessa en gestirnir
frá sér numdir af hrifningu.
„Fyrst reisa þeir hlöðu....
í opnunarræðu sinni á sýningunni Scandi-
navia Today ræddi Vigdís Finnbogadóttir
nokkuð um norræna innflytjendur til Banda-
■ „Heimsóknin hefur verið mér mikil lífsreynsla sem ég mun aldrei gleyma" sagði Vigdís m.a. í opnunarræðu sinni á
Scandinavia Today í Minneapolis.
Slegið á léttar nótur með hinum einstaka Victor Borge.
ríkjanna en f Minnesota fylki eru fjölmennustu
byggðir norrænna manna í Bandaríkjunum.
Sagði Vigdís m.a.:
„Þið þekkið öll hina sígildu lýsingu á
norrænum innflytjendum hér í Ameríku:
„Fyrst reisa þeir hlöðu. Svo byggja þeir kirkju.
Þessu næst reisa þeir skóla. Og svo byggja þeir
yfir sig“.
Það er vel þess virði að velta þessari lýsingu
fyrir sér. Hún felur í sér skilning á því sem
þessir forfeður okkar settu öðru ofar. Fyrst
kemur starfið sjálft - það þarf að ljúka verkum,
koma uppskerunni í hús, sjá fjölskyldunni fyrir
mat. Næst er að huga að andlegum þörfum.
Síðan komu menntunarþarfir barnanna, upp-
bygging fyrir framtíðina - því það sem
einkenndi þessa landnema öðru fremur, fyrir
utan vinnusiðgæði þeirra og guðsótta, var
virðingin sem þeir báru fyrir menntun, fyrir
lærdómi sem leið til betri skilnings og betri
framtíðar. Og að Iokum var það eins og
munaður eftir á að smíða sér snoturt hús.“
Fjölskyldutré
Undir lok ræðu sinnar sagði Vigdís sfðan: „í
norrænni goðafræði var jörðinni haldið saman
af heimstré miklu sem Yggdrasill hét. Þetta tré
tengdi himinn við jörð. Þetta var hið ævafoma
fjölskyldutré, ekki aðeins Skandinavíu heldur
alls heimsins.
Þetta var Skandinavía fyrri tíma. í Skandina-
víu nútímans sjáum við ávexti fjölskyldutrés
okkar daga. Við sjáum hvernig mannanna
munur í fjölskyldunni hefur skapað ríkulega
margbreytni í menningartjáningu, sem er með
sínum keim hjá hverju okkar. Við erum komin
hingað til Ameríku til að bjóða ykkur,
frændum okkar sem eigið forfeður sem lögðu
af trúmennsku rækt við menningu sína, til að
taka þátt í þessari hátíð, þessari sýningu, lesa
menningarblóm af fjölskyldutré okkar tíma.
Megi það vaxa og blómgast, megi það veita
ykkur ánægju og bömum ykkar og barnabörn-
um.
Ég lýsi sýninguna Scandinavia Today í
Minnesota opna“.
Á sunnudag hélt svo forseti íslands og
fylgdarlið til New York þar sem hún í gærkvöldi
hélt aðalræðuna við opnun Scandinavia Today
þar í borg, í dag, í Lincoln Center.
-FRl/GTK
Við komuna til Minneapolis voru forsetanum afhent blóm. Tímamyndir GTi
, ~ .
í Dansstúdíó er áherslan eingöngu lögö á
hreinan jassballett eins og hann gerist bestur
í heiminum í dag. Þar er boðið upp á 12 vikna
byrjenda- og framhaldsnámskeið fyrir alla aldurs-
hópa frá 7 ára aldri, jafnt konur sem karla.
Innritun:
Reykjavík: Alla virka daga kl. 10-12 og 13-17
í síma 78470.
Akranes: Alla virka daga kl. 9-17 í síma 1986.
Námskeið hefjast 20. september.
Skírteini verða afhent laugardaginn
18. september í kennsluhúsnæðinu að
Brautarholti 6.
í jassballett haldast hollustan og skemmtunin
í hendur.