Tíminn - 14.09.1982, Síða 14
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
I ■ Kaupstefnan íslensk föt ’82
var haldin á Hótel Loftleiöum
dagana 8.-10. sept. sl.
Þátttakendur voru eftirtaldir
framleiðendur:
Nærfatagerðin Ceres hf.
Prjónastofan Iðunn hf.
Sportver hf.
Versmiðjan Dúkur hf.
Sjóklæðagerðin hf.
Scana hf.
R. Guðmundsson
Max hf.
Lexa hf.
Iðnaðardeild Sambandsins
og sýndu þeir haust- og vetrar-
tísku sína.
Tilgangur kaupstefnunnar er,
eins og annarra vörusýninga, að
auðvelda framleiðendum og
dreifendum að stofna til við-
skipta sín á milli. Hér er um
Kaupstefnan
íslensk föt:
■ Það er eins gott að vera hlýlega og vel klæddur fyrir veturínn. Þessar barnaúlp-
ur koma frá Scana hf.
■ Undir vörumerkinu Artemis sýndi
Lexa hf. fallega náttkjóla.
■ Nærfatagerðin Ceres hf. sýndi mikið úrval náttkjóla.
■ Þessi „kappnærföt“ koma frá Sjó-
klæðagerðinni hf. Þau eru t.d. mjög
hentug í útilegur, því oft er nauðsynlegt
að Idæða sig hlýlega ofan i svefnpokann.
augljóst hagræði fyrir innkaupa-
aðila að ræða, þar sem saman
eru komnir helstu framleiðendur
fatnaðar á einum stað og hægt
að gera kaup hjá mörgum, án
þess að því fylgi nokkur ferðalög
á milli staða. Sama má segja, að
gildi fyrir framleiðenduma , þar
sem þeir fá til sín fjölda
innkaupaaðila og spara þannig
söluferðir.
Félag íslenskra iðnrekenda
hefur frá upphafi staðið fyrir
kaupstefnunni fyrir hönd ís-
lenskra fataframleiðenda og er
framkvæmdastjóri kaupstefn-
unnar ÍSLENSK FÖT 82 Þórar-
inn Gunnarsson, skrifstofustjóri
F.Í.I.
Að sögn Þórarins er Félag
íslenskra iðnrekenda nú með
auglýsingaherferð í gangi til að
hvetja landann til að kaupa
íslenskan iðnvarning framar út-
lendum, enda reynist hann
fyllilega sambærilegur, hvað
varðar útlit, gæði og verð.
Herferð þessi fer fram í formi
sjónvarpsauglýsinga, í útgáfu
plakats og límmiða, sem aðilar
Félags íslenskra iðnrekenda líma
á póst sinn. Er þessi herferð
■ Prjónastofan Iðunn sýndi marga
fallega prjónakjóla.
■ Meðal þess, sem Dúkur hf. sýndi,
var þetta voðfellda pils og blússa við.
Notalegt á nöprum vetrardögum.
nokkurs konar undanfari annarr-
ar stærri, sem fyrirhuguð er á
næsta ári, en þá verður félagið
50 ára og hyggst þá minna
hressilega á tilvist sína.
■ Iðnaðardeild Sambandsins sýndi margvislegan fatnað.
Acta-skó. Einnig notalegar úlpur.
s.s. DufTy’s buxur og
(Tímamyndir: GE)