Tíminn - 14.09.1982, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
fþróttir
Enska knattspyrnan:
Mikid af mörkum
Watford f efsta sætið eftir 3-0 sigur á WBA. Liverpool og Luton gerðu jafntefli 3-3
Celtic efstir
■ Helstu úrslit í Skotlandi um
helgina urðu þau, að Celtic sigraði
St. Mirren og eru nú einir í efsta sæti
úrvalsdeildarinnar. Le\ Richardsson
skoraði fyrst fyrir St. Mirren, en
Charlie Nicholas skoraði tvö mörk úr
vítaspyrnum. Celtic leika gegn holl-
ensku meisturunum Ajax í Evrópu-
keppni meistaraliða á miðvikudag.
Dundee United og Rangers gerðu
markalaust jafntefli.
Aberdeen sigruðu Morton 4-1 og
skoruðu Gordon Strachan, Eric
Black, Peter Weir og John Hewitt,
en John McNeUI skoraði fyrir
Morton.
Lið Jóhannesar Eðvaldssonar
MortherweU undir stjórn Jock WaU-
ace töpuðu fyrir Dundee 1-3.
Eftir tvær umferðir í Skotlandi
hefur Celtic tekið forystu, hefur
Ijögur stig, en Dundee United hefur
þrjú stig, en önnur félög minna.
■ Norman Whiteside, 17 ára íri hefur skorað fjögur mörk fyrir Manchester United.
Hann er til hægri á þessari mynd.
Coventry. Síðara mark leiksins skoraði
svo Tony Woodcock, þannig að báðar
nýju stjörnurnar hjá Arsenal voru í
sviðsljósinu á laugardag.
Norman Whiteside, Norður-frinn
ungi hjá Manchester United skoraði tvö
mörk fyrir félag sitt gegn Ipswich á
laugardag og hefur hann því skorað
fjögur mörk í fyrstu fimm leikjum
deildarkeppninnar. Steve Coppel skor-
aði eitt mark fyrir United og Paul
Mariner gerði eina mark Ipswich.
í Norwich léku heimamenn gegn
Southampton og urðu leikmenn Nor-
wich fyrri til að skora og var það John
Deehan sem sá um að skora úr
vítaspyrnu. Einn skæðasti sóknarmaður
liðsins Keith Bertschin hafði þá verið
borinn af velli, er hann fékk skurð á
höfuðið. Það var svo David Armstrong
sem jafnaði fyrir Southampton.
Notts County sigraði Everton er þeir
skoruðu eina mark leiksins. Það var
Rachid Harkouk sem skoraði úr víta-
spyrnu sem hann fískaði sjálfur. Þrátt
fyrir ósigurinn þóttu leikmenn Everton
leika vel, en þeim tókst ekki að forða
ósigri.
Swansea fékk að finna fyrir því í Stoke
er þeir töpuðu fyrir frísku liði heima-
manna með fjórum mörkum gegn einu.
Eina mark gestanna varð fyrsta mark
leiksins og var Bob Latchford^gamla
kempan þar á ferð. En Adam var ekki
lengi í Paradís og fyrir hálfleik voru
Stoke komnir yfir
Fyrst skoraði Dave Watson, síðan
Mickey Thomas,welski landsliðsmaður-
inn og þannig var staðan í hálfleik 2:1.
í síðari hálfleik skoraði Dai Davis
sjálfsmark og loks skoraði Paul Maguire
úr vítaspyrnu. Þeir virðast ekkert hika
við að dæma vítaspyrnur ensku dómar-
arnir þessa dagana.
Manchester City heimsóttu Totten-
ham á White Hart Lane og fóru heim
aftur með þrjú stig í farangrinum. í
markinu hjá Manchester City var Alex
Williams í stað Joe Corrigan sem
meiddist á síðasta laugardag. Þótti
Williams verja mjög vel. Það var
Graham Baker sem skoraði bæði mörk
Manchester City, en fyrrverandi Crystal
Palaceleikmaðurinn Gary Mabbut skor-
aði fyrir Spurs undir lok leiksins.
Stórsigur West Ham.
í London léku einnig West Ham og
Birmingham og unnu heimamenn þar
stórsigur. Þeir skoruðu fimm mörk, en
gestunum tókst ekki að svara. Leikmenn
West Ham skiptu þessum fimm mörkum
jafnt á milli sín. Það voru Hollend-
ingurinn Van der Elst, Paul Goddard,
Alvin Martin, Ray Stewart og Sandy
Clark sem sáu um að skora. Stewart
skoraði sitt mark úr vítaspyrnu. Alan
Devonshire þótti leika hreint frábærlega
á miðjunni hjá West Ham og leikmenn
Birmingham höfðu alls ekki í fullu tré -
við hann.
Leiknum sem var á getraunaseðlinum
á laugardag úr 2. deild, lauk með sigri
QPR, en þeir skoruðu eina mark leiksins
á útivelli gegn Oldham Athletic.
Leicester vann stórsigur á Carlisle 6-0
og þar skoruðu tveir leikmenn þrennu
eða „hat trick“ Steve Lynex og Gary
Lineker.
Úrslit í öðrum leikjum í 2. deild urðu
sem hér segir:
Burnley-Rotherham...............1:2
Cambridge-Charlton .............3:2
Crystal Palace-Blackburn .......2:0
Derby-Middlesbrough ............1:1
Fulham-Bolton...................4:0
Grimsby-Shrewsbury .............2:0
Leicester-Carlisle..............6:0
Newcastle-Chelsea...............1:1
Oldham-QPR......................0:1
Sheff.Wed.-Leeds ...............2:3
Wolves-Barnsley.................2:0
Úlfarnir tróna nú í efsta sæti annarar
deildar og svo virðist sem þeir hyggist
endurheimta stöðu sína í þeirri fyrstu,
enda lét nýi stjórnarformaðurinn þeirra
■ Jóhannes Eðvaldsson og félagar
töpuðu um helgina. Hér er hann í
leik með Celtic gegn Val.
■ Luton Town þurfti að nota hvorki
meira né minna en þrjá markmenn í
viðurejgninni gegn meisturum Liverpool
á laugardag. A 40. mínútu leiksins
meiddist Findlay markvörður og stöðu
hans tók Kirk Stephens. En hann hóf
ekki leikinn í síðari hálfleik. Þá fór írski
varnarleikmaðurinn Mal Donaghy í
markið og lék til leiksloka. En þrátt fyrir
þessi markvarðavandræði Luton náðu
þeir jafntefli gegn Liverpool á Anfield.
Fyrsta mark leiksins skoraði Brian
Stein, en Graeme Souness jafnaði
skömmu síðar. Rétt fyrir lok fyrri
hálfleiks skoraði svo Ian Rush annað
mark Liverpool og þannig var staðan í
hálfleik.
Luton jafnaði svo með marki David
Moss á 52. mínútu og 10 mínútum síðar
kom Brian Stein gestunum yfir í
annað sinn í leiknum. En síðasta orðið
átti svo Craig Johnstone, er hann
skoraði fyrir Liverpool. Hann og Brian
Stein eiga það sameiginlegt að vera
ættaðir frá Suður-Afríku.
Fjörugur leikur á Anfield og sex
mörk og það var einkenni á leikjum 1.
deildarinnar, að mikið var skorað af
mörkum, alls 41.
Watford í efsta sæti.
Watford, liðið hans Elton John heldur
sínu striki og með góðum sigri á WBA
komu þeir sér fyrir í efsta sæti
deildarinnar, með betri markatölu en
Manchester liðin tvö. Öll hafa þessi lið
12 stig. Luther Blisser skoraði tvö mörk
fyrir Watford og Les Taylor skoraði eitt
mark. Félagið hefur náð frábærum
árangri, hefur komist á fimm árum úr
neðri hluta fjórðu deildar í 1. sætið í 1.
deild.
Lið Aston Villa sem ætlaði að ganga
illa að komast í gang virðist ganga á
■ Ross Jenkins hefur leikið með
Watford í öllum deildunum fjórum í
Englandi og nú trónir félag hans í
efsta sæti í 1. deild.
öllum þessa dagana. Þeir unnu sinn
fyrsta leik í vikunni og á laugardag unnu
þeir stóran sigur á Nottingham Forest.
Peter Withe skoraði tvö mörk, en
Dennis Mortimer og Gordon Cowans
skoruðu eitt mark hvor. Cowans úr
vítaspyrnu. John Robertsson skoraði
eina mark Forest úr vítaspyrnu og Ian
Bowyer fyrirliða Nottingham Forest var
vfsað af leikvelli í síðari hálfleik.
Brighton, sem var tveimur mörkum
undir í hálfleik tók sig heldur betur á í
síðari hálfleiknum og sigruðu með
þremur mörkum gegn tveimur gegn
Sunderland. Stan Cummins og Ally
McCoist skoruðu fyrstu tvö mörkin fyrir
Sunderland, en Gordon Smith, Gerry
Ryan og Tony Grealish skoruðu hver sitt
markið, en þau komu öll á 22 mínútna
kafla í byrjun hálfleiksins.
Stjörnurnar skoruðu fyrir Arsenal.
Lee Chapman skoraði á laugardag sitt
fyrsta mark fyrir Arsenal í leik gegn
■ Brian Stein, leikmaður í liði Luton Town gerði
.það gott í leik gegn Liverpool á laugardag, en þá
skoraði hann tvö mörk gegn
Englandsmeisturunum í 3-3
jafnteflisleik.
■ Mickey Thomas skoraði fyrir Stoke City gegn Everton. Þessi enski
landsliðsmaður, sem lék áður með Brighton er hér á fullri ferð í leik gegn Nottingham
For.
Derek Dougan þá fyrirætlun félagsins í
Ijós.
Southampton .... 5 1 1 3 3 12 4
Ipswich..........5032 5 3 3
Birmingham.......5014 2 17 1
Staðan
1. DEILD:
Watford.......... 5 401 1 312
Man. Utd.........540112 5 12
Man. City .......5401 6 312
Liverpool........5320 1 6 11
W.B.A............5302 11 6 9
Stoke ........... 5 3 0 2 10 7'9
Notts Co......... 5 2 2 1 6 6 8
West Ham.........5212 9 4 7
Tottenham........521212 8 7
Swansea .........5212 8 7 7
Sunderland.......5212 7 6 7
Coventry.........5212 4 5 7
Brighton.........5212 412 7
Everton..........5203 9 6 6
Nott. For........5203 10 12 6
Aston Villa .....5203 9 11 6
Norwich ............5122 3 9 5
Luton............5 1 2 2 11 14 5
Arsenal..........5113 4 6 4
2. DEILD:
Wolves...............5320 9 1 11
Grimsby ..........4 3 1 0 11 3 10
Q.P.R............. 5 3 1 1 3 4 10
Sheff. Wed...........4301 11 5 9
Fulham............4220 7 2 8
Cryst. Pal........4220 7 4 8
Leeds.............4220 5 3 8
Newcastle ...........5221 6 6 8
Leicester............5212 11 5 7
Burnlcy..............4211 9 4 7
Chelsea..............5131 3 3 6
Rotherham.........5131 7 8 6
Oldham............4121 3 3 5
Cambridge.........5113 6 9 4
Bolton...............4112 4 8 4
Derby................4112 3 8 4
Bamsley .............4031 3 5 3
Carlisle.......... 4 1 0 3 6 13 3
Blackburn ........5104 512 3
Charlton..........4103 412 3
Middlesbro........4022 4 9 2
Shrewsbury .......4004 1 6 0