Tíminn - 14.09.1982, Qupperneq 16

Tíminn - 14.09.1982, Qupperneq 16
16______ tþróttir LlS'A ) ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 Dásamleg tilfinning ■ „Þetta er dásamleg tiltínning," sagöi Stefán Haildórsson miðvörður Víkinga eftir leikinn gegn ÍA og þegar fyrir lá að Víkingar eru Islandsmeistarar í knattspymu 1982. „Þegar ég byrjaði að æfa í janúar, bjóst ég ekki við þessu. Ég vissi að það væri erfitt að vera meistari tvö ár í röð og því kom þetta mér á óvart. Og það í þessari stöðu. Ég var vanari að spila frammi og skora mörk, en í sumar hef ég bara skorað eitt. Ég hef orðið íslandsmeistari í mll. í handbolta, en aldrei fyrr í fótboltanum. Og ég skal scgja þér, að þetta er bara upphafið á ferlinum. Aila vega í þessar stöðu.“ Aðspurður um hvort mótið hefði verið erfitt sagði Stefán: „Það var mikil pressa frá því í tapleiknum gcgn Fram og það má segja, að það hafi verið mikil pressa á liðinu í allt sumar. Skagamenn vildu í dag sýna að þeir gætu unnið okkur og að þeir væru bestir. Þetta var því mjög erfiður leikur.“ * Frábær þjálfari ■ „Við hefðum átt að geta gert út um þctta,“ sagði Ómar Torfason fyrirliði Víkings þegar hann var spurður út í leikinn gegn IA. „En það var mikil pressa á okkur. Við áttum tvö dauðatækifæri í síðari hálfleik. Hvernig liefur þér fundist mótið? „Þetta hefur verið mjög erfitt og mikil pressa á okkur seinni hluta mótsins. En þetta er þriðji titilinn hjá okkur á sumrinu og það þakka ég góðri liðsheild og frábærum þjálfara Júrí Sedov.“ Hcfur þetta verið svipað og í fyrra? „Nei, þetta hefur verið miklu erfiðara. Allir viija vinna meistarana og ég held að liðið sé betra núna en í fyrra. í þessum leik t.d. áttum við að leika varlega og ekki taka neina áhættu. Það gerðum við og okkur tókst að vinna mótið.“ ¥ Þór I 1. deild ■ Þór frá Akure^ ri gulltryggðu sér 2. sætið í 2. deilo íslandsmótsins í knattspyrnu um helgina, og uin leið sæti í 1. deild að ári er þeir sigruðu Skallagrím frá Borgarnesi með þremur mörkum gegn tveimur á Akureyrarvelli. Þórsarar og Þróttur R. taka því sæti KA og Fram, en úrslitin á Akureyri um helgina urðu til þess að Skallagrímur féll í 3. deild ásamt Þrótti N. Þórsarar voru mjög vel að þessum sigri komnir, því þeir hefðu átt að geta skorað fleiri mörk en þau þrjú er þeir gerðu. Þeir komust í 1:0 með marki Óskars Gunnarssonar á 32. mínútu og á síðustu mínútu fyrri hálfleiks bætti Hafþór Helgason öðru við eftir góðan undirbúning Halldórs Áskelssonar. Óskar Gunnarsson jók svo muninn í 3:0 í upphafi síðari hálfleiks með góðu marki Eftir þetta dofnaði fyrir Þórsur- um, og Skallagrímur skoraði tvö mörk, Gunnar Jónsson og Bergþór Magnússon. En fleiri urðu mörkin ekki,- og hefði Þór reyndar nægt jafntefli til að komast í 1. dcildina. gk Akureyri ¥ Úrslit: ■ Úrslit annarra leikja í 2. deild um helgina urðu sem hér segir: Reynir - Þróttur N.... 1-0 FH - Völsungur ....... 2-0 Einherji - Njarðvík.. 1-1 Jóhann Þorvarðarson er hér í besta tækifærinu sem gafst í leik Víkings og en honum tókst samt ekki að skora. Tímamynd: Ella. VIKINGAR HOFÐU ÞAÐ! Urðu íslandsmeistarar annað árið í röð. Gerðu jafntefli við ÍA ■ „Góð liðsheild og góður þjálfari er ástæða þess að við erum nú orðnir íslandsmeistarar annað árið í röð,“ sagði Omar Torfason fyrirliði Víkings að loknum leik Víkings og IA, sem var síðasti leikurinn í 1. deild í ár og þar var skorið úr um að framhald verður á viðdvöl Islandsbikarsins í félagsheimili Víkings við Hæðargarð. Leikurinn á sunnudag var í sjálfu sér ekki glæsilegur á að horfa, enda aðstæður til knattspyrnuiðkana með allra versta móti. Mikið hafði rignt fyrir leikinn og stór svæði á Laugardalsvell- inum voru undir vatni er leikurinn hófst. Þrátt fyrir þetta brá við og við fyrir laglegum tilþrifum leikmanna beggja liða, en aðstæður komu í veg fyrir að þessi leikur gæti orðið sá endapunktur íslandsmótsins sem æskilegur hefði talist. 1 leiknum var frckar fátt um opin færi, en þó hefðu bæði liðin átt að geta gert út um leikinn, en heppnin var með varnarmönnum beggja liða. Þannig átti Gunnar Gunnarsson skot á Akranesmarkið úr góðu færi, en varnarmenn ÍA björguðu vasklega á línu. Tveimur mínútum síðar kom góð sending frá hægri að merki V íkings og á kollinn á Sigþór Ómarssyni, sem skallaði laglcga yfir Ögmund Víkings- markvörð sem kom út á móti, en aðeins of hátt og ofan á þvcrslá! Á 14. mínútu fékk Sigþór svo knöttinn inni í vítateig Víkings, náði að taka hann niður í rólegheitum og lét skot ríða af, en rétt yfir þvcrslá. Fimm mínútum síðar var síðan tekið horn, Ómar Torfason skallaði á Sverri Her- bertsson sem skaut framhjá marki Skagamanna. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks var Guðbjörn Tryggvason kominn vel áleið- is einn inn að marki Víkings, en það var brotið á honum og dæmd aukaspyrna. Hefði ekki verið brotið á Guðbirni í þessu tilviki, hefði hann átt greiðan aðgang að merki Víkings. Ög rétt á eftir var töluvert hnoð í vítateig Víkings og það endaði með því að knettinum var rennt út á Sigþór, sem skaut, en Ögmundur Kristinsson örugg- ur Víkingsmarkvörður varði. Fátt gerðist verulega markvert í síðari hálfleik, ef undan eru skilin tvö mjög góð marktækifæri sem Jóhann Þor- varðarson fékk og hann hefði átt að geta skorað úr í bæði skiptin. f fyrra skiptið átti Ómar Torfason sendingu fyrir ÍA-markið á Heimi, sem sendi knöttinn á Jóhann sem skaut úr opnu færi, en beint á Bjarna Sigurðsson, sem lék aftur í marki ÍA eftir alllangt hlé. Einni mínútu síðar fékk Jóhann knöttinn svo aftur inn í teig, en var of lengi að athafna sig, þannig að vörnin gat forðað slysi. Að lokum má nefna að Sveinbjörn gaf á 22. mín. mjög góða sendingu á Sigþór, sem skallaði fyrir opnu marki, en framhjá. Bæði liðin voru greinilega ákveðin í að tapa ekki þessum leik. Víkingar voru mjög varkárir í leik sínum og mið- uðu allt við að tryggja sér titilinn með jafntefli. Það tókst þeim nokkuð vel. En hins vegar var leikurinn ekki nógu skemmti- legur fyrir bragðið. En lið spila ekki fyrir áhorfendurna í úrslitaleik um meistara- titilinn. Bestu menn í jöfnu —Víkingsliði voru Ögmundur, Stefán Halldórsson, sem er á góðri leið með að verða einn albesti miðvörður í íslenskri knatt- spyrnu. Á miðjunni er Ómar alltaf traustur oe í framlínunni sýndi Heimir ofl á tíðum laglega takta. Bestur í liði ÍA var Sigurður Jónsson. Það er með ólíkindum hversu vel honum gengur að komast áleiðis gegn gamal- reyndum jöxlum í knattspyrnunni. Hann hefur næmt auga fyrir samleik og á stundum gefur hann sendingar sem full ástæða er til að klappa fyrir. Bjami Sigurðsson skilaði hlutverki sínu einnig vel. Leikinn dæmdi Óli Ólsen. Hann dæmdi ekki vel og hefði að ósekju mátt hafa meira jafnvægi í „litaspjalda notkun“. í fyrri hálfleik sleppti hann Víkingum við spjöld vegna brota, sem voru síst vægari en það sem hann veitti t.d. Sigurði Jónssyni spjald fyrir í síðari hálfleik. Dómarar mega ekki láta geðþótta ráða hverjir verði fyrir spjöld- unum, heldur þarf að láta sama yfir alla ganga, alltaf. Að lokum. Víkingar hafa sýnt mest jafnvægi íslenskra liða í sumar og því getur sigur þeirra ekki talist vera annað en sanngjarn. Til hamingju Víkingar! sh Hér bíða íslandsmeistarar Víkings þess að veita viðtöku íslandsbikarnum í knattspyrnu annað árið í röð. Tímamynd: EUa ■ Omar Toriason hampar hér íslandsbikamum i knattspyrnu. Við hlið hans stendur Yuri Sedov þjálfari Víkinga. Tímamynd: EUa

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.