Tíminn - 14.09.1982, Side 24

Tíminn - 14.09.1982, Side 24
Opiö virka daga 9-19. Laugardaga 10-16 HEDD" Skemmuvegi 20 • Kópavogi Simar (91)7 75-51 & 7-80-30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgð á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs Gagnkvæmt tryggingaféJag labnel HÖGGDEYFAR GJvarahlutir Armiila 24 Sími 36510 MARGIR REKA UPP STÓR AUGU - „SntÆTÓ” (EYJUM” rætt við Georg Stanley Aðalsteinsson, bifreidastjóra, sem fengið hefur leyfi til reksturs strætisvagna í Vestmannaeyjum ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPT.1982 ■ „Menn fengu líka krampa af hlátri þegar ég byrjaði að keyra leigubíl hér í Vestmannaeyjum árið 1974. En málið var nú bara það, að ég varð að fela bflinn til að geta lagt mig einstöku sinnum. Eg sagði alltaf að það væri full þörf fyrir 4 bfla og var alltaf að biðja hina og þessa - sem hörðu meirapróf - að koma og keyra. AUir hlógu sem endaði með því að ég hreinlega gafst upp, það var svo mikið að gera. En hvað er orðið núna? Það eru fimm leigubílar“, sagði Georg Stanley Aðalsteinsson, stýrimað- ur og bílstjóri í Vestmannaeyjum. En Tíminn hafði tal af honum vegna þess að hann hefur nú fengið leyffi fyrir rekstri strætisvagna í Eyjum, sem ýmsir efast um að rekstrargrundvöllur sé fyrir þar. „Já það eru margir sem reka upp stór augu þegar ég tala um að reka “strætó" í Eyjum. En þetta er þó orðinn 4,700 manna bær. Að vísu eru um 1.300 bílar á skrá hér, en bæði eru þeir nú ekki allir í gangi og yfirleitt ekki nema einn á hverju heimili, sem karlinn hefur yfirleitt, og síðan verður allt hitt liðið að labba“, sagði Stanley. „Mörgum, sem ég hef talað við líst líka vel á þetta og telja það þarfa þjónustu. Enda hefur það verið svo undanfarin ár að stöðug pressa hefur verið á mér af fólki sem biður mig að drífa mig í þetta aftur". „Aftur, já ég hef prófað þetta áður. Keypti 10 ára gamlan vagn af Strætisvögnum Reykjavíkur 1965, eins og ég ætla að gera núna. En þá fékk ég bara aldrei leyfi og varð því að hætta. Þegar nýja bæjarstjórnin tók við hugsaði ég með mér að nú væri upplagt tækifæri, og hef nú fengið leyfi. Nei, Ikarus kaupi ég alls ekki, m.a. vegna þess að í þá er engin varahlutaþjónusta. Með Volvo eða Bens er það ekkert vandamál. Og þetta eru góðir bílar, því vögnunum hjá SVR er lagt löngu áður en þeir eru raunverulega út keyrðir, einfald- lega vegna þess að menn fást ekki til að keyra þá lengur þegar þeir fara að verða gamlir. Gamli Volvoinn - frá 1955 - lifir enn góðu lífi. Þeir sem eiga hann núna eru búnir að nota hann sem ferðavagn - og sumarbústað - um allt land á hverju sumri í mörg ár.“ Nú hyggst Stanley kaupa 2 notaða vagna af SVR sem hann hefur hugsað sér að fari hring um bæinn hvor á móti öðrum á hálftíma fresti, frá morgni til miðnættis. Leiðina er hann búinn að sjá út í grófum dráttum en ætlar að fá Pál Zóphóníasson til að útfæra hana nánar. „Kerfi þykja ekki góð nema að þau séu uppáskrifuð af einhverjum tæknimanni". Spurður um áætlaðan farþegafjölda sagði Stanley: „Fólk hrekkur að vísu í kút þegar ég segist gera ráð fyrir að fá 400 farþega í bílana að meðaltali á dag. En það er t.d. um 80 manns sem vinnur orðið úti í Eyði, og það eru hundruð manna sem vinna í frystihús- unum, og ég geri ráð fyrir að þau vilji heldur semja við mig um mánaðar- þjónustu heldur en að þurfa hvert og eitt að reka bíla og binda menn yfir þeim fyrir 4 ferðir á”dag“. En geta netasjómennirnir t.d. notað sér þessar ferðir? „Annaðhvort er að veita þjónustu eða ekki. Á vertíðinni fer maður bara kl. 3 á nóttunni og lætur vagninn ganga til kl. 5, þar er sjóaratíminn. Og vel að merkja eru það mörg hundruð sjóarar sem labba eða aka niður á bryggju á nóttunni. Eins og nú er yfir vertíðina eru bryggjurnar hlaðnar af bílum á morgnana, sem konurnar verða síðan að labba niður eftir að sækja um 9-10 leytið á morgnana.“ - HEI ■ Georg Stanley Aðalsteinsson sem nú hefur fengið lcyfi fyrir rekstri strætisvagna í Vestmannaeyjum. Tímamynd: GS-Eyjum. fréttir Hörkuárekstur í Artúnsbrekku: Fernt flutt á slysa- deild. ■ Fernt var flutt á slysa- deild, þ.á.m. stúlka alvar- lega slösuð, eftir hörku- árekstur, sem var í gömlu Ártúnsbrekkunni á fjórtánda tímanum í gær. Þrír bílar komu við sögu í árekstrinum, Toyota- fólksbíll, strætisvagn og vörubíll frá Steypustöð- inni. Þau sem flutt voru á slysadeild voru öll í Toyot- unni. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík, var ökumaður strætisvagnsins að hleypa vörubílnum af gamla mal- arveginum, sem liggur að Steypistöðinni inn á Ár- túnsbrekkuna. Rétt í því kemur Toyotan á móti strætisvagninum og öku- maður vörubílsins varð hennar ekki var. Það skipti engum togum, vörubíllinn og Toyotan lenda saman af miklum krafti og við það kastast Toyotan í strætis- vagninn. Toyotan er talin gerónýt eftir áreksturinn. - Sjó. Kosiö til Búnaðarþings ■ Kosning til Búnaðar- þings fór fram í V.-Húna- vatnssýslu fjórða septem- ber s.i. Tveir listar voru í kjöri, A-listi, sem hlaut 60 atkvæði og B-listi, sem hlaut 36 atkvæði. Mun því Sigurður J. Líndal á Lækjamóti sitja Búnaðar- þing fyrir hönd V.-Hún- vetninga. Varamaður hans er Gunnar Sæmundsson á Hrútatungu. - Sjó. dropar Sigurjón 4 - Áslaug 3 ■ Á fundi Fræðsluráðs Reykjavíkur í gær voru loks greidd atkvæði með hverjum þriggja umsækjenda um stöðu fræðslustjóra í Reykjavík væri mælt með til menntamálaráð- herra. Lyktir urðu þær að fjórir ráðsmenn lögðu til að Sigurjón Fjeldsted, skólastjóri í Hólabrekkuskóla, hlyti hnossið, en þrír voru því meðmæltir að Áslaug Brynjólfsdóttir, yfirkennari Fossvogsskóla, hreppti stöð- una. Atkvæðagreiðslan gekk þó ekki þrautalaust fyrir sig. Hún hófst með því að Þorbjörn Broddason óskaði þcss að atkvæðagreiðslan yrði leyni- leg. Varð orðið við því. Hins vegar var deilt um það hvort aðeins ætti að greiða atkvæði um þá tvo umsækjendur sem tillögur höfðu verið gerðar um, þ.e. Áslaugu og Sigurjón, eða hvort Bessí Jóhanncsdótt- ir fengi að fljóta þar með. Ekki urðu ráðsmenn á eitt sáttir um hvaða hátt ætti að hafa á þessu, og varð ekki endanlega úr málinu skoríð fyrr en Jón G. Tómasson, borgarlögmaður, hafði kveðið upp úrskurð sinn. Samkvæmt heimildum Dropa mun hann hafa taUð aö ekki væri rangt að greiða aðeins atkvæði um þá um- sækjendur sem tillögur höfðu veríð gerðar um. Eftir nær hálftíma stapp var því hægt að greiða atkvæði, og lyktir atkvæðagreiðslunnar urðu þær sem getið var hér að framan. Enn skal þess getið að Fræðsluráð er aðeins um- sagnaraðili um hver ráðinn verður í stöðu fræðslustjóra í Reykjavík, en síðasta orðið á Ingvar Gíslason, mennta- málaráðherra. Af atkvæðatölunum má hins vegar ráða að sjálfstæðismenn hafa fylkt sér um Sigurjón og skUið Bessí eftir úti í kuldan- um. Fulltrúar minnihlutans, þ.m.t. Bragi Jósefsson, hafa hins vegar greitt Áslaugu atkvæði sitt. Krummi ... ..les þær fréttir frá Banda- ríkjaheimsókn Vigdísar, að 8000 manna kór hafi sungið í Minncapolis. Hvað skyldu þeir vera stórir í Texas...?

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.