Tíminn - 14.10.1982, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1982
: Umsjón: B.St. og K.L.
SJOMAÐUR FERI
FRÍ MEÐ STÚLKU
■ Undanfarna daga
hefur mátt sjá frásagnir
af því, að mikið hafí
gengið á í Bretlandi
vegna þess, að Andrew
prins leyfði sér að fara í
sólarfrí til Karíbahafsins
með ungri stúlku. Mar-
grét prinsessa frænka
Andrews, á bústað á
eyjunni Mustique í
Karíbahafínu, og henni
hefur sjálfsagt þótt ungi
frændinn eiga skilið að
fá að taka sér gott frí eftir
vosbúð og hættur Falk-
landseyjastríðsins, og
lánað honum lykilinn.
Andrew hefur að undan-
förnu ált vinkonu, sem meira
■ Þessi mynd var tekin af „frú Cambridge“ (Koo Stark) þegar
hún var aö fara til Mustique í Karíbahafi með prinsinum.
að segja hann hafði boðið til
Balmoral-hallarinnar yfir
helgi, og nú fóru þau saman í
frí, - eins og ungt fólk gerir um
allan heim. En það er víst ekki
það sama hver í hlut á, því að
bresku blöðin fóru bara „á
hvolf“ eins og sagt er, vegna
þess að stúlkan hafði leikið í
nektarkvikmynd, svo þetta
þótti þeim konunghollu Bret-
um ekki nógu gott.
Vonandi hefur unga fólkið
eytt þarna góðum og skemmti-
legum dögum á Karíbahafinu.
og kannski fara þeir að jafna
sig þama í Fleet Street, og
hætta að æsa sig út af
prinsinum. Hann var tekinn
eins og hver annar sjómaður -
eða réttara sagt flugmaður - í
átökunum við Falklandseyjar,
og ætti því að mega lifa lífi eins
og hver annar ungur maður,
sagði í einu bresku blaði.
Sá blaðamaður bætti við, að
mikill væri sá munur, sem
orðinn væri á blaðaheiminum
i Bretlandi frá því að prinsinn
af Wales (Edward VIII) fór í
frí með hinni fráskildu frú
Wallis Simpson árið 1936. Þá
minntust bresku blöðin ekki á
neitt, - ekki eitt einasta blað -
fyrr en málið hafði verið gert
opinbert, en sem sagt nú
keppast blöðin í Englandi við
að birta myndir og skrifa
slúðursögur af svipuðu tilefni.
Koo Stark - þessi mynd birtist á forsíðum sumra blaðanna
í Englandi nú síðustu dagana en hún er tekin úr kvikmynd, sem
Koo lék í fyrír nokkrum ámm.
BERAXLAÐAR
FÍNAR KONUR
ÍNEWYORK
■ Kimberly Farkas heitir
þessa firía axlabera dama. Hún
er í vínrauðum taft-kjól, hlíra-
lausum, eftir Arnold Scaasi.
■ Nú er byrjaður sam-
kvæmistíminn víða um
heim jafnt í Reykjavík
og New York. Nýjar
myndir frá N.Y. sýna að
kvöldkjólarnir þar eru
mjög íburðarmiklir og
glæsilegir. Mikið er um
hlíralausa kvöldkjóla, og
er sú tíska oft kennd við
Díönu Bretaprinsessu.
Myndir af henni í hlíra-
lausa kjólnum, sem
hneykslaði suma Breta,
bárust víða um heim og
vöktu hrifningu.
ítalskir hönnuðir gera lukku
í New York, og þessir
samkvæmiskjólar, sem við
birtum myndir af, eru eftir
tískuteiknara Arnold Scaasiog
Valentino, - en ekki er talað
um verðið á kjólunum, en það
er líklega ekki fyrir nema fáa
útvalda að ráða við.
■ Perlubróderaður hlíralaus kjóll með mörgum pífum eftir
tískukónginn Valcntino.
Petula Clark
er alveg
rasandi reið
■ Lcikkonan og söngkonan
Petula Clark er fjúkandi vond
ól í ævisöguritarann, sem tók
|að sér að skril'a uin lif hennar.
Rithöfundurinn Andrea Kon
liefur unnið að undanförnu
að bókinni, og liafði niiirg
viðtöl við söngkonuna og
kynnti sér líf hennar.
Þegar svo Petula sá handrit-
ið varð hón hoppandi vond.
Andrea segir að hón hafi viljað
láta sleppa nokkrum köflum,
sein henni líkaði ekki við. Þar
var minnst á ýmsa athuröi seni
hón rildi auðsjáanlerga helst
gleyma, sagði Andrea, en
bætti svo við: „Ég ætla ekki að
fara að breyta bókinni svo
Petula geti komið fyrir al-
inenningssjónir eins og ein-
hver engill. Hún er vissulega
mannleg eins og við öll.
Bókin á að koma út næsta
vor og bera titilinn „This is my ® Petula Clark hótar ævi-
song“, eins og vinsælasta lagið söguritaranum málssókn.
hennar.
Petula Clark og maður málssókn, ef rithöfundurinn
!
hennar Claus Wolff hafa hótað breyti ekki handritinu.
Hver er mest
á sprettinum
■ Samkvæmt þýskri rann-
sókn, þá gcngur götulögreglu-
þjónn. sem vinnur sína vakt á
fullu. ekki eins langa vega-
lengd og hósmóðir á meðal-
heimili stiklar um i eldhósinu.
Lögregluþjónninn mældist
ganga 4.2 milur á dag, en
hósmóðirin gekk 5.78 mílur á
dag. Bæði voru þau með mæli.
sem sýndu spor þeirra. Þó átti
pósturinn metið, því að hann
gekk 12 mílur á dag, - en á
hæla honum kom svo þjónn á
matsöluhúsi, þar sem mikið
var að gera, en hann hafði lagt
að haki 11 mílur að loknum
vinnudegi.