Tíminn - 14.10.1982, Síða 7

Tíminn - 14.10.1982, Síða 7
FIMMTUDAGUR 14. OKTOBER 1982 Hverfisteinar Rafdrifnir hverfisteinar 220 volt. Steinninn snýst 120 snúninga á mínútu í báðar áttir. Verð kr. 1.728.- m/söluskatti. Sendum hvert á land sem er. ™ * u VELAVERSLUN Ármúli 8, 105 Reykjavík. S: 8-5840 erlent yfirlit Kosið aftur í Hamborg 19. desember ■ Strauss á fundi með fyrrverandi hermönnum ■ í BONN er nú beðið með mikilli eftirvæntingu landsfundar Frjálslynda flokksins, sem haldinn verður 5. nóvem- ber næstkomandi. Verulegar horfur eru taldar á því, að Hans Dietrich Genscher utanríkisráðherra verði þar sviptur formennskunni í flokknum vegna ósigra flokksins í Hessen og Bæjaralandi, en þeir eru taldir rekja rætur til þess að flokkurinn rauf stjórnarsamstarfið við sósíaldemókrata og gekk til samstarfs við kristilegu flokkana. Það spáir því, að Genscher eigi ekki á góðu von, að Frjálslyndi flokkurinn hélt fylkisþing í Baden- Wiírttenberg nú um helgina og var þar samþykkt með 227 atkvæðum gegn 170 krafa um, að Genscher segði af sér sem formaður flokksins. Baden-Wiirttem- berg hefur verið talið aðalvígi Frjáls- lynda flokksins. Það bætir ekki stöðu Genschers að hann var hrópaður niður á mörgum kosningafundum í Bæjaralandi í sam- bandi við fylkiskosningarnar og var hann því látinn hætta að mæta á fundum þar. Úrslitin í kosningunum í Bæjaralandi urðu í samræmi við þetta. Flokkurinn fékk ekki nema 3.5% greiddra atkvæða og fékk því engan þingmann kosinn, en til þess þurf'.i hann að fá 5% greiddra atkvæða. Hann fékk 6.2% í síðustu fylkiskosningum í Bæjaralandi. Það veitir nokkra hugmynd um raunir Genschers, að hann hefur aflýst fyrir- hugaðri ferð til Kína, en ráðgert var og raunar venjum samkvæmt, að hann færi þangað með Karli Carstens forseta. Mjög er talið hæpið, að Genscher geti haldið áfram sem utanríkisráðherra, ef hann verður sviptur flokksforusfunni. EINN MAÐUR mun sérstaklega fagna þessum óförum Genschers og óska þess innilega, að hann verði sviptur flokksforustunni. Það er Franz Josef Strauss forsætisráðherra í Bæjaralandi. Strauss varð fyrir nokkrum vonbrigð- um með úrslitin í Bæjaralandi, því að þau urðu heldur lakari en fyrir fjórum árum. Hann getur þó unað þcim sæmilega, því að flokkur hans fékk 58.3% greiddra atkvæða, en fékk 59.1% í síðustu kosningum á undan. Osigur Frjálslynda flokksins bætti Strauss þetta upp, því aí> hann virðist nú líta á Frjálslynda flokkinn sem aðalóvin sinn og vill umfram allt koma honum fyrir kattarnef. Ástæðan er sú, að Strauss er andvígur samvinnu við hann RJP 8296 Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar ROYAL skyndibúðingarnir ÁVALLT FREMSTIR ENGIN SUÐA Tilbúinn eftir fimm mínútur 5 bragðtegundir sína, eða fengu 31.8% í stað 31.4%, fyrir fjórum árum. Það voru Græningjar sem unnu mest á í Bæjaralandi, þótt það nægði þeim ekki til að fá þingmenn kjörna. Þeir fengu 4.6% greiddra atkvæða, en fengu sáralítið fyrir fjórum árum. GENSCHER erekki eini andstæðing- urinn, sem Strauss lætur höggin dynja á um þessar mundir. Að mati hans er annar andstæðingur hans engu betri en Genscher, heldur jafnvel enn verri og hættulegri. Það er Willy Brandt. Strauss telur hann ekki aðeins leiðtoga vinstra arms sósíaldemókrata, heldur stefni hann beint í fangið á Græningjum. Markmið Brandts sé að koma á stjórnarsamvinnu sósíaldemó- krata og Græningja eftir næstu kosning- ar. Það styrkir Strauss nokkuð í þessum áróðri, að eftir að Helmut Schmidt hefur látið af kanslaraembættinu, ber orðið minna á honum en heldur meira á Brandt sem formanni flokksins. Þá hefur Brandt látið í það skína að hann útiloki ekki um alla framtíð samvinnu við Græningja, þótt þeir þurfi að breyta . um vinnubrögð til þess að teljast samstarfshæfir. Sósíaldcmókratar virðast gera sér vel Ijóst, að þeim er ekki heppilegt að vera bendlaðir um of við Græningja. Það er nokkur vísbending um þetta, að nýlega slitnaði algerlega upp úr viðræðum milli sósíaldemókrata og Græningja um samstarf í borgarstjórn Hamborgar, Þar verður því kosiðaftur 19.desember. Borgarstjórnai'kosningar fóru fram í Hamborg síðastliðið vor og urðu < kristilegir demókratar þá stærsti flokk- urinn þar í fyrsta sinn, en Græningjar fengu oddastöðu. Síðan hafa staðið yfir viðræður milli þeirra og sósíaldemó- krata, en þeim er nú lokið eins og áður segir. Hamborg er heimaborg Helmuts Schmidt og mun hann vafalítið láta til sín taka í kosningabaráttunni. ■ Genscher og telur kristilegu flokkunum muni farnast bezt án hans. Strauss er líka sagður hafa mikinn hug á því að skipa* embaéfti varakanslara og utanríkisráð- herra, en þar situr Genscher nú. Strauss skaut óspart eitruðum örvum að Frjálslynda flokknum á kosninga- fundum í Bæjaralandi og bætti áreiðan- lega ekki fyrir honum. Þegar Frjálslyndi flokkurinn rauf stjórnarsamstarfið við sósíaldemókrata, vildi Strauss fá þingkosningar strax, enda virtust verulegar líkur á, að kristilegu flokkarnir hefðu þá fengið meirihluta. A.m.k. bentu skoðanakann- anir til þess. Þær spáðu sósíaldemókröt- um þá miklu tapi. Nú virðast sósíaldemókratar hafa rétt við aftur. Þeir héldu velli í Hessen, þótt þeim hefði verið spáð miklum ósigri þar. í Bæjaralandi bættu þeir aðeins stöðu Aðalfundur samtaka um frjálsan útvarpsrekstur verður haldinn að Hótel Sögu (átthagasal) fimmtudaginn 28. okt. n.k. kl. 20.00 Framkvæmdarstjórn. to mroskahjálp Nóatúni 17,105 Reykjavík, sími 29901 Landssamtökin Þroskahjálp halda ráðstefnu 16. októbern.k. að Hótel Heklu í Reykjavík og hefst hún kl. 10. f.h. Fjallað verður um: Framtíðarhlutverk sólarhringsstofnana. Ráðstefnan er öllum opin. Gjafahappdrætti Sumargleðinnar Vinningsnúmer: Bifreið á miða nr. 55 Hjónarúm frá Ingvari og Gylfa nr. 7264 Frá Sjónvarpsbúðinni Lágmúla 7 Samsung örbylgjuofn nr. 8097 Frá Sjónvarpsbúðinni Lágmúla 7 Samsung hljómtækjasamstæða nr. 15101 Frá Sjónvarpsbúðinni Lágmúla 7 Samsung litsjónvarpstæki nr. 14226 Frá Sjónvarpsbúðinni Lágmúla 7 Fischer mynd- segulbandstæki nr. 5732. Verður Genscher að láta af formennsku?

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.