Tíminn - 14.10.1982, Síða 12
FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1982
Öldrunarmál
í brennidepli
■ Öldrunarráð íslands, scm stofnað
var 21.október 1981, hclt fyrsta aðal-
fund sinn að Borgartúni 6, föstudaginn
l.október s.l. Aðilar ráðsins eru nú 34.
Þeir eru fulltrúar landssamtaka og
félaga, sem vinna að öldrunarmálum
auk nokkurra styrktarfélaga. Á fund-
inum gerði stjórnin grein fyrir marg-
þættri starfsemi ráðsins og ræddar voru
ráðagerðir um störf á næsta starfsárr.
Stjórn ráðsins var endurkjörin. For-
maður hennar er sr. Sigurður H.
Guðmundsson.
Að loknum fundi ráðsins hófst
námstefna um öldrunarmál, sem haldin
var á vegum þingkjörinnar nefndar
vegna árs aldraðra og Öldrunarráðs
íslands. Námstefnuna sóttu um 150
manns, og hana setti Svavar Gestson,
heilbrjgðisráðherra. Að því loknu flutti
Lýður Björnsson, sagnfræðingur, erindi
um þróun íslenskra öldrunarmála fram
til ársins 1947. Dr. Jón Sæmundur
Sigurðsson, deildarstjóri ræddi um
aldraða og almannatryggingarnar, dr.
Gtiðjón Magnússon, aðstoðarlandlækn-
ir um vistunarmál aldraðra, Sveinn
Ragnarsson, félagsmálastjóri, ræddi
samhæfingu og stjórnun öldrunar-
þjónustu í sveitarfélögum og Dögg
Pálsdóttir, lögfræðingur, talaði um
frumvarp til laga, málefni aldraðra. Að
lokum talaði Poul Berthold, danskur
ráðgjafi í öldrunarþjónustu, um
stjórnun öldrunarþjónustu.
Á síðari degi námstefnunnnar flutti
séra Bernharður Guðmundsson erindi
um fjölmiðla og aldraða. Jan Helander
prófessor flutti erindi um andlega
umönnun í heimahúsum og á stofnun-
um, og einnig erindi, sem hann nefndi
Hvar er þörfin brýnust í öldrunar-
málum? Síðasta erindið flutti Pétur
Sigurðsson alþingismaður og gerði grein
fyrir öldrunarráðstefnunni í Vínarborg,
sem hann sótti s.l. sumar. Það var
sammæli allra, sem ráðstefnuna sóttu,
að hún hefði tekist mjög vel.
FRÆÐSLU RIT
UM ÖLDRUN
■ „Þcgar ég eldist“ cr fræðslu- og ritinu eru:
upplýsingarit um líkamlcga og féiags- Eðlilegar breytingar í liöum og
legar breytingar, sem mæta okkur á líffærakerfinu, hollusta, næring og
efri árunt. Ritiö cr nýkomið út og er hrcyfing, slys í heimahúsum, búskipti
útgefandi Þórir S. Guðbcrgsson og og arfur, aldraðir og atvinna, um
hefur hann samið tcxtann, Ritið er dauða, sorg og áfall, almenn þjónusta
fyrst og fremst skrifað fyrir almcnning, við aldraða.
ekki einungis lífcyrisþega heldur ekki
síður fyrir verðandi lífeyrisþega, Drcifingaraðilar ritsins „Þegar ég
starfsfólk í öldrunarþjónustu.aðstand- eldist“ eru útgefandi, Þórir S. Guð-
endur aldinna og alla þá, sem áhuga bergsson, Selbraut 11 og Kirkjuhúsið,
hafa. Klapparstíg 25 og gefa þeir nánari
Helstu þættir, sem lcknir eru fyrir í upplýsingar um ritið.
■ Síamstvíburar, með eina og sömu
lifur hafa verið aðskildir á sjúkrahúsi í
Kína og er það fyrsta slík aðgerð, þar
sem heppnast.
Stúlkurnar tvær Xu Jinglian og Xu
Junghua voru saman 4,6 kg. við fæðingu
eða rúmar 17 merkur. Móðir þeirra,
fátæk kona í Shanghai, fæddi þær2.mars
s.l. Nákvæmlega var fylgst með tví-
burunum fyrstu vikurnar á Xinhua
sjúkrahúsinu í Shanghai. Þar voru þær
síð'an aðskildar 14.apríl s.l. Þá voru þær
orönar 7 kg. að þyngd og læknar vissu
að þær höfðu eina stóra lifur sameigin-
lega en ekki tvær lifrar samtengdar eins
og venjulega er með síamstvíbura
samvaxna á kviðnum.
i
n: * M * »ICW
»» »»
'** - » «t * »*-***v»
* W » a *■
SIAMSTVIBURAR MEÐ SAMEIG-
INLEGA LIFUR AÐSKILDIR
Erfiðasti hluti aðgerðarinnar var að
sjálfsögðu að skipta lifrinni og öll
skurðagerðin tók fjórar klukkustundir.
Á meðan varð hjartsláttur telpnanna
mjög hraður, blóðþrýstingur lækkaði og
þær urðu bláleitar, en skurðlæknunum
tókst að koma heilsu þeirra til betri
vcgar.
Næstu vikur fengu tvíburarnir sér-
staka fæðu og nákvæmlega var fylgst
með þeim. Hjúkrunarkonur héldu á
þeim þá hluta sólarhringsins sem þær
voru vakandi til þess að þær grétu ekki.
Það var of mikil áreynsla fyrir þær.
Önnur telpan Xu Jinglian þjáist af
vægum hjartagalla, sem virðist oft koma
fyrir hjá samvöxnum tvíburum.
En í lok maí vógu telpurnar hvor um
sig um 5 kg. og l.júní fór Jinghua heim
til foreldra sinna, en Jinglian var lengur
á spítalanum til að hægt væri að fylgjast
með henni. Báðar munu þær samt vera
við góða heilsu.
Jinglian og Jinghua eru eineggja
tvíburar eins og allir tviburar, sem
fæðast samvaxnir. Þær hafa orðið til úr
einu eggi, sem skiptist í tvíbura.
Venjulega er skiptingin algjör, en þegar
um er að ræða samvaxna tvíbura hefur
skiptingu ekki lokið og börnin verða
samvaxin. Það virðist að flestir slíkir
tvíburar séu stúlkur. Áður en nútíma
skurötækni kom til var ekki hægt að
aðskilja Síamstvíbura til að þeir gætu
lifað eðlilegu lífi.
Fallegar
skfdahúfur
en 26 lykkjur sléttprjónaðar á prjóna nr.
3 1/2 eiga að vera 10 cm.
Aðferð: Fitjið upp 117 lykkjur á lítinn
hringprjón (aðallitur) og prjónið 3 cm
- slétt prjón. Þessi kantur rúllast upp.
Prjónið síðan 5 umferðir af brugðnu
prjóni. Prjónið þá slétt prjón 3 umferðir
í aðallit. eina umferð af hvítu og siðan
mynstrið eftir myndinni. Þá er prjónað
■ Húfurnar á mvndinni eru cinfaldar
og góðar skíðahúfur. Önnur húfan er
með snúru og dúsk á toppnum, en hin
er með prjónaðar lítinn topp.
Efni: Heilogarn, ca. 75 g af aðallit og
smávegis af hvítu í mynstrið. Notað er
lítill hringprjónn og sokkaprjónar nr. 3
1/2 (eða 3). Athugið hversu fast þið
prjónið og notið prjóna samkvæmt því,
áfram slétt í aðallit, þar til húfan er 19
cm. Þá er skipt yfir á sokkaprjóna og
byrjað að fella af. 1. umferð: 1 lykkja
tekin óprjónuð af, 1 slétt prjónuð og
lausa lykkjan tekin yfir, 55 sléttar
lykkjur prjónaðar og tvær prjónaðar
saman.
2. umferð er prjónuð eins og 1.
umferð, en með 52 og 53 lykkjum á milli
úrtöku (= 109 lykkjur).
3. umferð: Prjónið 1 lykkju og takið
eina óprjónaða síðan eina og takið
óprjónuðu lykkjuna yfir, prjónið þá 48
lykkjur, 2 lykkjur saman. 2 lykkjur,
takið eina óprjónaða og prjónið næstu
og lausa lykkjan tekin yfir, prjónið síðan
49 lykkjur, tvær saman og síðan eina.
Fellið svo af áfram éins og lýst er í 3.
umferð þangað til 7 lykkjur eru eftir.
Klippið á þráðinn, dragið hann í gcgnum
lykkjuna og festið vel. Vefjið saman
snúru um 12 cm langa búið til lítinn dúsk
á endann og festið í toppinn á húfunni.