Tíminn - 22.10.1982, Page 3
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1982
Helgarpakkinn j
Veitingahús helgarinnar:
íslendingar reka einn þekktasta
Evrópu:
„ISLENSKI FISKURINN A
FRAMTfÐINA FYRIR SÉR”
— segir Baldur Heiddal, veitingastjóri
f 7 smaa hjem í Kaupmannahöfn
■ . Það þykir alltaf tíðindum sæta ef
landinn nær að koma sér áfram í
útlöndum og sérstaklega þykja fréttir af
íslenskum athafnamönnum, nætur-
klúbbaeigendum, hljómlistarmönnum
og veitingahúseigendum, merkilegar.
Einn slíkan rak á fjörur Tímans á
dögunum, en sá heitir Baldur Heiðdal.
Baldur yfirtók í fyrra rekstur hins þekkta
veitingahúss 7 smaa hjem í Kaupmanna-
höfn, ásamt Margréti Kjartansdóttur úr
Reykjavík og í sameiningu hyggjast þau
hefja veitingahúsið til fyrri vegs og
virðingar. 7 smaa hjem hefur verið rekið
um 35 ára skeið og var á sínum tíma eitt
þekktasta veitingahús Evrópu. Síðustu
ár hefur sigið á óhæfuhliðina varðand
rekstur hússins og þegar Baldur og
Margrét tóku við rekstrinum var
veitingahúsið í mildum öldudal. En
gefum Baldri Heiðdal nú orðið.
- Ég flutti út til Kaupmannahafnar
fyrir u.þ.b. einu og hálfu ári síðan og
það má segja að ástæðan fyrir því hafi
bara verið sú að stækka sjóndeildar-
hringinn. Ég er iærður framleiðslumað-
ur og var alltaf staðráðinn í að fara út í
eitthvað sem lyti að veitingarekstri.
Fyrst eftir að ég kom til Kaupmanna-
hafnar fór ég því að líta í kringum mig
og þegar ég frétti að þessi staður væri til
sölu þá ákvað ég að slá til og kaupa hann
og það varð svo úr að Margrét
Kjartansdóttir keypti staðinn með mér.
Sendu út 16 þúsund
kynningarbréf
- Var ekkert erfitt að fá nauðsynlega
fyrirgreiðslu í bönkum í Danmörku
vegna kaupanna?
- Nei það var ekki erfitt. Ég var búinn
að vera búsettur um nokkurt skeið í
landinu áður en við keyptum staðinn og
málaleitunum okkar varðandi lán og
fyrirgreiðslur var mjög vel tekið. Að
sögn Baldurs Heiðdal opnuðu þau
Margrét staðinn strax fyrsta daginn eftir
að gengið var frá kaupunum og var því
ekkert hlé gert á rekstri staðarins.
Baldur sagði að hann hefði getað notað
allar innréttingar, og það eina sem hann
hefði þurft að gera hefði verið að skipta
um lýsingu í veitingasölunum og setja
upp nýja blómaskreytingu.
Baldur, veitingastjóri ásamt Margréti og Unni á barnum ■ 7 smaa hjem.
- Hvernig hefur svo rekstur staðarins
gengið síðan þið Margrét tókuð við?
- Reksturinn hefur gengið mjög vel
og reyndar hefur staðurinn verið á
stöðugri uppleið allt frá því að við
opnuðum. Við höfum ekkert auglýst
staðinn fram að þessu, nema lítillega,
þar sem ég var ekki búinn að fá fullgild
leyfi sem veitingamaður í Kaupmanna-
höfn. Nú eru þau leyfi hins vegar fengin
og því ætlum við að hella okkur út í
kynningarstarfsemi á staðnum á næst-
unni. Rétt áður en ég'kom heim til
{slands sendi ég t.d. um 16 þúsund bréf
út til fyrirtækja og stofnana í miðborg
Kaupmannahafnar þar sem ég vek
athygli á því að staðurinn muni sérhæfa
sig í íslenskum fiskréttum og síldar-
réttum í hádeginu og að við sendum
þann mat til viðskiptavina úti í bæ.
Grilluð og gufusoðin
stórlúða vinsælasti
rétturinn
- Ég er þess fullviss að það er hægt
að selja íslenska fiskinn í Kaupmanna-
höfn og reyndaralls staðarannarsstaðar.
Við höfum því ákveðið að leggja mjög
mikla áherslu á fiskréttina og í því
sambandi hef ég sett mig í samband við
íslenska fyrirtækið Geysir Food í
Kaupmannahöfn sm mun sjá mér fyrir
öllum þeim fisk sem ég þarf. Við höfum
reyndar þegar tekið fiskréttina upp á
matseðilinn í nokkrum mæli og t.a.m.
I Kíddi Wilhelms við hljóðfærið.
var íslensk stórlúða, bæði grilluð og
gufusoðin í hvítvíni vinsælasti rétturinn
á 7 smaa hjem þegar ég fór til íslands.
- Hvcrnig veitingastaður er 7 smaa
hjem að þínu mati?
- Hann er vissulega góður að mínu
mati eins og gefur að skilja, en almennt
er rætt um staðinn sem góðan ódýran
stað. Dýrasti rétturinn á matseðlinum er
t.a.m. aðeins á 148 krónur danskar, en
það er heilsteikt nautamörbráð „Chate-
aubriand". Þegar við tókum við staðnum
þá var han í talsverðri niðurníðslu,
t.a.m. hafði húsakynnum ekki verið
haldið nægilega vel við og áhugaleysis
hafði gætt í rekstri. Og þess gætir enn
að það á eftir að vinna staðinn upp á
ýmsum sviðum. T.a.m. hafa hádegin
verið ansi dauf, en auglýsingaherferð
okkar á næstunni er ætlað að bæta úr
því. Annars er 7 smaa hjem heilsárs-
staður og desember mánuðurnir hafa
verið bestu sölumánuðirnir.
Svíar um helmingur
viðskiptavinanna
- Hvað með viðskiptavinina?
- Þeir hafa verið ósköp þægilegir og
það hefur mikið borið á því að Svíar hafi
sóttst eftir að borða hjá okkur.
Staðurinn er ákaflega miðsvæðis, við
hliðina á Tívolí og járnbrautarstöðinni
og Svíarnir hafa t.d. brugðið sér yfir
sundið með flugbátnum, eytt hjá okkur
kvöldstund og farið svo aftur yfir til
Svíþjóðar. Þá hefur mikið af
lslendingum komið í heimsókn þrátt
fyrir litla kynningu, en Danirnir sjálfir
eru svo líklega í þriðja sæti á listanum
yfir viðskiptavini.
Þó að rekstur 7 smaa hjem hafi gengið
vel fram að þessu hjá Baldri og Margréti
þá hyggjast þau ekki láta deigan síga
heldur halda áfram á sömu braut og
vinna nýja markaði og nýja viðskipta-
vini. Ýmislegt er á prjónunum og við
báðum Baldur að greina nánar frá því.
íslandskynningar
- Þessi staður á mikla framtíð fyrir
sér að mínu mati. Bæði liggur hann
ákaflega miðsvæðis og eins er hann
þekktur og hefur haft mjög gott orð á
sér þó að hann hafi dalað talsvert hjá
fyrri eigendum. Ég hef átt viðræður við
bæði ísienskar, japanskar og bandarísk-
ar ferðaskrifstofur og árangur af þeim
viðræðum er strax farinn að skila sér.
Það hefur komið mikill fjöldi ferða-
manna á staðinn og ég er mjög bjartsýnn
varðandi þessa þróun.
Þá höfum við einnig ákveðið að fara
í auknum mæli út í kynningar á
íslenskum vörum og íslandi yfirleitt og
auk fisksins höfum við hug á að kynna
íslenska lambakjötið auk þess sem við
ættum að geta verið með tískusýningar á
íslenskum ullarvörum. Við höfum nú
þegar íslenska hljóðfæraleikara sem
leikur þrjú kvöld í viku á orgel og syngur
rög úr ýmsum áttum. Þessi maður nefnir
sig Kidda Wilhelms og hann hefur bara
gert það þó nokkuð gott að undanförnu.
þá get ég einnig nefnt það að samningar
við Hauk Morthens eru á lokastigi og
það stendur til að hann komi um
mánaðarmótin nóvember - desember og
syngi fyrir gesti staðarins. _ gSE
Við bjóðum hinar bráð-
skemmtilegu kvikmyndir
Walt Disneys á Video-
kassettum. Einnig bekkt-
ar ævintýramyndir og
teiknimyndir.
Skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna.
Myndbandaleiga
SncfbjömUótissím&Gi.hl
JHI ENGLISN BOOKSMOP^I
HAFNARSTRÆTI 4
SÍMI 14281
LOKSINS,
LOKSINS!
Nýja 33 sn. breiðskífan
með Tíbrá er komin i
næstu hljómplötuverslun.
Ath.: Platan
kostar aðeins 165 kr j
Heildsala — dreifing:
Dolbit sf.,
Akranesi. Sími 93- 2735
sjónvarp
Laugardagur
23. október
19.45 iþróttlr Umsjónarmaöur Bjarni Felix-
son.
18.30 Riddarinn sjónumhryggi Spænskur
teiknimyndaflokkur um farandriddarann
Dopn Quijote. Þýöandi Sonja Diego.
18.55 Enska knattspyrnan
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttlr og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Lööur Bandariskur gamanmynda-
flokkur. Þýöandi Þrándur Thoroddsen.
21.00Þættir úr félagsheimíli. Opinber
heimsókn eftir Jónas Guðmundsson.
Leiksljóri Hrafn Gunnlaugsson. Stjórn-
andi upptöku Andrés Indriöason. Meö
helstu hlutærk (ara. Edda Björgvins-
dóttir, Flosi Ólafsson, Gfsli Rúnar
Jónsson, Gunnar Eyjólfsson, Lilja Guö-
rún Þorvaldsdóttir, Steindór Hjörleifsson
og Þorsteinn Hannesson. Von er á
frægum syni staðarins i heimsókn. Sú
skoöun er uppi að þessi maður hafi
auðgast mjög í útlöndum, enda hefur
hann gefið ýmsar gjafir til þorpsins.
Hreppsnefndin ákveöur því aö* fagna
honum veglega i félagsheimilinu.
21.45 Mlslit hjörð (Before Winter Comes)
Bresk biómynd frá 1968. Leikstjóri J. Lee
Thompson. Aðalhlutverk: David Niven,
Topol, Ori Levy, Anna Karina, John Hurt.
Myndin gerist í Austurríki eftir lok
heimsstyrjaldarinnar og lýsir sam-
skiptum hernámsliða Bandamanna inn-
byrðis og viö heimamenn. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
23.30 Dagskrártok.
■ Svavar Gests kynnir dægurtún-
list frá 1930 til 1960 í þættinum í
dægurlandi.
útvarp
Laugardagur
23. október
Fyrsti vetrardagur
7.00 Veðurfregnir. Frétlir. Bæn. Tónleikar.
Þulur velur og kynnir.
7.25 Leikfimi.
8.00Fréttir. 8.15 Veðurtregnir. Morgun-
orð: Bryndis Bragadóltir talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.).
8.55 Leikfimi.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30Óskalög sjúklinga. Kristin Sveln-
björnsdóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10
Veðurtregnir.)
11.20 Kemur mér þetta viö? - Umferöar-
þáttur fyrir alla fjðlskylduna. Stjóm-
andi: Ragnheiður Davíðsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tiikynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Helgarvaktin Umsjónarmenn:
Arnþrúður Karlsdóttir og Hróbjartur
Jónatansson.
13.35 Iþróttaþáttur. Helgarvaktin, frh.
15.10 (dægurlandl Svavar Geslsson rifjar
upp tónlist áranna 1930-60.
16.00 Fréttir. Dagskra. 16.15 Veðurtregnir.
16.20 l sjonmáli. Þáttur fyrir alla fjölskyld-
una í umsjá Sigurðar Einarssonar.
16.40 islenskt mál. Jón Aðalsteinn Jóns-
son (lytur þáttinn.
17.00 Hljómspegill.
18.00 Tónlekar. Tilkynningar.
18.45 Veðuriregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Ttlkynningar.
■ 19.35 Átali.
20.00 Harmonikuþáttur Umsjón: Högni
Jónsson.
20.30 Þingmenn Austurlands segja frá
Vilhjátmur Einarsson ræöir við Sverri
Hermannsson.
21.20 „Steinsnar" Sigurberg Bragi Berg-.
steinsson les eigin Ijóð.
21.30 Hljómplöturabb Þorsteins Hannes-
sonar.
22.15 Veðurfregnir. Frétlir. Dagskrá morg-
undagjins. Orð kvöldsins.
22.35 „Skáldið á Þröm“ eftir Gunnar M.
Magnúss.
23.00 Laugardagssyrpa.
00:50 Fréttir. Dagskrártok.
laugardagur