Tíminn - 07.01.1983, Blaðsíða 20

Tíminn - 07.01.1983, Blaðsíða 20
Opið virka daga 9-19. laugardaga 10-16 H hedd Skemmuvegi 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgö á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs Gagnkvæmt tryggingaféJag labnel HÖGGDEYFAR GJvarahlutir Armiila 24 Sfmi 36510 Umrædur um bifreidakostnaðforstjórarma hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur: BÍLASTYRKURINN NÆGIR TIL NÍU HRINGFERÐA UM LANDIÐ Á ÁRI! ■ Forstjóraveldi Bæjarúlgerð- ar Reykjavíkur og mikil yfir- bygging fyrirtækisins kom (il umræðu á fundi borgarstjórnar í gærkveldi, en þá var til seinni umræðu og lokaafgreiðslu frum- varp að fjárhagsáætlun Reykja- víkurhorgar fyrir árið 1983. Miklar umræður urðu um fjár- hagsáætlunina og lauk afgreiðslu hcnnar ekki fyrr en langt var liðið nætur. Það var Guðrún Jónsdóttir, annar borgarfulltrúi Kvenna- framboðsins sem hóf umræðuna um Bæjarútgerð Reyukjavíkur. Ein af tillögum Kvennafram- boðsins við afgreiðslu fjárhags- áætlunarinnar gerði ráð fyrir að felldir yrðu niður biferiðastyrkir og ferðakostnaður hjá borgarfull- trúum og borgarráðsmönnum, en þeir nema samtals 270 þús- undum króna. Jafnframt var lagt til að utanaðkomandi aðila yrði falið að gera nákvæma athugun á kostnaði vegna greiðslna bif- reiðastyrkja og leigubifreiða- kostnaðar á vegum borgarinnar og verði við þá athugun tekið mið af akstri starfsmanna annars vegar, og þörf stofnananna hins vegar. Nefndi Guðrún sérstak- lega Bæjarútgerð Reykjavíkur af þessu tilefni, og benti á að á sama tíma og fyrirtækið ætti við mikla fjárhagsörðugleika að stríða, þá hefði það allt of stóra og dýra yfirbyggingu. Forstjórar fyrirtækisins væru nú í raun þrír, allir á háum launum, en auk þess væru þeir með bílastyrk sem nægði þeim til keyrslu á í kringum eitt þúsund kílómetrum á mánuði, eða hartnær alls hringvegarins í kringum landið. Ragnar Júlíusson, formaður útgerðarráðs Bæjarútgerðar Reykjavíkur tók undir orð Guðrúnar Jónsdóttur og sagði það rétt að yfirbygging fyrir- tækisins væri alltof stór og viða- mikil. Sagðist hanns samþykkur því að úttekt yrði gerð á launakjörum starfsmanna fyrir- tækisins, allt frá hinum hæstu til hinna lægstu. Það hefði verið fyrrvcrandi meirihluti borgar- stjórnar sem ákveðið hefði á síðasta kjörtímabili að fjölga forstjórum fyrirtækisins um helming. Varðandi bifreiðastyrk forstjóranna sagði hann það rétt, að hann nægði til þess að aka tæpar 9 ferðir kringum landið á hverju ári og sjálfsagt myndu forstjóramir gefast upp á starfi sínu ef þeir þyrftu að standa skil á þeim ferðalögum sínum. Kás/AB Sprengjuhótanafaraldur á höfuðborgarsvæðinu: ÞRUUtsprengjuhóianir ■ 'I'vær sprengjuhótanir vuru kærðar til lögreglu í gær, fyrst í Útvegshankanuiu í Kópavugi klukkan uin 09J0, svo i Al- inenjiuin tryggingum við Síðu- niúla í Reykjavik um klukkan 15.40, ug loks i bókabúðinni Veda i Kópavugi á átjánda tunanum. Lugreglan i Kópavugi skipaði starfsfólki í báðum útibúum Út- vegsbankans i bænum, við Smiöjuveg og Digranesveg, að yfirgefg. byggingamar og flutti það i lögreglustööina. Var síðan mikil lcil gerð að sprengju í hálfan annan tíma, en þá þótti sýnt að uni gabb var að ræða og vom útibúin opnuö að nýju. „Springur eftir 20 inínúturu Umldukkan 15.4(1 var hringt til Almennra trygginga og til- kynnt að sprengja myndi springa í byggingunni að tuttugu mín- útum liðnum. Þctía var þegar í staö tilkynnt lögreglunni og í samráði við hana var byggingin rýmd og starfsfölk og við- skiptavinir urðu að yfirgcfa húsið. Lögregla leitaði gaum- gæfilega í húsinu og þegar ekkert fannst var fólki lcyft að hverfa til starfa að nýju. I alit mun hat'a liðið rúmur hálftími frá því að tilkynnt var um sprengjuna. þar fil fólk hóf störf að sögn Ólafs B. Thörs, forstjóra fyrirtækisins. Ólafur sagði að flestir hefðu haft á tilfinningunni aö um gabb liefði veriö að ræða, én ekki hefði veriö vcrjandi annað en að gera þessar varúðarraðstafainr. því ekki hefði veriö hægt að útiloka, að hætta væri á ferðum. „Ekki gabb - heldur alvara“ Á átjánda tímanum var hringt á lögreglustöðina í Kópavogi og tilkynnt að sprcngju hefði veriö komið fyrir í bökaversluninni Vedu við Hamraborg. „Nú er ekki um gabb að ræða - heldur alvöru," sagöi röddin. Lögreglan skipaði við- skiptavinum og starfsfólki verslunarinnar út meðan leitað var í húsakynnum hennar. Tók lögregluna skamma stund að ganga úr skugga um að gabb var að ræða. Símtaliö í Útvegsbankann í Kópavogi er þegar búið að rekja í almcnningssíma á skiptistöð Strætisvagna Kópavogs á Kópavogshálsi, en hins vegar var cnn ekki búið að rckja símtaliðtil Almennratrygginga. Ásgeir Pétursson, bæjarfógeti í Kópavogi, sagði í gær, að allt kapp væri lágt á að finna söku- dólga í þessum málurn og bjóst hann við aö iögreglan í Kópavogi, lögreglan í Reykjavík og RLR hefðu samvinnu í málinu. Magnús Magnússon, aðal- varðstjóri lögrcglunnar í Rcykj- avík, sagði í samtali viðTímann, að eina sem fölk gæti gert til að auðvelda lögreglu að rckja sam- töl af þessu tagi, væri að leggja ekkisímtóliöáaðsamtali loknu. -JGK. -Sjó. „MISSIR EKKI FÓTINN’’ — segir Leifur Jónsson, læknir, í tilefni af röngum frásögnum f fjölmiðlum ígær ■ „Þaö var rangt sem fjölmiðl- ar hafa hai't eftir lögreglunni um aö inaöurinn hafi inisst fötinn,“ sagöi Leifur Jónsson læknir í samtali viö Tímann í gær. „Mað- urinn missti ekki fótinn viö slysið og það tókst aö gera þannig aö sárum hans að batahorfur verða að teljast góðar.“ Lcifur var vakthafandi á slysadcitd Borgarspítalans þegar komið var þangað í fyrrinótt með mann sem hafði slasast alvarlega þegar lykkja á dráttar- taug milli tveggja bíla hertist að ökla hans. Greint var frá því í útvarpsfréttum á hádegi í gær og í DV að maðurinn hefði misst fótinn. Það er sem sagt ekki rétt, íóturinn skaddaðist illa, cn horf- ur eru á að um bata verði að ræða. -JGK ■ Vörður var settur við dyr bankans nteðun leit fór fram. Þessi grái leikur olli bæði starfsmönnum og viðskiptavinum taisverðum óþægindum. (Tímamynd Ella) dropar Kosningaskjálftinn ágerist hjá Geirsliðinu Dropum linnst það ineira en lítið kómískt að í nýjasta tölublaöi Frjálsrar verslunar, sem Frjálst framtak gefur út er eftirfarandi klausa og cngunt merkt að sjálfsögðu; undir fyrirsögninni Aðstoðarmenn Gunnars í útlegð: „Eftir mynd- un ríkisstjórnar sinnar réði Gunnar Thoroddsen til sín tvo unga menn, þá Jón Orm Hall- dórsson, sem varð aðstoðar- maður ráðherrans, og Þórö Friðjónsson, til efnahagsráð- gjafar. Nú hillir undir endalok stjórnarinnar og eru ungu mennirnir farnir að liuga að nýju starfi. Hvorugur mun leggja í að leita á íslenskan vinnumarkað, enda sjá ungir menn þar kannski ekki lengur glæsta mögulcika. Jón Ormur hefur því sótt um hjá Evrópu- ráðinu en Þórður hjá OECD.“ „Ekki flugufótur fyrir þessu“ Það sem hlægir Dropa í þessu sambandi er að í samtali við Dropa í gær sagði Jón Ormur: „Það er ckkert hæft í því að ég hafi sótt um stöðu erlendis" og Þórður var ekki brotthlaupslegri í sínu svari er Dropar slógu á þráðinn til hans - hann sagði: „Það er ekki flugufótur fyrir þessu. Það er inér með öliu óskiljanlegt hvernig stendur á þessari klausu í blaðinu.“ Því geta Dropar ekki ályktað á annan hátt en þann að skjálfti Geirsarms Sjálfstæðis- flokksins vegna komandi kosn- inga ágerist stöðugt, og að armurinn sá vilji að orðróinur þess efnis að ungu hæfileika- inennirnir í stuöningsmanna- liði forsætisráðherra séu að undirbúa brotthlaup sitt, og að hann muni sitja einn eftir á sökkvandi fieyi. Auðvitað væri þægilegt fyrir Geirsarminn að þetta yrði raunin, en ekkert virðist benda til þess að honum verði að ósk sinni. Krummi ... er á því að lögreglu og slökkvi- liðsmenn í Reykjavík séu orðn- ir alveg SPRENG-móðir!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.