Tíminn - 08.01.1983, Síða 7
LAUGARDAGUR 8. JANUAR 1983
7
Umsión: B.St. og
K.L.
>.
Hinrik prins
selur vín
■ Hinrik prins, maður Mar-
grélar Danadrottningar, hcfur
gerst vínræktarbóndi í föður-
landi sínu Frakklandi. Uin
þessar mundir er einmitt ár-
gangurinn 1980 afuppskerunni
hans að koma á markað í
Danmörku, eftir að hafa fengið
að þroskast í friði í 2 ár.
Verðið á að vera sem svarar
rétt innan við 200 ísl. krónur
og þvkir það fremur hagstætt
niiðað viö það, sem gerist á
dönskum markaði.
Bara giftur
drottningunni!
■ Rundarískirsjónvarpsþul -
ir þykja með afbrigðum tungu-
liprir og láta það ekki henda
sig að verða orðlausir fyrir
framan sjónvarpsvélarnar. Það
vill því stundum til, að upp úr
þcim goppast eitt og annað
vanhugsað og sem kannski
ekki alltaf stenst grandskoöun.
Það fékk Filipus drottning-
armaður af Englandi að reyna
í síðustu heimsókn sinni til
Bandaríkjanna. Þar varð hann
að þola eftirfarandi kynningu
sjónvarpsþular: - Hann er
ekki maöur Díönu og ekki
heldur prinsinn, sem skemmti
sér í Karabíska hafinu með
Koo Stark. Hann er bara giftur
drottningunni!
■ Enski milljarðamæringurinn Robcrt Sangster var reiðubúinn
að leggja allt í sölurnar til að njóta náðar Jcrry. En allt kom fyrir
ekki.
tími og þá gjörbreyttist til hins
betra álit mitt á því sem þar fer
fram og þeim aðilum sem þar eru
til húsa.;‘
- í hverju er starf fiskimála-
stjóra fólgið?
“ Þetta er ábyrgðarmikið starf.
Fiskifélag Islands er talsvert
mikil stofnun og það er reyndar
elsti félagsskapur sjávarútvegs-
ins, og þetta eru einu samtökin
þar sem allir aðilar sjávarútvegs-
ins koma saman. Nú, fiskimála-
stjóra ber að stjórna Fiskifélagi
íislands, hann er formaður
stjórnar félagsins og stjórnar
öllum dagsdaglegum störfum fé-
lagsins, sem hefur það megin-
hlutverk að vera tengiliður á
milli sjávarútvegsins og stjórn-
valda. Stofnuninni er skipt niður
í sex aðaldeildir, sem sjá um hin
ýmsu störf, sem þeim er gert að
framkvæma, samkvæmt lögum
Fiskifélagsins. Hér starfa nú um
30 manns og þar að auki eru 11
manns í stjórn félagsins. Auk
þessa er í sambandi við félagið í
hverri verstöð úti um land trún-
aðarmaður, sem safnar upplýs-
ingum um veiðarnar og kemur
þeim til okkar. Þessir trúnaðar-
menn eru samtals 50 og þar að
auki hefur Fiskifélagið erindreka
í hverjum landsfjórðungi. Starf-
semin hér er því ansi víðtæk,
enda spannar hún yfir allan
sjávarútveginn."
- Átt þú von á að þú sem
fiskimálastjóri munir reyna að
breyta miklu í starfsemi félags-
ins? „Ja, eins og ég sagði áðan,
þá er ég bara að koma mér fyrir
núna, en ef ég lít aftur í tímann
eins og hálfa óld eða svo, til
þeirra ágætismanna, forvera
minna tveggja, þeirra Más Elís-
senar og Davíðs Ólafssonar og
þeirra starfa, þá myndi ég verða
glaður og komast með tærnar í
þeirra hælför. Þetta eru það
miklir ágætismenn og hæfileika-
menn miklir. En auðvitað hafa
allir meiningar um það hvernig
á að gera hlutina, sem þeir taka
að sér, og það verður bara að
koma í ljós.“
-AB
erlent yfirlit
■ D’Aubuisson, leiðtogi hægri manna í El Salvador.
Skæruliðar í Afgan-
istan og El Salvador
Hernaðaraðferðir þeirra eru svipaðar
■ Karmal, leiðtogi kommúnista í Afganistan.
ÞÓTT ekki sé nema að tak-
mörkuðu leyti hægt að bera
saman ástandið í Afganistan og
E1 Salvador, virðist eitt býsna
sambærilegt.
Það sem hér er átt við, eru
bardagaaðgerðir skæruliðanna.
Þær virðast hafa færzt í svipað
horf í báðum löndunum. Ástæða
er til að veita þessu athygli, þar
sem þetta gæti verið vísbending
um, að skæruhernaður, sem gæti
komið til sögu í öðrum löndum,
sæki fyrirmyndir sínar framvegis
til Afganistan og E1 Salvador.
Fregnir frá E1 Salvador eru
miklu Ijósari en frá Afganistan,
því að þar er leyfð viss stjórnar-
andstaða og erlendir fréttamenn
fá að koma til landsins. í
Afganistan er hvort tveggja úti-
lokað.
Af þessum ástæðum er hægt
að fá nokkuð greinilega mynd af
skæruhernaðinum í E1 Salvador.
Erfiðara er að fá fullkomlega
rétta mynd af ástandinu í Afgan-
istan.
Þar verður að fara eftir sögu-
sögnum stjórnvalda annars vegar
og skæruliða hins vegar, en báðir
þessir aðilar hafa eðlilega til-
hneigingu til að mikla sinn hlut.
Með því að reyna að vinza það
úr, sem sennilegast þykir, verður
myndin mjög svipuð af hernaði
skæruliðanna í þessum tveimur
löndum.
í BÁÐUM löndunum ráða
skæruliðar yfir verulegum hluta
landsins og ákveðnum þéttbýlis-
kjörnum. Áður fyrr var það
venja þeirra að bregðast til
varnar, þegar stjórnarherinn
gerði árás, og urðu þeir oft fyrir
verulegu manntjóni.
Nú hafa þeir breytt um aðferð.
Þegar þeim berast fregnir af
sókn stjórnarliðsins, veita þeir
aðeins takmarkaða mótspyrnu
meðan aðalliðsafli þeirra hörfar.
Stjótnarliðar grípa því oftast í
tómt. Þeir halda síðan völdum í
viðkomandi borg eða héraði í
nokkra stund, en hverfa síðan á
braut, því að þá skortir liðsafla
til að vera hvarvetna á verði. Þá
koma skæruliðar úr felum sínum
og taka völdin að nýju.
Þessi hernaðaraðferð hefur
gefizt furðuvel í E1 Salvador,
enda þótt landið sé ekki stórt. í
Afganistan hentar þessi hernað-
arlist enn betur, enda landið
miklu stærra og skæruliðum auð-
veldari undankoma til öruggra
felustaða.
Þá hafa skæruliðar í báðum
löndum gripið í vaxandi mæli til
þess að vinna spellvirki á sam-
gönguleiðum, orkuverum og
rafleiðslum. Iðulega hafa ýmsar
borgir og héruð í E1 Salvador
verið án raforku að undanförnu.
í Afganistan er þetta ekki
síður algengt, og birtust nýlega
fregnir af því, sem taldar voru
áreiðanlegar, að höfuðborgin
Kabul hefði verið meira og
minna án rafmagns dögum
saman.
í báðum löndunum virðast
skæruliðar hafa góðar njósnir af
ferðum hersveita. Iðulega gera
þeir hersveitum fyrirsát, einkum
þó þegar fámennir herflokkar
eru á ferð. Oft hafa þeir náð
býsna miklum árangri. Fullvíst
þykir, að Rússar hafi orðið fyrir
miklu manntjóni á þennan hátt.
Stundum hafa skæruliðar gert
árásir á herstöðvar og flugvelli
með furðu miklum árangri. í
Afganistan virðast slíkar árásir
hafa aukizt í seinni tíð.
Hernarlist skæruliðanna í báð-
um löndunum virðist þannig
fólgin í því að vera alls staðar og
hvergi. Herinn veit því aldrei
fullkomlega hvar hann getur átt
von á þeim. Hvorki KGB, sem
annast njósnastarfsemi í Afgan-
istan, eða CIA, sem aðstoðar við
njósnastarfið í El Salvador,
virðast hafa fundið aðferðir til
að geta iylgzt mcö árásarfyrirætl-
unum skæruliöa.
EINS OG nú standa sakir virðast
skæruliðar í Afganistan og El
Salvador skáka báðum risaveld-
unum. Rússar standa ráðþrota,
þótt þeirséumeðum KXlþúsund
manna her í Afganistan. Banda-
ríkjamenn ausa takmarkalitlu
fjármagni til styrktar stjórninni í
El Salvador, án þess að nokkurt
undanlát verði á baráttu skæru-
liðanna.
Vafalítið gæti þetta ekki gerzt,
ncma samúð almennings í
þessum löndum væri meö skæru-
liðum og baráttu þeirra.
Réttust viðbrögð risaveldanna
við þessari mótspyrnu væri sú,
að Rússar kölluðu heim hersinn
frá Afganistan og Bandaríkin
hættu stuðningi sínum viðstjórn-
ina í E1 Salvador.
Meiri líkur virðast til þess, að
Bandaríkjamenn geti orðið hér
á undan og gefið Rússum gott
fordæmi. Bandaríkjaþing hefur
nú ákveðið að senda sérstaka
nefnd til El Salvador til að kynna
sér ástandið þar og mun ekki
samþykkja frekari fjárveitingar
þangað fyrr en að fenginni
skýrslu hennar. Sendiherra
Bandaríkjanna þar hefur jafn-
framt gerzt ómyrkari í máli um
ástandið þar og ber hvergi nærri
saman við Reagan forseta, sem
hefur talið, að ástandið færi
batnandi.
Því mun ekki heldur að neita,
að Rússar séu farnir að óróast.
Til þess benda þau ummæli Zia
forseta Pakistan, að Rússar væru
tilbúnir til að flytja her sinn
burtu, ef þeir gætu gert það á
þann hátt, að þeir björguðu
andlitinu.
Þórarinn Þórarinsson, 3
ritstjóri, skrifar