Tíminn - 08.01.1983, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1983
LAUG ARDAGUR_8. JANÚAR 1983
10
fþróttir
■ íslenska landsliðið í körfuknattlcik
sigraöi Dani í gxrkvöldi í landsleik í
Keflavík, 80-67. íslendingar höfðu frum-
kvxöiö í fyrri hálfleik og staöan i leikhléi
var 39-34 íslandi í hag. Um miöjan síöari
hálfleik jöfnuöu Danir og leikurinn varð
mjög spennandi á tímahiii. En Lslendingar
sigu smám saman fram úr og sigruöu.
Ekki cr erfitt að ímynda sér að
Danirnir geti sýnt klærnar betur á
morgun, þegar ferðaþreytan er úr þeim.
Þeir komu nefnilega beint í leikinn úr
flugvélinni. Þcir lentu 19.55, kontu í
íþróttahúsið í Keflavík um klukkan
20.45 og hófu leikin klukkan 21.30.
Símon Ólafsson var stigahæstur ís-
lendinga og reyndar allra í leiknum,
skoraði 24 stig. Axel Nikulásson skoraði
16 og Jón Kr. Gíslason 16. Torfi
Magnússon, Hreinn Þorkclsson, og
Pálmar Sigurðsson skoruðu 4 stig hver,
og Þorvaldur Geirsson og Valur Ingi-
mundarson 2 stig hvor.
Að sögn heimildarmanns Tímans var
Jón Kr. Gíslason ntjög góður í leiknum
svo og Símon Ólafsson. Torfi Magnús-
son lenti í villuvandræðunt, og gat því
ekki beitt sér allan leikinn. Allir leik-
menn íslenska liðsins fengu að spreyta
sig og stóðu sig vel.
Dómgæslan var í höndum eins frá
hvorum aöila, það er að segja einn
danskur dómari og einn íslenskur. Tókst
dómgæslan þokkalega, og það sem •
miður fór jafnaðist upp.
Pétur með á morgun
I dag leika liðin aftur og þá í
Laugardalshöll klukkan 14.00. Einhverj-
ar breytingar verða væntanlega á liðinu
þar eð James Dooley segir að allir 13
leikmennirnir í hópnum muni fá að
spreyta sig.
Ef Danirnir standa sig betur á morgun,
kemur það á móti að á verður Pétur
Guðmundsson með íslenska liðinu, og
munar liðið líklega um minna.
KRJNGAR TÖPUÐU
FYRIR ELECTROMOS
■ KR-ingar töpuðu aftur í gær á
alþjóðlega mótinu í handknattlcik í
Vcstur-Þýskalandi. KR-ingar léku gegn
ungvcrska liðinu.Electromos Budapest,
og töpuðu 19-20. KR-ingar voru mistæk-
ir í gær að sögn Alfreðs Gíslasonar
leikntanns liðsins. „Það má segja að
skytturnar hafi brugðist", sagði Alfreð.
„Og svo nýttum við' ekki tækifærin, við
misnotuðum til dæmis 4 vítaköst, meðan
þeir skoruðu úr öllum sínum. Við áttum
' að geta unnið.“
Kiel lið Jóhanns Inga Gunnarssonar
sigraði í gær Sarajevo frá Júgóslavíu.
Sigurinn var sannfærandi, 26-20. Þó
settu heimadómarar leiðinlegan svip á
þann leik að sögn Alfreðs.
„Kielarliðið virtist miklu agaðra í
kvöld“, sagði Alfreð Gíslason. Það var
greinilegt að Jóhann Ingi var kominn.
Allt miklu skipulegra. Það er cnginn vafi
á að hann er að gera hér mjög góða,
hluti."
KR-ingar eiga frí í mótinu á morgun,
sitja yfir, en á sunnudag leika þeir
síðasta leikinn gegn Sarajevo. „Gísli
Felix Bjarnason cr enn meiddur eftir
leikinn við Dankersen í fyrrakvöld, og
óvíst hvort hann getur leikið á sunnudag-
inn. En Jens stóð sig mjög vel í
gærkvöld," sagði Alfreð að lokum.
1982 AR KNATISPYRNUNNAR
— sagði Örn Eiðsson
■ “Það má segja aö síöasta ár hafi
verið ár knattspyrnunnar" sagði Örn
Eiðsson forniaöur frjálsíþróttasainbands
Islands í hófinu á Loftleiöum í gxr. „En
nxsta ár verður ár frjálsra íþrótta, þó
viö kannske látum öðrum íþróttagrein-
um eftir einn og einn mánuö.“
Örn vísaði síðan til margra merkra
móta scm verða í frjálsum íþróttum á
næsta ári og ber þar hæst heimsmeistara-
mót í frjálsum íþróttum sem verður
Italdið í Helsinki.
Það má segja að Örn Eiðsson hafi hitt
naglann á höfuðið, í þessum orðum
sínum. Síðastliðið ár var á margan hátt
ár knattspyrnunnar. íslenskir knatt-
spyrnumenn voru mjög í sviðsljósinu og
landsliðið náði athyglisverðum árangri
er það gerði jafntefli við bæði Englend-
■ Arnór varð í öðru sxti í kosning-
unni um íþróttamann ársins.
inga og Hollendinga. Einnig voru knatt-
spyrnumenn mjög í sviðsljósinu sem
einstaklingar á árinu. Nægir þar að líta
á kjör íþróttamanns ársins. Þrír knatt-
spyrnumenn eru meðal tíu efstu.
Arnór Guðjohnsen er í öðru sæti í
kjörinu. Hann er vel að því kominn
hefur staðið sig frábærlega á árinu, bæði
með íslenska landsliðinu og liði sínu
Lokcren.
Þorsteinn Bjarnason hefur einnig
staðið sig mjög vel á árinu, hann varð í
þriðja sæti í kjörinu. Og það að
knattspyrnumenn séu í bæði öðru og
þriðja sæti segir meira en mörg orð.
Lárus Guðmundsson varð í tíunda sæti.
Hann var mjög í sviðsljósinu er hann
tryggði liði sínu sigur í belgísku
bikarkeppninni.
Þess má geta að lokum að Marteinn
Geirsson knattspyrnumaður í Fram,
varð í tólfta sæti í kosningunni og Rósa
Valdimarsdóttir knattspyrnukona í
Breiðabliki í því þrettánda.
„KLYFJAÐUR EINS OG JOLASVEINN
— sagdi Óskar Jakobsson sem
fór til Bandaríkjanna í gær
■ „Ég er vissulega nijög ánxgöur með
þessa útnefningu“, sagði Óskar Jakobs-
son íþróttamaður ársins 1982 eftir verð-
launaveitinguna í gxr.
Óskar er við nám í háskólanum í
Austin í Texas í Bandaríkjunum þar sem
hann einnig xfir og keppir. Hann xtlaöi
að fljúga til Bandaríkjanna í fyrradag,
en frestaði ferð sinni um einn dag. Eftir
verðlaunaveitinguna myndatökur, út-
varps og sjónvarpsviðtöl náöi Tíminn
tali af Óskari. Eftir þaö steig Óskar svo
aö scgja bcint upp i bílinn sem flytur
fólk á Flugstöðina í Keflavík.
„Nu taka við þrotlausar æfingar",
sagði Óskar„lnn'.anhússmótin byrja í lok
janúar, og utanhússmót í lok febrúar.
Eg reikna ekki með að byrja keppni á
fullu fyrr en utanhúss í lok febrúar, þar
sem meiðsli á ökkla sem ég varð fyrir í
haust eru ekki að fullu orðin góð."
- Hvað er minnisverðast í þínum
huga á árinu sem nú er liðið?
„Það er fyrst og fremst sá jafni og góði
árangur sem ég náði, ég er ánægður með
að hafa haldiö því að kasta um 20 metra
mestan hluta ársins."
Eins og áður sagði er Óskar við nám
í háskóla í Texas í Bandaríkjunum, en
hvað er hann að læra?
„Ég er við nám í íþróttafræði, það
nám tekur um fjögur ár“ sagði Óskar.
„Þegar því námi er lokið er ntaður
íþróttafræðingur eins og það er kallað. “
Er ekki crfitt að samræma svona
miklar æfingar erfiðu námi?
„Jú vissulega. Maður leggur mest að
sér á haustin í náminu, þá er lítið um
keppnisferðalög. Þá æfir maður á
staðnum og stundar námið. Maður
reynir að Ijúka sem mestu á haustönn-
inni, því þegar keppnin hefst fyrri hluta
árs fylgja mikil ferðalög og það kentur
óneitanlega niður á náminu. Þá getur
maður ekki tekið eins mikið fyrir."
„Þegar þessu námi er lokið má maður
kenna í menntaskóla, eða highschool.
en að sjálfsögðu getur maður tekið
mastersgráðu og þá eru réttindi til að
kenna í háskóla fyrir hendi.
Þeir Einar Vilhjálmsson og Oddur
Sigurðsson eru við nám í sama skóla og
Óskar í Texas. „Ég fer nú út klyfjaður
eins og jólasveinn", sagði Óskar. „Ég
fer út með harðfisk og jólamat til þess
að færa strákunum."
Og þar með var Óskar Jakobsson
kvaddur, og fór skömntu síðar til
Bandaríkjanna, þar sem þessi hugljúíi
drengur mun verða sjálfum sér, landi og
þjóð til sóma.
Kosning íþróttamanna tilkynnt á Loftleiðum eftir hádegi í gær:
OStUR MtOTTAMAfillR ÁRSKS1982
■ Óskar Jakobssun var kjörinn íþrótta-
ntaöurársins í kjöri Samtaka íþróttafrétta-
manna fyrir árið 1982
Kjör Óskars var tilkynnt í hófi á Hótel
Loftleiðum eftir hádegið í gær. Hófið var á
vegum Veltis hf., enda styrkir Volvo fyrir-
tækið í Svíþjóð kjöríþróttamanns ársins á
öllum Norðurlöndunum, og sér um kjör
íþróttamanns ársins á Norðurlöndum sem
valinn er úr hópi íþróttamanna ársins frá
hverju landi.
Alls hlutu 20 íþróttamenn stig í kosningu
íþróttafréttamanna að þessu sinni.
Hér kemur listi yfir 10 efstu:
1. OskarJakobsson
2. AmórGnðjohnsen
3. Þorsteínn Bjaraason
4. Bjarai Friðriksson
5. OddnrSignrðsson
6. PétnrGDknksMi
7. Krislján Arason
8. ÞórdísGísladóttir
9. lngiÞórJónsson
lð. Lárus Guðmundsson
11. JónPállSigmarsson
IR 52stig frjálsaríþróttir
Lokeren 46stig knattspyraa
IBK 42 stig knattspyraa
Annanni 35stig jódó
KR 29stig frjálsariþróttir
ÍR 27stig körfuknattleiknr
FH 27stig handknattleiknr
ÍR 14stig frjálsar iþróttir
ÍA llstig sund
Waterschei lOstig knattspyraa
KR lOstig kraftlvftingar.
Þórarinn Ragnarsson formaður samtaka
íþróttafréttamanna kynnti kjörið. í ræðu
sinni sagði hann meðal annars:
„Það hefur lengi tíðkast að íþróttafrétta-
menn í hverju landi kjósi íþróttamann
ársins. Hvarvetna er fylgst með þessu kjöri
og það vekur mikla athygli, líka hjá okkur,
fámennri þjóð norður við heimskautsbaug.
Á síðustu árum hefur orðið hér á landi
sama þróun og víðast hvar annars staðar í
heiminum. íþróttahreyfingin lætur æ meir að
sér kveða í þjóðlífinu. Virkum þátttakendum
fjölgar og óhætt er að segja að þeim fer
fækkandi sem láta sig íþróttir og útilíf engu
skipta.
■ Þórarinn Ragnarsson formaður
samtaka íþróttafréttamanna.
■ Óskar Jakobsson með verðlaunagripina
Við Islendingar höfum allt frá því að land
byggðist haft dálæti á afreksmönnum, sem
ekki láta hug sinn fyrir öðrum, hvorki
innanlands né utan. Svo mun enn verða
meðan við hirðum um að vernda sjálfstæði
okkar og þjóðarstolt.
En hér er ekki verið með þessu kjöri að
ýta undir stjörnudýrkun, síður en svo. Hér
er verið að reyna að vekja athygli á gildi
íþrótta fyrir land og þjóð. Við vitum að
æskan hefur að leiðarljósi þá menn sem
skara fram úr. Oft er umbun íþróttafólks
ekki mikil, og það er því við hæfi að heiðra
íþróttafólk sem skarar fram úr, eins og héi
er gert í dag.
Gildi íþrótta er ekki allt fólgið í sigrum. 1
íþróttum öðlast ungt fólk félagsþroska og
einbeitingu, lærir að temja skap sitt og taka
mótlæti sem meðbyr. Þar verður hver
einstaklingur að leggja sig fram í þágu
eftir útnefninguna í gær.
liðsheildar, en jafnframt að treysta á
samherja og samstarf. íþróttamaðurinn.
æskumaðurinn, stælir líkama sinn, skapgerð
og andlegan þroska og fátt er ungu fólki
heilbrigðara en ástundun íþrótta, hvort sem
það er fyrir ánægjuna eða keppnina. Hvort
tveggja fer þetta þó oftast saman, sem betur
fer.
íþróttir snúast mikið um sigra og ósigra.
Keppnin er hvatningin en sigurinn er
uppskeran. Þegar á allt er litið á þjóðfélagið
íþróttunum mikið að þakka. Þær örva
æskuna til líkamsræktar, efla félagskennd og
skyldur við aðraen sjálfa sig og þær setja svip
sinn á lífið og tilveruna.
Þeim sem ekki fylgjast með íþróttum kann
að þykja með ólíkindum hvílíkt erfiði og
ástundun íþróttamenn og -konur leggja á sig,
og jafnframt þeir sem starfa með íþróttafólk-
inu. íþróttafólkið æfir oft sex sinnum í viku
og oft tvisvar á dág. Stjórnarmenn í
íþróttafélögunum leggja nótt við dag til að
undirbúningur, fjárhagur, og starfsemin öll
geti verið í sem bestu lagi.
I íþróttafélögunum þykir þetta sjálfsagður
hlutur. Þar er starfað af lífi og sál, og sú
ræktarsemi og sá áhugi sem þúsundir manna
sýna félögum sínum er til mikillar fyrirmynd-
ar. Og hvað er æskilegra en að beina
starfsorku sinni að æskulýðsmálum, heil-
brigðu íþróttalífi, þar sem menn blanda
saman geði í metnaðarfullum leik.“
Þórarinn afhenti síðan íþróttafólkinu
verðlaun sín, frá tíunda sæti og upp úr. Allt
íþróttafólkið fékk í verðlaun Ferðabók
Eggerts og Bjarna í glæsilegu broti. Óskar
Jakobsson hlaut að auki hinn stórglæsilega
farandgrip sem veittur er á hverju ári, og auk
þess bikar til eignar frá Velti hf. Þá gaf Veltir
hf. Jóni Páli Sigmarssyni íþróttamanni ársins
1981 fagra kristalskál.
■ Hópurinn sem tók við verðlaunum í gær. Talið frá vinstri: Faðir Lárusar Guðmundssonar knattspymumanns, faðir Amórs Guðjohnsen knattspyraumanns, Bjami Friðriksson
júdómaður, Jón Páll Sigmarsson lyftingamaður, Óskar Jakobsson frjálsíþróttamaður, Þorsteinn Bjarnason knattspymumaður, Kristján Arason handknattleiksmaður, Ingi
Þór Jónsson sundmaður, Pétur Guðmundsson körfuknattleiksmaður og faðir Þórdísar Gísladóttur.
■ Víkingar sigruðu Framara 26-20 í
fyrstu deild íslandsmótsins í handknatt-
leik í gærkvöld. í leikhléi var staðan 13-8
Víkingi í hag.
Víkingar höfðu allan tímann frum-
kvæðið í leiknum, en Framarar héngu í
þeimframan af fyrri álflcik. 1-0, 1-1,2-1,
3-1, 3-2. 4-2, 4-3. 5-3, 5-4 og þar með
var draumurinn búinn. Víkingar komust
í 8-4 og 9-5 og í hálfleik var 13-8.
Framarar hertu aðeins á sér í síðari
hálflcik, en alltaf höfðu Víkingar yfir
þetta 3-4 mörk. Undir lok leiksins
hresstust þó Framarar aðeins en þá
vantaði herslumuninn til að fylgja því
eftir. komust í 18-20, en þá tóku
Víkingar öll völd á vellinum.
Víkingar eru ekki ósigrandi það er
víst, en erfitt er að komast í gegnum
hakkavélina sem vöm þeirra er. Þeir leika
kerfisbundinn sóknarieik, en samt
skemmtilegan, það er skemmtilegra að
sjá fallegar og vel heppnaðar fléttur en
sífellt einstakTIngsframtak, þó það sé
gott og blessað.
Framarar eru með efnilegt lið, ekki
vantar það. Stórskyttur eins og Dagur
Jónasson og Egill Jóhannesson lofa
góðu. svo og Erlendur Davíðsson.
Ragnar markvörður stóð sig vel í síðari
hálfleik, enda lék hann aðeins þá. Það
var aftur leiðinlegt að reyndari menn
Framliðsins stóðu sig verr en búast mátti
við, svo sem Hannes Leifsson. Og af
Hermanni Björnssyni bjóst undirritaður
við meiru. En vörnin er höfuðverkur
liðsins.
Víkinga bestur var Sigurður Gunnars- son, virtist geta skorað þegar hann vildi. Santa ntá segja unt Guðmund Guð- mundsson sem er einn alskemmtilegasti leikmaður sem við íslendingar eigum. Mörkin: Víkingur Sigurður ), Guð- numdur 6. Viggó 4, Steinar 3, Páll. Ólafur og Árni eitt hver. Fram Egill 7, Dagui 4, Hannes4, Erlendur3, Sigurður og Hermann 1 hvor.
Verðlagsstofnun Verðlagsstofnun óskar að ráða viðskiptafræðing/ hagfræðing til starfa í hagdeild stofnunarinnar. Tvö hálfs dags störf koma til greina. Upplýsingar um starfið eru veittar í síma 27422. UmsóKnir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri.störf sendist Verðlagsstofnun, Borgartúni 7, Reykjavík fyrir 15. janúar n.k.
Til sölu International traktor B-614 árgerð 1964. Einnig ýtutönn - geyspuskófla og Volvo N-10 árgerð 1975. Upplýsingar í síma 99-5922.
rKeuJL* V
Innritun á vetrarönn fer fram sem hér segir:
í Miðbæjarskóla mánud. 9. jan. og þriðjud. 10. jan. kl. 17-21
í Fellahelli miðvikud. 11. jan. kl. 14-16
í Árseli miðvikud. 11. jan. kl. 18-20
í Breiðhoitsskóia Fimmtud. 12. jan. kl. 19:30-21:30
Námsgjald greiðist við innritun
íslenska 1. og 2. flokkur Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Danska byrjenda, 12., 3., 4., 5. fl. Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Norska byrjenda, 1 .,2.,3., og 4.fl. Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Sænska byrjenda, 1 .,2., og 3.fl. Kennslustaður: Laugalækjarskóli
Enska byrjenda, 1 .,2.,3.,4.,5. og 6.fl. Kennslustaðir Miðbæjarskóli
Laugalækjarskóli Breiðholtsskóli
Fellahellirog Ársel
Þýska byrjenda, 1 .,2.,3. og 4.fl. Kennslustaðir: Miðbæjarskóli
Breiðholtsskóli og Ársel
Franska byrjenda, 1 .,2.,3., og 4.fl. Kennslustaður: Miðbæjarskóli
ítalska byrjenda- og framhaldsfl. Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Spænska byrjenda- og framhaldsfl. Kennslustaðir: Laugalækjarskóli Miðbæjarskóliog
Kínverska byrjenda- og framhaldsfl. Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Vélritun 1. og 2. flokkur Stærðfræði fyrir grunnskólastig og Kennslustaður: Laugalækjarskóli
iðnskólastig Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Tölvukynning byrjenda- og frh.fl. Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Bókfærsla byrjenda-, 1. og 2.fl. Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Ættfræði Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Leikfimi íslenska fyrir útlendinga Kennslustaður: Ársel
byrj.-1. og 2.fl. Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Sníðarog saumar Kennslustaðir: Miðbæjarskóli og Breiðholtsskóli
Barnafatasaumur Kennslustaðir: Miðbæjarskóli og Breiðholtsskóli
Formskrift -Teikning og akrýlmálun
Hnýtingar - Postulínsmálun Myndvefnaður Námsflokkar Reykjavíkur Kennslustaður: Miðbæjarskóli