Tíminn - 19.01.1983, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 198.1
5
f réttir m
Verður stjórnarskrármálið afgreitt á þessu þingi?
„OUKLEGT ABMDNA-
IST A ÞESSU HNGI”
M
Oryggi í samgöngum
Getum útvegað strax frá
Svíþjóð þessa landskunnu
— segir Olafur G. Einarsson
■ „Ja, það stendur nú einhvers staðar
í Parkinson, held ég, að málin leysist á
þeim tíma sem er til umráða,“ sagði
Ólafur G. Einarsson, formaður þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins, er Tíminn
spurði hann hvort hann teldi mögulegt
að stjórnarskrármálið yrði afgreitt á
þessu þingi. „Ef svo fer, sem ég vona,
að það verði kosið í apríl," sagði Ólafur,
„þá hlvtur þing að verða rofíð í lok
febrúar, og þá tel ég afar ólíklegt að
stjórnarskrármálið í heild verði afgreitt
á þessu þingi.“
Ólafur sagði að skýrsla stjórnarskrár-
nefndar væri mikið plagg sem menn
þyrftu að kynna sér vel. I henni væru ef
til vili flest atriðin þannig að menn litu
á það sem sjálfsagðan hlut að samþykkja
þær breytingar sem nefndin legði til, en
önnur atriði væru þannig að augljós
pólitískur ágrciningur ætti eftir að verða
um þau og um önnur væri meira að segja
ágreiningur innan stjórnmálaflokkanna,
og nefndi Ólafur í því sambandi tillögu
stjórnarskrárnefndar um að gera Al-
þingi að einni málstofu. „Það gegnir allt
öðru máli með kjördæmamálið,“ sagði
■ Enn ríkir óvissa um afstöðu þingflokka til afgreiðslu stjórnarskrármálsins og um
sum atriöi er deilt innan sama flokks. (Tímamynd Róbert)
Ólafur jafnframt, „því það hefur verið í
umræðunni lengi, bæði á meðal þing-
manna og meðal þjóðarinnar í mörg ár,
og því ætti það ekki að koma neinunt á
óvart, að nú dragi til úrslita í því máli.
Ég er því bjartsýnn á að hægt verði að
afgreiða kjördæmamálið á þessu þingi."
-AB
„HÆGT AÐ AFGREIÐA
KJÖRDÆMAMÁLIД
SNOW-TRAC
snióbíla
Vél vw
126 A
iðnaðarmótor
7 manna farþegahús — Benzínmiðstöð
Leitið nánari upplýsinga hjá sölumanni okkar
#o H
Iss&wm UIODUSf
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
— en óvíst með afgreiðslutíma
stjórnarskrármálsins íheild,
segir Ólafur Ragnar Grímsson
■ „Ég tel að það liggi nokkuð Ijóst
fyrir, að það verði hægt að afgreiða
kjördæmamálið á þessu þingi, en varð-
andi stjórnarskrármálið að öðru levti
gegnir nokkuð öðru máli,“ sagði Ólafur
Ragnar Grímsson, formaður þingflokks
Alþýðubandalagsins, er hann var spurð-
ur hvort hann teldi að takast myndi að
afgreiða stjórnarskrárbreytingafrum-
varp og kjördæmabreytingafrumvarp á
þessu þingi.
„Munurinn er fólginn í því,“ sagði
Ólafur Ragnar, „að stjórnarskrármálið
er miklu viðameira mál, þar sem verið
er að fjalla um breytingar á grundvallar-
þáttum stjórnskipunar, og því tel ég það
ógerning að meta það hér og nú hvort
þingflokkarnir og þjóðin þarf lengri
tíma en fáeinar vikur til þess að fjalla
um það."
Ólafur Ragnar sagðist telja að í þessu
máii kæmu þrír möguleikar til greina:
Sá, að í Ijós kæmi að menn vildu afgreiða
málið á þessu þingi, þ.e. bæði menn á
þingi og utan þess; í öðru lagi, gætu
menn komist að þeirri niðurstöðu að
mörg atriði yrðu að bíða, og veldu því
úr tillögum stjórnarskrárnefndar
ákveðnar tillögur sem hægt væri að
afgreiða nú og geymdu annað; í þriðja
lagi taldi Ólafur að sá möguleiki gæti
komið upp að sterkar raddir innan þings
sem utan, um að menn vildu fá að kynna
sér skýrslu stjórnarskrárnefndar í ein-
hvern tíma, og taldi Ólafur Ragnar
ekkert óeðlilegt við það að slíkt tæki
nokkra mánuði. Ef það yrði ofan á, yrði
að bíða í fáein misseri, og leyfa málinu
að vera í umræðu í eitt eða tvö ár.
-AB
„Mikill áhugi á að
það geti gerst”
— segir Kjartan Jóhannsson
■ „Ég er trúaður á að það takist að
afgreiða kjördæmamálið á þessu þingi,
því ég tel heldur horfa til réttrar áttar í
því nú upp á síðkastið," sagði Kjartan
Jóhannsson, formaður Alþýðuflokksins,
er Tíminn spurði hann hvort hann teldi
mögulegt að afgreiða kjördæma- og
stjórnarskrármálið á þessu þingi.
„Ég á erfiðara með að gera mér grein
fyrir því hvort það takist að afgreiða
stjórnarskrármálið á þessu þingi. Ég veit
að innan Alþýðuflokksins er mikill
áhugi fyrir því að það geti gerst, en ég
á mjög erfitt með að meta stöðuna innan
annarra flokka," sagði Kjartan
jafnframt.
-AB
rVona að það takist’
— segir Vilmundur Gylfason
■ „Ég vona að það takist að afgreiða
stjórnarskrármálið og kjördæmamálið á
þessu þingi,“ sagði Vilmundur Gylfa-
son, formaður Bandalags jafnaðarm-
anna, er hann var spurður hvort hann
teldi að slíkt yrði hægt.
Vilmundur var spurður, hvort hann
hefði í huga að styðja það að þingrofi
yrði frestað og kosningar yrðu ekki fyrr
en í júní, tii þessað hægt yrði aðafgreiða
stjórnarskrármálið, ef slík hugmynd
kæmi uppá íþinginu: Vilmundursvaraði
á þessa leið: „Þingið á að taka sér þann
tíma sem það þarf, til að kynna þetta
fyrir þjóðinni og reyna að komast að
skynsamlegri niðurstöðu, ef það er
hægt."
-AB
Partner verksmiðjuútsalan er haldin um þessar mundir í Blossahúsinu,
Armúla 15.
Partner verksmiðjuútsalan
í nýju húsnæði
Einu sinni á ári opnar Partner fyrir-
tækið lagerinn fyrir almenningi og
heldur verksmiðjuútsölu sem fræg er
meðal borgarbúa.
Mörgum finnst það skemmtun í
betra lagi að kíkja þar inn því
prísarnir eru ekki bara góðir, —
andrúmsloftið er einnig mjög hressi-
legt.
Partner verksmiöjuútsalan er nú í
nýju húsnæöi, Blossahúsinu, Armúla
15, og mun úrvaliö nú meira en
nokkru sinni.
- ísa^er°P'n'