Tíminn - 19.01.1983, Blaðsíða 20

Tíminn - 19.01.1983, Blaðsíða 20
Opið virka daga 9-19. Laugardaga 10-16 HEDD“ Skemmuvegí 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikið úrval Sendum um land allt Ábyrgð á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs Gagnkvæmt tryggingaféJag w- labriel HÖGGDEYFAR QJvarahlutir Armiila 24 Sfmi 36510 Friðjón um úrslitin á Vesturlandi: „PERSÓNU- LEGUR SIGUR FYRIR MIG OG MÍNA STUÐNINGS- MENN” ■ „Églítfyrstogfremstáþessi úrslit sem persónulegan sigur fyrir mig og mína fylgismenn", sagði Friðjón Þórðarson, dóms- málaráðherra en hann varð í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Vesturlandskjör- dæmi, með 1367 atkvæði, og í tveimur næstu sætum voru fylgis- menn hans, þeir Valdimar Ind- riðason og Sturla Böðvarsson, en í fjórða sæti varð svo fulltrúi Geirs-armsins, Inga Jóna Þórð- ardóttir. „Auk þessa,'1 sagði Friðjón, „tel ég þessi úrslit vera sigur sjálfstæðismanna, og ég sagði það einhvern tínia að við á Vesturlandi myndum feysa okkar vandamál ein og sjálf, ef við fengjunt að vera í friði, við sjálfstæðisfólk á Vesturlandi, og þessi úrslit eru vísbending um að okkur hafi tekist það.“ -AB vongóður ■ „Ég vonast til þess að listi flokksins í Vesturlandskjördæmi verði sterkur og Sjálfstæðis- flokknum til framdráttar," sagði Geir Ffallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, þegar Tím- inn innti hann álits á úrslitum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vesturlandskjördæmi, þar sem Friðjón Þórðarson og tveir stuðningsmanna hans höfnuðu í þremur efstu sætum listans. -AB ■ Kertaverksmidja Grýlu kerlingarinnar hefur verift í fullum gangi að undanfurnu, enda starfsskilyrðin eins ug best vcrftur á kosift. Vetur konungur hefur styrkt þessa iðngrein i riki sínu meö ríkulegu vatnsmagni úr sparisjúfti himinsins. (Timamynd Róbert) Mikið um það undanfarið að bilar aki á hross: BIFREIÐ GJÖRÓNÝT EFTIR AD HAFA m Á TVÖ TRIPPI ■ „Vift vitum um ein fjögur óhöpp hér undanfarna daga þar sem bílar hafa lent á hrossum og stórskemmst, en hrossin þó sloppift án mikilla áverka aft því ég best veit. Fimmta tilvikið var milli jóla og nýárs þar sem bíll ók á tvö trippi og annað fór upp á vélarhlíf og framrúðu. Annað trippið drapst og bíllinn varð gjörónýtur eftir“, sagði Sveinn Isleifsson, lögregluþjónn á Hvolsvelli. Sveinn sagði mikið um hross á vegum nú að undanfötnu eftir að allar girðingar hafi fennt í kaf. Astandið sé því stórháska- legt bæði fyrir vegfarendur og skepnur og því ástæða til að hvetja menn til ýtrustu varkárni. „Þetta er jafn mikið vandamál bæði fyrir ökumenn og bændur, sem sjálfsagt eiga í vök að verjast gagnvart girðingunum þegar þær eru komnar á kaf í snjó, sem einmitt hefur verið ástæða þessara fjögurra óhappa sem ég gat um áðan", sagði Sveinn. Þessi fjögur síðustu óhöpp hafa öll orðið á sama stað, skammt frá Brekkum í Holtum. Aðspurður kvaðSveinn hross- in alltaf í fullum rétti varðandi skaðabótaskyldu. Þykir honum það heldur skammsýn löggjöf að ábyrgð skuli öll vera á hendur vegfarenda en engin á eigendur gripanna. A Selfossi urðu tvær ákeyrslur á hross í kringum síðustu helgi að sögn lögreglunnar. Drápust þau bæði og töluverðar skemmd- ir urðu á bílunum. Þar í nágrenn- inu kvað lögreglan einnig tölu- vert um hross á vegum, af sömu ástæðum, þ.e. að allar girðingar eru á kafi, og ís á skurðum, þannig að ekkert hindrar hrossin í að fara á flakk. Guðmundur, lögregluþjónn á Sauðárkróki, sagði 3 ákeyrslur hafa orðið sama daginn á Sauð- árkróksbrautinni rétt fyrir jólin, þ.e. milli Sauðárkróks og Varmahlíðar. Hann taldi tilvikin vera eitthvað fleiri þótt ekki hafi verið leitað til lögreglu vegna þeirra. Ekki vildi Guðmundur kenna snjónum um, kvað alltaf mikið um hross á vegum í Skagafirði hvort sem snjóar væru eða ekki. „Þetta er vandræðamál", sagði Guðmundur. Kollegi hans á Blönduósi kvað ekki mikið um hross á vegum eftir að kæmi fram á vetur og heldur ekki óhöpp í sambandi við bíla. Hins vegar sæktu hross töluvert í vegkantana fram eftir hausti. T.d. hafi bíll lent á þrem hrossum uppi í Vatnsskarði í haust. Hrossin drápust öll og sá töluvert á bílnum. „Við erum komnir yfir þetta nún a, en það var ekið á tvö hross hér í Borgarnesi rétt fyrir jólin og varð að aflífa þau“, sagði lögregluþjónn í Borgarnesi. Nú kvað hann hrossaeigendur í Borgarnesi hafa tekið öll sín hross í hús og gefa þeim inni, og úr sveitunum hafði hann ekki haft spurnir af slíkum óhöppum. -HEI Hef misst fjög- ur hross fyrir bíia sldustu daga — segir Hannes, bóndi á Brekkum ■ „I*aö er allt á kafi í snjó svo hrossin komast yfir allar girðing- ar, skurði og hvað sent er. Það er harðfcnni, og þvi ekkert sem heldur þcim. Ég er nú búinn að loka inni öll hross sem ég kent í hús og hin hafa ckki farið útfyrir síðan ég hækkaði girðinguna dálítið,“ sagði Hannes Árnason bóndi á Brekkum. En fjögur hrossa hans hafa lent fyrir bílum nú undanfarna daga. Hjá Hannesi hagar þannig til að þjóðvegurinn liggur vestan við holtscnda hvar fjárhús og- hlaða - þar sem Hannes hefur gefið hrossum sínum - eru uppi á holtinu. Kemur því hvort- tveggja til að hrossin sækja gjárnan í skjól undir holtinu og einnig kvað Hannes þau sækja töluvert í grösuga mýri. frá Meiri-Tungu, sem er hinu megin vegarins. Hrossin kvað Hannes hafa sloppið furðu vel frá óhöppun- um. Aðeins eitt trippi hafi slasast, en dýralæknirinn telji 'þar aðeins um mar að ræða.” Annað hross lenti hlns vegar upp á vélarhlif á mjólkurbíl og braut framrúðuna í honum, en stökk svo í burtu og sér ckki á því,“ sagði Hannes. -HEI dropar Þjóðviljaritstjóri samur við sig ■ Ávallt þegar eitthvað markvert gerist á íslcnsku þjóðmálasviði er óbreyttum fréttamönnum Þjóðviljans ekki trcyst til þess að koma þeim á framfæri við lesendur. Það sjá ritstjórarnir um. Engan undraði því að er blaðið kom fyrir augu manna í gær trónaði efst á forsíðu þess fyrirsögnin: „Alþýðubandalagið með 12 sértillögur í stjórnarskrár- nefnd“ Fréttin sem fylgdi var merkt ritstjóranum, Einari Karli, sem þó var fjarri góðu gamni á blaðamannafundi í fyrradag, er skýrsla stjórnar- skrárnefndar var kynnt. Önnur stór fyrirsögn var um miðja forsíðu blaðsins: „Skýrsla stjórnarskrárnefndar kynnt,“ - að sjálfsögðu einnig merkt ritstjóranum. Aldrei fór þó svo að blaða- manni Þjóðviljans á fundinum væri alveg útskúfað. Hann fékk að skrifa pínulitla frétt á' baksíðuna undir fyrirsögninni „Skýrslan kynnt í gær“, þar sem hann rakti samviskusum- lega gang fundarins, en hélt sig í góðri fjarlægð frá efni skýrsl- Margrét með flest atkvæði ■ Þeir Garðar Sigurðsson, alþingismaður, og Baldur Ósk- arsson, framkvæmdastjóri Al- þýðubandalagsins, hafa lengi keppt um þingsæti Allaballa í Suðurlandskjördæmi. í fyrri umferð forvalsins hjá Alþýðu- bandalaginu í því kjördaémi um helgina urðu þeir hins vegar að sætta sig við, að ung stúlka, Margrét Frímannsdótt- ir, fengi fleiri atkvæði en þeir. I forvalinu hlaut Margrét 110 atkvæði og fyrsta sætið, en Baldur kom næstur með 98 atkvæði og Garðar lenti í þriðja sætinu með 92. Komu þessi úrslit mjög á óvart, en eru talin merki um að margir Allaballar í kjördæminu séu orðnir þreyttir á eilífum deilum þeirra Garðars og Baldurs um þingsætið og vilji því gefa þeim báðum reisupassann. Seinni umferðin er hins veg- ar cftir, og þar mun Garðar t leggja allt kapp á að endur- heimta fyrsta sætið. Kunnugir segja, að það hafi fyrst og fremst verið verkalýðs- armur flokksins, sem komið hafi Margréti í fyrsta sætið í fyrri umferðinni. Krummi ... ...heyrir að erfðaprinsar Al- þýðubandalagsins á Suður- landi leggi nú til að ríkið erfist aðeins í karllegg.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.