Tíminn - 19.01.1983, Blaðsíða 18

Tíminn - 19.01.1983, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 19. JANUAR 1983 þingfréttir Olíusjóður og olíugjald: Oskad eftir skjótri afgreiðslu málsins — Vilmundur boðar hjásetu ■ Frumvarp um Olíusjóð fiskiskipa, olíugjald u.fl. var til umræðu í neðri deild í gær og var málið rætt allan liðlangan daginn og komu sumir þing- menn víða við og hugleiddu vandamál útgerðar, flskvinnslu og millifærslu, störf og stefnu ríkisstjórnarinnar og Bandalag jafnaðarmanna svo að eitt- hvað sé nefnt. Steingrímur Hermannsson, sjávarút- vegsráðherra fylgdi frumvarpinu úr hlaði og gerði grein fyrir stöðu útgerðar og þeim skakkaföllum sem sá atvinnuvegur og fiskvinnslan varð fyrir á s.l. ári og rakti nauðsyn þess að grípa til þeirra ráðstafana sem frumvarpið gerir ráð fyrir til að halda útgerðarfyrirtækjum og fiskvinnslu gangandi. Hann gat um ýmsar leiðir til lausnar, sem skoðaðar hafa verið og þær ráðstafanir sem fyrir valinu urðu. Hann taldi að með 14 af hundraði hækkun á fiskverði um áramótin hafi verið gengið eins langt og unnt var til að samræma tekjur sjómanna þeim tekjum sem menn í landi hafa. Hann minnti á að olía hafi áður verið greidd niður og þótt hann væri í sjálfu sér ekki hiynntur því að auka niður- greiðslur eða millifærslur væri þetta þó sá kosturinn sem álitlegastur væri til að halda útgerð og fiskvinnslu gangandi. Steingrímur sagði að t.d. hefði komið til greina að hækka söluskatt um 2% í stað þess að hækka útflutningsgjald, en ekki verið talið eðlilegt að allur almenn- ingur tæki á sig slíkt gjald. En með ákvörðun um hækkun útflutningsgjalds, sem bætt er með gengissigi væri í rauninni um að ræða gjaldtöku sem öll þjóðin ber, en sem því miður eykur verðbólguna. Sj ávarútvegsráðherra minnti á að ráðstafanirnar hefðu verið samþykktar af meirihluta verðlagsnefnd- ar sjávarútvegsins. Hann óskaði eftir að Alþingi sæi sér fært að afgreiða málið sem fyrst svo að lögin gætu komið til framkvæmda, ef þau verða samþykkt. Ef ekki væri nauðsynlegt að það kæmi í ljós svo að ekki verði á óvísan að róa í þessum efnum. Greint var frá aðalatriðum frumvarps þessa í Tímanum í gær. Matthías Á Mathiesen sagði vanda- mál útgerðarinnar mætti að-mestu rekja til rangrar stefnu allt frá 1978. En þó væri ekki fyrir það að taka að stöðvun loðnuveiða og minnkandi botnfiskafli á síðasta ári ættu sinn þátt í hvernig komið væri. Hann kvað niðurgreiðslur ekki þá leið sem sjálfstæðismenn vildu fara til að bæta stöðu útgerðar, en þeir vildu skapa ■ Steingrímur Hermannsson henni tekjur með einum eða öðrum hætti, svo að hægt væri að reka hana hallalaust. Hann þvertók ekki fyrir að sjálfstæðismenn mundu fella frumvarp- ið, ef þeim tækist að rétta af einhverja agnúa þess í meðferð sjávarútvegsnefndar og tekið yrði tillitt til sjónarmiða þeirra þar. Sighvatur Björgvinsson taldi slæmt að endurreisa olíusjóð og auka millifærslur. Hann sagði að hér væri verið að mæta rekstrarvanda útgerðar og með þeim hætti að hluti fiskverðshækkunar væri tekinn framhjá skiptum. Vilmundur Gylfason tók undir það að millifærslur væru miður heppilegar en skoða yrði verðákvörðunarkerfi fisk- veiða í heild, en með því að gera aðfinnslur við þetta mál eitt en ráðast ekki gegn „prinsippinu" þjónaði ekki öðrum tilgangi en að stöðva flotann og auka atvinnuleysi og vandræði. Hann sagði verðlagsákvarðanir í 20 ár ekki hafa verið annað en heljarmiklar milli- færslur og þetta kerfi yrði að losna við. Vilmundur sagðist ekki vilja bera ábyrgð á því að flotinn stöðvaðist og atvinnuleysi yrði í landi; muni hann koma í veg fyrir að frumvarpið verði fellt, með hjásetu. Þingmaðurinn gerði grein fyrir afstöðu Bandalags jafnaðarmanna til verðlags- ákvörðunarkerfisins. Karvel Pálmason talaði næstur og gerði grein fyrir afstöðu sinni til Banda- lags jafnaðarmanna, sem ekki verður tíunduð hér. Einnig viðhafði hann þung orð um frumvarpið sem var til umræðu og ráðstafanir ríkisstjórnarinnar til að- stoðar útgerðinni yfirleitt. Fleiri þingmenn tóku til máls og stóð fundurinn fram á kvöld. OÓ „BRAÐABIRGÐALOGIN” KOM- IN TIL NEÐRI DEILDAR ■ I gær, 18. jan. var frumvarp um efnahagsaðgerðir að lokum afgreitt frá efri deild og neðri deild fengið það til meðferðar. Hér er um að ræða bráða- birgðalögin síðan í ágúst, sem hvað mest var rekið á et'tir að taka fyrir og láta reyna á í neðri deild, en sem margtuggið er, voru allar líkur á að þar mundi frumvarpið verða fellt á jöfnum at- kvæðum. En svo undarlegt sem það má virðast hafa orðið tafir á að skila málinu til neðri deildar og hafa sjálfstæðismenn seinkað málinu. Það átti að koma til 2. umræðu s.l. mánudag, en deildarfundum var frestað að ósk sjálfstæðismanna. í gær var orðið samkomulag um að málið yrði afgreitt með hraði og fleytt gegnum tvær umræður. Ólafur Ragnar Grímsson Bogi Sigur- björnsson tekur sæti á þingi ■ Bogi Sigurbjörnsson 1. varaþing- maður framsóknarmanna í Norður- landskjördæmi vestra tók sæti á Alþingi í gær. Páll Pétursson er erlendis í opinbcrum erindagerðum og skipar Bogi sæti hans á meðan. formaður fjárhags- og viðskiptanefndar deildarinnar mælti með samþykkt og bað menn að vera stuttorða. En Lárus Jónsson flutti langa ræðu og síðan báðu sjálfstæðismenn um fundarhlé til að þeir gætu ráðið ráðum sínum og helst að fjárhags- og viðskiptanefnd fjallaði á ný um málið. Vildu þeir fá að vita hvort Steingrímur Hcrmannsson,sjávarútvegs- ráðherra hygðist flytja breytingartil- lögur við frumvarpið varðandi gengis- breytingasjóð og fleira, sem fram hefur komið í blaðafréttum. Tómas Árnason sagði að sjávarútvegs- ráðherra væri í lófa lagið að flytja breytingartillögur í neðri deild, ef þurfa þætti og mundi frumvarpið þá koma til efri deildar aftur og jiá gæti deildin fjallað um það á ný. All lengi var karpað ■ Bogi Sigurbjömsson. NÝIR KAUPENDUR HRINGIÐU^x BLAÐIÐ KEMUR UM H Æi^’' SÍMI 86300 um blaðafregnirnar og sjávarútvegsráð- herra beðinn að standa fyrir máli sínu í deildinni, en hann var upptekinn vegna umræðna um Olíusjóð fiskiskipa í neðri dcild. En allt kom fyrir ekki. Þrátt fyrir allar tafir og fundarhlé fór málið sinn gang. Þegar deildarforseti fór fram á afbrigði á þingsköpum til að málið mætti koma til 3. umræðu með hraði, var það samþykkt með 10 atkvæðum, einn var á móti og 6 sátu hjá. Svo að ekki var áhuginn mikill á að hraða meðferðinni, þótt mikið hafi verið rekið á eftir þessu máli á sínum tíma. Að lokum var frumvarp um efnahags- aðgerðir samþykkt í efri deild með 9 atkvæðum gegn 7 og sent neðri deild. Happdrætti Sjálfsbjargar 24. desember 1982 Aðalvinningur: Bifreið ISUZU TROOPER, árg. 1982. nr. 42095 Sex sólarlandaferðir að verðmæti kr. 15.000.- hver. 43 vinningar - vöruúttekt, að verðmæti kr. 1.500.- hver. 615 sólarferð 17317 845 17764 1720 19969 2117 20733 3049 21105 3251 23602 4250 sólarferð 24584 4255 26536 4486 27726 5406 28940 6462 29004 8042 29281 8298 32404 10687 32696 11101 35086 sólarferð 11325 35785 11565 39001 12200 39420 sólarferð 13813 41844 sólarferð 13858 42095 bíllinn 14885 45202 15474 45579 15503 46751 16198 53675 17239 58954 sólarferð Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra. r Kvikmyndir Sími78900 Salur 1 Flóttin (Pursuit) Flóttinn er spennandi og jafnframt fyndin mynd sem sýnir hvernig J.R. Meade sleppur undan lög- reglu og fylgisveinum hennar á stórkostlegan hátt. Myndin er byggð á sannsögulegum heim- ildum. Aðalhlutverk: Robert Duvall, TreatWilliams, Kathryn Harrold Sýnd kl. 5,7,9 og 11 Hækkað verð Salur 2 Sá sigrar sem þorir (Who Dares Wins) Þeir eru sérvaldir, allir sjálfboðalið- ar svífast einskis, og eru sérþjálf- aðir. Þetta er umsögn um hina frægu SAS (Special Air Service) Þyrlu-björgunarsveit. Liðstyrkur þeirra var það eina sem hægt var. að treysta á. Aðalhlv: Lewis Collins, Judy Davis, Richard Widmark, Robert Webber Sýnd kl. 5,7.30 og 10 (ath. breyttan sýningartíma) Bönnuð börnum innan 14 ára. HÆKKAÐ VERÐ Salur 3 Litli lávarðurinn , (Little Lord Fauntleroy) Aðalhlutv: Alec Guinness, Ricky Schroder og Eric Porter. Leik- Stjóri: Jack Cold. Sýnd kl. 5, 7 og 9 Snákurinn Frábær spennumynd í Dolby stereo Sýnd kl. 11 ‘Salur 4 Jólamynd 1982 Bílaþjófurinn nonmmnsiTSiafcsnu Bráðskemmtileg og fjörug mynd með hinum vinsæla leikara úr American Graffiti Ron Howard ásamt Nancy Morgan Sýnd kl. 5 og 7 Konungur grínsins (King of Comedy) Einir af mestu lista- mönnum kvikmynda í dag þeir Robert De Niro og Martin Scorsese standa á bak við þessa mynd. Aðalhlutverk: Robert De Niro, Jerry Lewis, Sandra Bernhard Leikstjóri: Martin Scorsese Sýnd kl. 9 og 11.05 Hækkað verð. _________Salur 5___________ Being There Sýnd kl. 9 (10. sýningarmánuður)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.