Tíminn - 19.01.1983, Qupperneq 8
8
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Gisli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason.
Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson.
Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur
V. Ólafsson. Fréttastjórar: Kristinn Hallgrímsson og Atli Magnússon.
Umsjónarmaður Helgar-Timans: Guðmundur Magnusson. Blaðamenn: Agnes
Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friðrik Indriðason, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni
Kristjánsson, Kristin Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson, Sonja
Jónsdóttir. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir:
Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Elin Ellertsdóttir. Myndasafn:
Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristín Þorbjarnardóttir,
María Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar:
Síðumúla 15, Reykjavík.Sími: 86300. Auglýsingasími 18300. Kvöldsimar: 86387 og 86392.
Verð i lausasölu 11.00, en 15.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 150.00.
Setning: Tæknideild Timans. Prentun: Blaðaprent hf.
Stjórnarskráin
■ Stjórnarskrárnefnd hefur sent frá sér skýrslu, þar
sem gert er uppkast aö öllum greinum stjórnarskrár-
frumvarps - nema þeirrar, sem fjallar um kjördæma-
skipunina og kosningafyrirkomulagið. Það mál hefur
verið í höndum formanna stjórnmálaflokkanna að
undanförnu.
Raunar má miklu frekar segja, að hér sé um að
ræða fullbúið frumvarp en skýrslu, þótt nefndin hafi
kosið að nota það heiti. Ástæðan er sú, að rétt þótti
áður en nefndin gengi endanlega frá stjórnarskrár-
frumvarpi að leggja málið fyrir þingflokkana og fá
ábendingar frá þeim. Þegar þær eru fengnar, en það
ætti ekki að taka langan tíma, ætti nefndin að geta
gengið endanlega frá frumvarpinu á örstuttum tíma
og skilað því til þingsins.
Aðalathugun þingflokkanna á frumvarpi stjórnar-
skrárnefndar mun að sjálfsögðu fara fram í þinginu
sjálfu og þá sennilega fyrst og fremst í sérstökum
stjórnarskrárnefndum, sem deildirnar kjósa. F»á mun
líka verða fengin meiri vitneskja um viðbrögð
almennings.
Hér skal ekki lagður dómur á hve langan tíma þingið
þarf til að fjalla um málið. Senilega fer það mest eftir
vilja og áhuga þingmanna á framgangi þess. Meðferð
málsins ætti að verða auðveldari vegna þess, að ekki
er gert ráð fyrir neinum stórbreytingum, enda virðist
ekki vera þingvilji fyrir þeim. Miklu frekar má segja,
að hér sé verið að bæta gamalt fat.
Á þingi Framsóknarflokksins á síðastliðnu hausti
var lögð á það megináherzla, að stjórnarskrármálið
yrði ekki klofið á þann hátt, að kjördæmamálið yrði
tekið út úr og afgreitt, en allt annað látið bíða. Hætt
er við, að þá geti orðið löng bið á endurbótum á öðrum
þáttum stjórnarskrárinnar.
Á flokksþingi Framsóknarmanna var ályktað
ennfremur, að æskilegast væri að stjórnarskrármálið
yrði tekið til meðferðar á sérstöku stjórnlagaþingi.
Mörg rök mæla með því að það sé heppileg
málsmeðferð. Aðrir flokkar eru þessu andvígir,
a.m.k. eins og er, og við það verður Framsóknarflokk-
urinn að sætta sig.
Framsóknarflokkurinn mun ekki heldur láta það
verða til þess, að hann taki ekki fullan þátt í meðferð
stjórnarskrármálsins á Alþingi.
Það var afstaða flokksþings Framsóknarflokksins,
eins og áður segir, að stjórnarskráin öll verði tekin til
meðferðar, en hún ekki bútuð niður, aðeins eitt atriði
hennar afgreitt, en önnur látin bíða, ef til vill í áratugi.
Það væru vond vinnubrögö og ósamboðin stjórn-
arskránni.
Friðjón og Pálmi
Bersýnilega hefur áróður íhaldsblaðanna gegn
ríkisstjórninni ekki haft mikil áhrif meðal Sjálfstæðis-
flokksmanna. Það sýna yfirburðasigrar þeirra
Friðjóns Þórðarsonar og Pálma Jónssonar í prófkjör-
unum.
Þessi áróður hefur hins vegar borið þann árangur
að flautaþyrlar eins og Eggert Haukdal og Albert
Guðmundsson hafa snúizt gegn stjórninni og hún því
misst starfhæfan meirihluta. Þess vegna ríkir nú
vandræðaástand á Alþingi.
P.P.
MIÐVIKUDAGUR 19. JANUAR 1983
skrifað og skrafað
Uppskriftin að
flokkssprengingu
■ Alls kyns hrellingar
ganga yfir þessa dagana er
verið er að undirbúa fram-
boðslista stjórnmálaflokk-
anna fyrir kosningar. Ýmist
eru það prófkjör eða ekki
prófkjör sem vandræðunum
valda og aðalleiksoppur lýð-
ræðisins um þessar mundir er
Sjálfstæðisflokkurinn. Eftir
útreið formannsins í próf-
kjöri í Reykjavík og yfir-
burðasigur Pálma Jónssonar
í Norðurlandi vestra reka
hver vandræðin önnur. Frið-
jón hlýtur mest kjörfylgi í
fyrsta sæti sjálfstæðismanna
á Vesturlandi og á Vestfjörð-
um er allt komið upp í loft
og allar líkur benda til að þar
verði tveir listar í kjöri í nafni
Sjálfstæðisflokksins.
Par var ákveðið að efna
ekki til prófkjörs heldur láta
uppstillinganefnd um þá út-
völdu og svo laglega var að
málum staðið, að sjálfstæðis-
menn í kjördæminu fá tvo
lista um að velja í stað eins,
rétt eins og á Suðurlandi
sællar minningar.
Sigurlaugarraunir
Sigurlaugu Bjarnadóttur
sem verið hefur þingmaður
og varaþingmaðursíðan 1974
var einfaldlega sagt upp af
uppstillingarnefndinni. Hún
er heldur óhress vegna með-
ferðarinnar og segir í viðtali
við Morgunblaðið í gær:
„ÞETTA fór fram með
þeim hætti, að fundur Kjör-
dæmisráðs Vestfjarða sl.
laugardag felldi tillögu um að
viðhafa prófkjör með 26
atkv. gegn 17, þvert gegn því
sem almennt var gert ráð
fyrir. Mér er óhætt að segja,
að þessi úrslit komu mjög á
óvart um alla Vestfirði og
valda megnri óánægju. Þess
má geta, að fjölmennur fund-
ur í fulltrúaráði sjálfstæðis-
félaganna á Isafirði í nó-
vember sl., hafi, með yfir-
gnæfandi meirihluta mælt
með prófkjöri," sagði Sigur-
iaug Bjarnadóttir í samtali
við Mbl.
„Fundur kjördæmisráðsins
var vel sóttur. Þó vantaði
fulltrúa frá Austur-Barða-
strandarsýslu og Stranda-
sýslu - góðir stuðningsmenn
mínir. Þeir komust ekki
vegna ófærðar."
Að felldu prófkjöri tók
kjörnefnd til starfa við að
raða á listann. Þar var mér
einfaldlega sparkað úr þriðja
sætinu og Einar K. Guðfinns-
son settur í staðinn, án þess
að kjörnefndin gerði sér það
ómak að hafa samband við
mig, sem var hér syðra, til
að spyrja mig, hvort ég
sæktist enn eftir þriðja sæt-
inu, sem þeir þó auðvitað
vissu. Ég hefði talið það
eðlileg og sjálfsögð vinnu-
brögð, þar sem ég hef skipað
það sæti síðan 1974, er ég
náði kjöri sem uppbótarþing-
maður og hef síðan 1978
setið sem varaþingmaður ein-
hvern tíma árlega og er nú
starfandi á þingi sem slíkur í
veikindaforföllum Matthías-
ar Bjarnasonar,“ sagði Sigur-
laug.
Bolabrögð og
persónupot
Viðtalinu lýkur Sigurlaug
með þessum orðum:
„Við finnum trúlega aldrei
þá aðferð við ákvörðun
framboðs, sem geti fyrirbyggt
það baktjaldamakk, bola-
brögð og ógeðfellt persónu-
pot, sem nú tröllríður ís-
lensku stjórnmálalífi og
kyndir um leið undir vantrú
og lítilsvirðingu almennings
á stjórnmálamönnum. Sið-
gæði og virðing fyrir heiðar-
legum ieikreglum er það sem
hér skiptir meginmáli.
Að lokum vil ég segja: Ég
álít ekki að mér hafi nú verið
hafnað af Vestfirðingum,
heldur af klíkumeirihluta
innan kjördæmisráðs undir
þrýstingi frá áhrifaöflum bak
við tjöldin."
Skemmtikraftar
skrattans
Halldór Hermannsson
skipstjóri, mikill sjálfstæðis-
ntaður og bróðir Svcrris
kommisars segir í viðtali við
Þjóðviljann:
„Við stefnum á að bjóða
fram annan lista í nafni
flokksins og vissulega mun-
um við tala við Sigurlaugu
Bjarnadóttur, enda hefur
hún reynst hörkudugleg
manneskja, sem þingmaður
og varaþingmaður kjör-
dæmisins, sagði Halldór Her-
mannsson, skipstjóri, en
hann hefur verið einn aðal
talsmaður þess hóps sem
vildi viðhafa prófkjör í
flokknum til að ákveða fram-
boðslista.“
Kári Jónsson á Sauðár-
króki ritar grein í Morgun-
blaðið og hefur áhyggjur af
því hvernig hann á að kjósa
samtímis Sjálfstæðisflokkinn
og Pálma. í sama tölublað
skrifar Ágúst Sigurðsson
Geitaskraði og teiur hins vegar
að það sé gert aðeins til að
skemmta skrattanum að
„Moggi" skuli láta öllum
látum nema góðum vegna
yfirburðasigurs Pálma í próf-
kjöri.
Flokkseigandi
Það væri synd að segja að
baráttan innan stjórnmála-
flokkanna sé litlaus. Forval
Alþýðubandalagsins stendur
yfir í nokkrum kjördæmum
og er alira veðra von á
Suðurlandi. Aðeins 204
dyggir stuðningsmenn töldu
ástæðu til að ómaka sig til að
kjósa í Reykjavík og það
hlýtur að vera góð traustsyfir-
lýsing fyrir Ólaf Ragnar að
lenda í 7. eða 8. sæti í forvali
flokks síns í Norðurlandi
eystra.
En sá sem stendur með
pálmann í höndunum í öllum
sviptingunum er einn elsti og
skeleggasti formælandi op-
inna prófkjöra, Vilmundur
Gylfason. Hann er nú orðinn
skráður flokkseigandi og þarf
engar áhyggjur að hafa af
lýðræðisbröltinu. Það verða
nefnilega engin prófkjör í
Bandalagi jafnaðarmanna.
Þar ræður valddreifingin og
lýðræðið eitt.
OÓ
Gunnarsmenn sýna enn
umtalsvert fylgi sitt
SUMIR hafa kennt prófkjörunum um vaxandi deilur um
frainbuð flokkanna á undanförnum árum; að þau ýti undir
persónuleg átök og sundrungu. En frétlir af deilumálum
sjálfstxðisinanna á Vestfjörðum síðustu dagana sýna, að ekki
er síður hægt aö kljúfa flokka með „gamla" laginu - þ.e. meö
því að láta þröngan hóp manna ákveða framboðslista án
samráðs viö almcnna flokksmenn, því nú bendir flest til þess,
að þcir sjálfstæðismcnn á Vestfjörðum, sem vildu prófkjör
en fengu ekki, efni til sérstaks framboðs.
Svo virðist sem þingmennirnir Matthías Bjarnason og
Þorvaldur Garðar Kristjánsson haB ráðiö feröinni í þessu
máli, enda trjóna þeir áfrani í efstu sætum. Þeir eru harðir
stuðningsmenn Gcirsarmsins í Sjálfstæðisflokknum, en þcir
flokksmenn, sem einkum börðust fyrir prófkjöri, eru
hliðhollir Gunnari Thoroddsen. Svo hefur valdaklíkan, sem
varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu ncfnir svo,
einnig ýtt Sigurlaugu Bjarnadóttur til hliöar, að vísu fvrir
ungan og dugandi mann, en með því móti aukið enn líkurnar
á sterku sérframboði í kjördæminu.
PRÓFKJÖKIÐ á Vesturlandi, sein fram fór um síðustu helgi,
sýndi glöggiega, aö sjálfstæðismenn sem styðja ríkisstjórnina
eiga þar dyggan stuðning. Sérlegur fulltrúi Geirsarmsins og
starfsmaður flokksapparatsins lenti í fjórða sæti í prófkjörinu,
en Friðjón Þórðarson, dómsniálaráðherra, flaug inn í fyrsta
sætið, og menn, sem taldir cru honum meira og niinna
hliðhollir, lentu í næstu sætum. Þessi úrslit koma í framhaldi
af prófkjörssigri Pálma Jónssonar í Norðurlandskjördæmi
vestra, sem sýndi mikinn stuðning við ríkisstjórnararm
Sjálfstæðisflokksins.
ÞETTA sýnir auðvitað hversu illilega klofinn Sjálfstæðisflokk-
urinn cr enn, og aö traust Geirsarmsins virðfst ekki meira úti
á landsbyggðinni heldur en í Reykjavík, þar sem formanninum
var vísað til sjöunda sætisins. En þrátt fyrir þennan klofning
var það almennt talið sennilegast, að stuðningsmenn og
andstæðingar ríkisstjórnarinnar meðal sjálfstæðismanna
myndu vera saman á framboðslistum Sjálfstæðisflokksins í
öllum kjördæmum nema hugsanlega Reykjavík. Nú bendir
hins vegar allt til þess, að sú ákvörðun að efna ekki til
prófkjörs á Vestfjörðum, og þjösnaleg framkoma við
ákvörðun framboðslista Sjálfstæðisflokksins þar, leiði til
sérframboðs í því kjördæmi - hvaða dilk sem það kann svo
að draga á eftir sér.
Þótt gallar þess prófkjörsfyrirkomulags, sem viðhaft hefur
verið undanfarin ár, séu augljósir, þá sýnir þó reynsla
Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum, að „gamla" aðferðin, að
þröngur hópur manna ákveði framboðslista, er einnig
varasöm, auk þess sem hún er auðvitað síður en svo
lýðræðisleg. Prófkjör í einhverri mynd er því vænlegri aðferð.
Það þarf aöeins að sníöa af þeim vankantana og koma á
svipuðu fyrirkomulagi við prófkjör um landið allt. Stjórnmála-
flokkarnir ættu að huga vel að gerð sameiginlegra prófkjörs-
reglna fyrir næstu lotu.
- Starkaður.