Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.02.2009, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 06.02.2009, Qupperneq 8
8 6. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR Skoðaðu MÍN BORG ferðablað Icelandair á www.visir.is Léttöl PILSNER Drukkinn í 92 ár G ot t fó lk Það er ekki að ástæðulausu að sumt stenst tímans tönn. Íslendingar hafa haldið tryggð við Egils Pilsner í blíðu jafnt sem stríðu í tæpa öld, þökk sé hressandi bragði og hagstæðu verði. Endurnýjaðu kynnin við ölið sem Íslendingar hafa drukkið allar götur síðan 1917. 1. Hvers ætlar landslið popp- ara að minnast í Laugardals- höllinni í maí? 2. Hvað heitir fráfarandi stjórnarformaður LÍN? 3. Fyrir hvaða flokk vill Sævar Ciesielski bjóða sig fram í alþingiskosningum? SJÁ SVÖR Á SÍÐU 34 ALÞINGI Bróðurpartur þingfund- ar gærdagsins fór í karp og deilur þingmanna Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins um hverjum bæri að eigna heiðurinn af frum- varpi um breytingar á lögum um gjaldþrotaskipti. Dómsmálaráðherra, Ragna Árna- dóttir, mælti fyrir frumvarpi ríkis- stjórnar þar um en í því er kveðið á um að kafla um greiðsluaðlögun verði bætt við lögin. Í kjölfarið mælti Björn Bjarna- son, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, fyrir nánast samhljóða frum- varpi nema í því er nýi kaflinn nefndur skuldaaðlögun. Upphófust svo deilurnar. Sjálf- stæðismenn furðuðu sig á frum- varpi ríkisstjórnarinnar þar sem fyrir lægi að þeir sjálfir ætluðu að leggja fram frumvarp um sama mál. Ekki var furða þeirra minni í ljósi þess að frumvörpin tvö eru nánast samhljóða. Frumvarp þeirra var unnið í dómsmálaráðuneytinu í ráðherratíð Björns Bjarnasonar. Sögðu þeir ríkisstjórnina vera að skreyta sig með stolnum fjöðrum. Þingmenn stjórnarflokkanna, einkum Samfylkingarinnar, brugð- ust ókvæða við. Sögðu þeir sjálf- stæðismenn sjálfa vera að skreyta sig með stolnum fjöðrum þar sem Jóhanna Sigurðardóttir hefði um árabil barist fyrir breytingum á gjaldþrotalögum í þessa átt. Undr- uðust þeir jafnframt nýtilkominn áhuga Björns Bjarnasonar á mál- efninu. Á þessu gekk fram eftir degi. Siv Friðleifsdóttir, þingflokks- formaður Framsóknarflokksins, lagði orð í belg og sagði menn vera í keppni um hver gæti pissað lengst og ljósritað hraðast. Sagði hún sinn flokk sigurvegara í þeim keppn- um því hann hefði fyrstur flokka lagt fram frumvarp um málið. Var raunar einnig mælt fyrir því í gær. Atli Gíslason, VG, reyndi að bera klæði á vopnin og sagði málið kalla á samstöðu en ekki flokkadrætti. „Mér er sléttsama hvaðan gott kemur,“ sagði hann. Friðarumleitanir Atla báru þó ekki árangur því áfram var karpað. Þeir sem helst höfðu sig í frammi voru sjálfstæðismennirnir Björn Bjarnason og Sigurður Kári Kristj- ánsson og Samfylkingarmennirn- ir Árni Páll Árnason og Mörður Árnason. Að lokum var frumvörpunum þremur vísað til meðferðar alls- herjarnefndar. bjorn@frettabladid.is Þingumræða varð að höfundarréttardeilu Þingmenn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks deildu lengi vel í gær um uppruna og höfundarrétt á frumvarpi um gjaldþrotaskipti. Siv Friðleifsdóttir sagði þá í keppni um hver gæti pissað lengst. Atli Gíslason sagði sama hvaðan gott kæmi. DÓMSMÁLARÁÐHERRA Á ALÞINGI Ragna Árnadóttir mælti í gær fyrir frumvarpi ríkis- stjórnarinnar um breytingar á lögum um gjaldþrotaskipti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN STJÓRNMÁL „Framtíðarþing Sam- fylkingarinnar á að vera staður fyrir frjó skoðanaskipti og vett- vangur fyrir skapandi stjórn- mál,“ segir í tilkynningu um „opna hugmyndasmiðju“ sem Samfylkingin efnir til á morgun. Framtíðarþingið markar upp- hafið á lokahnykk stefnumótun- ar sem mun ná hámarki á lands- fundi Samfylkingarinnar í næsta mánuði. Lögð er áhersla á virka þátt- töku flokksmanna á þinginu og annarra sem áhuga hafa á að leiða fram nýjar hugmyndir og lausnir við endurreisn samfélags í kjölfar bankahrunsins. - gar Framtíðarþing Samfylkingar: Ísland að loknu bankahruninu VINNUMARKAÐUR Vinnumálastofn- un bárust tíu tilkynningar um hópuppsagnir í janúar. Samtals var sagt upp tæplega 170 ein- staklingum í þessum hópupp- sögnum. Uppsagnirnar koma til framkvæmda í vor, flestar í maí. Helmingur þeirra sem fengu uppsagnir voru starfandi hjá fjórum fyrirtækjum í mann- virkjagerð. Hinar uppsagnirnar voru í flutningum, fjármálastarf- semi, verslun, iðnaði og upplýs- inga- og útgáfustarfsemi. Á vef Vinnumálastofnun- ar kemur fram að flestar hóp- uppsagnir sem koma til fram- kvæmda á þessu ári tóku gildi 1. febrúar en þá misstu meira en 1.100 einstaklingar vinnuna. Tæplega 500 missa vinnuna í mars, yfir 200 í apríl og um 100 í maí. - ghs Vinnumarkaðurinn: Tíu hópupp- sagnir í janúar PARÍS, AP „Það er óhugsandi,“ segir Jean-Claude Trichet, bankastjóri seðlabanka Evrópu- sambandsins, um möguleik- ann á því að ríki, sem farið hafa illa út úr fjármálakrepp- unni undan- farið, muni neyðast til að segja skilið við evrusvæðið og taka upp annan gjaldmiðil. „Ég hef sagt það áður, það er algerlega óhugsandi,“ sagði hann í sjónvarpsviðtali í Frakklandi í gær. Ríki á borð við Grikkland, Ítalíu og Spán hafa orðið illa úti í efnahagskreppunni þrátt fyrir aðild að evrusvæðinu. Fleiri ríki óttast að fara sömu leið. - gb Seðlabankastjóri Evrópu: Fækkun evru- ríkja óhugsandi JEAN-CLAUDE TRICHET Snarráður borgari gekk fram á mann- lausan bíl sem kviknað hafði í í Breið- holti í gærmorgun. Sá gerði slökkviliði viðvart en náði svo að slökkva eldinn sjálfur. Eldsupptök eru ókunn og bíllinn skemmdist lítið. LÖGREGLUFRÉTTIR Slökkti í brennandi bíl Þrjá konur í Hveragerði hafa skrifað bæjarráði bréf og óskað eftir því að haldin verði Halloween-hátíð í stað öskudagshátíðar. Bæjarráðið vísaði erindi kvennanna til Foreldrafé- lags grunnskólans sem annast um hátíðahöld öskudagsins samkvæmt samningi við bæinn. HVERAGERÐI Halloween í stað öskudags Ókeypis hafragrautur Skólastjóri Grunnskólans í Hveragerði vill að nemendum skólans verði boðinn ókeypis hafragrautur á morgn- ana. Bæjarráð hefur samþykkt að það verði gert frá og með 16. febrúar. VARNARMÁL Málefni Varnarmála- stofnunar eru til skoðunar í utan- ríkisráðuneytinu, meðal annars með tilliti til þess hvernig má spara í rekstri hennar. Þetta kom fram í svari Össurar Skarphéðins- sonar utanríkisráðherra við fyrir- spurn sjálfstæðismannsins Jóns Gunnarssonar á Alþingi í gær. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra og félagar hans í Vinstri grænum hafa talað fyrir niðurskurði hjá stofnuninni og voru á móti tilurð hennar frá upphafi. Össur segist í samtali við Fréttablaðið ekki geta, að lítt athuguðu máli, útilokað að stofn- unin verði aflögð með öllu. Hann er nýtekinn við starfi utanríkis- ráðherra og segist ekki einfaldlega hafa komist að niðurstöðu. Því sé ekki tímabært að gefa yfirlýsingar um stefnuna varðandi stofnunina. Nefnd á vegum ráðuneytisins hefur haft málið til skoðunar um nokkurt skeið. „Ég tel að það þurfi að hraða þeirri skoðun og mun beita mér fyrir því,“ segir Össur. Árni Þór Sigurðsson, nýr formað- ur utanríkismálanefndar Alþingis, telur mögulegt að draga verulega úr kostnaði við stofnunina og seg- ist því hlynntur. Hann segir Vinstri græn enn sömu skoðunar og þegar flokkurinn lagðist gegn stofnun- inni á sínum tíma. Hins vegar hafi ýmsar skuldbindingar nú myndast, bæði varðandi verkefni og starfs- fólk, sem óvíst er hversu mikið er hægt að „krukka í og með hversu skömmum fyrirvara“. - sh Utanríkisráðherra getur ekki útilokað að Varnarmálastofnun verði lokað: Sparnaðarleiðir til athugunar ÖSSUR SKARP- HÉÐINSSON ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.