Fréttablaðið - 06.02.2009, Blaðsíða 10
10 6. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
Mig langar til að …
... geta verið löt að loknum
vinnudegi þegar börnin eru sofnuð
enda eru letiköst eitt helsta áhuga-
mál mitt. Í sjónvarpssófanum með
Kellogg's Special K bliss og góða
bíómynd. Er það ekki bara allt í lagi?
Kristjana Guðbrandsdóttir,
blaðamaður og móðir
Kellogg’s Special K
kemur mér á sporið
Við fjölskyldan borðum alltaf morgunmat, eins og t.d. Kellogg's Special K.
Með vel samsettum morgunmat hættir mér miklu síður til að detta
í óhollustu á miðjum morgni eða fituríkan skyndibita í hádeginu.
Það er alltaf frábært að eiga gómsæta Special K stöng að grípa til,
því þá þarf ég heldur ekki að hafa minnstu áhyggjur af því að
innbyrða of margar hitaeiningar.
specialk.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
4
2
9
1
Auglýsingasími
– Mest lesið
„Hef alla vikuna verið að reyna að
komast í bíó, en aldrei tekist,“ skrif-
ar Eiríkur Jónsson ritstjóri Séð og
heyrt á bloggi sínu. „Bíótímarn-
ir sex, átta og tíu henta mér ekki.
Klukkan sex er ég enn að vinna,
klukkan átta er ég að borða kvöld-
mat og klukkan tíu er ég orðinn of
syfjaður til að fara út. Mætti ég þá
frekar biðja um gömlu, klassísku
tímasetningarnar, 5, 7 og 9. Þær eru
sniðnar að lífinu í landinu.“
Þessu er ég sammála, bíó klukk-
an níu myndi henta mér best. Ég
spurði því Jón Eirík Jóhannsson, rekstrar-
stjóra kvikmyndahúsa Senu, hvort ekki mætti
breyta þessu, þó ekki væri nema í nokkrum
sölum. „Ástæðan fyrir breytingum á sínum
tíma var að gerð var mjög viðamik-
il könnun fyrir nokkrum árum sem
leiddi í ljós að fólki fannst þessir
tímar – kl. 18, 20 og 22 – henta best,“
segir Jón. „Þá var litið til barna-
fólks og annarra hópa. Reynslan er
svo sú að í staðinn fyrir litla aðsókn
kl. 19, mjög mikla kl. 21, og litla kl.
23, hefur þetta jafnast út þar sem
fólk velur nú á milli sýninga kl. 20 og
22. Við höfum þó hugleitt að bjóða
líka upp á níu-sýningar, enda heyr-
ast stundum óskir um það. Undan-
farið hefur það bara gerst að allt
hefur færst fyrr á kvöldin, til dæmis voru
fréttir alltaf kl. 20 þegar farið var í níu-bíó og
miðnætursýningar heyra nánast sögunni til
vegna lítilla undirtekta.“
Neytendur: Óheppilegir bíótímar?
Bíó-aðsóknin hefur jafnast út
EVRÓPUSAMBANDIÐ Olli Rehn,
stækkunarstjóri Evrópusam-
bandsins, stendur við þá afstöðu
sína, að Ísland geti á tiltölulega
skömmum tíma hlotið aðild að
sambandinu.
Hans-Gert Pöttering, forseti
Evrópuþingsins, hafði í viðtali
við finnskt dagblað gagnrýnt
Rehn fyrir ummæli hans í þá átt
nýverið.
„Nú er ekki rétti tíminn til
að tala um stækkun sambands-
ins,“ sagði Pöttering í viðtali við
Aamulehti. Enn hafi aðildarrík-
in 27 ekki komið sér saman um
afgreiðslu Lissabon-sáttmálans,
sem meðal annars á að einfalda
ákvarðanir um framtíðarstækk-
un.
„Þau ríki sem eru andvíg Lissa-
bon-sáttmálanum þarf að draga
til ábyrgðar fyrir að koma í veg
fyrir stækkun Evrópusambands-
ins,“ sagði Pöttering.
„Sérhvert Evrópuríki sem full-
nægir kröfum um lýðræði og
réttarríki, og beitir þeim í verki,
getur sótt um aðild að Evrópusam-
bandinu,“ segir Rehn hins vegar í
viðtali við annað finnskt dagblað,
Helsingin Sanomat. „Ísland mun
sannarlega uppfylla þessar kröfur
betur en til dæmis Balkanskaga-
löndin.“
Ekkert aðlögunarferli þurfi því
að fara af stað fyrir Ísland hvað
þetta varðar, auk þess sem Ísland
sé nú þegar aðildarríki að Evr-
ópska efnahagssvæðinu, „og að
minnsta kosti tveir þriðju hlutar
af löggjöf Evrópusambandsins
eru í gildi þar“. - gb
Rehn gagnrýndur fyrir ummæli um Ísland og ESB:
Olli Rehn stendur
við skoðun sína
OLLI REHN Stækkunarstjóri Evrópusam-
bandsins ítrekar skoðun sína um skjóta
aðild Íslands, þrátt fyrir gagnrýni frá
Hans-Gert Pöttering. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NEW YORK, AP Ný athugun hefur
leitt í ljós að ríki heims hafa ekki
staðið sig vel í að fara eftir við-
miðunarreglum um ábyrgar fisk-
veiðar, sem Matvæla- og landbún-
aðarstofnun Sameinuðu þjóðanna
samþykkti árið 1995.
Ástralía, Bandaríkin, Ísland,
Kanada, Namibía og Noregur eru
einu ríkin sem ná því að uppfylla
meira en 60 prósent af ákvæðum
reglnanna, en jafnvel það telst
ekki góður árangur. „Heildarnið-
urstaðan er í raun frekar niður-
drepandi,“ segir Tony Pitchner,
höfundur úttektarinnar. - gb
Alþjóðareglur um fiskveiðar:
Fá ríki standast
lágmarkskröfur
FRANSKIR FISKIBÁTAR Ísland er í hópi
þeirra ríkja sem standa sig skást.
NORDICPHOTOS/AFP
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðv-
aði Íslending á þrítugsaldri síðastlið-
inn mánudag. Hann var að koma frá
Kaupmannahöfn með 200 grömm af
kókaíni. Maðurinn var úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 13. febrúar 2009.
LÖGREGLAN
Tekinn með kókaín í töskum
SVÖNG Hin nítján ára gamla ísbirna
Lady, eða Dama upp á íslensku, nælir
sér í fisk í tjörn sinni í dýragarðinum í
Búdapest í Ungverjalandi.
FRÉTTABLAÐIÐ / AP
STJÓRNMÁL „Það virðist hafa verið
gert kosningabandalag við hluta
af Framsóknarflokknum og hluta
af Frjálslynda flokknum,“ segir
Sturla Böðvarsson, fyrrverandi
forseti Alþingis, um fráhvarf sitt
úr embættinu.
Ákveðið var að kjósa milli hans
og Guðbjarts Hannessonar, þing-
manns Samfylkingarinnar, og
fékk sá síðarnefndi meirihluta
atkvæða í þinginu. Sturla segir
þessi skipti hafa verið hluta af
stjórnarmynduninni.
„Það þarf ekki að efast um það
að þetta var partur af samkomu-
laginu sem til varð á Bessastöð-
um.“ - jse
Sturla Böðvarsson:
Var ákveðið á
Bessastöðum