Fréttablaðið - 06.02.2009, Qupperneq 12
12 6. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
BANDARÍKIN, AP Barack Obama
berst harðri baráttu fyrir því að
Bandaríkjaþing samþykki efna-
hagsráðstafanir sínar, sem eiga
nú að kosta ríkissjóð nærri þús-
und milljarða dala.
Obama hefur mætt meiri mót-
spyrnu en búist var við frá rep-
úblikönum vegna þessa máls. Í
gær sneri hann síðan vörn í sókn
og fór harðari orðum um andstæð-
inga sína en hann hefur leyft sér
til þessa.
Þeir séu að tefja tímann og tor-
velda sér að koma efnahagslífi
þjóðarinnar til bjargar á neyðar-
stund, þegar ekkert má bregðast.
„Það sem Bandaríkjamenn
búast við frá stjórnvöldum eru
aðgerðir sem hæfa þeirri brýnu
þörf sem þeir finna fyrir í dag-
legu lífi,“ skrifaði hann í grein
í dagblaðinu Washington Post í
gær.
Í vikunni kynnti Obama einn-
ig reglur um að stjórnendur fyr-
irtækja, sem þegið hafa fjárhags-
aðstoð frá ríkinu, megi ekki hafa
hærri laun en forseti Bandaríkj-
anna, eða um 500 þúsund Banda-
ríkjadali.
Með þessu brást hann við frétt-
um af því að fjármálafyrirtæki
hafi í desember greitt fram-
kvæmdastjórum meira en 18
milljarða dali í bónusgreiðslur í
lok síðasta árs, jafnvel þótt þessi
sömu fyrirtæki hafi þegið fjár-
hagsaðstoð frá ríkinu til að kom-
ast í gegnum kreppuna. - gb
Baráttan um efnahagsráðstafanir Bandaríkjaforseta:
Barack Obama
snýr vörn í sókn
BARACK OBAMA OG TIMOTHY GEITHNER Forsetinn og fjármálaráðherrann skýrðu í
vikunni frá reglum um ofurlaun framkvæmdastjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÓHRÆDD VIÐ FUGLAFLENSU Þessi
stúlka í Hong Kong var hvergi hrædd
við páfagaukinn, þó að fuglaflensa hafi
gert vart við sig þar undanfarið.
NORDICPHOTOS/AFP
FJÖLMIÐLAR Félag í meirihluta-
eigu Jóns Ásgeirs Jóhannesson-
ar er enn eini eigandi 365 miðla,
útgáfufélags Fréttablaðsins, Stöðv-
ar 2 og fleiri miðla. Enn er áhugi á
því að fjölga í hluthafahópi félags-
ins, segir Ari Edwald, forstjóri 365
miðla.
Um 25 hluthafar komu inn í
félagið í desember, en enginn
þeirra er stór hluthafi, segir Ari.
Hann er ekki tilbúinn að upplýsa
um hluthafalistann. Í desember
átti Jón Ásgeir, eða félög honum
tengd, um 70 prósenta hlut í félag-
inu Sýn ehf., sem á 365 miðla. Ari
segir að það hlutfall hafi minnk-
að eitthvað síðan. Greiðslustöðv-
un Baugs hefur ekki áhrif á 365
miðla, enda hefur Baugur ekki
átt hlut í félaginu í langan tíma,
segir Ari. Samkeppniseftirlitið
hefur enn til skoðunar mögulegt
samstarf 365 miðla og Árvakurs,
útgáfufélags Morgunblaðsins. Ari
segir 365 miðla hafa átt í samskipt-
um við eftirlitið vegna mögulegrar
sameiningar dreifingar og prent-
unar Fréttablaðsins og Morgun-
blaðsins.
Það mál hefur tekið mun lengri
tíma en að var stefnt, segir Ari.
Það sé þó ekki við neinn að sakast,
enda óvissa og umrót í rekstri bæði
365 miðla og Árvakurs, útgáfufé-
lags Morgunblaðsins. Ari segir að
útilokað virðist að af eiginlegri
sameiningu Árvakurs og 365 miðla
geti orðið, eins og upphaflega var
stefnt að. Samkeppniseftirlitið var
mótfallið slíkri sameiningu. - bj
Mögulegt samstarf 365 miðla og Árvakurs enn til skoðunar segir forstjóri 365:
Jón Ásgeir á enn meirihluta
SAMNÝTING Enn er verið að ræða
mögulegt samstarf um prentun og dreif-
ingu á Morgunblaðinu og Fréttablaðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVEITARSTJÓRNIR Byggðaráð Borg-
arbyggðar tekur ekki tillit til óska
rúmlega 370 manna sem skrif-
uðu undir áskorun um aukið fé til
refa- og minkaveiða. „Breyttar
forsendur í rekstri sveitarfélags-
ins gera það að verkum að ekki er
unnt að halda óbreyttri þjónustu í
þessu verkefni“, segir meirihluti
byggðaráðs.
Landbúnaðarnefnd Borgar-
byggðar harmar niðurskurðinn:
„Þetta mál varðar atvinnumál svo
sem dúntekju, laxveiðar og sauð-
fjárbúskap og ætti því ekki að
horfa eingöngu á þennan gjaldalið
í fjárhagsáætlun umhverfismála.“
- gar
Óvinsæll niðurskurður:
Undirskriftir
fyrir refaveiðar
Aðalfundur Össurar hf. verður haldinn í höfuðstöðum félagsins að Grjóthálsi 5,
110 Reykjavík, föstudaginn 20. febrúar 2009 og hefst hann kl. 8:30.
Á dagskrá fundarins verða:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.02 í samþykktum félagsins.
2. Tillaga um að heimila stjórn að kaupa eigin bréf félagsins.
3. Önnur mál.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda,
mun vera hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins að Grjóthálsi 5, Reykjavík, viku fyrir
aðalfund. Reikningar og önnur gögn verða einnig birt á heimasíðu félagsins sem er
www.ossur.com
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað frá
kl. 8:15 Hluthafar eru hvattir til að mæta tímanlega til að taka við fundargögnum.
Fundurinn hefst stundvíslega kl. 8:30.
Reykjavík 5. febrúar 2009
Stjórn Össurar hf.
AÐALFUNDUR ÖSSURAR HF.