Fréttablaðið - 06.02.2009, Síða 16
16 6. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 99 Velta: 264 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
313 +1,45% 904 +3,12%
MESTA HÆKKUN
EIMSKIP +54,55%
BAKKAVÖR +24,32%
STRAUMUR +6,58%
MESTA LÆKKUN
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,95 +0,00% ... Atlantic
Airways 166,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 560,00 +0,18% ...
Bakkavör 2,30 +24,32% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
0,85 +54,55% ... Føroya Banki 116,00 +0,00% ... Icelandair Group
13,41 +0,00% ... Marel Food Systems 62,10 +3,67% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Straumur-Burðarás 1,62 +6,58% ... Össur 97,50 +0,93%
Taktu þátt í að móta framtíðina!
Nánari upplýsingar um fundina og félagsstarf Sjálfstæðisflokksins má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is, eða í síma 515 1700.
Opinn fundur Endurreisnarnefndar
Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins boðar til opins fundar
á Hilton Reykjavík Nordica föstudaginn 6. febrúar klukkan
17.00. Á fundinum verður starf og skipulag nefndarinnar
kynnt og vinna hafin við efnistök og innihald væntanlegrar
skýrslu.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, mun stýra starfi nefndarinnar og leiðir
umræður á fundinum.
Allir eru hvattir til að mæta!
Bakkavör hefur innleyst 104 millj-
ónir punda, um sautján milljarða
króna af reikningum sínum hjá
Nýja Kaupþingi. Innstæða félags-
ins í bankanum hljóðaði upp á 150
milljónir punda og er stefnt að því
að afgangurinn fáist innleystur í
pundum um miðjan apríl.
Fjármunirnir verða nýttir
greiðslu á hluta af 700 milljóna
punda sambankaláni Bakkavarar.
Þetta kemur fram í bráðabirgða-
uppgjöri félagsins, sem birt var í
gær. Þar kemur
sömuleiðis
fram að fjórði
ársfjórðungur
hafi einkennst
af óróleika á
mörkuðum.
Þrátt fyrir það
hafi sala aukist
um ellefu pró-
sent milli ára
en salan á árinu
öllu um tíu prósent. - jab
ÁGÚST
GUÐMUNDSSON
Salan jókst um tíund
Skoski auðkýfingurinn Sir
Tom Hunter er sagður bera
víurnar í hlut Baugs í bresku
verslanakeðjunni House of
Fraser.
Hunter var í fjárfesta-
hópnum Highland Acquisit-
ions ásamt Baugi sem keypti
verslunina í byrjun nóvem-
ber 2006. Kaupverð nam
351 milljón punda, jafnvirði
77 milljarða króna á þávirði.
Baugur situr á 35 prósenta
hlut. Þá á Gamli Glitnir fjór-
tán prósenta hlut í versluninni og Hunter
tíu.
Þá er ekki útilokað að hann vilji fimmt-
án prósenta eignarhlut Baugs í skosku garð-
vörukeðjunni Wyevale en Hunter á fyrir
fjórðungshlut í henni.
Netútgáfa Scotsman segir áætlað verð-
mæti eignarhluts Baugs hafa
numið hundrað milljónum
punda við yfirtökuna 2006.
Miðað við aðstæður nú verði
að gefa verulegan afslátt.
Breskir fjölmiðlar hafa
greint frá því að að eignir
Baugs í Bretlandi séu svo
gott sem komnar á brunaút-
sölu. Margir fjárfestar hafi
beðið eftir tækifæri sem
þessu og séu nú með hönd
við veskið.
Þeirra á meðal sé Sir
Philip Green, fyrrverandi viðskiptafé-
lagi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, starfandi
stjórnarformanns Baugs, og einkaframtaks-
sjóðurinn Alchemy. Fjárfestarnir þrír sem
nefndir hafa verið til sögunnar hér munu
bjóða í eignir verði þær boðnar til sölu, sam-
kvæmt heimildum Scotsman. - jab
Á GÓÐRI STUNDU Í AFRÍKU Sir Tom
Hunter, viðskiptafélagi Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, hefur hug á að kaupa
hlut Baugs í House of Fraser.
Sir Hunter vill House of Fraser
Englandsbanki lækkaði stýrivexti um 50 punkta í gær
og fóru stýrivextir við það niður í eitt prósent. Þeir
hafa aldrei verið lægri.
Evrópski seðlabankinn hélt stýrivöxtum óbreytt-
um á sama tíma, sem er í takti við væntingar. Búist er
við að bankinn lækki vextina verulega í næsta mán-
uði, jafnvel niður í lægstu gildi líkt og víðast hvar um
þessar mundir að Íslandi undanskildu.
Þungt var yfir Jean-Claude Trichet, bankastjóra
evrópska seðlabankans, en hann sagði útlitið dökkt
næstu mánuði á evrusvæðinu. Aðstæður í bresku
efnahagslífi hafa að sama skapi sjaldan verið erfið-
ari og horfir peningamálanefnd Englandsbanka til
þess að lækkun nú blási lífi í útlánaaukningu banka
og ýti einkaneyslu af stað. Sem dæmi um aðstæðurn-
ar dróst bílasala saman um 30,9 prósent á milli ára í
janúar en minni hreyfingar hafa ekki sést á breskum
bílamarkaði frá 1974.
Kreppa er nú í Bretlandi en hagvöxtur hefur dregist
þar saman tvo ársfjórðunga í röð. - jab
Stýrivextir í Evrópu aldrei verið lægri
Deutsche Bank tapaði 3,9 millj-
örðum evra á síðasta ári, eða sem
svarar 580 milljörðum króna. Til
samanburðar hagnaðist bankinn
um 6,5 milljarða evra árið áður.
Annað eins tap hefur ekki færst
í bækur Deutsche Bank í rúma
hálfa öld.
Tapið fellur að langmestu til á
fjórða ársfjórðungi í kjölfar ham-
fara á fjármálamörkuðum. Afkom-
an þá var neikvæð um 4,8 millj-
arða evra og skrifaðist að mestu á
lánaafskriftir og mikinn samdrátt
í fjárfestingabankastarfsemi, sem
fram til þessa hefur verið stærsti
tekjupóstur bankans. Josef Acker-
mann forstjóri segist samt bjart-
sýnn á nýja árið. - jab
Fyrsta tapið
í hálfa öld
Hagnaður stoðtækjafyrirtækis-
ins Össurar hf. nam 4,2 milljónum
Bandaríkjadala (506,4 milljónum
króna miðað við gengisskráningu
31. desember) á fjórða ársfjórð-
ungi nýliðins árs, samanborið við
6,6 milljónir dala á sama tíma árið
2007. Munurinn skýrist af nei-
kvæðri gengisþróun og einskipt-
ishagnaði í fyrra.
Á kynningarfundi fyrirtækis-
ins kom fram að sex prósenta sam-
dráttur hefði orðið í sölu milli ára,
80,1 milljónar dala á lokafjórðungi
2008 í stað 84,9 milljóna árið áður.
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri
Össurar, segir þarna um að kenna
neikvæðum gengisáhrifum, en nú
hafi látið af meðbyr sem félag-
ið hafi notið vegna gengisþróun-
ar dalsins í samanburði við aðra
gjaldmiðla. Séu gengisáhrif reikn-
uð frá varð eins prósents söluaukn-
ing í staðbundinni mynt hjá fyrir-
tækinu.
Í máli Jóns Sigurðssonar, for-
stjóra Össurar, kom fram að á milli
áranna 2007 og 2008 hefði orðið 15
prósenta aukning á hagnaði fyrir
afskriftir og skatta (EBITDA),
sé leiðrétt fyrir áhrifum af gengi
og einskiptishagnaði. Hann segir
áherslu nú lagða á innri vöxt fyr-
irtækisins og að styrkja lausafjár-
stöðu þess.
Hagnaður ársins 2008 var 28,5
milljónir dala (ríflega 3,4 milljarð-
ar króna) samanborið við 7,6 millj-
ónir dala (916,4 milljónir króna)
árið áður. Yfir árið jókst sala um
fjögur prósent og nam 350 millj-
ónum dala, eða 42,2 milljörðum
króna. „Fjármálakreppan hefur
haft takmörkuð áhrif á starfsemi
félagsins,“ segir Jón, en segir
framtíðaráætlanir þó varfærnari
en ella vegna hennar, en kreppan
ásamt óvissu um gengisþróun séu
helstu óvissuþættirnir í rekstrin-
um. - óká
Högnuðust um 506 milljónir
Á KYNNINGARFUNDI Jón Sigurðsson,
forstjóri Össurar, kynnti afkomu félags-
ins í fyrra á kynningarfundi í hádeginu í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HAGNAÐUR MILLI ÁRA
Tímabil Upphæð
4. ársfj. 2008 +4,2 milljónir USD
4. ársfj. 2007 +6,6 milljónir USD
HAGNAÐUR Á HLUT
2008 6,73 sent
2007 1,94 sent