Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.02.2009, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 06.02.2009, Qupperneq 24
4 föstudagur 6. febrúar Stjörnumerki: H: Bogmaður. L: Steingeit. Besti tími dagsins: H: Kvöldin, þegar allt er komið í ró. L: Þegar fjölskyldan mín er saman komin. Að lesa góða bók með syninum á kvöldin er frábært. Geisladiskurinn í spilaranum: H: Michael Bublé. L: Sálmar með Ellen Kristjáns- dóttur. Uppáhaldsverslunin: H: FAO Schwartz í New York. L: ELM. Uppáhaldsmat- urinn: H: Sushi. L: Sushi og lífrænn matur er í uppáhaldi og svo allur íslenskur matur. Líkamsræktin: H: Laugar. L: World Class og sundlaug- arnar. Mesta dekrið: H: Sofa út. L: Að komast út í guðs- græna náttúruna og hlaða batteríin. Ég lít mest upp til: H: Þeirra sem hafa gert mig að því sem ég er. L: Fjölskyldu minnar og vin- anna. Þetta eru allt snillingar. Áhrifavaldurinn? H: Maðurinn minn, Ingvi Jökull, hann fær mig til að trúa því að allt sé mögulegt í lífinu. L: Amma Lóa. Hrefna Hallgríms- dóttir og Linda Ásgeirsdóttir kynntust fyrst í Hús- dýragarðinum árið 1998 þar sem þær léku í Hróa hetti. Síðan þá hafa þær verið óaðskiljanlegar og skemmt börnum á Íslandi, Bandaríkjunum og Afríku, bæði á sviði, í sjónvarpi og nú á hvíta tjaldinu. Viðtal: Alma Guðmundsdóttir Ljósmyndir: Anton Brink Förðun: Elín Reynisdóttir Þ ær stöllur eiga það sameiginlegt að það var æskudraumur að fást við leiklist, leika, skemmta og troða upp. Örlögin höguðu því svo þannig að þegar Hrefna eignaðist sitt fyrsta barn var lítið til af af- þreyingarefni fyrir yngsta aldurs- hópinn. Hún fékk vinkonu sína, hana Lindu, til að vinna í mál- inu með sér og saman sköpuðu þær Skoppu og Skrítlu sem allir þekkja. LEIKHÚSIÐ HEILLAÐI Heillaði leikhúsið alltaf? „Að vissu leyti. Ég fór í Listdansskól- ann þegar ég var níu ára, fékk þá strax hlutverk í sýningum og kynntist Stóra sviðinu, svo bakter- ían festist gjörsamlega í manni. Ég átti auðvelt með að tjá mig með líkamanum, en var mjög feimin svo ég sá kannski ekki fyrir mér að ég yrði leikkona þó svo að ég vildi vera tengd leikhúsinu á einn eða annan hátt. Þegar ég fór í há- skólanám langaði mig í leiklist- ina, en ætlaði samt að fara að læra sérkennslu því ég hafði verið að vinna á leikskóla og verið mjög tengd börnum. Ég var svo að leita mér að skóla í Bandaríkjunum þegar ég rak augun í þessa flottu leiklistardeild í skóla í Flórída. Maðurinn var kominn inn í nám í auglýsingafræðum þar, svo við fórum saman út að læra,“ segir Hrefna. „Hjá mér var það alveg ákveð- ið frá því að ég var lítil stelpa að verða leikkona, það kom ekkert annað til greina en eitthvað lista- tengt. Ég var í Hólabrekkuskóla þar sem ég lék og skemmti alla mína æsku, það var alltaf verið að troða upp, dansa við Madonnu, syngja á skólaskemmtunum. Eftir MR tók svo leiklistarskólinn við,“ segir Linda. EKKI BARA STUBBANA Hugmyndin að Skoppu og Skrítlu kviknaði hjá Hrefnu sem fannst sárlega vanta afþreyingarefni fyrir yngsta aldurshópinn eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn árið 2002. Alla tíð hafði hún samt fylgst vel með hvað var í boði af barnaefni og vann með einu stærsta barna- leikhúsi Bandaríkjanna þegar hún bjó í New York „Það eru einhver örlög, ein- hverjir svona litlir hlutir sem toga í mann ómeðvitað og í mínu til- viki var það efni fyrir börn. Þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn og fór að leita eftir hlutum til að örva það var fátt annað í boði en Stubbarnir. Ég ákvað því að gera eitthvað í málinu sjálf, talaði við Lindu því ég vissi að hún hefði þennan sama áhuga á börnum og barnaleikhúsinu og ég og úr urðu Skoppa og Skrítla. Við miðuðum þær við þennan allra yngsta hóp sem nánast ekkert er gert fyrir, en það hefur svo þróast og komið í ljós að mun eldri börn hafa gaman af þessu,“ segir Hrefna sem stofn- aði fyrirtæki með Lindu í kring- um verkefnið sem hefur nú verið starfandi í fimm ár. Sáuð þið fyrir ykkur að þetta gæti orðið ykkar lifibrauð? „Við renndum alveg blint í sjó- inn með þetta, gerðum þessa fyrstu DVD mynd í rauninni bara fyrir börnin okkar og hugsuðum að ef einhver önnur börn gætu haft gaman af því væri það bara plús. Það var þrautinni þyngra að finna styrktaraðila svo við lögð- um mikið í þetta sjálfar því við höfðum fulla trú á þessu,“ segir Hrefna. „Við höfum alveg þurft að berj- ast fyrir þessu og oft þurft að ákveða að framleiða bara efni þó svo að launin skili sér ekki nema nokkrum mánuðum seinna, eða ekki. Við fáum oft með okkur gott fólk sem við borgum þá auðvit- að fyrst og stöndum því oft uppi án þess að fá greitt,“ segir Linda, en þær stöllur hafa framleitt fjóra DVD-diska, geisladisk, bók, sett upp tvær leiksýningar, tvær þátta- raðir, bíómynd og eiga enn efni sem er óútgefið. SKRÍTIÐ AÐ LEIKA Á ENSKU Hrefna og Linda hafa ferðast með leiksýningarnar bæði til Banda- ríkjanna þar sem þær sýndu fyrir fjölda áhorfenda í Flórída og New York þar sem Hrefna var búsett og í september 2007 fóru þær til Afr- íku og dvöldu í níu daga í þorpi í Togo. Yfir 10.000 áhorfendur hafa nú séð Skoppu og Skrítlu í bíó hér á landi og búast má við frekari landvinningum á næstunni. „Þegar við fundum þennan áhuga að utan fórum við út í að láta þýða sýninguna og læra hana upp á nýtt,“ segir Linda og viður- kennir að það hafi verið skrítið að tala ensku til að byrja með. „Ég var bara eins og Björk Guðmundsdótt- ir mætt á svæðið að leika Skoppu og Skrítlu. En svo stillti maður sig inn á þetta og það varð bara sjálf- sagt að tala ensku,” bætir hún við og brosir. Báðar eru þær sammála um að ferðin til Afríku sé einstaklega eft- irminnileg. „Ég iðka qi gong ásamt Nirði P. Njarðvík sem er stofnandi Spes samtakanna og styrkir þorp í Togo í Afríku. Í spjalli sagði hann að það væri nú gaman ef börn- in hans í Afríku gætu upplifað Skoppu og Skrítlu. Við gripum það á lofti og fórum að leita að styrkt- araðilum,“ segir Hrefna um ferð- ina sem vatt heldur betur upp á sig því um fimmtán manns fóru með til Togo, en þar á meðal voru styrktarforeldrar, læknir, leik- stjóri, búningahönnuður og leik- skólakennari. „Við settum svo upp hálfgerð- ar vinnubúðir með fólkinu í þorp- inu. Leikskólakennarinn tók að sér að skoða hvað væri hægt að gera betur og hvað þau gætu nýtt Treysta því að vinnan skili sér Hressar Linda Ásgeirsdóttir og Hrefna Hallgrímsdóttir sameinuðust í áhuga sínum á barnaleikhúsi. ✽ ba k v ið tjö ldi n

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.