Fréttablaðið - 06.02.2009, Síða 25

Fréttablaðið - 06.02.2009, Síða 25
6. febrúar föstudagur 5 sér úr leikskólastarfinu hér á landi. Leikstjórinn fór í alls konar leikræna vinnu með börnunum ásamt okkur og búningahönnuð- ur fór í að hjálpa börnunum að nýta náttúruna til að búa til bún- inga og leikmyndir. Nokkrir eig- inmenn úr okkar hópi settu upp íþróttaskóla þar sem þeir kenndu börnunum að spila fótbolta og körfubolta með útbúnaði sem við höfðum fengið og þegar við fórum settu börnin svo upp stóra leiksýningu sem þau höfðu smíð- að frá a til ö,“ segir Linda. „Þessir níu dagar voru eins og níu mán- uðir því við náðum að gera svo rosalega margt. Tíminn er svo af- stæður þarna. Þessi hópur var líka svo samstilltur og gaf hjartað sitt í þetta. Þegar svona magnað and- rúmsloft myndast koma allir góðu englarnir og það verður eitthvað magnað til,“ bætir hún við. SKILNINGSRÍKIR EIGINMENN Aðspurðar segja þær fátt annað en Skoppu og Skrítlu komast að hjá þeim í dag. „Við sýnum leikritið Skoppa og Skrítla í söngleik í mars og erum á fullu að vinna ensku útgáfuna af myndinni okkar sem er að verða tilbúin. Litla sprota- fyrirtækið okkar er vonandi það nýja 2009,“ segir Linda og brosir. „Ég hef reyndar líka verið að leika í Fló á skinni að undanförnu svo ég fer úr barnabúningnum og í la- texgalla,“ bætir hún við og hlær. „Ef við værum ekki vel giftar, þá væri þetta litla fyrirtæki okkar ekki starfandi. Við myndum ekki geta haldið uppi fjölskyldu með þessum launum og erum oft að vinna launalaust starf,“ segir Hrefna sem á Bjart Jörfa sex ára, Dag Mána fimm ára og Snæfríði Sól sem fæddist í desember, en Linda á Karl Kristján þriggja ára og Gissur, þrettán ára fósturson. „Við höfum hins vegar fulla trú á að þetta sé vinnunnar virði og mennirnir okkar halda áfram að styðja okkur. Við ætlum að fara með þetta til útlanda og þar skil- ar þetta sér vonandi á endanum,” segir Linda. „Þetta yrði jákvæð landkynn- ing fyrir Ísland og ekki amalegt ef börn erlendis myndu upplifa sína fyrstu leikhúsupplifun í íslensku leikhúsi. Við þurfum að endur- reisa orðspor okkar á erlendri grund svo það yrði jákvætt í alla staði,“ segir Hrefna og þær stöll- ur kveðja með bros á vör. Draumafríið? H: Í augnablikinu hljómar hvítur sandur, sólhlíf og rúmlega 25 gráðu hiti gríðarlega vel. L: Að endurtaka Tenerife-ferðina með öllum sem þar voru sum- arið 2007. Hverju myndirðu sleppa ef þú yrðir að spara? H: Ferðum á Mann lifandi og Osushi. L: Skyndibitanum og taka með nesti í staðinn. „Mesti áhrifavaldurinn minn hefur verið Madonna – „cheesie but true“. Þessi gyðja hefur haft þau áhrif á mig að í dag þori ég að segja, gera og framkvæma það sem ég vil. Ég man eftir því að vera lítill strákur og í þokka- bót hommi, þá gat ég alltaf litið til þessarar per- sónu sem hafði alltaf sömu afstöðu: Vertu þú sjálfur og láttu engan bæla þig niður. Ég var mjög lokaður sem unglingur og þorði ekki að hleypa fólki almennilega að mér og hvað þá láta fólk vita af því að ég væri hommi. En þessi „persóna“ hjálpaði mér að brjótast út úr skelinni. Annars er fullt af öðru fólki sem hefur mikil áhrif á mig, t.d. vinir mínir.“ MADONNA Georg Erlingsson Merritt listamaður ÁHRIFA- valdurinn

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.