Fréttablaðið - 06.02.2009, Side 26

Fréttablaðið - 06.02.2009, Side 26
6 föstudagur 6. febrúar SODA STREAMTÆKI ROLLUHÚFAN Maðurinn minn keypti húfuna í San Francisco. Þetta er falleg og hlý húfa. TOPP 10 Alexía Björg Jóhannesdóttir leikkona tíðin ✽ úti er alltaf að snjóa DÍANA MIST STÓLLINN FRÁ ÖMMU Ég fékk þennan stól frá ömmu minni og nöfnu. Hann er yfir hundrað ára gamall en afi gaf henni hann. Mér þykir mjög vænt um hann og nota hann mikið. BÆKUR TÖLVAN OG SÍMINN HRINGUR Maðurinn minn gaf mér þennan hring í jólagjöf eitt árið. MATREIÐSLUBÆKUR Í KILJU Þrjár nýlegar matreiðslubækur voru að koma út í kilju hjá JPV forlagi. Mikil snilld er að fá bækurnar Eldað í dagsins önn eftir Stefaníu Valdísi Stefánsdóttur og Í matinn er þetta helst og Seinni réttir eftir fréttakonuna og matgæðinginn Jóhönnu Vig- dísi Hjaltadóttur í handhægri útgáfu til hversdagsbrúks. SÆNSK GÆÐAVARA Sænski tónlistarmaðurinn Johan T. Karlsson, betur þekkt- ur sem Familjen, er með tónleika á Nasa í kvöld sem enginn unnandi skandinavísks indíteknós ætti að láta fram hjá sér fara. Tónleikar hans á Airways voru með þeim betri á hátíð- inni og engin ástæða til að búast við litlu í kvöld. Margir hafa eflaust upplifað aukna streitu og álag undanfarnar vikur. Fæstir gefa sér tíma til að slaka á, en það hefur margoft verið sannað að lang- tíma streita hefur slæm áhrif á líkamlega heilsu okkar. Fyrir þá sem eru önnum kafn- ir, er nú komin út bók sem heitir 1001 leið til að slaka á, eftir Su- sannah Marriott, en Aðalheiður Ploder þýddi og staðfærði. Í bókinni, sem er skemmtilega uppsett og full af fallegum myndum, eru stuttir og aðgengi- legir kaflar þar sem fjallað er um hvernig best er að takast á við streitu á vinnustað og heimafyrir. Einnig er farið í hvernig mæta má auknu álagi á með- göngu, eftir fæðingu, í samskiptum við ást- vini, og margt fleira. Bent er á hagkvæm- ar lausnir og allir geta fundið aðferð- ir við sitt hæfi. Ef þú vilt ekki lengur stjórnast af streitu og álagi er um að gera að draga djúpt andann og ná sér í eintak af þessari góðu bók. Slakað á í kreppunni PERLUEYRNALOKKAR Ég erfði eyrnalokkana frá ömmu minni. PRJÓNARNIR SVEPPUR Þennan lampa fékk ég í þrítugsafmæl- isgjöf frá vinum mínum. Hann er voðalega sætur og gefur heimilinu s trumpa legan fíling. Ég hef eiginlega alltaf kveikt á honum, hvort sem það er dagur, kvöld eða nótt. TOPP 10 Föstudagur 30. janúar Ísland í Nató Gömul og góð vinkona hringdi í mig og dró mig út á djammið, þurfti reyndar ekki að hvetja mig neitt ógurlega til að breyta sjónvarpskvöldi í barhopp með tilheyrandi tjútti. Við hófum kvöldið á listaspírubarnum Boston þar sem meðal annars Sólveig Guðmundsdottir leikkona var á ferð og listamaðurinn Stein- grímur Eyfjörð, eða tvífari hans. Einbeittum okkur meira að rauðvíninu en spír- unum, það er meira gefandi. Kíktum svo á Ölstofuna. Þar var vart þverfótað fyrir samfylkingarfólki í stuði, Dagur B. Eggertsson og Mörður Árnason djömmuðu í hópi flokks- systkina. Mér sýndist líka áður en ég tók til fótanna undan ósköpunum að Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðing- ur og Rósa Björk Brynjólfsdóttir fréttamaður væru á stof- unni, flottar sem fyrr. Ég hins vegar þóttist viss um að meira stuð væri í boði á b5. Pantaði mér kreppu- og heilsudrykkinn vodka í vatn og komst að því að annar hver maður þar inni var gestur á Nató-ráðstefnu og sá ekki ástæðu til að hreyfa mótmælum við því, ágætis tilbreyting frá sömu fésunum og allt- af. Einar Bárðarson hrókur alls fagnaðar eins og vanalega en myndarlegasti maðurinn á svæðinu var örugglega Jón Arnór Stefánsson körfuboltasnilling- ur. Missti af tækifærinu til að heilla hann með djúpvitri greiningu á stöðu mála í körfuboltaheiminum þegar ég þurfti að láta mig hverfa undan ágangi sveittra hnakka sem voru algerlega að misskilja dans okkar vinkvennanna. Laugardagur 31. febrúar Algjör sleði Vaknaði ótrúlega hress miðað við aðstæður, klukkan tvö. Fór í Smáralind til að gera góð kaup en keypti á endanum ekkert annað en snjóþotu. Laust nefnilega niður í huga mér þeirri snilldarhugmynd að finna barnið í sjálfri mér með sleðaferð. Skellti mér í brekkuna á Valhúsahæð en fór ekki vel út úr glím- unni við stökkbrettið, eins og risavaxinn marblettur á versta stað ber vott um. Tinna Ólafsdóttir og fleiri ferskir Seltirningar voru á svæðinu með börnin sín, og ég áttaði mig á því að það er ekki töff að vera einn á ferð í sleðabrekku fjölskyldufólksins! BOLUR 1.990,- GALLABUXUR 8.990,- Kringlan // Smáralind // Keflavík www.blend.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.