Fréttablaðið - 06.02.2009, Qupperneq 29
FÖSTUDAGUR 6. febrúar 2009 3
GÖTUMARKAÐSSTEMNING er nú í Kringlunni þar sem
komið er að útsölulokum. Margt er að finna á söluborðunum og
hægt að gera góð kaup með því að gefa sér smá tíma og fara í
gegnum það sem á boðstólum er.
LAUGARDAGUR 10 -18
Jakkaföt frá kr. 9.900
Gallabuxur frá kr. 4.900
Skyrtur frá þúsundkalli!
Nýtt VISA/EURO tímabil.PIP
A
R
•
S
ÍA
•
9
0
0
2
9
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
„Ég var ein af sjö hönnuðum sem
valdir voru í samstarf með fyrir-
tækjum í keppni á vegum Hönnun-
armiðstöðvarinnar og Útflutnings-
ráðs Íslands sem heitir Hönnun í
útflutning. Keppnin var haldin í
því augnamiði að leiða saman fyr-
irtæki og hönnuði til að hanna og
framleiða nýja vöru til útflutnings
og mig vantaði verkefni á þessum
tíma og dreif mig því í keppnina,“
segir Laufey Jónsdóttir fatahönn-
uður.
„Ég var valin til samstarfs
við prjónavörufyrirtækið Glófa
sem er eigandi að vörumerkinu
Varma of Iceland. Sjö fyrirtæki
tóku þátt og leist mér strax best
á Glófa og útbjó því tillögu fyrir
þá. Þeir báðu um ullarlínu með
peysum, slám, pilsum og ýmsum
aukahlutum og byggir mín til-
laga á því,“ segir Laufey og bætir
við að bæði hafi Glófi verið einna
næst því sem hún er að fást við en
auk þess þótti henni spennandi að
vinna með íslensku ullina. „Um
þessar mundir erum við að ganga
frá samningnum milli mín og fyr-
irtækisins og ég byrja svo bara á
mánudaginn,“ segir hún spennt en
fyrst mun hún skoða verksmiðj-
urnar og vinna með prjónameist-
ara og markaðsstjóra hjá Glófa.
Glófi hefur fram að þessu stefnt
einna helst á ferðamannamarkað-
inn. „Þeir voru bara í þessu klass-
íska íslenska en markmiðið með
þátttöku í keppninni var að láta
hanna meiri tískufatnað úr ullinni
sem myndi líka stíla inn á þann
markað,“ segir hún.
„Nú er mikil gróska í fatahönnun
á Íslandi og því var ég mjög ánægð
með að vera valin. Ég er alltaf að
safna í möppuna og því hugsaði
ég að hvort sem ég ynni eða ekki
þá væri það dýrmæt reynsla að
taka þátt,“ segir Laufey einlæg en
hún útskrifaðist úr Listaháskóla
Íslands árið 2007. „Í ljósi ástands-
ins þá hefur verið fremur lítið að
gera hjá mér fram að þessu en ég
hef ekki verið með neitt í búðum
heldur hef ég mestmegnis unnið
sem verktaki. Í fyrra tók ég þátt
í norrænu hönnunarkeppninni
Designers Nest en þá saumaði ég
línu sem byggðist á tísku sjötta
áratugarins og hafnaði ég í öðru
sæti,“ segir hún hógvær. Hægt er
að sjá fatnað úr þeirri línu á vef-
síðu Laufeyjar www.laufeyj.com.
hrefna@frettabladid.is
Nýstárlegar ullarflíkur
Laufey Jónsdóttir er ungur og hæfileikaríkur hönnuður sem lenti í öðru sæti í hönnunarkeppninni De-
signers Nest í fyrra. Nú hefur hún verið valin til að hanna fyrir Glófa í verkefninu Hönnun í útflutning.
Laufey hlakkar til að starfa með fyrirtækinu Glófa í að hanna nýtískulegan ullarfatn-
að. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM