Fréttablaðið - 06.02.2009, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 06.02.2009, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 6. febrúar 2009 SEND IÐ OKK UR LÍNU Við hvetj um les end ur til að senda okk ur línu og leggja orð í belg um mál- efni líð andi stund ar. Grein ar og bréf skulu vera stutt og gagn orð. Ein göngu er tek ið á móti efni sem sent er frá Skoð ana síð unni á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni birt ist í Frétta blað inu eða Vísi eða í báð um miðl un um að hluta eða í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt- inga og til að stytta efni. UMRÆÐAN Kristín Fjóla Bergþórsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Sigurður Magnússon og Sigurbjörn Rafn Úlfarsson skrifa um lóðadeilur á Álftanesi. Á netsíðu Fréttablaðsins, visir.is í dag, er að finna grein sem við undirritaðir bæjarfulltrúar Á-lista á Álftanesi höfum skrifað vegna deilna sveitarfélagsins við eigendur Miðskóga 8 á Álftanesi, Hald ehf.; Hédísi Sveinsdóttur, Gunnar Árnason og Henrik Thor- arensen. Þar sem greinin er nokk- uð löng reyndist ekki unnt að verða við óskum okkar um að birta hana í heild sinni í Fréttablaðinu og því er einungis stiklað á stóru hér á eftir. Lesendur Fréttablaðsins eru hvattir til að lesa greinina í heild sinni á visir.is. Eigendur Miðskóga 8 hafa á und- anförnum misserum komið ítrek- að fram í fjölmiðlum með ásakanir og rangfærslur á hendur sveitar- félaginu. Þau hafa ítrekað tengt deilur um byggingarleyfi við Mið- skóga 8 þeirri staðreynd að fyrr- um forseti bæjarstjórnar býr á aðliggjandi lóð, í þeim tilgangi að persónugera málið og gera afstöðu sveitarfélagsins ótrúverðuga. Per- sónulegar árásir á fyrrum forseta bæjarstjórnar hafa verið rætnar og óvægnar og margar fullyrðing- ar beinlínis rangar. Núverandi bæjarstjórn telur að ekki liggi fyrir gilt deiliskipulag fyrir byggingarlóð að Miðskógum 8 og hafnar umsókn um bygging- arleyfi. Bæjaryfirvöld hafa, þrátt fyrir fullyrðingar eigenda um að svo sé ekki, reynt að finna lausn á deilunni; ■ Strax sumarið 2006 voru eig- endur Miðskóga 8 hvattir til að hverfa frá hönnun húss á þess- um stað þ.e. við og ofan í friðaðri fjöru við Skógtjörn. ■ Sveitarfélagið var reiðubúið til viðræðna um að greiða sann- gjarnan og útlagðan kostnað til eigenda og fól lögmanni sínum að annast sáttaumleitanir við lögmann eigenda, en þar sem of mikið bar á milli er þeim nú lokið. ■ Sveitarfélagið hefur einnig boð- ist til að hafa milligöngu um að eigendur fengju aðra lóð í sveit- arfélaginu, ef kostur og áhugi væri á slíku. Nú síðast ásaka eigendur Mið- skóga 8 bæjarfulltrúa Á-lista um að eiga þátt í árás á þau á umræðu- vef sveitarfélagsins. Við fjór- ir undirritaðir bæjarfulltrúar Á- lista höfðum ekki hugmynd um umrædda árás og eigum ekki þátt í henni á nokkurn hátt. Við hvetjum lesendur Fréttablaðsins til að lesa greinina í heild sinni á visir.is Höfundar eru bæjarfulltrúar fyrir Á-lista á Álftanesi. Rangfærslur vegna Miðskóga 8 leiðréttar HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ + Bókaðu ferð á www.icelandair.is ÞÆGINDI FYRIR ÞIG Á EINSTÖKU TILBOÐI SEM LÝKUR Í DAG. M AD RID BARCELONA PARÍS LONDON MANCHESTER GLASGOW MÍLANÓ AMSTERDAM MÜNCHEN DÜSSELDORF FRANKFURT BERLÍN KAUPMANNAHÖFN STAVANGER OSLÓ STOKKHÓLMUR HELSINKI HA LIF AX NE W Y OR K ORL AND O MINNE APOLIS – ST. PAUL TORO NTO BO STO N BERGEN REYKJAVÍK * Innifalið: Flug og flugvallarskattar, aðra leið. Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags ef keypt er far báðar leiðir. Hámarksdvöl er 1 mánuður ef keypt er far báðar leiðir. Breytingagjald er 10.000 kr., engin endurgreiðsla, enginn barnaafsláttur. – Ath. Það þarf ferðaheimild, ESTA, til Bandaríkjanna. Bandaríkin Verð frá 34.900 kr.* Evrópa Verð frá 29.900 kr.* TIL EVRÓPU OG BANDARÍKJANNA Láttu fara vel um þig á nýja farrýminu, Economy Comfort, þegar þú flýgur til þinnar borgar. Tilboðið gildir til allra áfangastaða Icelandair svo að nú er um margt að velja. Athugið: Í dag er síðasti söludagur. Ferðatímabil: 1. febrúar til 31. maí 2009. Economy Comfort 35–46% AFSLÁTTUR Costa del Sol MasterCard Mundu ferðaávísunina!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.