Fréttablaðið - 06.02.2009, Síða 34
22 6. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Dagur stærðfræðinnar er haldinn
fyrsta föstudag í febrúar ár hvert.
„Helsta markmið dagsins er að vekja
nemendur, kennara og alla aðra til um-
hugsunar um stærðfræðina og hlut-
verki hennar í samfélaginu,“ segir
Rannveig A. Guðmundsdóttir, stærð-
fræðikennari og gjaldgeri Flatar, sam-
taka stærðfræðikennara.
Ár hvert ákveður stjórn Flatar eitt-
hvað þema og í ár eru það þríhyrning-
ar sem lögð verður áhersla á. „Í skólan-
um þar sem ég kenni höfum við verið
með verkefni tengd þríhyrningum og
alls kyns þrautir,“ segir Rannveig sem
kennir við Breiðagerðisskóla þar sem
þríhyrningar hafa verið skoðaðir í víð-
ara samhengi í heila viku.
„Við höfum til dæmis sent nemend-
ur út til að taka myndir af þríhyrning-
um í umhverfinu, skoðað þríhyrninga
í byggingum og margt fleira,“ segir
Rannveig.
Í Fleti eru stærðfræðikennarar af
öllum skólastigum. Samtökin halda úti
heimasíðu, http://flotur.ismennt.is, og
í tilefni af degi stærðfræðinnar hefur
þar verið komið upp verkefnabanka
fyrir grunnskóla og framhaldsskóla.
„Við erum líka með þrautasamkeppni
á þessum degi sem grunnskólarnir geta
tekið þátt í og þar eru verðlaun í boði,“
upplýsir Rannveig sem segir krakkana
hafa ótrúlega gaman af deginum enda
eru þá bækurnar lagðar til hliðar og
meiri áhersla lögð á þrautir.
Rannveig telur að það komi fólki
á óvart hversu mikið stærðfræði sé
notuð í daglegu lífi. „Þegar við spyrj-
um krakkana hvort foreldrar þeirra
noti stærðfræði í vinnunni svara þau
yfirleitt neitandi. Svo bendir maður
þeim á að stærðfærðin sé víða notuð.
Þegar maður eldar, fer út í búð og legg-
ur saman í huganum,“ segir Rannveig
og bætir við: „Stærðfræðin er allt í
kringum okkur.“
solveig@frettabladid.is
FLÖTUR, SAMTÖK STÆRÐFRÆÐIKENNARA: DAGUR STÆRÐFRÆÐINNAR 2009
ÞEMAÐ Í ÁR ER ÞRÍHYRNINGAR
BREIÐAGERÐISSKÓLI Rannveig leiðbeinir nemanda í verkefni sem tengist þríhyrningi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jóhanna Margrét
Björgólfsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Grund að kvöldi 4. febrúar.
Börn og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Stefán Gunnlaugur
Eðvaldsson
skipasmiður, Sóltúni 18,
lést þriðjudaginn 3. febrúar á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni.
Guðrún V. Ragnarsdóttir
Þuríður Ragna Stefánsdóttir Brynjólfur Sigurjónsson
Sigrún Björk Stefánsdóttir
Eðvald Einar Stefánsson Hildur Guðrún Hauksdóttir
Katrín Rósa Stefánsdóttir Stephen D. Smith
Stefán Stefánsson
Magnús Halldórsson Laufey Pétursdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts föður okkar,
Sigurjóns Hólm
Sigurjónssonar.
Viðar Sigurjónsson
Gunnhildur Sigurjónsdóttir.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Linda Denný Eyþórsdóttir
Öldrunarheimilinu Hlíð á Akureyri,
lést 3. febrúar. Jarðsungið verður frá Akureyrarkirkju,
mánudaginn 9. febrúar klukkan 10.30.
Sigurður, Íris,
börn og tengdabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir og amma,
Lilja Brynjólfsdóttir
frá Króki Norðurárdal, síðast til
heimilis á Hrafnistu Reykjavík,
lést þriðjudaginn 3. febrúar.
Lárus Sigurgeirsson
Gunnar Lárusson
Lilja Hrönn Gunnarsdóttir Bryndís Gunnarsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför móður minn-
ar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
Guðrúnar Skagfjörð
Stefánsdóttur
áður til heimilis í Hrísalundi 6e, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Dvalarheimilinu Hlíð
– Lerkihlíð fyrir kærleiksríka umönnun.
Heiðdís Haraldsdóttir Bjarnhéðinn Gíslason
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Ástkær móðir okkar,
Guðný S. Stefánsdóttir
frá Vestmannaeyjum,
síðast að Eskihlíð 14, Reykjavík,
lést 15. janúar sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Börn hinnar látnu.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
BOB MARLEY
FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1945.
„Tónlist mín mun lifa að ei-
lífu. Kannski finnst einhverj-
um þetta vera grobb en ég mæli
bara út frá staðreyndum. Tón-
list mín mun lifa eftir minn dag
og alla daga.“
Jamaíkabúinn Bob Marley hóf tón-
listarferil sinn með hljómsveitinni
The Wailers. Hann var sannspár
um lífdaga tónlistar sinnar og er
enn kunnasti reggítónlistarmað-
ur sögunnar. Hann lést af völdum
krabbameins í maí 1981, aðeins
36 ára gamall.
MERKISATBURÐIR
1778 England lýsir yfir stríði
gegn Frökkum.
1826 Timburstofan á Möðru-
völlum í Hörgárdal
brennur ásamt miklu af
amtsskjölum.
1891 Dalton-gengið fremur
fyrsta stóra lestarrán sög-
unnar.
1918 Konur yfir þrítugu fá kosn-
ingarétt á Bretlandseyjum.
1935 Monopoly-borðspilið
kemur á markað í fyrsta
sinn.
1948 Fyrsti aðalritari Samein-
uðu þjóðanna, Norðmað-
urinn Trygve Lie, kemur til
landsins.
1964 Frakkar og Bretar undirrita
samninga um gerð gang-
anna undir Ermarsundið.
1988 Alfred Jolson vígður bisk-
up kaþólskra á Íslandi.
Það var fyrir ellefu árum að kennslu-
konan Mary Kay LeTourneau, þá
36 ára og fjögurra barna móðir, var
dæmd í sjö ára fangelsi fyrir að eiga
í ástarsambandi við 14 ára nem-
anda sinn, Vili Fualaau.
Vili hafði fyrst verið nemandi
Mary Kay þegar hann var átta ára,
og aftur varð hún kennari hans á
unglingastigi. Ástarsamband þeirra
hófst sumarið 1996, þegar hann
var 13 ára og hún 34, en upp komst um samband
þeirra þegar eiginmaður hennar komst í ástarbréf
þeirra í millum í febrúar 1997. Fljótlega komust
barnaverndaryfirvöld í málið og Mary Kay hand-
tekin fyrir barnamisnotkun í kjölfarið. Hún gekk þá
með dóttur þeirra Vilis, sem hún ól fjórum mán-
uðum síðar. Í ágúst sama ár hlaut Mary Kay 89
mánaða fangelsisdóm, sem var fljótlega mildaður
í sex mánuði og henni fyrirskipað að
sækja þriggja ára meðferð fyrir kyn-
ferðisglæpamenn. Vegna fyrirmynd-
arhegðunar var Mary Kay sleppt úr
fangelsi í janúar 1998; með því skil-
yrði að hún færi ekki til fundar við
Vili. Aðeins mánuði síðar kom lög-
regla að þeim tveimur í bifreið þar
sem einnig fundust vegabréf og um-
talsvert fé, sem gaf til kynna að Mary
Kay hafi ætlað að flýja úr landi. Upp-
runalegur fangelsisdómur var því endurnýjaður og
í mars 1998 kom í ljós að Mary Kay var ófrísk að
öðru barni þeirra Vilis.
Mary Kay fékk reynslulausn úr fangelsi í ágúst
2004. Tveimur dögum seinna fór Vili, þá 21 árs,
fram á að þau fengju að hittast, enda orðinn lög-
ráða. Þau giftu sig 20. maí 2005 við mikla athygli
fjölmiðla.
ÞETTA GERÐIST: 6. FEBRÚAR 1998
Í fangelsi fyrir forboðnar ástir