Fréttablaðið - 09.02.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 09.02.2009, Blaðsíða 4
4 9. febrúar 2009 MÁNUDAGUR STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurð- ardóttir forsætisráðherra hefur sett á fót ráðgjafar- hóp til að vinna tillögur um breytingar á stjórnar- skránni. Björg Thoraren- sen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, mun leiða ráðgjafarhópinn, sem und- irbýr frumvarp til stjórnar- skipunarlaga sem lagt verð- ur fram á Alþingi á næstu vikum. Aðrir í hópnum eru Bryndís Hlöðversdóttir, forseti lagadeild- ar Háskólans á Bifröst, og Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda. Hópnum er falið að gera til- lögu um stjórnarskrárákvæði um auðlindir í þjóðareign, þjóðar- atkvæðagreiðslur og aðferð við breytingar á stjórnarskrá með sér- stakri þjóðaratkvæðagreiðslu. Í erindisbréfi er þess óskað að ráð- gjafarhópurinn meti hvort rétt sé að gera tillögu um fleiri stjórn- arskrárbreytingar, einkum varðandi umhverfisvernd. Hópurinn mun hefja undirbúning lagasetning- ar varðandi stjórnlagaþing eftir komandi alþingis- kosningar og móta tillögur um nauðsynlega lagasetn- ingu og eftir atvikum setn- ingu bráðabirgðaákvæðis í stjórnarskrá. Forsætisráð- herra mun að fengnum tillögum framangreindra sérfræðinga hafa samráð við alla flokka, sem fulltrúa eiga á Alþingi, áður en frumvarp til stjórnarskipunarlaga verður lagt fram á Alþingi. - shá Forsætisráðherra hefur skipað ráðgjafarhóp um breytingar á stjórnarskránni: Frumvarp lagt fram fljótlega BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR BJÖRG THORARENSEN GÍSLI TRYGGVASON KOSNINGAR Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur falið Þor- keli Helgasyni stærðfræðingi að stýra vinnu við undirbúning hugs- anlegra breytinga á kosningalög- um fyrir komandi kosningar. Þetta er gert í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar- innar þar sem segir að kosninga- lögum verði breytt með þeim hætti að opnaðir verði möguleik- ar á persónukjöri í kosningum til Alþingis. Samráð verður haft við fulltrúa allra stjórnmála- flokka sem fulltrúa eiga á Alþingi í þessari vinnu. - shá Alþingiskosningar 2008: Kosningalög til endurskoðunar VEÐURSPÁ Alicante Bassel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 15° 4° 4° 2° 5° 3° 3° 2° 2° 22° 4° 16° 6° 24° -6° 7° 11° -1° Á MORGUN 3-10 m/s Hvassast austan til. MIÐVIKUDAGUR Víða hægur vindur, hvassast vestan til. 0 -3 -3 -3 -5 -2 -4 0 -2 2 -8 7 8 7 3 4 3 8 5 13 5 6 -2 -3 -4 -3 -6 -3 -3 -6 -5 -2 ÁFRAM FROST Lítilla breytinga er að vænta í veðrinu næstu daga. Það verða norðlægar áttir ríkjandi með tilheyrandi bjartviðri sunnan og vestan til en norðaustanlands verður þungbúnara og hætt við smá snjókomu eða élj- um. Áfram verður kalt í veðri. Soffía Sveinsdóttir Veður- fréttamaður ÁSTRALÍA, AP Heilu bæirnir hafa þurrkast út af landakortinu í skógar eldum sem geisa í Suðaustur- Ástralíu. Eftir því sem næst varð komist í gær höfðu minnst 108 manns týnt lífi í hamförunum. Þetta eru þar með mannskæð- ustu skógar eldar í sögu byggðar í landinu. Hitabylgja og mikill vindur ollu því að skógareldarnir breiddust út með ógnarhraða á stóru svæði í Viktoríuríki. Að minnsta kosti 700 heimili urðu eldinum að bráð. Þeir 84 sem vitað var til í gær að hefðu farist brunnu inni í húsum sínum. Óttast var að fleiri fórnarlömb ættu eftir að finnast þegar björgunar- sveitir komast að fleiri brunnum húsum. „Helvíti í öllu sínu veldi hefur sótt hið góða fólk Viktoríufylkis heim,“ sagði Kevin Rudd, forsætis- ráðherra Ástralíu. „Þetta er hrikalegur harmleikur fyrir alla þjóðina.“ Ösku rigndi og tré bókstaflega sprungu í bálinu, að sögn vitna. Loft- hiti allt að 47 gráðum og snarpur vindur sköpuðu kjöraðstæður fyrir útbreiðslu skógareldanna. Bærinn Marysvill og nokkur þorp þar í nágrenninu, til að mynda Kinglake um 50 km norður af Melbourne, jöfnuðust við jörðu í eldhafinu. Séð úr lofti var hamfarasvæð- ið ein rjúkandi, biksvört rúst, eins langt og augað eygði. Ekkert nema kolaðir trjástubbar voru eftir af heilu skógunum, á vegum sáust brunnin bílflök og nærri því hvert einasta mannvirki var rjúkandi rúst. Að sögn talsmanna slökkvi- liðs Victoríufylkis hefur um 2.200 ferkílómetra svæði orðið eldinum að bráð. Slökkviliðið óttast að þótt hitastig hafi lækkað talsvert þá blási enn vindar sem beint geti skógareldun- um í óútreiknanlegar áttir. Þúsund- ir sjálfboðaliða börðust við elda á um 30 stöðum í gærkvöldi. Að sögn talsmanna slökkviliðsins gæti það tekið marga daga að ráða niðurlög- um eldanna, jafnvel þótt lofthitinn héldist lágur. Síðustu hamfara-skógareld- ar í Ástralíu geisuðu árið 1983, en þeir urðu 75 manns að aldurtila og brenndu yfir 3.000 heimili í fylkjun- um Viktoríu og Suður-Ástralíu. audunn@frettabladid.is Mannskæðar ham- farir geisa í Ástralíu Skógareldar sem nú geisa í Suðaustur-Ástralíu eru þegar orðnir þeir mannskæð- ustu í sögu landsins. Yfir 700 heimili hafa orðið eldinum að bráð og yfir 100 manns höfðu í gær fundist látnir. „Þjóðarharmleikur“ segir forsætisráðherrann. BARÁTTA Liðsmenn slökkviliðs Viktoríufylkis kljást við eldinn í skóglendi nærri bænum Kinglake austur af Melbourne. FRÉTTABLAÐIÐ/AP NOREGUR, AP Norska ríkisstjórnin samþykkti í gær að leggja fram frumvarp um stofnun sjóðs sem í verði eitt hundrað millj- arðar norskra króna, jafnvirði 1.700 millj- arða íslenskra króna. Fjár- munirnir verða nýttir til að hleypa nýju blóði í norskt efnahagslíf. Jens Stoltenberg, forsætis- ráðherra Noregs, segir helming fjármagnsins renna til norsku bankanna svo þeir blási á ný lífi í útlánastarfsemi sína. - jab Norðmenn örva efnahaginn: Setja milljarða í bankakerfið JENS STOLTENBERG Lögmaður til starfa Stjórn Félags prófessora hefur fengið lögmann til að gæta réttinda félags- manna. Lögmaðurinn mun skoða lagalega stöðu prófessora og skila áliti. Prófessorar eru óánægðir með aukna kennsluskyldu. KJARAMÁL TJÁÐI HUG MARGRA Að sið araba er það móðgandi að sýna manni skósólann. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNMÁL Sturla Böðvarsson, fyrrverandi forseti Alþingis og ráðherra, ætlar ekki að bjóða sig fram til áframhaldandi þingsetu í komandi alþingiskosningum. Herdís Þórðardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur einn- ig tilkynnt að hún hyggist hætta á þingi. Bæði eru þau þingmenn Sjálf- stæðisflokksins í Norðvesturkjör- dæmi. Herdís settist á þing árið 2007 eftir að þingmaðurinn Einar Oddur Kristjánsson féll frá. - sh Breytingar í NV-kjördæmi: Sturla og Herdís hætta á Alþingi ÍRAK, AP Íraska fréttamanninum, sem kastaði skóm sínum að George W. Bush, þáverandi Bandaríkjaforseta, hefur verið gert að koma fyrir rétt 19. febrú- ar næstkomandi og svara til saka fyrir upprunalega ákæru; árás á erlendan þjóðhöfðingja. Hinn ákærði, Muntadhar al-Zeidi sem er hetja í augum margra landa sinna fyrir skókast- ið fræga, hefur verið í varðhaldi síðan hann lét Bush kenna á því á blaðamannafundi í Bagdad 14. desember. Til stóð að draga hann fyrir rétt strax í desember, en verjendur hans fengu því frestað og reyndu að fá ákæruna mildaða í að hann hafi aðeins móðgað hinn tigna gest. - aa Skókastarinn í Írak: Látinn svara til saka fyrir árás ÍRAK, AP Ráðherra málefna kvenna í Íraksstjórn hefur sagt af sér, aðeins hálfu ári eftir skipun í embætti, í mótmælaskyni við að embættinu hefur ekki verið látið í té þau meðul sem það þarf á að halda til að starfa. Verkefnið sem embættinu er ætlað að sinna – að bæta aðstæð- ur stríðshrjáðra kvenna – er yfir- þyrmandi. Kvenþingmenn á Íraks- þingi hafa skorað á ráðherrann, Nawal al-Samarraie, að hætta við að hætta. Hún hefur kvartað yfir því að embætti hennar sé ekki full- gilt ráðuneyti og hafi hvorki fengið viðunandi mannskap né fjárráð til að sinna hlutverki sínu. - aa Málefni kvenna í Írak: Ráðherra hættir í mótmælaskyni GENGIÐ 06.02.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 181,1448 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 113,79 114,33 166,99 167,81 145,53 146,35 19,526 19,64 16,63 16,728 13,798 13,878 1,2452 1,2524 169,5 170,52 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.