Fréttablaðið - 09.02.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 09.02.2009, Blaðsíða 12
12 9. febrúar 2009 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is TILBOÐSDAGAR 30-50% afsláttur af völdum legsteinum á meðan birgðir endast Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Haraldur Björnsson Þorragötu 9, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 10. febrúar kl. 13.00. Stefán Haraldsson Guðjón Björn Haraldsson Karólína Margrét Jónsdóttir Anna Sigríður Haraldsdóttir Sigurður Snorrason Þóra Sigurðardóttir Snorri Sigurðsson Haraldur Björnsson Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafað- ir, afi og langafi, Dagbjartur Jónsson Álakvísl 106, 110 Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi, mánudaginn 2. febrú- ar. Jarðarförin fer fram frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 10. febrúar kl. 13.00. Ingibjörg Auður Ingvadóttir Dagrún Dagbjartsdóttir Halldór Jónsson Viktoría Dagbjartsdóttir Júlíus Þór Júlíusson Inga Hanna Dagbjartsdóttir Jónas J. Hallsson Þóra Jóna Dagbjartsdóttir Hlynur Hjörleifsson Dagbjartur Vigfús Dagbjartsson Ellen Arný Barnes Jeffrey Barnes barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður, faðir, afi og lang- afi, Stefán Björnsson frá Grjótnesi, Norður-Þingeyjarsýslu, síðast til heimilis að Hvassaleiti 24, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum þriðjudaginn 3. febrúar. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 13. febrúar kl. 15.00. Svanhvít Friðriksdóttir Friðrik Stefánsson Björn Stefánsson Guðrún Stefánsdóttir Stefán Þór Björnsson Svanhvít Friðriksdóttir Hjálmar Friðriksson Svanur Sigurjónsson Hektor Stefánsson og tengdabörn. Útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Georgs Jónssonar blikksmíðara, Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 10. febrúar kl. 15.00. Jóel H. Georgsson Eygló F. Guðmundsdóttir Eyjólfur Georgsson Guðm. Birgir Georgsson Dong Qing Guan Helga U. Georgsdóttir Hafsteinn Vilhelmsson Edda J. Georgsdóttir Albert Pálsson afabörn og langafabörn. MERKISATBURÐIR 1827 Brotist inn og peningum rænt á bænum Kambi í Flóa. 1867 Nebraska verður 37. fylki Bandaríkjanna. 1923 Sovéska flugfélagið Aero- flot stofnað. 1943 Franklin D. Roosevelt Bandaríkjaforseti fyrirskip- ar 48 stunda vinnuviku vegna stríðsreksturs. 1946 Maður hrapar í djúpa gjá í Aðaldalshrauni í Þingeyj- arsýslu en finnst heill og hress eftir þrjá daga. 1971 All in the Family, fyrsti þátturinn með samkyn- hneigðu ívafi, frumsýndur í sjónvarpi. 1984 Maður með lambhús- hettu rænir útibú Iðnað- arbankans í Breiðholti. AFMÆLI MAGNÚS BJARN- FREÐSSON blaðamaður er 75 ára. EGILL ÓLAFS- SON tónlistar- maður er 56 ára. KRISTJÁN BJÖRN ÓMARSSON uppfinninga- maður er 40 ára. SIGRÍÐUR GRÖNDAL söngkona er 53 ára. LEIKARINN JOE PESCI ER 66 ÁRA. „Fólk gengur ekki upp að Robert DeNiro til þess eins að segja hæ, svo sýnið mér viðlíka virðingu! Það er meira í mig spunnið en ein- hvern ítalskan makkarónu- lúða, mundi ég halda.“ Ítalsk-ameríski leikarinn Joe Pesci hóf ferilinn sem barna- stjarna í sjónvarpi. Robert DeNiro sannfærði Martin Scor- sese um að ráða Pesci í Raging Bull (1980). Hann hefur síðan verið kunnuglegt andlit í maf- íósamyndum Scorsese. „Ég reyndi eins og ég gat að verða ekki leikari en fann að ég yrði aldrei ham- ingjusöm nema að reyna og mennta mig til þess. Það góða við þessa mennt- un er að hún er svo víðtæk að hún nýt- ist á fleiri stöðum í lífinu. Því ættu allir sem þrá í hjarta sínu að verða leikarar að freista gæfunnar, en ávallt með auðmýkt fyrir listinni og því sem þeir vilja koma til skila. Aldrei til þess eins að verða frægir, því það gagnast ekki,“ segir leikkonan Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir sem um þessar mund- ir fagnar þrjátíu ára leikafmæli á fjöl- um Þjóðleikhússins, þar sem hún stóð í fyrsta sinn í ársbyrjun 1979 í Stundar- friði eftir Guðmund Steinsson, en það leikverk vakti heimsathygli og hefur síðan verið leikið í 49 löndum. „Reyndar eru hátt í fjörtíu ár síðan ég steig fyrst á svið í Hárinu í Glaumbæ 1970, en þá var enginn leik- listarskóli í landinu. Eftir að Glaum- bær brann 1971 stofnuðum við SÁL- skólann í nafni Samtaka áhugafólks um leiklistarnám, réðum til okkar kennara og hófum nám til að ýta á yfirvöld að stofna löggildan leiklist- arskóla í landinu,“ segir Lilja Guðrún sem seinna tók inntökupróf hjá leik- listarskóla leikhúsanna, þaðan sem hún útskrifaðist vorið 1978. „Draum um að verða leikkona ól ég með mér frá fyrstu tíð en þorði ekki að segja frá því þá þótti ekki praktískt að fara í leiklistarnám. Þegar ég loks gerði það uppskátt við foreldra mína urðu bæði glöð og pabbi sagðist hafa beðið eftir þessum tíðindum því ég hefði verið byrjuð að leika áður en ég byrjaði að tala. Ég fékk því mjög góða hvatningu fjölskyldunnar, en hafði þá þegar fengið inngöngu í Hjúkrunar- skólann, sem ég guggnaði á, því ég vissi að það yrði alltaf með hálfum hug,“ segir Lilja Guðrún sem þó lauk námi í tækniteiknun til lifibrauðs ef illa færi, en hefur aldrei unnið það starf, enda stöðugt verið í leikhúsinu. „Ætli ég sé ekki dálítið heppin að hafa verið á sviði öll þrjátíu árin. Fólk kemur og fer í þessum bransa, en vinna með öllu því einstaka hæfileika- fólki sem var mér samferða í listinni færði ótrúlegar gjafir í sjóð minn og poka sem ég hef tekið með hvert sem ég fer og ekki er hægt að meta til fjár, nema í þeirri staðreynd að ég er enn í starfi,“ segir Lilja Guðrún sem á tólfta árinu og þá nýflutt til borgarinnar eyddi öllum sínum vasapeningum í leikhúsmiða þar sem hún sat ein fyrir miðju á fremsta bekk til að horfa á fólkið sem hún þekkti svo vel af rödd- unum úr útvarpsleikritum. „Pabbi hafði ungur tekið þátt í upp- færslum áhugaleikfélaga og trúlega hef ég smitast af bakteríunni þegar hann las fyrir okkur sögur og mamma dansaði við okkur heima, en sú upp- fræðsla og gleði eru djásnin sem ég hafði í heimanmund. Ég fæddist á Akranesi en fluttist átta ára í sveit á æskustöðvar pabba þegar mamma greindist með krabbamein, en hún var ein af þeim fyrstu sem lifði af krabbameinsmeðferð. Í sveitinni bjó ég í fjögur ár og hafði bara náttúr- una, hestana og hundana fyrir vini, sem og draumana. Ég lék því og las fyrir dýrin og dansaði við hundana, um leið og ég lagðist í grasið þegar ég sótti kýrnar til að láta mig dreyma. Síðan hafa allir mínir draumar ræst,“ segir Lilja Guðrún og bætir við að leiklistin í raun hafi verið draumn- um yfirsterkari. „Að verða leikkona var skemmtilegra en ég bjóst við en líka erfitt, eins og lífið allt er. Ég varð svo hugfangin að leika með þeim úr- vals leikurum sem ég hafði hlustað og horft á í leikhúsinu, að ég kom varla upp orði. Margir urðu áhrifavaldar, ekki síst Bríet Héðinsdóttir sem benti mér á að áhorfendur kæmu ekki til að sjá leikarana heldur verkið sem þeir flyttu. Það þótti mér ein mikilvægasta lexían í veganesti.“ thordis@frettabladid.is LILJA GUÐRÚN ÞORVALDSDÓTTIR: HEFUR STAÐIÐ Á LEIKSVIÐI Í ÞRJÁTÍU ÁR Allir draumar mínir hafa ræst LEIKKONA AF GUÐS NÁÐ Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir leikur um þessar mundir aðalhlutverk í Földu fylgi, nýju íslensku leikriti eftir Bjarna Jónsson, með Leikfélagi Akureyrar, en sýningunni hefur verið boðið á leiklistarhátíðina í Vasa í Finnlandi í apríl. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Það var rétt fyrir miðnætti 8. febrúar 1959 að loftskeytamaður á hafnfirska togaranum Júlí sagði við starfsbróður sinn á Júní að allt væri í lagi um borð, en þá var skip- ið ásamt tæpum tug ís- lenskra togara við veiðar á Nýfundnalandsmiðum. Af- takaveður hafði skollið á að kvöldi 7. febrúar og geisaði sleitulaust í fjóra sólarhringa. Togaramenn máttu hafa sig alla við að halda skipum sínum á floti í stórhættulegri ísingu. Næst þegar reynt var að hafa samband við Júlí svaraði hann ekki og lét heldur ekki í sér heyra daginn eftir á þeim tíma sem íslensku togaran- ir höfðu sammælst um að láta hver annan vita af sér. Daginn eftir var veðrið enn mjög slæmt en útlit fyrir að það versta væri afstaðið. Kom þá í ljós að enginn hinna togaranna hafði heyrt í Júlí lengi og var togarinn kallaður upp hvað eftir annað. Um kvöldið til- kynnti Bæjarútgerð Hafnar- fjarðar að ástæða væri til að hefja leit og hafði samband við kanadísku strandgæsl- una sem hóf leit degi síðar úr lofti og sjó, ásamt banda- rískum flugvélum og skip- um. Auk Júlí var tveggja kan- adískra skipa leitað eftir veð- urofsann, en eftir sleitulausa leit í tæpa viku hafði ekkert skipanna komið fram og var ákveðið að hætta leit 17. febrúar. Mikil sorg ríkti á Íslandi vegna hvarfs Júlí og hélt Alþingi sérstakan fund þann 18. febrúar 1959 til minningar um sjómennina sem fórust. ÞETTA GERÐIST: 9. FEBRÚAR 1959 Hafnfirski togarinn Júlí ferst

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.