Fréttablaðið - 09.02.2009, Síða 11
MÁNUDAGUR 9. febrúar 2009 11
UMRÆÐAN
Þorgerður Einarsdóttir og Sig-
ríður Þorgeirsdóttir skrifa um
kynjaða hugmyndafræði
Tími hins óhefta nýfrjáls-hyggjukapítalisma er liðinn,
hinni dýrkeyptu tilraun lauk með
hruni sem nálgast þjóðargjald-
þrot. Hvað við tekur er algjör-
lega háð því hvaða skilning við
leggjum í það sem gerðist og
hvernig okkur tekst að gera það
upp. Eitt af því sem nauðsynlegt
er að kryfja er hugmyndafræði
nýfrjálshyggjunnar um konur og
karla og afleiðingar hennar.
Hið alþjóðlega fjármálakerfi
sem nú er í rúst var leikvöll-
ur karla. Konur eiga 1% eigna í
heiminum, vinna 2/3 hluta allra
vinnustunda en fá aðeins 10%
af tekjum heims. Hér á landi er
ranglætið ekki jafn stórbrotið.
Launamunur kynja er 16%, langt
umfram Evrópumeðaltal og hefur
staðið í stað um árabil. Erfiðara er
að meta eignamun kynjanna því
hann er reiknaður út frá skatt-
framtölum þar sem hjón telja
fram saman. Konur geta því átt
talsverðan auð á pappírnum eins
og fréttir undanafarið um „afsöl“
eigna til eiginkvenna sýna. Karlar
er hins vegar í meirihluta þeirra
sem hafa ráðstöfunarvald yfir
auðnum. Það voru einsleitir karla-
hópar sem rústuðu fjármálakerf-
inu. En þegar upp er staðið axla
þeir ekki ábyrgð; þeir eru ekki
„persónulega ábyrgir“. Föðurlegri
ábyrgð og umhyggju er greinilega
ábótavant í karlímynd nýfrjáls-
hyggjunnar.
Karlar eru um 82% þingmanna
í heiminum. Á Íslandi, sem talið
er í fremstu röð heimsins í kynja-
jafnrétti, eru karlar um tveir
þriðju þingmanna, ráðherra, sveit-
arstjórnarmanna, 71% stjórnenda
og embættismanna, 80% stjórn-
armanna og stjórnarformanna
fyrirtækja, í miklum meirihluta
í stjórnum samtaka atvinnulífs-
ins og nær einráðir í fjölmiðlum.
Nýlegar rannsóknir á viðhorfum
unglinga til jafnréttis sýna mikið
afturhvarf síðastliðinn áratug.
Þetta rímar illa við staðhæfingar
um að allt sé á réttri leið en hins
vegar í góðu samræmi við kenni-
setningar nýfrjálshyggjunnar sem
afneitar því að félagsleg kerfi og
mynstur viðhaldi karlveldi. Það
heitir gjarnan að kyn skipti ekki
máli heldur hæfni einstaklingsins
þótt samfélagið sé órækur vitnis-
burður um annað.
Konur áttu litla hlutdeild í
„íslenska efnahagsundrinu“. Þær
voru ekki taldar búa yfir þeirri
áhættusækni og „snilld“ sem til
þurfti. Þá sjaldan þeim var boðið
til leiks var það á forsendum ráð-
andi afla. Fræðimenn hafa bent
á að hnattvæðing viðskipta- og
fjármálakerfisins var ekki kyn-
hlutlaus heldur nærðist á óorðuð-
um karlmennskuhugmyndum um
áræðni, djörfung og arðsemi. „Það
er mikilvægt að vera óhræddur“
sagði Hannes Smárason í viðtali
við Morgunblaðið 10/3 2006, það
væri lykilatriði „að útiloka allar
tilfinningar gagnvart fyrirtækj-
um sem slíkum, með því móti
væri hægt að taka hagkvæmar
ákvarðanir …“. Þetta er skóla-
bókardæmi um tungutak nýfrjáls-
hyggjunnar. Köld rökhyggja, skil-
virkni og samkeppni kallast á við
hugmyndir um vinnusemi, iðni
og fingrafimi sem leiða hugann
að hlýðnum konum við færiband:
Karlmennska í stjórnun, kven-
leiki við framleiðslu. Með forseta
landsins og ráðamenn í fylkingar-
brjósti var þessi hugmyndafræði
tekin út á ystu nöf. Í gagnrýnis-
lausri upphafningu á „viðskipta-
snillingunum“ var Íslandi útrás-
arinnar líkt við gullaldir Feneyja
endurreisnartímans og Róm og
Aþenu til forna. Eftir að margir
þeirra hafa verið afhjúpaðir sem
fjármála-ólígarkar verðum við að
sætta okkur við samlíkingar við
spillingargreni fyrrum Austan-
tjaldslanda.
Önnur birtingarmynd á hinni
kynjuðu hugmyndafræði nýfrjáls-
hyggjunnar er sú ýkta og mót-
sagnakennda kvenímynd sem
birtist okkur í varaforsetaefni
repúblikana. Sarah Palin bræðir
saman andstæða póla kvenleik-
ans; margra barna móðir með
fortíð sem klappstýra og feg-
urðardrottning, móðir og kyn-
vera í senn, en sem slík þjónandi
og fylgispök við kerfið. Hug-
myndafræðilega var hún dygg
gæslukona kerfisins, hlynnt
stríðsrekstri, byssueign og dauða-
refsingum, á móti fóstureyðingum
og hjónaböndum samkynhneigðra
– í hrópandi mótsögn við allt sem
kvennahreyfingin hefur staðið
fyrir í áratugi.
En þótt nýfrjálshyggjukapítal-
isminn hafi brotlent er ekki sjálf-
gefið að nýtt og betra rísi á rúst-
um hans. Við þurfum að gera upp
við þá pólitík, gildismat og hag-
stjórn sem skapaði hér grund-
völl fyrir óhefta gróðahyggju,
blekkingar og rányrkju náttúru-
auðlinda. Við þurfum að hafna
kvótum sem færa körlum meiri-
hluta auðs og valda, og tryggja
jafna aðkomu kynjanna að endur-
reisninni. En höfðatölujafnrétti er
ekki nóg, því ekki er nóg að fjölga
einungis konum í áhrifastöðum.
Við þurfum að takast á við kynja-
pólitískt inntak hugmyndanna,
hvernig menningarbundnar hug-
myndir um karlmennsku og kven-
leika geta viðhaldið valdatengsl-
um og ranglátu kerfi. Kvenímynd
nýfrjálshyggjunnar kallast á við
hinn gjaldþrota útrásarvíking,
þau eru birtingarform á sömu
hugmyndafræði. Það sýnir að jöfn
höfðatala er ekki nóg því konur
geta þjónað mikilvægu hlutverki í
að viðhalda kerfi sem heldur þeim
niðri. Við þurfum uppgjör við allt
þetta til að geta byggt upp hið nýja
Ísland í þágu okkar allra.
Höfundar eru dósentar við
Háskóla Íslands.
Kynjamyndir nýfrjálshyggjunnar
ÞORGERÐUR
EINARSDÓTTIR
SIGRÍÐUR
ÞORGEIRSDÓTTIR
Kvenímynd nýfrjálshyggjunnar
kallast á við hinn gjaldþrota
útrásarvíking, þau eru birt-
ingarform á sömu hugmynda-
fræði.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Málþing á Menntadegi iðnaðarins 2009
Mannauður í mótbyr
Samtök iðnaðarins bjóða til málþings
miðvikudaginn 11. febrúar frá 9.00 til 12.00
á Grand Hóteli Reykjavík, Hvammi
DAGSKRÁ
Ávarp formanns SI
Helgi Magnússon
Ávarp menntamálaráðherra
Katrín Jakobsdóttir
Afl til framfara
Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI
Þróun tæknimenntunar á háskólastigi
Gunnar Guðni Tómasson, forseti Tækni- og
verkfræðideildar HR
Að þróa mannauð í 25 ár
Jón Þór Ólafsson, vörustjóri MAREL
Að þróa mannauð í mótbyr
Ingibjörg Óðinsdóttir, mannauðsstjóri SKÝRR
Umræður og fyrirspurnir
Fundarstjóri Ingi Bogi Bogason
Starfsmannastjórum hjá fyrirtækjum SI er
sérstaklega boðið sem og þeim sem starfa við
mennta- og mannauðsmál í atvinnulífinu.
Ráðstefnan
er öllum opin
en tekið er við
skráningum á
mottaka@si.is