Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.02.2009, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 09.02.2009, Qupperneq 13
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Þessi ósmarti LazyBoy-stóll var keyptur handa afa mínum og nafna þegar hann var mjög farinn að heilsu og átti stutt eftir ólifað,“ segir Þórir Sæmundsson leikari þar sem hann slakar á í stólnum góða eftir átök í hlutverki ljónsins í Kardemommubænum. „Ég var fimmtán þegar afi hélt á vit feðra sinna og eftir dánar- dag ömmu var innbúi þeirra hjóna skipt á milli barna þeirra. Lenti þá stóllinn hjá Fylki, móðurbróð- ur mínum, sem vildi lítt með hann hafa enda virkilegt lýti, ekki síst vegna litarins,“ segir Þórir sem man eftir stundum þegar slegist var um að sitja í hægindastólnum „latastrák“. „Góði stóllinn er alltaf góði stóllinn, sama hversu ljótur hann er. Þessi minnir á hæginda- stól föður Frasiers, sem hvergi passaði inn en var eiganda sínum ómissandi. Þannig á stóllinn hans afa eftir að fylgja mér þar til hann gefst upp,“ segir Þórir sem fékk hann til umráða eftir ellefu ára búsetu í Noregi, sumarið 2007. „Þá keypti ég íbúð í Vesturbæn- um og sankaði að mér drasli úr bíl- skúrum ættingja, meðal annars Fylkis frænda, og brá mér til hans í kaffisopa. Sé ég þá hvar stóll- inn er falinn úti í horni en fæ mér strax sæti, sælla minninga. Spyr þá Fylkir hvort ég vilji ekki taka stólinn því sér finnist hann ljót- ur. Ég var ekki seinn að þekkjast boðið og tók hann í snarheitum með í stationbílnum,“ segir Þórir, sæll með gripinn sem er ávísun á djúpa lúra og ljúfar stundir. „Stólinn er kominn á réttan stað því afi hefur fylgt mér eftir himnaförina. Það hef ég fengið staðfest hjá miðlum, og þótt við værum ekki nánari en gerist og gengur á meðan hann lifði, hef ég alltaf, þegar ég er einn að baksa við tilfinningar, glími við spurn- ingar, skammast mín eða hef gert eitthvað af mér, hugsað fyrst og ómeðvitað til afa Þóris; hvað hann mundi nú segja eða finnast um stöðu mála og ráðleggja mér. Stóll- inn er því kominn heim; til fram- búðar.“ thordis@frettabladid.is Stóllinn kominn heim Á heimili flests hugsandi fólks finnst oftar en ekki húsmunur sem hvorki gleður augað né passar við heildarmynd stílbragðanna, en á sér þeim mun hærri stall í hjarta eigandans og fer hvergi. Þórir Sæmundsson leikari í sægrænum stól afa síns, sem hann segir ávallt munu fylgja sér sem uppáhaldshúsgagn, þótt seint teljist hann til stofustáss. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HÖNNUN af ýmsu tagi sem prýtt getur heimilið er meðal þess sem má finna í hinum fjölmörgu safnabúðum listasafn- anna. Slíkar verslanir eru meðal annars á Kjarvalsstöðum, Þjóð- minjasafninu og Listasafni Íslands. Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A Létt og lipur. Kirsuberjarauð. Stillalegt afl mótors frá 300 upp í 1800 W. Sjálfinndregin snúra, hleðsluskynjari. 3 lítra poki. Vinnuradíus: 8 m. Vinnuhollt handfang. Stillanleg lengd á sogröri. Ryksuga VS 01E1800 14.900Tilboðsverð: kr. stgr. (Verð áður: 17.900 kr.) Fyrir dömur og herra. Nýkomið úrval af vönduðum kuldaskóm úr leðri, gæruskinn- fóðraðir. Margar gerðir. Dömuskór, verð frá: 19.700.- til 21.700.- Herraskór,verð frá: 15.900. - til 24.775.- Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 síðasti dagur útsölunnar er í dag 20-80% AFSLáTTUR Patti húsgögn Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 Næsta námskeið byrjar 11. febrúar 2009 Meirapróf Alla föstudaga

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.