Tíminn - 20.03.1983, Side 2
2
■ Hér má sjá Corda-þjónustutölvuna, og „catalógana“ sem hún leysir af hólmi.
ARNARFLUG
TEKUR CORDA-
ÞJÖNUSTU-
TÖLVUNAÍ
NOTKUN
■ ARNARFLUG hefur tekið í notkun
þjónustutölvu sem annast farbókarnir
um allan heim og margvíslega aðra
þjónustu og upplýsingamiðlun fyrir við-
skiptavini félagsins.
Tölvan nefnist CORDA og cr í eigu
hollenska flugfélagsins KLM í Amster-
dam. Hún erein sú fullkomnasta á þessu
sviði í heiminum, enda hafa 11 flugfélög
gert samninga við KLM um að nota hana
sem móðurtölvu.
Þjónustan sem tölvan veitir er mjög
víðtæk. Má þar nefna:
- Farbókarnir á svipstundu um allan
heini með nær öllum flugfélögum
heims.
- Hótelbókanir á svipstundu á rúmlega
300 hótelum um allan heim, auk þess
sem unnt er að bóka á skömmum tíma
gistingu í þúsundum annarra hótela.
- Bílaleigubókanir á svipstundu hjá
AVIS bílaleigunni og á skömmum
tíma hjá fjölmörgum öðrum bíla-
leigum.
- Bókanrr í fjölda skoðunarferða og
hópferða um Amsterdam, Holland og
víða um Evrópu.
Tölvan er jafnframt geysistór upplýs-
ingabanki og getur á svipstundu veitt
upplýsingar um m.a.:
- Lestarferðir í Hollandi og til fjöl-
margra landa í Evrópu.
Rútuferðir í Hollandi,
Reglur um vegabréf og áritanir, toll-
skyldu, gjaldeyri, bólusetningar og
margt annað sem ferðamenn varðar í
flestum löndum heims.
- Skemmtiefni, s.s. kvikmyndir.tónlist í
flugvclum KLM og nokkurra annarra
félaga.
- Verkföll og aðra þætti sem geta valdið
hindrun á flugferðum víða um heim.
- Fargjöld frá Hollandi um allan heim.
Tölvan dreifir sérstökum óskum farþeg
anna til allra þeirra sem hlut eiga að máli
við undirbúning eða framkvæmd flugs,
t.d. um sætaval, aðstoð vegna veikinda
eða fötlunar, sérstakt mataræði, o.fl..
Farbókanir eru þó langstærsti þáttur-
inn í rekstri tölvunnar og geymir tölvan
upplýsingar um nær íillar áætlunarflug-
ferðir í heimi og annast bókanir í þær.
Hefur hún t.d. að geyma upplýsingar
sem fylla nítján hundruð blaðsíðna áætl-
anahandbók og veitir upplýsingar um
flug á nær eitthundrað þúsund flugliðum.
Nú stendur yfir stækkun tölvunnar og
upplýsingar um flug og fargjöld sem
starfsmenn á söluskrifstofum þurfa á að
halda þannig að handbóka verði ekki
lendur þörf.
Boð milli tölvunnar og söluskrifstofa
Arnarflugs í Reykjavík og Keflavík
berast um gervihnött og líða að jafnaði
innan við tvær sekúndur frá því að
spurning er send frá viðtækjum hér á
landi þar til svar er komið og hafa
tölvuskeytin þó farið á þessum tíma
vegalend sem svarar rúmum fjórum
hringjum umhverfis jörðina, auk þess
sem CORDA tölvan hefur unnið úr
spurningunni og svarað henni.
Nú hafa söluskrifstofu félagsins í
Reykjavík, Keflavík og Amsterdam
tengst tölvunni og í undirbúningi er að
tengja skrifstofur félagsins í Sviss og
Þýskalandi. Tvær íslenskar ferðaskrif-
stofur hafa þegar ákveðið að tengjast
tölvunni og fleiri eru með málið í
athugun eða undirbúningi.
Yfirmaður farskrárdeildar Arnarflugs
og stjórnandi daglegs reksturs tölvunnar
í þágu Arnarflugs er Örvar Sigurðsson.
WtfWWH SUNNUDAGUR 20. MARS 1983
Páskaferðir Ferðafélags íslands og Útivistar: |
Þórsmörk, Snæfells-
nes, Öræfasveit,
Hlöðuvellir, Land-
mannalaugar o.fl.
Ferðast í rútum, gengið á skíðum, gengið á fjöll og notið útivistar
■ Nú nálgast páskar úðum, og margir
því komnir í l'erðahug, livort sem þeir
h.Vggjast leggja land undir fót hér
innanlands eöa utan. Tíniinn hafði
samhand viö ferðaféliigin tvö, sem
skipuleggja ferðir hér innanlands fyrir
ferðalanga, nú i vikunni - þ.e. Ferða-
félag, Islands og Útivist og spuröist
fyrir um hvaö félögin hefðu í hyggju aö
hjóða fcröasoltnum fcrðalönguni upp
á, um hátíðirnar.
Það er Þórunn Þórðardóttir, hjá
Ferðafélagi íslands sem fyrst verður
fyrir svörum: „Viö erum með um
páskana bæði lengri fcrðir. þar sem
lagt er upp á skírdag og komið aftur á
annan í páskum, og svo styttri ferðir.
þriggja daga og fjögurra daga feröir.
Það verður fariö í Þórsmörk bæði
fimm daga og þriggja daga ferð. Þá
verður farið í fjögurra daga ferð á
Snæfellsnes. þar sem lagt verður af
stað á skírdag og komið til baka á
páskadag. Þá bjóðum við upp á fimm
daga skíðagöngufcrð á Hlöðuvelli, cn
henni vcrður þannig háttað að ekið
verður til Þingvalla og gengið þaðan á
skíðum til Hlöðuvalla og þar gist í
sæluhúsi sem Ferðafélagið á og árið á
sama hátt til haka. Við bjóðum upp á
aðra skíöagöngufcrð, því þærcru mjög
vinsælar. Þá verður farið með rútu að
Sigöldu, og gengið þaðan á skíðum í
Landmannalaugar og þar dvalið. Báð-
ar þessar fcrðireru fimmdaga ferðir.
í Snæíellsnesfcrðinni verður gist á
Arnarstapa, í félagsheimilinu þar, og
höfuömarkmið þcirrar ferðar er að
sjálfsögðu að ganga á Jökulinn og fer
cinn dagur í það. Annar dagur fer í að
fara út fyrir nes. í Dritvík. Djúpalón,
Hella og gengið á fjöll ef bjart er.
annars farið með ströndinni.
I Þórsmörk verður aö sjálfsögðu farið
í gönguferðir alla dagana. Það er
eiginlega sama hvcr þassara ferða er,
þær eru allar ákaflcga vinsælar, og það
er staðreynd aö fólk vjll reyna á sig í
þessum fcrðum."
Blm.: - Er mikið búið að bóka í þessar
ferðir, og hvað kostar að fara í svona
ferðir?
„Við erum nú þegar búin að bóka
talsvert. Það er einnig mikið spurt, og
mikið spurt um verð, sem er vegna
þess að það er kreppa í landinu, og að
fólk þarf að gera fjárhagsáætlanir.
Ferðin á Hlöðuvelli er að fyllast, en
það eru aðeins 14 sem komast í þessa
ferð, vegna þess að skálinn er ekki
særri. 1 Landmannalaugaferðinni get-
um við hinsvegar tekið fleira fólk, og
hafa nú þegar 12 bókað sig. Þá er
auðvitað búið að bóka heilmikið í
Snæfellsnes- og Þórsmerkurferðirnar.
Fimm daga ferðirnar kosta rúmar
1000 krónur, fjögurra daga ferðirnar
kosta 980 krónur og þriggja daga
ferðirnar kosta 800 krónur. Innifalið í
þessu verði eru ferðir, gísting og farar-
stjórn, en fóik verður að taká með sér
nesti og svefnpoka. Þeir sem fara í
Þórsmörk þurfa ekki að hafa með sér
áhöld, því þar er allt til alls, en á hina
staðina þarf fólk að hafa með sér
áhöld."
Útivist fer m.a. í
Öræfasveit um páskana
Erla Jóhannesdóttir, hjá Útivist
veitti umsjónarmanni síðunnar eftir-
farandi upplýsingar: .
„Við vcrðum með fimm daga ferð í
■ Þórsmörk er ávallt ofarlega á vinsxldalistanum hjá ferðalöngum, hvort
sem er að sumri, hausti, vetri eða vori. Þessi mynd er tekin úr flugvél þegar
flogið er inn að Þórsmörk og sést hér yfir Jökultungu úr Eyjafjallajökli.
Öræfasveit, o*g í þeirri ferð verður gist
á Hofi. Þá verðum við með fimm daga
ferð á Snæfellsnes, og verður gist á
Lýsuhóli og í þeirri ferð verður gengið
á Jökulinn. ef veður leyfir. Þá verðum
við með Þórsmerkurferðir, bæði fimm
daga og þriggja. Að lokum má nefna
fimm daga ferð á Fimmvörðuháls.
Allar þessar ferðir eru skipulagðar
með mikla útivist fyrir augum, það er
alltaf þannig að alla dagana sem fólkið
dvelur á staðnum, þá skipuleggjum við
gönguferðir og skoðunarferðir ýmis-
konar. Slíkt er að sjálfsögðu fastur
liður, enda fer fólk í svona ferðir í
þeim tilgangi að kyr.nast landi sínu og
njóta útivistar.1'
Blm.: - Hvað kosta ferðirnar hjá
ykkúr, og hvað er innifalið í verðinu?
„Fimm daga ferðirnar í Öræfasveit
og á Snæfellsnes kosta 1195 krónur,
fyrir félaga, en 1320 fyrir utanfélags-
menn. Þórsmerkurferðin fimm daga,
kostar 1150 fyrir félaga, en 1270 fyrir
aðra. Sama verð gildir um ferðina á
Fimmvörðuháls og Þórsmerkurferð-
ina, en styttri ferðin í Þórsmörk,
verður eitthvað ódýrari. Innifalið ,í
þessum ferðum, eru ferðirnar,
fararstjórn og gisting."
að skoða.