Tíminn - 20.03.1983, Page 22
Shout
endurnýjar
samning við
ÞEY
■ Breska hljómplötufyrirtækið
Shout ætlar að endurnýja samning
sinn við hljómsveitina ÞEY en í
þessu felst, eftir því sem Nútíminn
kemst næst, að útgáfan mun sjá til
þess að l>EYR geti unnið að gerð
nýrrar plötu í sumar á Englandi.
Þessi plata á svo væntanlega að
koma út í haust og talað er um
tónleikaför í kjölfar hennar sem
tengd verði útgáfunni.
Innan skamms er von á þriggja
laga plötu frá hljómsveitinni Þey
sem þeir tóku upp í Danmörku
snemma á síðasta ári í lok hljóm-
leikaferðalags þeirra um Skandi-
navíu. Þessi lög heita Luner, The
Walk og Positive Affirmation og
hafa verið lengi á efnisskrá hljóm-
sveitarinnar. Að sögn Sigtryggs
trommara eru þessi lög ekki í neinu
framhaldi af því sem þeir hafa verið
að gera undanfarið en tilgangurinn
með útgáfu þeirra er sá að gefa
neytendum smá innsýn í hvað þeir
voru að gera á þessum tíma.
- FRI/Bra
Fræbbblar
■ Eins og flestir vita yfirgaf Valli
Fræbbblana fyrir stuttu eftir nærri
fimm ára samstarf. Fræbbblarnir
hafa þó ekki gefið upp öndina þ.e.
þeir Stefán og Steinþór, og þeir hafa
bætt við sig tveimur gítarleikurum og
eru að leita sér að söngvara eða
söngkonu. Valli er hins vegar með
nýtt band í uppsiglingu, m.a. með
Tryggva sem lengi spilaði á gítar í
Los Fræbbblos, og telur Valli nokkuð
öruggt að þeir muni koma fram
einhvcrn tíma á næstu mánuðum.
Dregið .........
í happdrætti
SATT
■ Dregið hefur verið í byggingar-
happdrætti SATT og komu vinningar
á eftirtalin númer. I. vinningur, Ren-
ault 9 bíll á nr. 10309, 2. v. Fiat
Panda á nr. 24549, 3. v. hljómtækja-
samstæða á nr. 48847, 4-5 v. úttekt
fyrir 20 þús. kr. í Rín og Tónkvísl á
nr. 9125 og 1559, 6. v. ferðatæki og
taska á nr. 44357, 7. v. hljómtækja-
sett í bílinn á nr. 37984. 8-27 v.
plötuúttekt fyrir 1000 kr. f Gallerí
Lækjartorg og Skífunni nr. 494,
9354, 6739, 493, 4893, 4565, 2352,
6545, 4913, 27790, 22704, 22990,
17839, 21492, 19312, 71!?0, 43985,
24501,8958, 3349.
Mezzoforte kominí 29.sæti breska listans:
MEZZOFORTE
AREHOT
YOU WONT HEAR A BETTER DRIVETIME'
1A2Z/FUNK ALBUM THIS YEAR
■ Ekkert lát er á velgengni
hljómsveitarinnar Mezzoforte í
Bretlandi. Þeir skutust upp í 29.
sæti breska smáskífulistans fyrr í
vikunni og á Ip-listanum fór plata
þeirra úr 72. sæti í 43. sæti og fer
plötusala þeirra nú óöum að
nálgast 100 þúsund eintök.
Hljómsveitin er nýkomin heim úr för
til London en þar komu þeir m.a., fram
í hinum þekkta poppþætti „Top of the
Pops“ sem sendur er út um allar Bret-
landseyjar og nær til tuga milljóna áhorf-
enda. Vegna velgengninnar mun sveitin
svo dvelja ytra í allt sumar a.m.k. eða
frá maí I fram á haust en búast má við að
dvölin verði enn lengri eins og málin
standa í dag.
Að sögn Jónatans Garðarssonar þá
mun ætlunin að, fyrir utan fyrirhugaða
tónleikaför, æfi hljómsveitin upp nýtt
efni, semji og gangi frá nýjum lögum
sem síðan munu verða gefin út á árinu,
fyrst lítil plata og síðan í ágúst/septem-
ber verður hljóðrituð stór plata.
„Þeir hafa náð langt á stuttum tíma“
sagði Jónatan og bætti því við að nú væri
plata þeirra að koma út í Belgíu og
Hollandi þ.e. litla platan en sú stóra væri
að koma út í Suður-Afríku. Þá er búið
að ganga frá samningum við Polydor um
útgáfu í Þýskalandi, Austurríki og Sviss
og CBS á Spáni, önnur lönd eru í sigtinu.
Maður fer nú bráðum að verða búinn
með hástigslýsingaorðin til að lýsa þess-
um frábæra árangri Mezzo og ætti að
láta næga tilvitnun úr heilsíðuauglýsingu
í NME, „Mezzoforte eru heitir“.
Heilsíðuauglýsing úr NME tímaritinu.
Verðaytra í allt sumar
Mr. iii Misi'ii« f rr jiíi
- komu fram í Top of the Pops-
þættinum, sem sendur er út
um allar Bretlandseyjar
■ Vonbrigði
Vonbrigði
■ Þessir tónleikar tóku aldrei
á sig mynd neinna tónleika. Bað-
stofustemmningin var ríkjandi
og sumir gestanna sögöu and-
varpandi: „Svakalega eru fáir
hérna.“
Hljómsveitin Kikk lék góða en ákaf-
lega fastmótaða tónlist, eða gamalt og
gott norðurríkjarokk eins og Humar B.
Lauksson myndi komast að orði. Auk
þess lék hún smá reggae sem tókst einna
best hjá þeim. Hún byrjaði vel en eftir
nokkur lög voru ansi margar hljómsveitir
að vestan farnar að koma upp í hug
manni. Söngkonan, sem klædd var í
leðri, var sexý og söng mjög vel, en það
KIKK,
eru líka fleiri söngkonur sem syngja vel
án þess að koma manni á óvart á
nokkurn hátt. Þannig var farið um Kikk
í heild sinni, hún spilaði vel en flest
vantaði.
Að íslenskar hljómsveitir skuli reyna
að koma sínum hugsunum, boðskap eða
hverju sem það er, á framfæri á ensku,
er jafn fáránlegt og að enskar hljömsveit-
ir syngi á hebresku. Meðan svoleiðis er
farið er nánast óhjákvæmilegt að taka
því öðruvísi en eftiröpun eða skorti á
móðurmálskunnáttu. Það er annars synd
með jafngóða hljómsveit og Kikk að hún
skuli ekki hafa neitt að segja fslending-
um til syndanna eða neitt til að hrósa
þeim.
Eftir að diskótekið hafði haldið áfram
útlenskri tónlist og drykkfelldasta mann-
eskjan á svæðinu hafði án árangurs reynt
að panta sér brennivín á ensku, hoppuðu
Vonbrigði upp á sviðið. Það kom strax í
Ijós að þeir nutu sín ekki með svona fáar
hræður fyrir framan sig og hljómurinn
var ekki beysinn í fyrstu. En þrátt fyrir
baðstofustemmninguna spiluðu Von-
brigði nokkra yndislega söngva. Þó þeir
séu óneitanlega orðnir svolítið innhverf-
ari en áður, var „gamla góða“ Von-
brigðakeyrslan til staðar, andinn óspill-
tur og fallegi lokkurinn hans Gunnars
setti svip á salinn.
Það er alltaf leiðinlegt að sjá svona
mikið energý fara til spillis þó þeir sem
voru viðstaddir hafi reglulega notið þess.
Bra
SATT
fær
stuðning
fjármála-
ráðherra
■ Eins og kunnugt er af fréttum
hafnaði fjármálaráðherra ósk SATT
um niðurfellingu söluskatts af
skemmtunum félagsins sem miðuðu
að því að cfla lifandi tónlist hérlendis
og skapa atvinnu fyrir tónlistarmenn.
Hinsvegar hefur fjármálaráðherra
nú ákveðið að koma til móts við
SATT og verður það í formi fjár-
stuðnings og sagði Jóhann G. í
samtali við Nútímann að þetta væri
kærkomið því nú væri þeim kleyftað
halda áfram þessu starfi sínu, sem
ella hefði koðnað niður. Um næstu
helgi verður því farið að skipuleggja
lifandi tónlist á veitingastöðum borg-
arinnar enda mæltist það mjög vel
fyrir síðast og er ætlunin að slíkt
verði til staðar í einhverjum mæli um
hverja helgi á næstunni.
- FRI
Siouxie and the
Banshees
A Kiss In the
Dreamhouse/FáUdnn
■ Siouxie and the Banshees
er í hópi bestu nýbylgjusveita
Bretlands, fer saman í tónlist
þeirra dökkir seiðandi rythmar
ogheillandi rödd söngkonunn-
ar, hljómur sem á auðvelt með
að smjúga í gegnum grátt heila-
þykknið og beint inn í miðbik
heiladingulsins eða eitthvað í
þá áttina.
Þessi plata er beint framhald
af tveimur fyrri plötum sveitar-
innar Kaldeidoscope og Juju,
má finna á henni nokkuð skýr-
ar hliðstæður úr báðum fyrri
plötunum, þótt persónulega
finnist mér hún höfða meir til
þeirrar fyrrnefndu, kemur
þetta einna skýrast fram í
lögunum Green fingers og
She’s A Carnival.
Þótt tónlistin á A Kiss In
The Dreamhouse hafi yfir sér
nokkuð létt yfirbragð á köflum
þá er hún mjög innhverf þ.e.
maður kemst ekki hjá því að
stökkva inn ,f sjálfan • sig við
að hlusta á hana.
Hljómsveitin hefur ávallt
farið ótroðnar slóðir í tónlist
og verið óhrædd við að prófa
hitt og þetta, í þessu sambandi
má nefna lagið Obsession á
fyrri hlið plötunnar, nær eng-
inn trommuleikur en rythminn
fenginn með ýmsum léttum
ásláttarhljóðfærum, melódían
fengin með strengjum en þetta
mun í fyrsta sinn sem þeir
heyrast í tónlist hljómsveitar-
innar.
Eitt Iag af þessari plötu
Slowdive var gefið út á lítilli
plötu, nokkuð undarlegt val
á slíka plötu því Slowdive er
óneitanlega þyngsta og tor-
meltasta lag þessarar plötu.
Eins og fyrr segir er hljóm-
sveitin óhrædd við að fara
ótroðnar slóðir í tónlist sinni,
þau nota hljóðfæri sem
heyrast yfirleitt ekki á rokk-
plötum svo sem blokkflautu,
orgel, pípubjöllur (tubular
bells) auk ýmissa „effecta".
Textar Siouxie falla vel að
tónlistinni, mjög sérkennilegir
og vel til þess fallnirað hræra í
gráu sellunum, raunar má lýsa
þeim með setningunni sem er
þrykkt á innra albúmið „Bleiki
fíllinn pakkaði rananum og
yfirgaf sirkusinn“.
FRI
Bob Seger
(and the Silver
Bullet Band)
The Distance/
Fálkinn.
II Hæfilega blandaður og
mjög vel hristur kokkteill af
ljúfum ballöðum og hressum
rokklögum frá Bob Seger.
Kappinn er upprunninn í De-
troit og hóf að gefa út plötur í
kringum 1965. Hann sló þó
ekki í gegn fyrr en 1976 og
síðan hafa plötur hans selst í
þetta 2-4 milljónum eintaka
enda á hann auðvelt með að
höfða til breiðs hóps áheyr-
enda í tónlist sinni.
Það er nokkuð merkilegt að
maður á borð við Bob Seger
skuli koma frá Detroit því sú
borg er einkum þekkt fyrir
„útflutning" á þunga-eða báru-
járnsrokkurum.
Ef líkja á Seger við einhvern
annan: þekktan tónlistar-
mann, kemur Bruce Spring-
steen helst upp í hugann enda
þeir tveir á mjög svipaðri línu,
þetta sést best í laginu “Even
Now“ á þessari plötu.
Persónulega finnst mér
rokklögin áheyrilegri, einkum
lagið Making Thunderbirds,
bráðhresst og skemmtilegt
rokklag en ballöðurnar eru
frekar bragðdaufar fyrir minn
smekk, lögin eru annars þessi,
fyrir utan tvö ofangreind,
Coming Home ballaða, Roll
Me Away, Shame On The
Moon millitempó, Little
Victorys rokk, Boomtown
Blues rokk, Love Is Last To
Know ballaða, og rokklagið
The House Beyond The
House. Eins og sést af þessari
upptalningu eru rokklögin í
miklum meirihluta en þessi lög
voru valin úr hópi 30 laga sem
Bob Seger tók upp fyrir plöt-
una. -FRI