Tíminn - 26.03.1983, Síða 2

Tíminn - 26.03.1983, Síða 2
I.AUGARDAGUR 26. MARS 1983 TTSára lítill þorskur á svædinu sem opnad var” - segir Jakob Magnusson, fiskifrædingur ■ „I*ad scm við gerðum - þegar - erindiö frá ráðuneytinu kom til okkar umsagnár - var einfaldlega að kanna okkar gögn, þ.e. gögn úr rannsókna- leiðöngrum á þetla svxöi þegar það liefur verið lokað, þar sem tekin voru sýni úr þessu hólfi bæöi djúpt og grunnt og það sýndi sig í þeim að það var sára lítill þorskur á þessu svieði sem núna var opnað upp. Stofnunin gat því samþykkt þcssa opnun fyrir sitt leyti“, sagði Jakob Magnússon, fiski- frxðingur, spurður hvort þeir hafi talið allt í lagi að opna „frímerkið“ fyrir veiðum togara. - Jú. cg efast ekki um að friðun þessa svæðis hafi upphafiega verið gerð til friðunar á þorski. Ég er heldur ekkcrt að mótmæla því sem Grindvík- ingar segja. En hvernig vita þeir hvern- ig fiskur er á svæðinu á þeim tíma sem það er lokað fyrir öllum vciðumV 1‘cssi gögn okkar eru frá fleiri cn einu ári og bcr öllum saman um að'það er sára lítinn þorsk að fá fyrir utan þá línu sem opnuð er fyrir togarana núna. En það cr bara smárenningur af þessu friðaða svæði. Jakob sagði það karfa, sem togar- arnir sæki í þarna, cnda sé þctta það sem þeir kalli karfadýpi, sem verið sé að opna. -HEI Urgur í sjómönnum á Sudur- nesjum vegna togara f friðudu hólfunum: „Flestir telja friðunaraðgerðir fallnar úr gildi” — segir Bjarni Þórarinsson, hafnarstjóri ■ „Mönnum hérna finnst þetta fyrir neðan allar hcllur miðað við hvað nú er í liúfi - það er eitthvcrt lélegasta útlit og lélegasta vertíð sent menn muna - en friöunin nær ekki lengra erf það, að ráöjicrra opnar friðaða hólfið og hleypir togurunum inn á svæði sent netabátarnir eru látnir taka upp netin - til friðunar fiskistofna. Meö þessu telja flfestír hérna að friðunarað- geröir séu þar meö fallnar úr gildi, þannig að menn geti þá hagað sér cins og þeir vilja eftir þetta", sagði Bjarni Þórarinsson, hafnarstjóri í Grindavík. En það sagði hann ntenn nú logandi illa yfir því að 10 mílur hafa vcrið opnaðar til togveiða utan af ákveðnu hólfi, sem friðað Itefur verið fyrir qllum vciðum undanfarin ár á tímabil- inu 20. mars til 15. maí, í daglcgu tali nefnt „frímerkið". 'Úr því að fiskifræðingar scgi að ekki sé þorskur á þessu svæði þurfi þeir að lesa upp og læra betur. „Við viturn betur, því þarna erum við búnir að veiða þorsk á hrygningartímabilinu - allt niður á 300 faðma dýpi - í áraraðir. Enda væru togararnir ckki að biðjaum þetta eínungis til að fiska þarna karfa eða ufsa eins og þeir halda frain", sagði Bjarni. Hann kvað alla hafa verið ánægða með lokun svæðisins undanfarin ár. Um það Itafi verið samkomulag og mönnum þótt það góð ráðstöfun. „Menn eru svo óhressir yfir þcssari opnun nú, að ég veit eiginlega ekki hvað á cftir að ske hér íyrir rest, því það verður ekki séð að nein friðun sé lcngur í gildi". i -HEI „VÍSINDAMENNIRNIR OG FISKIFÉ- LAGIÐ MÆLA MEÐ ÞESSU SVONA — segir Jón L. Arnalds, ráðuneytisstjóri ■ „Þetta er gert samkvæmt tillögum Hafrannsóknarstofnunarinnar og Fiski- félags íslands, þ.e.a.s. bæði vísinda- mennirnir og Fiskifclagið mxla með því að farið sé inn á syðri hluta þessa friðaða svæðis“, sagði Jón L. Arnalds, ráðu- neytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, spurður um þá ákvörðun að hleypa togurum til veiða inn á „frímerkið“, þ.e. friðaða hrygningarsvæðið á Selvogs1 banka. - Nú segir Jakob Magnússon, fiski- fræðingur að þeir hafi aðeins fengið þetta til umsagnar? - Þetta svæði skiptir mestu máli frá fiskifræðilegu sjónarmiði og þeir hjá Hafrannsóknarstofnun samþykktu þessa rýmkun og jafnframt stjórn Fiskifélags- ins - sem er skipuð fulltrúum allra hagsmunaaðila. Þá var erfitt fyrir okkur að ganga í berhögg við það. - HEI ■ I Eyjum halda þeir ótrauðir áfram að byggja upp og byggja nýtt, eins og þessi mynd af nýbygg- ingum við Búhamar, bera með sér. I baksýn eru drangarnir Hæna og Hrauney í brimlöðrinu. (Tímamynd Guðmundur Sigfússon). Davíð Á. Gunnarsson framkvæmdastjóri Ríkisspítalanna: Tíu rúm bíða á Kristneshælinu ■ „Það sem ég get sagt þér um þetta, er að það eru líklega ein 10 rúm sem hafa staðið þarna tilbúin, á Kristneshæli, en ennþá hefur staðið á því að fjárveitingar- nefnd veitti hcimildir til þess að starfs- fólk mætti sinna þeim sem í þessum rúmum væru," sagði Davíð Á. Gunnars- son, framkvæmdastjóri Ríkisspítalanna, er Tíminn spurði hann hvað væri hæft í því sern haldið var fram í sjónvarpsþætt- inum Á hraðbergi sl. þriðjudag, þar sem sagt var að 20 rúma sjúkrastöð fyrir drykkjustjúklinga stæði fullbúin fyrir norðan, en það vantaði bara drykkju- sjúklingana. „Eftir því sem ég best veit, þá átti að beita úr þessu við afgreiðslu síðustu fjárlaga. Að vísu var það ekki fullfrá- gengið, cn mér er sagt að það hafi átt að gera ráð fyrir stöðum fyrir þessa starf- semi, samkvæmt þeirri afgreiðslu fjár- veitinganefndar sem fyrir lá áður en þingiðfórheim“,sagði Davíðjafnframt. -Aí íslensk álverksmiðja mundi skila hagnaði ■ Könnun á hagkvæmni rekstrar nýrr- ar álverksmiðju hér á landi sem fram fór á vegum norska fýrirtækisins Ardal og Sunndal Verk er nú lokið. Leiðir hún í Ijós, að íslensk álverksmiðja muni skila viðunandi arðsemi. Miðast athugunin við rekstur á 130 þúsund tonna álverksmiðju, sem byggð yrði í tveimur áföngum. Heildarkostnaður er áætlaður um 410 milljónir Bandaríkjadala að meðtalinni rafskautaverksmiðju, án vaxta á bygg- ingartíma og rekstrarfjár. Áætluð orkunotkun er 1950 gígawatt- stundir á ári. Starfsmannafjöldi i fyrri áfanga 295 manns, en 595 að lokinni. byggingu. Engarákvarðanir liggja fyrir um hvar slík verksmiðja yrði reist, ef til kæmi, en staðarvalsnefnd hefur bent 4 5 staði, sem hún telur að til álita komi. -Sjó Reglugerð um komu erlendra ferðahópa: „STORT VERKEFNI” segir Heimir Hannesson, formaður Ferdamálaráds, sem falið er að fylgjast með framkvæmdinni ■ „Þetta er stórt vcrkefni og ég reikna með að eitthvað þurfi að fjölga starfs- fólki og auka við þá aðstöðu sem við höfum ef takast á að inna það af hendi," sagði Heimir Hannesson, formaður Ferðamálaráðs, þegar hann var spurður hvort ráðið væri undir það búið að fylgjast með áætlunum erlendra aðila um sölu hópferða til íslands í atvinnu- skyni, en samgönguráðuneytið gaf út reglugerð þess efnis í gær. Samkvæmt reglugerðinni er Ferða- málaráði íslands falið að fylgjast með áætlunum erlcndra aðila um sölu hóp- ferða til íslands í atvinnuskyni. Jafn- framt er Ferðamálaráði falið að kynna þessum aðilum ákvæði reglugerðarinnar og sjá um að framfylgja þeim, svc og að kynna þessum söluaðilum aðrar þær reglur, sem gilda um komu og dvöl erlendra ferðamanna á íslandi. Skilyrði þau sem uppfylla þarf eru þrenns konar. I fyrsta lagi þarf viðkom- andi hópur að hafa leiðsögumann sem Ferðamálaráð hefur samþykkt og sé hann erlendur ríkisborgari, þarf hann að hafa tilskilin atvinnuleyfi á íslandi. Ferðamálaráð getur krafist þess að hóp- urinn sé með leíðsögumann. sem nýtur réttinda samkvæmt gildandi reglugerð um starfsmenntun leiðsögumanna ferða- fólks. 1 öðru lagi skal sett fyrir hópinn sambærileg trygging og innlendum ferðaskrifstofum er gert að setja. Trygg- ingafé þessu er ætlað til að standa undir endurgreiðslu á kostnaði sem kynni að hljótast af leit eða björgun farþega, skaðabóta vegna skemmda sem þeir kynnu að valda svo og annars kostnaðar, sem hljótast kynni af dvöl þeirra og flutningi og viðkomandi ferðaskrifstofa ekki greiðir. í þriðja lagi eru í reglugerðinni ákvæði um, að hafi erlendur ferðamannahópur ökutæki meðferðis við komuna til lands- ins til eigin nota skuli það fylgja hópnum við brottför úr landi. Loks er tekið fram í reglugerðinni að standi innlendur aðili með tilskilið ferða- skrifstofuleyfi að ferð viðkomandi hóps ásamt hinum erlenda aðila sé fullnægj- andi að innlendi aðilinn fullnægi ákvæðum reglugerðarinnar. Heimir sagði að reglugerð þessi væri til komin fyrir frumkvæði Ferðamála- ráðs, en að svo stöddu gæti hann ekki tíundað nákvæmlega hvernig ákvæðum hennar yrði framfylgt, þar sem enn ættu fulltrúar ráðsins eftir að ræða þau mál við ráðuneytið. -Sjó

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.