Tíminn - 26.03.1983, Page 5

Tíminn - 26.03.1983, Page 5
5 LAUGARDAGUR 26. MARS 1983 Fundur göngumanna í fyrrakvöld: Fundinum breytt í hringborðs- umræður ■ „Ég veit nú ekki fyrir víst hvort ég var eini Skagfirðingurinn á fundinum, því að á eftir mér kom eitthvert ungt fólk sem ég ekki þekkti“, sagði Ólafur Þórar- insson í Flugumýrarhvammi í Skagafirði, spurður hvort rétt væri hermt að hann hafi verið eini Skagfirðingurinn er mætti á almennan fund er „göngumenn“ efndu til í Miðgarði í Skagafirði í fyrrakvöld. En fundinn kvað hann hafa verið afar fámennan. En mér fannst þetta góður og skemmtilegur fundur - alltaf gaman að vera miðdepillinn í svona löguðu, því ekki skortir okkur nú sjálfsálitið hérna, eins og flestir vita. Ingólfur talaði fyrstur og síðan ég og svo var þessu breytt í hringborðsumræður. Já, auðvitað vildi ég fá eitthvað út úr þessu, úr því að ég var kominn. - Svo það er mikið fjör í framboðs- málunum hjá ykkur? - Það er a.m.k. úr nógu að velja - vantar ekkert nema kvennaframboðið, sagði Ólafur. Kvaðst hann eiga erindi á Sauðárkrók seinni part dagsins og sann- arlega eiga von á að fá orð í eyra - „nú fyrir að fara á göngumannafund". -HEI Góð fundarsókn B-listamanna á Blönduósi og Hvammstanga ■ „Við erum afar hressir með hvað fundarsókn hefur verið góð á þessum tveim fyrstu almennu fundum, sem við B-listamenn höfum boðað til. Um 100 manns sóttu fundinn á Blönduósi s.l. þriðjudag og um 70 fundinn á Hvamms- tanga i gærkvöldi. Þetta er mjög góð fundarsókn miðað við það að einn stjórnmálaflokkur boði til almenns fundar og hefur raunar komið þeim Páli og Stefáni á óvart, sérstaklega hvað Blönduóssfundurinn var vel sóttur“, sagði Brynjólfur Sveinbergsson á Hvammstanga, 4. maður á lista fram- sóknarmanna í Norðurlandskjördæmi vestra, í gær. Á fundinum á Blönduósi voru frum- mælendur 5 efstu menn listans og fundar- stjóri Páll Svavarsson. Hvammstanga- fundinum stýrði Gunnar V. Sigurðsson, en frummælendur voru þeir Páll, Stefán og Brynjólfur. Aðspurður kvað Bryn- jólfur nokkra „göngumenn“ hafa komið á báða fundina, en ekki tekið átt í umræðum. En mjög góðar umræður hafi þar farið fram um stjórnmálaviðhorfið og framboðsmálin. -HEI fc*£'£f$&m hægilegur, r h&Kugur ratnaöur lynr r cgeftir ferm/nguna um ratat/skunn/ vo r’83 teinóttczitú/íu Stúlka Kragj Kjóll Skór Drengur Slaufa Skyrta Vesti Belti Buxur Sokkar Skór Stú/ka Skyrta Vesti Pils Skór Kr- 99.95 Kr. 689,- Kr. 689,- Kr. 149,- Kr. 219.- Kr. 399,- Kr. 99.95 Kr. 749,- Kr• 43.95 Kr. 789.- Kr. 459,- Kr. 399.- Kr. 459.- Kr. 849.- póstverslunar er 30980 V Aftir ATTP Reykiavík HiUXlViiU F Akureyri Tónleikar íslensku hljómsveitarinnar í dag ■ „Tónskáldin ungu,“ en yfirskrift tónleika íslensku hljómsveitarinnar í Gamla bíói í dag kl. 14.00. Verkin, sem leikin verða, eiga það sameiginlegt. 'að höfundar þeirra voru allir um eða undir tvítugu, þegar þeir sömdu þau. Fvrsta verkið er eftir ungan íslenskan höfund, Guðna Franzson og nefnist það Sólsetursljóð, innblásið af samnefndu ljóði Jónasar Hallgrímssonar. Guðni stundar nú nám við tónfræðideild Tón- listarskölans í Reykjavík og var verkið frumflutt á tónleikum deildarinnar í febrúar í vetur. Önnur verk á efnisskránni eru Sinfón- íetta op. 1 fyrir kammerhljómsveit eftir Benjamin Britten, sam in 1932, Fiðlu- konsert nr. 2 í D-dúr K 211 eftir Wolfgang Amadeus Mozart og Sinfónía nr. 5 í B-dúr eftir Schubert. Einleikari í fiðlukonsert Mozart verð- ur hinn ungi virtuós, Sigrún Eðvaldsdótt- ir. Sigrún er aðeins 16 ára gömul en hefur vakið mikla athygli fyrir fiðluleik sinn, bæði hér heima og erlendis. Sigrún hefur verið konsertmeistari hjá íslensku hljómsveitinni á nokkrum tónleikum hennar í vetur. -JGK + # + ¥ + + + + + Ævintýraheimurinn Erum með: VHS - og 2000 með ogántexta VIDEO SPORT Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 33460. Opiðalladaga kl. 13.00-23.00 ★

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.