Tíminn - 26.03.1983, Síða 6

Tíminn - 26.03.1983, Síða 6
LAUGARDAGUR 26. MARS 1983 'í Fyrirsætan Tracie Lamb: VAR AKVEÐIN ( AD TAKA PRINS- INN A LÖPP! — og það tókst henni ■ 21 árs fyrirsæta Tracie Lainb fór til Barbados til þess að reyna að komast í kynni við kvcnnagullið konunglega, Andrew prins. Það tókst henni með þcim ágætum, að hún komst í heimsfreftirnar, og hirðsiðameistarar í Bretlandi hlupu upp til handa og fóta til að reyna að „vernda“ prinsinn og stía þessari ákveðnu dömu- burt frá honum. Ensku blöðin voru með stór- fyrirsagnir sem hljóðuðu eitthvað á þá leið - Andrew hefur eignast nýja vinkonu - o.s.frv., enda sagði Edward prins um samskipti blaðannna og bróður hans: „Það er skammarlcgt og ósanngjarnt hvernig blöðin elta hann á röndum.“ Andrew og Tracie kynntust um borð á skemmtiferðaskipi, en þar var prinsinn ásamt fé- lögum sínum af herskipinu HIVIS Invincible, en Tracic var með vinafólki sínu og fór strax vel á með þeim. Þau fóru svo saman út á afskekkta strönd og voru þar í sól- og sjóbaði, og síðan bauð prinsinn stúlkunni út um kvöldið, og var mikið dansað við hinar glæsilegustu aðstæður: gljáandi dansgólf undir stjörnubjörtum himni og tunglsljósi. En heima í Englandi var fólk, sem ekki gladdist yfir þessum rómantísku fréttum. Fyrst má telja drottninguna, sem sagt er að hafi beðið um að ráðstafanir yrði gerðar til að stía unga parinu í sundur, og biðja stúlkuna að láta ekki blöðin hafa neitt eftir sér, og svo var það aumingja Koo Stark, sem hafði líka ástæðu til að vera í vondu skapi, því það leit hclst út fyrir að prinsinn væri búinn að gleyma henni. Siðan var það kærastinn henn- ar Tracie Lambs, Spencer Baron, en þau kynntust við svipaðar kringumstæður á gríska Eyjahafinu síðastl. sumar. Þau einu sem taka þessu létt, eu foreldrar Tracies. Þau sögðu sem svo: „Stúlkan fór gagngert til að kynnast prinsin- um, og það var gaman að það skyldi lukkast svona vel hjá henni.“ ■ Andrew prins þykir röskur ungur maður, hvort heldur er í hernaði eða ástum. ■ Stofnfuridur Félags rithöfunda á Norðurlandi: „KVNNINGARSTARF- SEMI ER ABMATRKKД — segir Ólafur H. Torfason rithöfundur á Akureyri ■ Stofnfundur Félags rit- höfunda á Norðurlandi var haldinn að Hótel Varðborg, Akureyri laugardaginn 19. febrúar 1983. Við höfðum samband við Ólaf H. Torfa- son rithöfund á Akureyri og spurðum hann nánar út í hver hafi verið aðdragand- inn að stofnun þessa félags- skapar. „Aðdragandinn að stofn- un FRÁN er það samstarf sem tókst við myndun Menningarsamtaka Norð- lendinga á Húsavík í sept- ember. Þar komu saman nokkrir einstaklingar og ræddu nauðsyn þess að þeir sem fengjust við listir og menningarmál stofnuðu með sér samtök eða sam- hópa hver á sínu sviði. Myndlistarmenn stofnuðu t.d. fljótlega deild innan samtakanna og í ljós kom áhugi meðal rithöfunda um að hafa sama hátt á. Um ieið fannst okkur eðlilegt að fólk í hinum mismunandi hópum kynntist innbyrðis og vissi hvort af öðru.“ En hver var megintil- gangurinn með stofnun FRAN? ■ Ólafur H. Torfason

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.