Tíminn - 26.03.1983, Page 7
7
LAUGARDAGUR 26. MARS 1983
■ Svona, kusa mín, ekki hreyfa þig. Ég aetla að ná af þér
tunnunni.
For-
vitna
kýrin
■ Breskt máltæki segir „að fDrvitnin hafí orðið kettinum að
bana“, en aumingja kýrin, sem stakk höfðinu ofan í tunnuna af
forvitni, beið ekki bana af því - en var þó hætt komin.
Það vildi svo til, að þegar hún hafði fest hausinn í tunnunni,
sem var úr málmi, þá anaði kýrin eitthvað út í bláinn og beint á
rafmagnsgirðinguna, sem var umhverfis bithaga hennar. Aftur og
aftur gekk hún á girðinguna og fékk hvert rafmagnslostið á fætur
öðru. Loks kom góðhjartaður lögreglumaður henni til hjálpar, og
náði tunnunni af kúnni og klóraði henni á bak við eyrun til að róa
hana. Þessi góði lögreglumaður átti heima í Neuenkirchen í
Vestur-Þýskalandi og var hann á cftirlitsferð á þjóðvegi nálægt
kúahaganum.
Loksins leikur
Anthony Quinn
ZORBA
leiksviði
■ Anthony Quinn er
enn hress og hraustur og
nú loksins ætlar hann að
leika á sviði sitt frægasta
hlutverk úr kvikmyndun-
um sem sagt ZORBA
hinn gríska.
Anthony Quinn lék
Zorba í kvikmynd árið
1964, og nú nærri 20
árum seinna hefur játað
því að takast á hendur að
leika Zorba á Broadway
í New York næsta
haust,.
á
■ Það eru liðin nærri 20 ár
síðan Anthony Quinn varð
heimsfrægur fyrir leik sinn sem
Zorba, en hann treystir sér enn
í hlutverkið.
„Tilgangurinn með stofn-
un FRÁN var í fyrsta lagi að
auka kynningarstarfsemi á
verkum félaganna auk þess
sem okkur fannst mikil
nauðsyn vera á að efla sam-
heldni rithöfunda norðan-
lands og í dreifbýlinu yfir-
leitt. I öðru lagi töldum við
að gefa bæri meiri gaum að
kjaramálum rithöfunda,
höfundarlaunum, lista-
mannalaunum og starfs-
launum. Þó voru fundar-'
menn einhuga um að félagið
ætti ekki að mótast sem
þrýstihópur. í þriðja lagi er
það helsta baráttumál
FRÁN að standa vörð um
íslenska tungu. Á stofn-
fundinum kom t.d. fram
mikil óánægja og jafnvel
kvíði um þá þróun sem átt
hefur sér stað á undanförn-
um árum í íslensku máli, ein-
kum meðal fjölmiðla. Það
er alveg ljóst að menn verða
að búa vel í haginn fyrir
komandi kynslóðir og þess
vegna er góð umgengni við
tunguna nauðsynleg þar
sem hún er burðarás
menningar okkar.“
Kom eitthvað fleira fram
á fundinum?
„Það var jú rætt líka um
útgáfumál og listkynningar
í skólum og félagsheimilum,
auk þess sem rætt var um
þátttöku rithöfunda í gerð
efnis fyrir útvarp, sjónvarp
og vídeosnældur.
Hvað um félagatal?
„Það er nú ekki alveg
komið á hreint ennþá, en
það ætti að skýrast eftir
nokkra daga. Ég vil aðeins
taka það fram að síðustu,
að undirtektir hafa verið
mjög góðar og erum við
mjög bjartsýn á að félags-
skapur þessi eigi mikla
framtíð fyrir sér.“
Þ B
erlent yfirlit
■ Indira Gandhi og Fidel Castro á leiðtogafundi óháðra ríkja í Nýju Delhi.
sem hlotið höfðu meiriháttar
menntun eða verkkunnáttu.
Reynt hefur verið með ýmsum
hætti að fá marga þeirra til að
snúa heim aftur, en það hefur
lítinn árangur borið.
Lýðræðisstjórninni vegnaði
illa í Surinam. Þess vegna var
því ekki illa tekið af lands-
mönnum, þegar herinn brauzt til
valda 1980. Forustumaður bylt-
ingarinnar var Bouterse, sem
var þó ekki hærra settur en að
vera liðþjálfi. Hann tók ekki
strax völdin í sínar hendur, en
ruddi kcppinautum sínum hægt
og hægt úr vegi, unz hann var
orðinn einn á toppnum.
Bouterse hefur þó ekki talið
sig öruggan. Hinn 28. október
lét hann fangelsa helzta verka-
lýðsleiðtoga landsins, Cyrill
Daal, og ýmsa samverkamenn
hans. Skömmu síðar var þeim
þó sleppt úr haldi og hafnir við
þá samningar. Þeir tókust og var
það eitt af samkomulagsatriðun-
um, að lýðræðið skyldi endur-
reist og efnt til þingkosninga.
Ekkcrt varð þó úr þeim. Hinn
8. desember síðastliðinn voru
Daal og flcstir aðrir leiðtogar
stjórnarandstöðunnar myrtir.
Tekst Castro og Rússum
að ná adstödu í Surinam?
Bandarlkjastjórn er farin að óttast það
■ MEÐAL þeirra þjóðarleið-
toga, sem sóttu leiðtogafund
óháðra ríkja í Nýju Delhi fyrri-
hluta þessa mánaðar, var Desi
Bouterse, einræðisherra í Suri-
nam.
Það vakti athygli, að leiðtogar
þeirra óháðra ríkja, sem hallast
að Sovétríkjunum, gerðu sér
mjög dátt við Bouterse. Sjálfur
gaf hann líka óspart til kynna, að
Surinam ætti samfylgd með
Kúbu, Grenada og Nicaragua.
Þessu hefði ekki verið spáð
fyrir tæpum tveimur árum, en
þá lét Bouterse fangelsa nokkra
af þeim mönnum, sem nú eiga
sæti í stjórn hans. Rök hans fyrir
þeim fangelsunum voru þau, að
þessir menn væru kommúnistar
og ætluðu að koma Surinam
undir yfirráð Castros og Rússa.
Á heimleiðinni frá Nýju Delhi
heimsótti Bóuterse Libýu og átti
langar viðræður við Kaddafi ein-
ræðisherra. Þeim viðræðum lauk
með vináttusamningi milii ríkj-
anna. Talið er, að Kaddafi hafi
lofað Surinam verulegri fjár-
hagslegri aðstoð.
Surinam hefur þangað til í
byrjun þessa árs notið verulegrar
fjárhagsaðstoðar frá Hollandi og
Bandaríkjunum. Surinam hefur
nú verrð svipt þessum styrkjum.
Ástæðan var sú, að hinn 8.
desember síðastliðinn voru
framin fjöldamorð á stjórnar-
andstæðingum í Surinam og þyk-
ir víst, að þau hafi verið framin
að frumkvæði Bouterses. Orð-
rómur hermir, að hann hafi tekið
þátt í þeim persónulega, jafnvel
stjórnað þeim.
Bouterse brást hart við, þegar
stjórnir Hollands og Belgíu
sviptu Surinam styrkjunum.
Hann gaf óspart til kynna, að
hann myndi ekki láta þessar
ríkisStjórnir þvinga sig. Svar
hans yrði að leita trausts og halds
hjá kommúnistaríkjum.
SURINAM var um allangt
skeið nýlenda Hollendinga. Suri-
nam, sem er um 60 þús. fermílur
að flatarmáli, er auðugt land frá
náttúrunnar hendi, en auðæfi
þess hafa enn verið lítt nýtt,
nema bauxitnámurnar.
Surinam er talið bauxit-auðug-
asta land í heimi og þaðan hafa
komið um alllangt skeið um 10%
af því bauxiti, sem notað er til
álframleiðslu í heiminum. Baux-
itnámurnar og iðnaðurinn í
sambandi við þær gefa af sér um
40% af þjóðartekjunum.
Mörg mikilvæg auðæfi finnast
þar í jörðu, en eru enn lítt nýtt.
Þegar Hollendingar setust að
í Surinam, var þar fámenni.
Hollendi-ngar fluttu því þangað
fólk frá lndlandi, Indónesíu og
Afríku. Frá þessu stafar það að
landsmenn eru mjög blandaðir.
Um 37% af íbúunum eru taldir
rekja ættir sínar til Indlands,
30% til Afríku og 10% til Indó-
nesíu. Um 3% íbúanna eru af
bandarískum Indiánaættum.
2% af kínverskum ættum og loks
er 2% sem rekja ættir sínar til
Evrópu.
Þessi uppruni landsmanna hef-
ur haft áhrif á trúarbrögð
Hindúa, önnur 26% eru
Múhameðstrúar, 24% eru
mótmælendur og 24% eru ka-
þólskir.
Aðaltungumál landsmanna cr
hollenzka, en margir tala einnig
ensku.
HOLLENDINGAR veittu
Surinam sjálfstæði 1975, og var
þá komið á fót lýðræðisstjórn í
landinu. Hollendingar höfðu þá
farið með nýlendustjórn í Suri-
nam í 300 ár.
Fjarri fór að allir landsmenn
fögnuðu sjálfstæðinu. Hollcnd-
ingar gáfu þeim, sem það vildu,
kost á að flytjast til Hollands.
Um þriðjungur landsmanna not-
uðu sér þennan rétt.
Um 200 þúsund Surinamar
eru nú í Hollandi og hafa fengið
hollenzkan ríkisborgararétt. Ibú-
ar Surinants nú eru taldir um
300-350 þúsundir.
Fólksflutningarnirtil Hollands
urðu mikil blóðtaka fyrir hið
nýja ríki, því að í hópi útflytj-
endanna var að finna flesta þá,
' ■ Desi Bouterse.
Því var borið við, að þeir hefðu
verið skotnir á flótta eftir að
uppvíst varð að þeir hefðu ætlað
að gcra byltingu um jólahelgina.
Áreiðanlegar fregnir herma hins
vegar, að margir þeirra Itafi verið
handsamaðir á heimilum sínum.
Morð þcssi urðu til þess, að
Bandaríkin og Holland sviptu
Surinam fjárhagsaðstoð, eins og
áður er rakið.
Morðin mæltust samt ekki illa
fyrir alls staðar. Fjölmiðlar á
Kúbu fögnuðu þessum atburði
og sögðu að Bouterse hefði
bjargað Surinam, þar sem stefnt
hefði verið að því að koma
landinu undir ok heimsveldis-
sinna og auðhringa.
Skömmu síðar kom fjölmenn
sendinefnd frá Kúbu til Surinam.
Bandaríkjastjórn virðist
óttast, að Castro kunni enn að
ná fótfestu í Surinam m^ð aðstoð
Rússa og reka þaðan áróður í
Suður-Amertku.
Það dregur þó nokkuð úr þess-
um ótta, að Surinam er illa í sveit
sett og hefur litlar samgöngur
við önnur ríki Suður-Ameríku,
nema smáríkin, sem liggja sitt
hvorum megin við það, Guyana
,og Frönsku Guyana. Staðan
myndi breytast ef fylgismenn’
Castros og Rússa næðu einnig
fótfestu þar.
Þórarinn
Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar