Tíminn - 26.03.1983, Qupperneq 18
LAUGARDAGUR 26. MARS 1983
18
árnað heilla
Afmæliskveðja til
sonar sendiherra í
Harðar Helga-
NewYork
■ Enskur stjórnmálamaður R. Peel
sem var uppi á 19. öld sagði „það tekur
þrjár kynslóðir að skapa heiðursmann".
27. mars 1923 leit einn slíkur Ijós dagsins
vestur á ísafirði. Hörður Helgason fyilir
í dag sjötta tug ævi sinnar. Eg hygg að
þessir sex tugir hafi verið á margan hátt
viðburðaríkir í lífi Harðar. Hann setti
sér 13 ára gamall markmið sem hann
hefur svo síðan fylgt eftir án þess að
víkja nokkru sinni út af stefnunni.
Markmið Harðar var að starfa fyrir
íslensku þjóðina að utanríkismálum.
Hann varðstúdent frá Menntaskólanum
á Akureyri 1943. Þaðan lá svo leiðin til
frekara náms, er tryggði honum sem
besta þekkingu á heimsmálum-eins og
þau gerðust þá cr hann kom spreng-
lærður frá námi í utanríkisþjónustuna
1948.
Hörður er nú sendiherra íslánds í
New York, þar sem hann gætir þess að
hagsmundir íslands á vcttvangi Samein-
uðu þjóðanna séu ekki fyrir borð bornir. ,
Ég er þeirrar skoðunar að öll markmið r
séu merkileg, svo framarlega sem
mönnum takist aö fylgja þeim eftir.
Hæfileikar Harðar til að umgangast fólk
eru með þeim ágætum að ég get ekki
látið hjá líða að geta þeirra að nokkru.
Þegar hann var í M.A. var hann
hrókur alls fagnaðar hvort scm var við
íþróttir eða annan leik. Hann lét sig ckki
muna um að spila fótbolta renna sér á
skíðum eða taka að sér helstu hlutverk í
leikritum t.d lék hann Frænku Charlcs í
því ágæta verki og tókst mjög vel að skila
því eins og ööru sem hann gerir.
Ég veit ekki hvort minn ágæti vinur og
fyrrum húsbóndi les nokkru sinni þessar
línur, cn mér er oft hlátur í huga þegar
þú, Hörður, ert að undirbúa laxveiði-
ferðir þínar strax um áramót, þú ert
sjálfsagt þegar byrjaður að líta flugurnar
þínar hýru auga eins og svo margt annað
fallegt sem ber fyrir augu í þessari
veröld.
Kæri vinur ég vona að heilladísir
vorsins verði þér og Söru alltaf fylgispak-
ar hvert sem leið ykkar liggur út í hinum
stóra heimi. Ég veit að ég tala fyrir
munn alls starfsfólksins í utanríkisráðu-
neytinu þegar ég tek mér í munn orð
enska vtsindamannsins J. Lubtock „All-
ir vita að glaður vinur er eins og
sólskinsdagur. sem stráir birtu allt í
kringum sig, og það er á færi okkar
flestra að gera þennan heini ýmist að
höll eða fangelsi". Ég vona því að
höfundur tilverunnar megi gera alla
daga ykkar Söru konu þinnar, að sól-
skinsdögum. Ég hlakka til að sjá ykkur
í sumar og ég veit ég þarf ekki að minna
ykkur á að koma með veiðidótið.
Kristján B. Þórarinsson.
bridge
Yfirslagjrnir rédu í undan-
keppni íslandsmótsins
Kvikmyndir
■ Eins og áður hefur verið sagt frá hér í
blaðinu var undankeppni Islandsmótsins í
sveitakeppni mjög spennandi og í tveim
riðlum voru úrslit nokkuð óvænt. í A-riðli
áttu 3 sveitir möguleika á úrslitasætunum
tveim, Jón Hjaltason, Sigtryggur Sigurðsson
og Þórður Elíasson, þegar ein umferð var
eftir. Sveitir Sigtryggs og Þórðar spiluöu
saman í síðustu umferð og þar dugði Sigtrygg
jafntefli til að komast áfram. En þegar upp
var staðið liafði lcikurinn farið 11-9 fyrir
Þórð. Þar með var hann kominn í úrslita-
keppniria en Sigtrygg vantaði aðeins 1 impa
í jafnteflið og úrslitin. Sveit Þórðar kom
nokkuð á óvart því hún vann alla leiki sína í
riðlinum, og átti því úrslitasætið skilið.
I D-riðli kom helst á óvart hvað sveit Egils
Guðjohnsen stóð sig illa, en flestir höfðu
veðjað á hana í úrslitin ásamt sveit Sævars
Þorbjörnssonar. Fyrir sfðustu umferð áttu
sveitir Ásgríms Sigurbjörnssonar frá Siglu-
firöi og Braga Haukssonar frá Rcykjavík
mögulejka á úrslitasæti ásamt sveit Sævars.
Siglfirðingarnir höfðu unnið sveit Braga,20-0
og þá vantaði aðcins 1 impa í 20-2. Sá impi
var afdrifaríkur því í síðustu umferð vann
Bragi Aðalstein Jónsson hreint meðan Ás-
grímur tapaði 15-5 fyrir Agli. Þar með var
sveit Braga meö 1 stigi meira en sveit
Ásgríms. Og að sem meira var: Ásgrím
vantaöi aöeins 1. impa í 14-1 tap á móti Agli
og þá hefði hann fariö í úrslitin. Yfirslagirnir
geta svo sannarlega verið dýrmætir.
En nú hefur verið dregið um töfluröð
þeirra sveita sem keppa í úrslitum Islands-
mótsins um páskana, á Hótel Loftleiðum:
1. Sævar Þorbjörnsson
2. Bragi Hauksson
3. Aðalsteinn Jörgensen
5. Karl Sigurhjartarson
6. Ólafur Lárusson
7. Þórarinn Sigþórsson
8. Þórður Elíasson
Úrslitin hefjast fimmtudaginn 31. mars,
skírdag, kl. 13.30, önnur umfcrð verður um
kvöldið kl. 20.00, 3. og 4. umferð á föstudag
á sömu tímum, 5. og 6. umferð á laugardag
og 7. og síðasta umferð á sunnudag, pá-
skadag. Sýningartaflan verður í gangi nema
í fyrstu umferð og fyrri hálflcik 3. umferðar.
Spiluð verða sömu spil í öllum leikjum
hverrar umferðar.
íslandsmótinu í tvímenning hefur verið
frestað um 3 vikur vegna Alþingiskosning-
anna 23. apríl. Það verður haldið dagana
12.-15. maííDomusMedica. Undankeppnin
verður á fimmtudag og föstudag og úrslitin á
laugardag og sunnudag. íslandsmótið í tví-
menning er opið öllum félögum í Bridge-
sambandi Islands og tekið verður við skrán-
ingu til hádegis 11. maí.
Bikarkeppni sveita 1983 hefur verið skipu-
lögð. Þátttökufrestur er til 15. maí næstkom-
andi; 1. umferð á að vera lokið fyrir 26 juní;
annarri umferð fyrir 24. ágúst; 3. umferð Jón Stefánsson 588 ins. Heildarúrslit urðu:
fyrir 25. september og undanúrslitin og Meðalskor er 576. 1. Bjarki Tryggvason-
úrslitin verða síðan spiluð helgina 8.-9. Gunnar Þórðarson 281
október á vegum Bridgesambandsins. Þátt- tökugjald verður kr. 1000 á sveit cn af því fer Bridgefélag Kópavogs 2. Einar Svansson - Skúli Jónsson 255
80 prósent í ferðasjóð. Dregið verður í allar Fimmtudaginn 24. mars lauk barometer- 3. Kristinn Ólafsson -
umferðir. keppni BK. Alls tóku 24 pör þátt í keppninni Geir Eyjólfsson 252
Helgina 15.-17. apríl verður haldið tví- og var spilað 4 fimmtudagskvöld, 5 spil milli 4. Gestur Þorsteinsson -
menningsmót á vegum Samvinnuferða/Land- para. Sigurgeir Þórarinsson 246
sýnar og Bridgesambands íslands. Ekki er Úrslit keppninnar urðu þessi: 5. Sigmundur Jóhannesson -
enn fullfrágengið hvaða form verður á Aðalsteinn Jörgensen - Björn Guðbrandsson 244
mótinu en þátttaka er öllum opin. Mjög Stefán Pálsson 162 6. Stefán Skarphéðinsson -
glæsileg verðlaun verða í boði auk gullstiga, Grímur Thorarinsen - Ingibjörg Ágústsdóttir 233
bæði í formi feröavinninga þar sem ítölsku Guðmundur Pálsson 119 7. Jón Tryggvi Jökulsson -
stórstjörnurnar Belladonna og Garozzo Sverrir Þórisson - Arinbjörn Bernharðsson 228
koma við sögu, og peningavcrðlaun fyrir Haukur Margeirsson 101 8. Erla Guðjónsdóttir -
alltað 10 fyrstu sætin. Ragnar Magnússon - Haukur Haraldsson 227
Bridgefélag Reykjavíkur
Síðastliðinn miðvikudag lauk 3ja kvölda
board-a-match keppni hjá félaginu. Geysi-
hörð barátta var um efsta sætið milli sveita
Jóns Hjaltasonar og Þóris Sigurðssonar og
þegar upp var staðið voru þessar sveitir
jafnar að stigum. En þar scm sveit Jóns vann
í innbyrðisleik telst hún sigurvcgari mótsins.
1 svcil Jón spiluðu auk hans: Hjalti-Elíasson,
Hörður Arnþórsson, Jón Ásbjörnsson og
Símon Símonarson. í sveit Þóris spiluðu auk
hans: Ágúst Helgason, Ásmundur Pálsson,
GuðlaugurJóhannsson, KarlSigurhjartarson
og Örn Arnþórsson.
Röð efstu sveita var annars þessi:
Jón Hjaltason 128
Þórir Sigurðsson 128
Þórarinn Sigþórsson 117
Sævar Þorbjörnsson 113
Bragi Hauksson 107
Jón Þorvarðarson i 107
Aöalsteinn Jörgensen 107
Síðasta keppni félgsins er Butler tví-
menningskeppni sem hefst 6. apríl, stcndur í
4 kvöld og lýkur 4. maí.
Þeir sem hyggja á þátttöku en hafa ekki
tilkynnt það ennþá eru minntir á að skrá sig
í síðasta lagi 4. apríl hjá formanni í s. 72876
eða öðrum stjórnarmönnum. Einnig mun
liggja frammi þátttökulisti á Hótel Loft-
leiðum 31. mars til 3. apríl.
Bridgedeild Breiðfirðinga
Síðasta fimmtudag hófst hraðsveitakeppni
með þátttöku 18 sveita. Spilað er í tveim
riðlum og næsta fimmtudag skipa þessar
sveitir a-riðil:
Hans Nielsen 677
Elías R. Helgason 655
Rósmundur Guðmundsson 636
Þórarinn Alexandersson 632
Magnús Halldórsson 628
Gróa Guðnadóttir 617
Árni Magnússon 607
Erla Eyjólfsdóttir 600
83
79
77
Rúnar Magnússon
Ómar Jónsson -
Guðni Sigurbjarnarson
Sigurður Vilhjálmsson -
Sturla Gcirsson
Næsta fimmtudag, skírdag31. mars verður
ekki spilað en fimmtudaginn 7. apríl hefst
sveitakcppni mcð board-a-match sniði.
Spilað er að Þinghóli við Hamraborg og
hefjast spilakvöldin kl. 20,(K). Stjórn B.K.
mun aöstoða við að mynda sveitir og allir eru
velkomnir.
Bridgefélag Hafnarfjarðar
Að loknum 14 umferðum í barómetertví-
menning félagsins er staða efstu para þessi:
Aðalsteinn Jörgensen -
Stcfán Pálsson 140
Guömundur Sv. Hermannsson -
Björn Eysteinsson 140
Guðbrandur Sigurbergsson -
Kristófer Magnússon 133
Árni Þorvaldsson -
Sævar Magnússon 131
Ragnar Magnússon -
Rúnar Magnússon 127
Ólafur Valgeirsson -
Ágúst Helgason 109
Eins og sjá má hefur færst mikil spenna í
mótið eftir að forsetinn og Guðbrandur hófu
að gefa út punkta og töpuðu í fyrsta sinn
forustunni í mótinu. Næstu umferðir verða
spilaðar n.k. mánudagskvöld 28.3. og sam-
kvæmt venju hefst baráttan kl. 19.30 stund-
víslega.
Frá Bridgefélagi
Sauðárkróks
9.mars lauk aðaltvímenningskeppni félags-
AIIs tóku 22 pör þátt í keppninni.
16. mars var haldin hin árlega Hjóna og
parakeppni (blönduð pör)
Úrslit urðu eftirfarandi.
1. Elísabet Kemp-
Garðar Guðjónsson 244
2. Sigríður Sigurðardóttir -
Einar Svansson 241
3. Ingibjörg Ágústsdóttir -
Stefán Skarphéðinsson 240
4. Björn Guðnason -
Margrét Guðvinsdóttir 234
5. Páll Hjálmarsson -
Soffía Daníelsdóttir 220
6. Skúli Jónsson -
Margrét Sigmundsdóttir 219
7. Efemína Gísladóttir -
Skúli Ragnarsson 209
Árni Rögnvaldsson og Gunnar Þórðarson
spiluðu með til að forða yfirsetu og hlutu
langhæstaskoreða265. Ailsspiluðu 16pör.
Næsta keppni á vegum félasins er Norður-
landsmót vestra í tvímenning sem haldið
verður 26: mars og er það Barometer með
þátttöku 32. para frá Hvammstanga, Blöndu-
ósi, Sauðárkróki, Siglufirði ogúr Skagafirði.
Guðmundur
Sv.
Hermannsson,
skrifar
t
Útför eiginkonu minnar
Sveingerðar Egilsdóttur
Reykjamörk 8,
Hveragerði
er lést föstudaginn 18. mars fer fram frá Kotstrandarkirkju
laugardaginn 26. mars kl. 14.
Magnús Hannesson
Ölfusi
★ Harkan sex
★ ★ Keppnin
★★★★ Týndur
★★★ Monty Python
og rugluðu riddararnir
★★★ Einfaldi morðinginn
★★★ Fjórirvinir
★★★ BeingThere
★★★ Húsið - Trúnaðarmál
Stjörnugjöf Tfmans
* * * ★ frábær • * * * mjög góö * * * góö * * sæmlleg * O léleg
Sími78900
Salur 1
Páskamyndin 1983
Njósnari leyniþjón-
ustunnar
Code Name: The Sotdler
You don't asslgn hlm.
You unleash hlm.
Nú mega „Bondaramir" Moore og
Connery fara að vara sig, því að
ken Wahl í Soldier er kominn
fram á sjónarsviðið. Það má með
sanni segja að þetta er „James
Bond thriller" í orðsins fyllstu merk-
ingu. Dulnefni hans er Soldier,
þeir skipa honum ekki fyrir, þeir
gefa honum lausan tauminn.
Aðalhlutverk: Ken Wahl, Alberta
Watson, Klaus Kinski, William
Prince, Leikstjóri: James Glick-
enhaus.
Sýnd kl. 3,5,7, 9 og 11 -
Bönnuð innan 14 ára
Salur 2
Allt á hvolfi
Splunkuný bráðfyndin grínmynd í
algjörum sérflokki, og sem kemur
öllum í gott skap. Zapped helur
hvarvetna fengið frábæra aðsókn
enda með betri myndum í sínum
flokki. Þeir sem hlóu dátt af Porkys
fá aldeilis að kitla hláturtaugarnar
af Zapped. Sérstakt gestahlutverk
leikur hinn frábæri Robert Mandan
(Chester Tate úr SOAP sjónvarps-
þáttunum).
Aðalhlutverk: Scott Baio, Willie
Ames, Robert Mandan, Felice
Schachter.
Leiksljóri: Robert J. Rosenthal.
Sýndkl. 3,5,7,9 og 11
Salur 3
Með allt á hreinu
Sýndkl. 5,7,9 og 11
Litli lávarðurinn
Hin Irábæra fjölskyldumynd
Sýnd kl. 3
Salur 4
Gauragangur
á ströndinni
Létt og fjörug grínmynd um hressa
krakka sem skvetta aldeilis úr
klaufunum eftir prólin I skólanum
og stunda strandlífið og .skemml-
anir á fullu. Hvaða krakkar kannast
ekkiviðfjöriðá sólarströndunum?
Aðahlutverk: Klm Lankford, Jam-
es Daughton, Stephen Oliver
Sýnd kl. 3
Dularfuila húsið
Sýnd kl. 9 og 11
Salur 5
Being There
Sýnd kl. 5 og 9