Tíminn - 14.04.1983, Page 9

Tíminn - 14.04.1983, Page 9
FIMMTUDAGUR 14. APRIL 1982 9 á vettvangi dagsins Tómas Arnason vidskiptaráðherra: Alþýdubandalagið ber fulla ábyrgð á verdlagsstefn- unni í landinu ■ I yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í efnahagsmálum frá því í jan. 1982 segir um verðlagsmál: „í verðlags- málum verður við það miðað að draga úr opinþerum afskiptum af verðmyndun og auknum sveigjanleika í verðmyndun- arkerfinu skv. frumvarpi, sem lagt verð- ur fram á Alþingi. Tekið verður upp nýtt fyrirkomulag, sem miðar að því að verðgæsla kæmi í vaxandi mæli í stað þeinna vcrðlagsákvæða ..." Að sjálfsögðu samþykkti Alþýðu- bandalagið þessa stefnu og frumvarpið varð að lögurn í fyrravor. Stefnan í framkvæmd Þegar var hafinn undirbúningur að framkvæmd stefnunnar. það er ekki skynsamlegt að gera mjög snöggar breyt- ingar á þessum málum nema jafnhliða séu gerðar gagngerar ráðstafanir til lækkunar verðbólgu. Þessi sameiginlega stcfna ríkisstjórn- arinnar hefir vcrið framkvæmd eins og til stóð. Ég hcfi í engu farið út fyrir stefnuna. Á ríkisstjórnarfundi skoraði ég á ráðherra Alþýðubandalagsins að nefna dæmi þess. Þeir nefndu engin dæmi. Samkvæmt nýju lögunum ræðurVerð- lagsráð ákvörðunum í verðlagsmálum. Viðskiptaráðherra skipar einn mann af níu í Verðlagsráð, þ.e. formann ráðsins. Ég hefi gefið honum þau fyrirmæli að vinna sem faglegast að málum og taka tillit til óhjákvæmilegra'staðreynda. í verðlagsráði ræður afl atkvæða, en for- maður reynir eftir mætti aö taka eðlilegt tillit til sanngjarnra óska einstakra ráðsmanna. Þar, sem Alþýðu- bandalagið ræður í vissum málum heyra verðlagsmálin heint undir viökomandi ráðherra. T.d. verðlag á raforku heyrir undir iönaðar- ráðherra. Hækkanirá raforkuveröi hafa farið langt fram úr almennu verðlagi eða hækkað langt umfram 100% á stuttum tíma. Ábyrgðartryggingar bifrciöa heyra undir tryggingarráðherra. Þær hafa nú hækkað um 95%. Ég held, að ráðherrar Alþýðubandalagsins ættu að hyggjá að málum, sem heyra undir þá, áðuren þeir kasta steinum að öðrum ráðherrum. ■ Ásgeir Valdimarsson, kosninga- stjóri Framsóknarflokksins í Austur- landskjördæmi ?rHvet fólk til að gera upp hug sinn og taka af- stöðu” Aðalfundur Samtaka aldraðra: Ekkert svar frá borgar- yfirvöldum um lóðamálin ■ Aðalfundur samtaka aldraðra í Reykjavík var haldinn þriðjudaginn 29. mars s.l. í húsi BSRB á Grettisgötu 89. Fundurinn var fjölsóttur. Félagsmenn eru nú skráðir rétt um 300. Formaður, Hans Jörgensson fyrrv. skólastjóri, flutti langa og ítarlega skýrslu um störf Samtakanna og stöðu mála. Samtökin vinna að margvíslegri þjónustu fyrir félagsmenn, enda hefur nokkur styrkur sem þau hafa notið frá ríkissjóði gert þeim kleift að hafa opna skrifstofu, þjónustumiðstöð, fjóra tíma á dag frá klukka 10-12 og 13-15. Annars hefði engan veginn tekist að leysa þau verkefni sem að hafa kallað. Segja má að stærstu verkefni Samtak- anna á síðasta ári hafi verið þrjú. í fyrsta lagi: Bygging 14 íbúða í Akralandi í Fossvogi og er það 1. byggingaáfangi Samtakanna. Sú framkvæmd gengur eft- ir góðri áætlun og gert ráð fyrir að hægt verði að flytja í þær í september í haust. í öðru lagi Aðild Samtakanna að uppbyggingu dagvistunar- og tómstunda heimilisins í Múlabæ, Ármúla 34, ásamt S.Í.B.S. og Reykjavíkurdeild Rauða Kross fslands. Þar er um þarfa og merka stofnun að ræða scm tók til starfa 6. janúar s.l. og sem öllum kunnugum ber saman um að mjög vel sé búið að. fari af stað með prýði og gefi glæstar vonir. Samtökin eiga fulltrúa í stjórn Múlabæjar og taka að sér að sjá um 20% af rekstrarhalla stofnunarinnar ef ein- hver verður. Annars stefnir stjórn henn- ar að því að hallarekstur verði lítill eða enginn. Þriðja verkefnið er smámiðahapp- drætti sem Samtökin komu af stað á árinu til að safna í sjóð til hjúkrunarmála fyrir félagið. Þótt happdrættið sé ekki stórt í sniðum mun það þó gefa töluverð- an arð. Ágóði er þegar orðinn rúmar eitt hundrað þúsund krónur, en verður nokkru meiri þegar sölu lýkur innan skamms. Happdrættispeningarnir verða eingöngu notaðir til hjúkrunarmála. Þessi þrjú stóru verkefni hafa þurft samfellda umsjón og eftirlit. Þá skal hér fram tekið að Samtökin sóttu í haust til borgaryfirvalda um lóð fyrir næsta byggingaáfanga og óskuðu eindregið cftir svari sem fyrst. Með umsókninni fylgdi teikning af áætluðu fjölbýlishúsi með 34 íbúðum og afrit af 58 umsóknum félagsmanna um þær. Ætti það að sýna glöggt þörfina á nauðsýn slíkra íbúða fyrir aldraða, ásamt þeirri góðu þjónustu sem þar er fyrirhuguð, og vera borgaryfirvöldum hvatning til að veita fljótt jákvæð svör við lóðaumsóknum frjálsra félagssam- taka sem vilja takast á við slík verkefni og valda þeim. Rætt hefur verið við verktaka um að byggja þessar íbúðir og hann hefur sýnt því mikinn áhuga. En því miður hefur enn ekkert svar borist frá borgaryfirvöldum við umsókn okkar. Á fundinum kom fram mjög mikill áhugi á lóða- og byggingamálum Samtak- anna. Bar þar einkum á góma tvö grundvallaratriði sem leysa þyrfti hið fyrsta: að borgaryfirvöld veiti sem allra fyrst jákvæð svör við lóðarumsókn Samtak- anna,- og að lánsfjárstofnanir, ein eða fleiri, veiti öldruðum sem eru að byggja smá- íbúðir skammtíma lán, þangað til þeir geta flutt úr íbúðum sínum og selt þær. Eftirfarandi tillögur voru einróma samþykktar á fundinum: „Aðalfundur Samtaka aldraðra.hald- inn 29. mars 1983, skorar á borgaryfir- völd Reykjavíkur að gefa Samtökunum — segir Asgeir Valdimarsson, kosningastjóri Framsóknar- flokksins í Austurlands- kjördæmi ■ „Starf kosningastjóra felst m.a. í því að hafa yfirumsjón með þeim kosn- ingaskrifstoluin sem opnar eru á vegum F'ramsóknarllokksins í öllu kjördæminu. Þær eru starfandi á öllum 12 þéttliýlis- stöðunum og liafa margar tengingu í sveitirnar í iiagmniinu, en hér á Héraði eru auk þess starfandi kosninganefndir úti í sveitunum. I sambandi við þetta er ég t.d. búinn að fara tvær ferðir um allt kjördæmið", stigði Ásgeir Valdimarssön, kosninga- stjóri framsóknarmanna í Austurlands- kjördæmi. En hann sér um kosninga- skrifstofuna á Egilsstööum. Auk þess kvað Ásgeir það töluvert starf að fylgjast með utankjörstaðakosn- ingum. „Þ.c. að kynna sér það hvcrjir verði að hciman á kjördegi og sjá um að haft sé samband við þá. í sambandi við okkar fólk hér á Austurlandi vil ég. lcggja ríka áherslu á hve mikilsvcrt er að menn séu vakandi gagnvart þcssum þætti kosnínganna", sagði Ásgcir. kost á lóð eða lóðum innan eldri borgar- markanna til að byggja á félagsíbúðir fyrir a)dna félagsmenn sína og hraða afhendingu þeirra eins og kostur er á meðan þörfin fyrir slíkar íbúðir er eins brýn og hú er." „Aðalfundurinn skorar á stjórn Hús- næðismálastjórnar að gangast fyrir því að til félagsbygginga aldraðra verði veitt framkvæmdalán til tveggja ára, auk venjulegra húsnæðislána, og þetta lán verði veitt á fyrstu mánuðum byggingar- tímans og það verði allt að 50-60% af áætluðu byggingarkostnaðarverði tveggja herbergja íbúðar og jafna upp- hæð í krónutölu þó að um eins eða þriggja herbergja íbúðir sé að ræða. Félagshópar og bæjarfélög gætu kom- ið miklu til leiðar í viðleitni sinni við að búa öldruðum ánægjulegt ævikvöld í félagslegu sambýli og öryggi ef þau fengju slíkt rekstrarfé. til íbúðabygginga sinna hvort sem íbúðirnar yrðu síðan leigðar eða seldar tilbúnar undir tréverk og málningu eða fullfrágengnar. Aðeins örfáir aldnir geta fjármagnað fyrir sig slíkar íbúðir frá byrjun bygging- artímans, og þctta getuminna fólk þurfa Samtök aldraðra og bæjarfélög að styrkja með félagsátaki til bættrar að- stöðu elliáranna. Einnig voru þessar tillögur áður sam- þykktar á félagsfundi: „Fundurinn samþykkir að stjórnin vinni að því að cllilífeyrir vcrði gerður skattfrjáls, eða persónufrádráttur verði hækkaður á ellilífeyrisþegum sem jafn- gildi því að ellilífeyrir verði í rcynd án tckjuskatts." „Fundurinn þakkar fjárveitinganefnd Alþingis, félagsmálaráðherra og þing- mönnum, þann skilning og þann stuðn- ing sem Alþing hcfur veitt Samtökum aldraðra með þeim fjárstyrk sem það hefur lagt fram, svo að félagið hefur getað unnið markvisst að félagsmálum sínum í þágu aldraðra." Núverandi stórn Samtaka aldraðra skipa: Hans Jörgensson formaður, Lóa Þorkelsdóttir, Sigurður Gunnarsson, Soffía Jónsdóttir, Þórarinn Þórarinsson. Sigurður Gunnarsson fundarrítari. - En er mikið líf og fjör í pólitíkinni almennj núna fyrir þessar kosningar? - Nci, það cr nú ekki hægt að segja það, frckar aö þctta sé í daufara lagi að mér finnst. Það er t.d. búið að halda nokkra samciginlega framboðsfundi með fulltrúum allra flokka og þeir hafa vcrið svona þokkalcga sóttir cn ckkert umfram það. Já, það kann aö vera ákveðin skýring, aö fólk sé orðið þreytt. Sumir scgja sem svo „ég ætla ekki að kjósa í þetta sinn - þctta er allt sami grautur í sömu skál- inni." En ég vil minna fólk á að þetta er ckki svona cinfalt. Kosningar hverju sinni eru alltaf alvarlegur hlutur, sem fólk þarf aö skoða vandlcga og taka afstöðu til með ábyrgu hugarfari. Ég vil því hvetja fólk til að gera upp hug sinn og taka afstöðu. Raunar trúi ég nú ckki öðru en að þctta fari að taka einhvern fjörkipp. Maður hefur svo sem áður heyrt eitthvað þessu líkt fyrir kosningar, en útkoman verður þó alltaf sú, að flestir fara á kjörstað þegar kosningadagurinn rennur upp, sagði Ásgeir. - HEI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.