Tíminn - 28.04.1983, Blaðsíða 1
Snjóflóðavarnartæki á 2 milljónir á Sigló - Sjá bakslðu
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Fimmtudagur 28. apríl 1983
95. tölublað - 67. árgangur
Steingrímur Hermannsson, formadur Framsóknarflokksins:
„ÞESSI RfKISSTJÖRN A EKKI AB
AKVEÐA SAMKOMUDAG ÞINGSINS”
■ „Það liggur Ijóst fyrir af
okkar hálfu, að við förum ekkert
að fara í fýlu, þó við höfum misst
þrjá menn,“ sagði Steingrímur
Hermannsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, að loknum
þingflokksfundi Framsóknar-
flokksins í gær, er blaðamaður
Tímans spurði hann fregna af
fundinu.“
„Við teljum það tap að sjálf-
sögðu of mikið,“ sagði Stein ■
grímur,„og ekki verðskuldað
miðað við þá ábyrgu afstöðu sem
við höfum haft til þjóðmála.
Auðvitað var á brattann að
sækja, verðbólga alltof mikil og
fleira, og við eigum þar okkar
sök á, eins og aðrir sem voru í
ríkisstjórn.“
Aðspurður um hvað þing-
flokkurinn vildi leggja til nú
sagði Steingrímur: „Við munum
• leggja fram okkar hugmyndir í
efnahagsmálum, ef við erum
kvaddir til viðræðna, og þá taka
ábyrga afstöðu til stjórnarþátt-
töku, á málefnalegum grund-
vetli.“
Steingrímur var spurður hvað
hann vildi segja um þau orð sem
Helgi Seijan, þingmaður Al-
þýðubandalgsins lét falla við
blaðamann Tímans í gær, er
hann sagði að það væri aðeins
eitt stjórnarmynstur sem kæmi
til greina í sínum huga, en það
væri samstarf Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks, því þessir
flokkar hefðu sömu stefnu, og
ættu því að geta unnið saman:
„Þetta er náttúrlega óskaplega
mikill misskilningur hjá Helga.
Mér skilst að það séu margir í
Sjálfstæðisflokknum sem vilji
það sem kallað er „sögulegar
sættir“ og samstarf við Alþýðu-
bandalagið og það merkilega
sem maður hefur lært undanfarin
ár, er að það er mikið afturhald
í báðum þessum flokkum þannig
að það er nú kannski ýmislegt
iíkara með þeim heldur en
okkur, sem erum frjálslyndur
umbótaflokkur."
Steingrímur var spurður hvað
hann teldi líklegasta stjórnar-
mynstrið og sagði hann þá:
„Manni er vitanlega kunnugt um
það af fyrri yfirlýsingum for-
manna, að Alþýðubandalagið
vill umfram allt aðrar kosningar
sem fyrst, og það kom einnig
fram hjá Geir. Hallgrímssyni á
sínum tíma, hvort sem honum
hefur snúist hugur eða ekki,
þannig að það kann vel að vera
að það verði niðurstaðan, að
þeir semji um það og fari saman
í stjórn til þess. Ég vil taka það
fram, að við framsóknarmenn
teljum að mjög óábyrgt í þessari
stöðu, og það sem síst ér þörf á,
að hrinda þjóðinni út í aðrar
kosningar."
Steingrímur sagði jafnframt:
„Við teljum að það komi ekki til
mála að þessi ríkisstjórn fari að
ákveða hvenær þing komi
saman. Stjórnin verður orðin
starfsstjórn á morgun, og því
óeðlilegra að hún ákveði sam-
komudag þingsins, en meirihlut-
inn sem verður myndaður á
næstunni, getur vitanlega ákveð-
ið hvort og hvenær hann vill
kálla þing saman.“
Blaðamanni varð það á í mess-
unni, í forsíðufrétt í blaðinu í
gær, að segja að Steingrímur
Hermannsson hefði sagt að á-
kveðið hefði verið að þing kæmi
saman fyrrihluta í maí. Þetta var
ekki rétt, og var þessi klausa á
misskilningi byggð, sem hér með
er beðið velvirðingar á.
Steingrímur sagði að lokum
að ef þing kæmi saman, án þess
að stjórn hefði verið mynduð,
þá yrði það forystulaust, og
myndi eingöngu spilla fyrir
stjórnarmyndunarviðræðum, og
vitanlega myndi það ekki leysa
nein efnahagsmál.
Við upphaf þingflokksfundar Framsóknarflokksins í eftirmiðdaginn í gær. Á myndina vantar 5 þingmenn Framsóknarflokksins.
Tímamynd G.E.
Fær Albert Guðmundsson ráðherraembætti í stjórn Sjálfstæðismanna?
ERFIÐARA AÐGANGA FRAMHJA
MÉR NU EN OFT ABUR”
■ „Það er hefð hjá öllum
stjórnmálaflokkum að formenn
flokkanna leiði stjórnarmyndun-
arviðræður,“ sagði Albert
Guðmundsson alþingismaður er
Tíminn spurði hann í gær um
hans afstöðu til þess ef Geir
Hallgrímsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins myndi leiða
stjórnarmyndunarviðræður.
Albert var spurður um hver
hans óskasamstarfsaðili væri, ef
Sjálfstæðisflokkurinn myndaði
ríkisstjórn, og sagðist hann þá
engan óskaaðila eiga í slíku til-
felli. því sinn draumur hefði
verið að Sjálfstæðisflokkurinn
fengi umboð þjóðarinnar til þess
að stjórna einn, en þjóðin hefði
ekki orðið við þeirri beiðni Sjálf-
stæðisflokksins, og kosið yfir sig
vinstri meirihluta. „Þess vegna,“
sagði Albert, „hvílir náttúrlega
frumskyldan á þessum fimm
vinstri flokkum, sem þjóðin
studdi umfram Sjálfstæðisflokk-
inn, að mynda ríkisstjórn og sjá
þjóðinni fyrir forystu.“
Albert sagði jafnframt: „Að
sjálfsögðu þá gerir Sjálfstæðis-
flokkurinn sér fulla grein fyrir
þeirri ábyrgð sem hvílir á honum
sem stærsta stjórnmálaaflinu í
stjórnarmyndunum og fleiru, og
mun hann ekki skorast undan
þeirri ábyrgð.“
Albert var spurður um afstöðu
hans til minnihlutastjórnar Sjálf-
stæðisflokksins og sagði þá: „Ég
tél að flokkurinn myndi axla þá
ábyrgð, ef hann væri beðinn um
að brúa eitthvert bil á milli
kosninga, en ég er því frekar
hlynntur að kosið verði á nýjan
leik fljótlega, og að þjóðin stað-
festi aftur þennan dóm sinn, eða
kjósi þá Sjálfstæðisflokkinn, því
það er ótækt að flokkar boði
ákveðna stefnu, sem fókið svo
kýs um, en að loknum kosning-
um er saminn einhverskonar.
stjórnarsáttmáli samstarfsaðila ,
ef fleiri en einn flokkur eru við
stjórn, og þar með er til orðin
stefna,- sem aldrei hefur verið
kosið um.“
Albert var spurður hvort hann
gengi ekki út frá því sem vísu að
hann hlyti ráðherrastól ef Sjálf-
stæðisflokkurinn myndar ríkis-
stjórn og sagði hann þá: „Það er
ekkert ljóst í þessum málum, en
ég tel mig hafa ekkert minni
möguleika en hver annar, vegna
þess að ég er jú efsti maður á
lista hér í Reykjavík, auk þess
sem ég er búinn að vera það
lengi í þingflokknum, að það er
erfiðara að ganga framhjá mér
nú, heldur en oft áður.
Fyrst og fremst eru þessar
stjórnarmyndunarviðræður og
framhald þeirra: samkvæmt regl-
um flokksins í höndum for-
mannsins.“ - AB
- Sjá einnig bls. 5
Forsetinn
rædir við
alla for-
mennma
■ Forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir hefur boðað
formcnn stjórnmálaflokkanna
á sinn fund í dag, til þess að
ræða óformlega við þá unt
stjórnmálaástandið. Fyrstan
hefur forsetinn boðað Geir
Hallgímsson, formann Sjálf-
stæðisflokksins, og kcmur
hann til fundar við forsetann
'kl. 13.30. Steíngrímur Her-
mannsson, formaður Fram-
sóknarflokksins fer til fundar
viðforsetann kl. 14.15 ogaðrir
flokksformcnn síðan hver á
fætur öðrum.
Flestireru þcirrar skoðunar,
að Geir Hallgrímssyni for-
manni Sjálfstæðisflokksins
verði falið umboð til þess að
rcyna stjórnarmyndun, en það
liggur væntanlega Ijóst fyrir,
ekki síðar en á ntorgun.
- AB
Rás 2;
Engin
ákvörðun
■ Ráðning yfirmanns fyrir
Rás 2 hjá ríkisútvarpinu var
ekki tekin fyrir á fundi hjá
útvarpsráði í gær, en eins og
menn muna voru umsækjcndur
urn stöðuna 14 talsins.
Að sögn Vilhjálms Hjálm-
arssonar forntanns útvarpsráðs
fjallar ráðið væntanlega um
þessar umsóknir á þriðjudag-
inn kemur.
Sjó einnig bls. 3.
Ekið á dreng
í Hafnarfirði
■ Ekið var á 8 ára dreng við
Selvogsgötu í Hafnarfirði í
gær. Tildrög slyssins ntunu
vera þau, að drengurinn hjól-
aði út úr húsasundi í veg fyrir
bílinn. Þarna er gangbraut og
lcikvöllur en drengurinn mun
hafa ætlað að hjóla á leikvöll-
inn. Meiðsli eru ckki að fullu
kunn en þó mun drengurinn að
öllum líkindum hafa hand-
leggsbrotnað.
- ÞB