Tíminn - 28.04.1983, Blaðsíða 2

Tíminn - 28.04.1983, Blaðsíða 2
2. FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983 !*! Garðleigjendur ^ í Kópavogi Leiga á garölöndum í Kópavogi er hafin. Úthlutun garöa fer fram í Gróörarstööinni Birkihlíö Birki- grund 1, þriðjudaga til fimmtudaga kl. 9.30-11.30 fram til 15. maí. Greiðsla fyrir garða er sem hér segir 3002 kr. 445,- 2002 kr. 388,- 1502 kr. 313,- 1002 kr. 248,- Greiðsla fer fram við úthlutun garöa Garðyrkjuráðunautur Kópavogs Sími46612. Ibúð óskast 3ja herbergja íbúð óskast á leigu á Stór-Reykja- víkursvæöinu n.k. haust eöa eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 91-85306 eftir kl. 19 á kvöldin og í síma 96-25375. Félagsmálastofnun Selfoss Staða umsjónarmanns Hótels Selfoss er laus til umsóknar. í starfinu felst m.a. yfirumsjón með rekstri og umsjón með veitingasölu þar með talið tilbúningur veitinga. Umsóknum sé skilað á skrifstofu Félagsmálastofnunar Tryggvaskála síma 99-1408. Umsóknarfrestur er til 9. maí. Félagsmálastjóri. 'l' C 2 w Rannsóknarhús á Hvanneyri Tilboð óskast í að steypa upp rannsóknarhús fyrir bændaskólann á Hvanneyri og ganga frá því að utan, auk lóðarfrágangs að hluta. Húsið er 1 hæð með háu risi og kjallara að hluta og er grunnflötur þess um 430mJ. Verkinu skal að fullu lokið 30. maí 1984. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7 í Reykjavík, gegn 1.500 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð hjá Innkaupastofnun ríkisins mið- vikudaginn 18. maí 1983 kl. 11.00. Hey til sölu upplýsingar í síma 93-2171. Hestamanna- félagið Gustur Minnum á vorfundinn í kvöld í Félagsheimili Kópavogs kl. 20.30. Stjórnin f réttir „AFUNN VIRÐIST MINNI EN AfillR” segir Jakob Magnússon fiskifrædingur um úthafs- karfann sud-vestur af landinu ■ „Viö höfum verið að rannsaka karfa- stofninn undanfarna daga hérna suðvest- ur af landinu", sagði Jakob Magnússon fiskifræðingur um borð í rannsóknar- skipinu Hafþóri er Tíminn hafði sam- band við hann í gær. „Þetta er nokkuð sfor sstofn af úthafs- karfa en hann virðist þó nokkuð dreifð- ur. Það er hér nokkuð stór floti rúss- neskra togara og verksmiðjuskipa við veiðar og höfum við verið að kanna stöðuna. Við köstuðum hér við hliðina á þeim en fengum ekki mikið og ég geri ekki ráð fyrir að þeir fái mikið. Hins vegar eru þeir með stórar vörpur og dóla þetta hérna fram og aftur og ná þannig eflaust meiru. Við höfum verið að reyna að ná sambandi við þá hérna en það hefur engan árangur borið. Annars er lítið komið út úr rannsóknum okkar ennþá en þetta ætti að skýrast bráðlega.“ Sameiginlegt álit friðarhreyfinga allra Norðurlanda um kjarnorku- vopnalaust svæði samþykkt: Undirskriftasöfn- un hefst hérlendis innan skamms ■ Um síðustu helgi var haldin í Nor- rxna húsinu sameiginleg ráðstefna frið- arhreyfinga í Noregi, Svíþjóð, Finn- landi, Danmörku, Færeyjum og Islandi. Þar var undirrituð sameiginleg stefnu- yfirlýsing um að Norðurlöndin, þar með talin ísland og Fxreyjar skuli í framtíð- inni verða kjarnorkuvopnalaust svæði. Fulltrúar á ráðstefnunni létu einnig í Ijós það álit að í framtíðinni væri mikilvægt að Grænland yrði einnig kjarnorku- vopnalaust svæði. Að sögn Árna Hjartarsonar, sem var fulltrúi á ráðstefnunni er meginhugsunin í hinum sameiginlega texta sú, að hér skuli verða um sjálfstætt frumkvæði Norðurlanda að ræða, sem á engan hátt sé skilyrt af afstöðu stórveldanna, þótt á hinn bóginn sé þess krafist að þau standi við þau heit sem þau hafa gefið m.a. \ samningi um bann við dreifingu kjarn- orkuvopna. í öðru lagi sé litið svo á að hér sé um að ræða upphaf á baráttu fyrir kjarnorkuvopnalausri Evrópu og gegn öllum kjarnorkuvígbúnaði. Finnska ríkisstjórnin gerði fyrir nokkru hugmyndina að kjarnorku- vopnalausum Norðurlöndum að sinni stefnu og hugmyndin hefur einnig notið mikils fylgis innan jafnaðarmannaflokka hinna Norðurlandanna, m.a. þess sænska sem nú fer með stjórnartauma þar í landi. 2.5’ milljónir manna á Norðurlöndunum hafa skrifað undir skjal til stuðnings kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum. Slík undir- skriftasöfnun mun hefjast á íslandi innan skamms. ■ Samráðsfundur hjálparstofnana frá ýmsum kirkjudeildum í Evrópu og Bandaríkjunum var haldinn nýverið í Póllandi með fulltrúum póiskra kirkju- deilda. Kom þar fram að mikil ánægja hefur ríkt í Póllandi með framlag íslands til aðstoðarínnar við Pólland, sem hefur verið fólgin í sendingum á kjöti og síld þangað. Samþykkti samráðsfundurinn að leggja fram fé til kaupa á 100 tonnum á síld til viðbótar til dreiflngar í Póllandi í maí og nóvember. Helmingur þessa magns hefur þegar veríð sendur áleiðis til Póllands. „Saltsíld sú sem Hjálparstofnun kirkj- unnar hefur fengið frá okkur er um 850 ■ Sovéski togarinn „Malakit" í Reykjavíkurhöfn í gærdag. (Tímamynd Árni Sæberg) Sovéski sjó- maðurinn lést á sunnu- daginn ■ Sovéski togarinn Malakit lagði úr höfn í Reykjavík kl. 18 í gærdag með lík sovéska sjómannsins. sem sóttur var skaðbrenndur á haf út þann 19. apríl sl. innanborðs. Sjómaðurinn Ikonoarov að nafni, hafði legið á Landspítalanum i Reykja- vík undanfarna daga án þess að tækist að koma honum til mcðvitundar og lést hann sl. sunnudag. tunnur eða 0.3% af ársframleiðslu okkar, þannig að á okkar mælikvarða er hér ,um mjög óverulegt magn að ræða,“ sagði Gunnar Flóvenz framkvæmda- Stjóri Síldarútvegsnefndar í samtali við Tímann í gær. „Hitt er annað mál að saltsíld er sú matvara sem kemur sér hvað best fyrir vannært fólk í Póllandi, auk þess sem saltsíld er vinsælli hjá Pólverjum en flestum öðrum síldar- neysluþjóðum. Við höfum orðið varir við það að Hjálparstofnun kirkjunnar hefur sýnt mikinn dugnað og útsjónarsemi til að nýta það hráefni sem hún hefur til umráða til aðstoðar fólki í Póllandi,“ sagði Gunnar Flóvenz. — JGK ÍOO tonn af saltsfld í aðstoð til Pólverja Hundum hafnað á Bolungarvík ■ Um leið og Bolvíkingar kusu til Alþingis s.l. laugardag, kusu þeir um hvort leyfa ætti hundahald í bænum. Úrslit í þeim kosningum urðu þau, að já sögðu 141, en nei sögðu 393. Auðir og ógildir seðlar voru 309. Hundahald verð- ur því ekki leyft í Bolungarvík. Bændur 12 ára drengur óskar eftir aö komast í sveit í sumar. Upplýsingar í síma 91-71549. Caterpillar varahlutir til sölu, bæöi í jaröýtur, veghefla, báta- vélar o.fl. Upplýsingar í síma32101.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.