Tíminn - 28.04.1983, Síða 8

Tíminn - 28.04.1983, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 28. APRIL 1983 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gisli Sigurösson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gíslason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Olafsson. Frettastjórar: Kristinn Hallgrimsson og Atli Magnússon. Umsjónarmaður Helgar-Tímans: Guðmundur Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragedottir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friðrik Indriðason, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristín Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Auglysingasimi 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86392. Verð i lausasölu 15.00, en 18.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 180.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf. Nú þarf meira en bráðabirgðastjórn ■ í dag mun Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra biðjast lausnar fyrir ráðuneyti sitt. Að líkindum mun forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, fara þess á leit við ríkisstjórnina að hún sitji sem bráðabirgðastjórn eða starfsstjórn unz önnur ríkisstjórn hefur verið mynduð. Venjum samkvæmt er slík starfsstjórn eða bráöabirgða- stjórn nánast sagt valdalaus. Henni er í rauninni ekki ætlað annað en að sjá um nauðsynlegustu afgreiðslu minni háttar mála. Hún hefur ekki vald til að gefa út bráða birgðalög. Hún getur ekki rofið þing. Hún getur ekki tekið neinar pólitískar ákvarðanir, sem tcljandi máli skipta. Þess eru dæmi, að slíkar stjórnir hafi farið nokkurn tíma með völd, þegar stjórnarmyndanir hafa gengið illa. Þetta hefur þó aðeins gerzt, þegar ekki hefur verið talin aðkallandi þörf skjótra aðgerða. Nú eru aðstæðurþannig, aö þörfin fyrirefnahagsaðgerð- ir er mjög aðkallandi, ef ný verðbólguskriða á ekki að koma til sögu 1. júní næstkomandi. Bráðabirgðastjórn hefur hvorki vald né aðstöðu til að brcgðast við þeim vanda. Þetta veldur því, að ekki er aðstaða til þess að búa við starfsstjórn cða bráðabirgðastjórn, nema örfáa daga. Annars stefnir í hreint óefni. Það var af þessum ástæðum, sem Framsóknarflokkurinn lagði áherzlu á það fyrir kosningarnar, að mynduð yrði starfhæf ríkisstjórn sem fyrst eftir þær og Alþingi grípi í taumana í framhaldi af því. Sú afstaða flokksins er að sjálfsögðu óbreytt. Það var og er líka sjónarmið flokksins, að þessar aðgerðir ætti að miða við lengri tíma og ekki yrði efnt til nýrrar kosningabaráttu meðan þær væru að ná árangri. Forseti íslands og sá eða þeir, sem hann felur stjórnar myndun, verða að haga störfum sínum með tilliti til þess, að tíminn er naumur. Tími starfsstjórnarinnar verður að vera stuttur. Nýju flokkarnir Þeir spádómar eru talsvert almennir, að ekki muni það auðvelda stjórnarmyndun, að tveir flokkar hafa bætzt við á Alþingi. Oftast hcfur það líka orðið reynslan, að nýir flokkar hafa ékki auðveldað þingstörfin. Þetta þarl þó ekki að vera. Séu hinir nýju flokkar ábyrgir og vilji vel, ættu þeir alls ekki að þurfa að vera til trafala. Það er áreiðanlega almenn ósk og þá ekki sízt þeirra, sem veittu nýju flokkunum brautargengi, að það verði reynt til fulls, hvört þeir vilja taka jákvæðan þátt í því viðnámsstarfi gegn verðbólgunni, sem nú þarf að inna.af höndum. í rauninni hvílir mest skylda á nýju flokkunum að skorast hér ekki undan ábyrgð, þar sem þeir urðu sigurvegarar kosninganna og þeim var þannig sýnt sérstakt traust. Nú ér það þeirra að sýna, að þeir hafi verið traustsins verðugir. Hitunarkostnadur Eitt af þeim málum, sem ríkisstjórn Gunnars Thor- oddsen getur afgreitt, þótt hún starfi til bráðabirgða, er leiðrétting á niðurgreiðslum til þeirra, sem búa við háan upphitunarkostnað, og hafa vegna slælegrar framkvæmdar hjá iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra ekki fengið það, sem lofað hefur verið. Fjármagn hefur verið innheimt til þessara greiðslna, en tafizt hefur að greiða það úr ríkissjóði. Þetta er einfalt og auðvelt mál og enginn ágreiningur um það milli flokkanna svo að kunnugt sé. Þ.Þ. skrifað og skrafað Vlnstri eða hægri sigur? ■ Alvöruviðræöur um stjórnarmyndun geta nú farið að hefjast, en það liggur Ijóst fyrir aö forsætisráðherra ætl- ar að segja af ser og fer sú athöfn fram í dag, fimmtu- dag. Þótt talað sé um sigur- vegara þeirra kosninga sem fram fóru s.l. laugardag eru úrslitin ekki Ijósari cn svo að það liggur alls ekki í augum uppi hvers konarstjórn þjóð- in var að kjósa sér. Sam- kvæmt skilgrciningu sjálf- stæðismanna hefur þjóðin kosið til vinstri, þar sem þeir hafa slegið því föstu að nýju flokkarnir séu vinstri flokkar. En þess ber að geta að hinir vinstri flokkarnir samkvæmt skilgreiningu töpuðu samt. Sjálfstæðisflokkurinn vann á og þótt sumir séu að reikna út að hann hafi tapað miðað við skoðanakannanir er það marklcysa ein. Flokkurinn vann á alls staðar nema í Reykjavík og bætti við sig þingmanni. Þetta er stað- reynd sem ekki verður gengið fram hjá. Framsóknarmcnn og alþýðuflokksmenn viður- kenna tap sitt cn Alþýðu- bandalagið lcmur hausnum við steininn og hamast við að sýna fram á að þaö hafi unnið kosningasigur og Þjóðviljinn hefur cftir Svavari og Hjör- lcifi að mikill varnarsigur hafi verið unninn og kjósendur koniið í veg fyrir framrás hægri aflanna og Hjörleifur telur niðurstöðu kosning- anna vera sigur fyrir „íslensk- an málstað" í álmálinu. Nú ætti Hjörleifur, svo talna- glöggur scm hann er, að sctj- ast niður og líta á úrslit Alþýðubandalagsins í eigin kjördæmi og bera saman við fyrri kosningaúrslit. Málið er að það er svipað á komið með kosningasigur Alþýðu- bandalagsins og ósigur íhaldsins að reiknimeistar- arnir einblína á marklitlar tölur skoðanakannanna en síður á þau úrslit scm ein skipta máli, sem sagt kosn- inga úrslit. Pólitískur meydómur Feimnislegar þeifingar cru þegar hafnar milli stjórn- málamanna um hugsanlega stjórnarsamvinnu. Að von- um lcita menn fyrir sér hjá ■ Vilmundur hinum föngulega kvennalista og vilja frétta hvernig hugur þingmanna hans er til stjórn- arsamstarfs. Það er búið að hamra svo á því að þingmcnn listans séu hinir raunverulegu sigurvegarar kosninganna, að það hlýtur að teljast cðli- legt. að rætt sé við þá og athugað hvort þeir séu fúsir til að styðja þetta stjórnar- mynstur eða hitt. Bandalag jafnaðarmanna er varla cins álitlegur kostur, einfaldlega vegna þess að í kosningabaráttunni cr engu li'kara en fulltrúar flokksins hafi veriö að reyna að spila sig út úr pólitík. Þeir þykjast hafa svo ofboðslega sérstöðu að það cr bágt að sjá að þeir geti séð af siðfcrðilegum hreinleika sínum og pólitísk- um meydómi með því að ganga til stjórnarsamstarfs við aðra stjórnmálaflokka. Bandalag jafnaðarmanna er því úr leik í þeim viðræðum sem hljóta að hefjast ein- hvern næstu daga. Alþýðuflokkur mun vera tilbúinn í stjórnarsamvinnu með hverjuni sem er. Flokk- urinn tapaði á stjórnarsetu 1978, skrýtnum og vanhugs- uðum viðskilnaði við þá stjórn og ekki bætti úr nokk- urra mánaða stjórnarseta ■ Sigríður Dúna flokksins undir verndarvæng íhaldsins þegar Vilmundur gerði garðinn fægan innan veggja dómsmálaráðuneytis- ins. Stjórnarandstaða flokks- ins síðasta kjörtímabil var honum síst til framdráttar og er Alþýðuflokknum nú mikil nauðsyn á að gera sig gildandi í stjórnmálum ef hann á ekki að gleymast og týnast. Enda líta þcir þing- mcnn flokksins sem eftir eru hýru auga til kvennalista og Sjálfstæðisflokks, en loka engum dyrum ef annars kon- ar stjórnarsamvinna býðst. Sögulegar sættir Þótt Gunnar Thoroddsen hverfi brátt af leiksviði stjórnmálanna eru innan- flokksvandamál Sjálfsætðis- flokksins ekki leyst. Geir Hallgrímsson telur sjálfsagt að hann myndi næstu ríkis- stjórn þótt flokksmenn hafi hafnað honum í prófkjöri og kjósendur í alþingiskosning- um. Að sjálfsögðu verður Geir fyrir valinu er forseti Islands felur leiðtoga stærsta flokks- ins áð mynda meirihluta- stjórn. En hvert framhaldið verður er ekki auðvelt að spá um. Þaö er ekki alveg víst að þingflokkur Sjálfstæðis- flokksins sé á einu máli um að Geir sé sjálfsagt forsætis- ráðherraefni þótt forseti snúi sér til hans sem formanns. Albert Guðmundsson ætl- ar sér stóran hlut í þeim viðræðum sem framundan eru. En þær raddir gerast sífellt háværari að hann hafi staðið sig slælega sem leiðtogi Reykjavíkurliðsins, sem er eina kjördæmið sem flokkur- inn missti fylgi, miðað við næstu þingkosningar á undan. Albert tekur þessar ásakanir óstiont upp og eru leiðtogavandamál flokksins langt því frá að vera óútkljáð. Þeir Friðjón og Pálmi bættu nijög stöðu flokksins í sínum kjördæmum og verður ekki fram hjá því gengið og ólíklegt að þeir láti skáka sér út í horn í baráttu um áhrif og vegtyllur á næstunni. Innan Sjálfstæðisflokks og Alþýðubandalags eru öfl sem gjarnan vilja sögulegar sættir og að þessir flokkar taki höndum saman um stjórn- armyndun. Það er bent ágott samstarf þessara aðila innan forystu ASÍ og talið að þeir ættu einnig að geta unnið vel saman í ríkisstjórn. „Þeir gleypa þctta ofan í sig eins og annað" voru fleyg orð á sínum tíma og þau gilda lík- lega enn og því er alls ekki óhugsandi að þeir sem lcika erkifjendur á leikvelli stjórn- málanna geti komið sér sam- an um nothæfan stjórnarsátt- mála. í kosningabaráttunni setti Framsóknarflokkurinn fram vel markaða stefnu til lausnar efnahagsvanda og mótspyrnu gegn dýrtíð og gerði að skil- yrði fyrir stjórnarsamvinu að þeirri stefnu yrði fylgt og það boð stendur. Telja má líklegt að flokkurinn sé fús til sam- starfs við hver þau stjóm- málaöfl sem fallast á lögbind- ingu niðurtalningar og að hendur verði látnar standa fram úr ermum og gert það sem gera þarf. Aðrir munu hugsa sér að kalla saman aukaþing og þvarga um stjórnarskrá og kosningar fram á sumar og kjósa aftur fyrir haustið, en slík vinnubrögð telja fram- sóknarmenn forkastanleg og Ijá ekki máls á ævintýra- mennsku af því tagi. -OÓ starkaður skrifar Margir möguleikar á myndun ríkisstjórnar ■ RÍKISSTJÓRNIN segir loksins af scr í dag, og eftír hádegið mun forseti Islands ræða við fulltrúa þingflokkanna. Að því loknu er almennt búist við að forsctinn muni fcla Geir Halígrínissyni, fornianni Sjálfstæðisflokksins, að revna mynd- un meirihlutastjórnar. Þótt formlcgar stjórnarmyndunarviðræður geti ekki hafist fyrr en eftir að forsetinn hefur formlega falið einhverjum stjórninálaforingjanum að reyna stjórnarmyndun, þá hafa þegar farið fram óformlcgar þreifingar á milli stjórnmálafor- ingja. Þar hefur þcgar komið i Ijós, að þingmenn hinna ýmsu flokka eru að velta fyrir sér nokkrum hugsanlegum stjórnar- mynstrum, og er alls óvíst hvert þeirra verður ofan á. Ljóst virðist þó nú þegar að flokkur Vilmundar, Bandalag jafnaðarmanna, niun ckki koma af neinni alvöru inn í þessa mynd. Það er lítill eða enginn áhugi á þvi hjá þingmönnum annarra flokka að ræða við Vilmund í alvöru um stjórnar- myndun. Hins vegar eru allir hinir flokkarnir inni í myndinni eftir því scm næst verður komist. Það eru tölfræðilega margir inöguleikar á stjórnarmyndun, en spurningin er, hversu margir þeirra eru pólitískt raunhæfir. Verulcga skiptar skoðanir eru innan þingflokka Sjáffstæðis- flokksins og Alþýðubandalagsins um afstöðu til stjórnarmynd- unar, og nokkuð munu skoðanir líka skiptar í öðruin þingflokkum. Hluti þingflokks Alþýðuhandalagsins vill cins og Guðniundur J. Guðmundsson falla fyrir „freistingunni" og mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Meðal sjálf- stæðismanna er nokkur hópur þingmanna, sem vill gera slíkar sögulegar sættir við Alþýðubandalagið. Hins vegar er Ijóst að innan þingflokks Alþýðubandalagsins er líka hörð andstaða við stjórn af þessu tagi, og niun Guðmundur J. Guðmundsson hafa fengið tiltal fyrir lausmælgi sína ísjónvarpinu hjá suinum samflokksmönnum sínum. Hjá Alþýðuflokknum eru nokkuð skiptar skoðanir um annað en það að flokkurinn verði að komast í stjórn. Þannig inun Jón Baldvin hafa mikinn áhuga á að ná samvinnu við Kvennalistana í von um að innbyrða þá í flokkinn með tíð og tíma. Hefur Jón Baldvin í huga myndun samstjórnar Sjálf- stæðisflokks, Alþýðuflokks og Kvennalistanna. Þá stjórn kalla sumir „Vífreisn". Aðrir í þingflokki Alþýðuflokksins munu ekki eins hrifnir af þessu, cinkum þar sem slík stjórn hefði aðeins 32 þingmenn - þ.e. algjört lágmark þingmanna - og gæti því misst meirihluta hvenær sem er ef ágrciningur kæmi upp. Af öðrum stjórnarmyndunarmögufeikum, sem nefndir hafa verið, má nefna þriggja flokka stjórnir með Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og svo annað hvort Alþýðuflokki, Alþýðu- bandalagi eða Kvcnnalistunum. Framsóknarmcnn lögðu á það mikla áherslu í kosningabar- áttunni að mynda yrði strax eftir kosningar sterka rikisstjórn, sem tæki á efnahagsmálunum í samræmi við þá efnahags- stefnu, sem Framsóknarflokkurinn lagði fram fyrir kosningar. A þcim grundvelli munu fulltrúar Framsóknarflokksins í sæntanlegum stjórnarmyndunarviðræðum starfa, og það, hvort Framsóknarflokkurinn verður í ríkisstjórn eða utan stjórnar, mun ráðast af viðbrögðum annarra flokka við stefnu Framsóknarflokksins í efnahagsmálum. -Starkaður.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.