Tíminn - 28.04.1983, Page 10

Tíminn - 28.04.1983, Page 10
10 Þjónustubygging að Hólum í Hjaltadal Tilboð óskast í að steypa upp og gera fokhelda þjónustubyggingu við nýja hlöðu að Hólum. Húsið er 2 hæðir og um 190 nT. Þak og gluggar skulu fullfrágengnir. Verkinu skal að fullu lokið30. sept. 1983. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7 í Reykjavík, gegn 1.500 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð hjá Innkaupastofnun ríkisins mið- vikudaginn 18. maí 1983 kl. 11.30. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Lausar stöður við Bændaskólann á Hvanneyri Við Bændaskólann á Hvanneyri eru lausar til umsóknar eftirtaldar stöður, sem veitast frá 1. september 1983: 1. Staða kennara við bændadeild, með búfjárrækt sem aðalkennslugrein. Laun skv. launakerfi starfsmanna ríkisins. 2. Staða aðalkennara á grunngreinasviði við búvísinda* deild skólans. Aðalkennslugreinar efna- og líffræði- greinar. Launakjör eru hin sömu og háskólakennara. Umsækjendur um stöðu þessa skulu láta fylgja umsókn sinni skýrslu um vísindastörf sín ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf. Umsóknarfrestur um báðar þessar stöður er til 25. maí n.k. og skulu umsóknir sendar til landbúnaðarráðuneyt- isins, Arnarhvoli, Reykjavík. Landbúnaðarráðuneytið, 25. apríl 1983. ,v i. ^ \ ORÐSENDING TIL FORELDRA í REYKJAVÍK í þessari viku fá nemendur grunnskóla í hendur bæklinginn: Sumarstarf fyrir börn og unglinga 1983 með upplýsingum um framboð á sumarstarfi borgarstofnana og félaga í Reykjavík. Foreldrar eru hvattir til að skoða bæklinginn vandlega með börnum sínum Gleðilegt HflSIB!' sumar. íþróttir umsjón Samúel Örn Erlingsson Úr heimi akstursíþróttanna: „Erfið staða segir Jón Erlends- son um landsliðs- þjálfaramálin ■ „Þetta er erfið staða sem koniin er upp, sagði Jón Erlendsson varaformaður Hand- knattlcikssambands íslands í samtali við blm. Tímans í gær. „Strax þegar landsliðið kom hcim frá B-keppninni í Hollandi ákvað stjórn HSÍ að ræða við Hilmar Björnsson um hvort hann vildi hefja viðræður um nýjan samning, og það gert. Hilmar gaf okkur svar fyrir ekki löngu, og sagði að honum finndist rctt að ákvörðun um ráðningu landsliðsþjálfara væri ekki tímabær, þar eð mikil mannaskipti væru fyrirsjáanleg í stjórn HSÍ. Þetta fannst okkur ekki rétt, þar eð margir okkar hæfustu þjálfara eru nú að ráða sig, og allflestir komnir með tilboð upp á vasann. Því fengu þrír stjórnarmenn, Júlíus Hafstein, Gunnar Gunnarsson og Pétur Rafnsson uinboð til þess að ræða við Bogdan Kowalczyk um hvort samningsgrundvöllur væri fyrir hendi milli HSf og hans. Síðan er blaðamönnum hleypt að þessum fundi, og þá ekki ncma frá útvöldum aðilum, og látið í veðri vaka að verið sé að semja við Bogdan um starfiö.'' Samkvæmt þessum orðum Jóns er Ijóst, að umræddir stjórnarmenn HSÍ hafa farið út fyrir þáð svið sem þeim var ætlað, og því enn ekki ljóst hvaða stefnu málið tekur, en Jón sagði að hann yrði ekki undrandi, þó Hilmar Björnsson mundi íhuga önnur tilboð sem Itann hefði fyrst svona hefði verið tekið á málinu. Úrslit í 4. sinn í 2. deild í körfu ■ Um næstu helgi munu þrjú lið úr 2. dcild í körfuknattleik lcika í fjórða sinn í úrslita- kcppni í annarri dcild um fyrstu deildar sæti. Þetta er ekki bundið við mörg ár, heldur þetta eina keppnistímabil sem bundið er við þennan vctur sem nú er á pappírnum liðinn. Þrisvar sinnum hafa lið Laugdæla úr Laugardal í Árnessýslu, ísfirðingar og Breiðabliksmenn úr Kóavogi leikið hvert gegn öðru gagngcrt til þess að skera úr um hvaða lið fari upp í fyrstu deild, en alltaf hafa liðin unnið hvert annað. Þannig var fyrstu leikhelgina að ísfirðingar unnu Laugdæli, Laugdælir unnu Breiðablik, og Breiðablik vann Isfirðinga. Næstu lcikhelgi fór allt á sömu leið, en þriðju lcikhelgina snerist dæmið við. Þá unnu Laugdælir ísfirð- inga, ísfirðingar unnu Brciðablik, og Breiða- hlik vann Laugdæli. Nú um næstu helgi munu liðin enn leiöa saman hesta sína, og hefur nú verið frá þvi gengið innan Körfuknattleiks- samhandsins að stigahlutfall muni ráða, cf allt fer á sömu leið. Körfuknattlcikslciðtogar óttast scm sagt að þcssi keppni gæti staðið langt fram á sumar ef svo fer scm horfir, og vilja því Ijúka málinu af fyrir ársþing... R eykjayíkurmót í skíðagöngu ■ Rcykjavíkurmót í skíðagöngu var haldið fyrir nokkru við Skíaskálann í Hveradölum. Urslit urðu þessi helst: Karlar 20 ára og eldri 15 km. 1. Ingólfur Jönsson SR 46,30 2. Halldór Matthíasson SR 49,53 3. Kristján Snorrason SR 53,32 Konur 19 ára og efdri 5 km. 1. Guðbjörg Haraldsdóttir ! 2. Sigurbjörg Helgadóttir 5 3. Lilja Þorlcifsdöttir SR Stúlkur 17-19 ára. 5 km. 1. Rannveig Helgadóttir S 2. Sigríður Erlendsdóttir S Drengir 12 ára og yngri, 2,5 kni 1. Hörður Sigurðsson SR 2. Svcinn Matthíasson SR 3. Sveinn Andrésson SR KEPPHMUTARNIR KALLA HANA „UÓNYNJUNA FRA GRASSE” Michelle Mouton varð fyrst kvenna til að vinna keppni í HM í ralli, og er nú einn besti rallökumaður heims ■ Blaðamenn sem ekki hafa of mikið álit á hæfileikum kvenna til að aka bílum ættu að halda sig í hæfilegri fjariægð frá Michelle Mouton, 31 árs gömlum frönskum rallökumanni á heimsmælikvarða. Michelle Mouton er nefnilega kona, og hefur mikið skap. Hún væri vís með að skella á viðkomandi beittum setningum um heimskulegar spurningar blaðamanna, eða bara hrella þá akandi. „Kvennaflokkur í ralli, til hvers ætti hann að vera?“ segir Michelle. „Er kannske eitthvað til í ralli sem heitir karlaflokkur? Ég keyri ekki til að verða besta ökukona í heimi, ég ætla mér að sigra karlmennina líka! segir þessi svarthærða myndarlega stúlka, sem mikið lætur að sér kveða í íþróttagrein sem annars er heimur karlmanna. Michelle Mouton er kölluð af keppi- nautum sínum „Ljónynjan frá Grasse“ en Grasse er bær í Suður-Frakklandi sem þekktastur er fyrir ilmvatnsfram- leiðslu, og þar er Michelle fædd og uppalin. Á fáum árum hefur hún unnið sig upp í að vera í fremstu röð í ralli, og gefur karlmönnunum í greininni ekkert eftir við stýrið á trylltum ralltækjum. Aðeins óheppni olli því að Michelle varð ekki heimsmeistari yfir tólf keppnir á síðasta ári, og líklega heppni fyrir þá sem hræddust mest að hún ynni og sögðu „ef kona vinnur heimsmeistaratitilinn, þá er ég hættur". Michelle Mouton og aðstoðarökumaður hennar, eða siglinga- fræðingur eða hvað það er kallað, hin 27 ára gamla Fabrizia Pons, sem er ítölsk að uppruna, sigruðu ekki, en þær urðu í öðru sæti á bílnum sem þær keppa á, Audi Quattro. Þær hefðu getað tryggt sér titilinn í Bandamara -keppninni sem fram fer á Fílabeinsströndinni í Afríku. Allt liðið frá Audi fylkti liði að baki Michelle og hún lagði sig alla fram. í miðri keppni hafði hún forystu upp á eina klukkustund og tuttugu mínútu á þann sem varð heimsmeistari, Austur- ríkismanninn Walter Röhrl. En gírkassi sem fór í spað, og það að skipta þurfti um hann gerði það að verkum að Michelle varð allt í einu 18 mínútum á eftir Röhrl. Stuttu síðar fékk hun vit- neskju um að faðir hennar, sem kom henni af stað í rallíþróttinni, hefði látist heima í Frakklandi. En Mouton og Pons héldu áfram keppni. Síðar sagði Mi- chelle að það hefði einmitt verið það sem faðir hennar hefði viljað. En hún komst ekki langt eftir það. Þrátt fyrir að Michelle Mouton sé talin sérfræðingur að aka í slæmu veðri, gekk henni illa í þokumorgni á rykugum Afríkuvegum. í lúmskri beygju rann hinn fjórhjóladrifni 325 hestafla Audi Quattro þeirra stallsystra út af, hafnaði á girðingu og fór margar veltur. Kort, minnisblöð og þess háttar flugu út um víðan völl, en stúlkurn^r fengu hjálp Audi-starfsliðsins til að vélta bílnum við og hefja keppnina á ný. Þegar komið var nokkrum kílómetrum lengra hvarf vinstra framhjólið undan bílnum, og var það bein afleiðing veltunnar. Michelle og Fabrizia voru fallnar úr Bandamara- keppninni. Snemma á þessu ári varð Mouton að hætta í Monte Carlo rallinu eftir að hafa keyrt á múrvegg. Á síðasta ári datt hún líka út úr þessu einu heimsins mesta ralli eftir að hafa keyrt á hús. Blaðamönnum og áhorfendum er það hulin ráðgáta hvernig þessi litla dökk- hærða dimmeygða stúlka getur verið svo eitilhörð og dugleg að stór hluti um- heimsins gapir við henni. Ef þeir spyrja er bara slegið á puttana á þeim, og síðan lagar Michelle bara hárgreiðsluna. Sigurganga Michelle á að baki skrautiegan feril í íþróttinni. Hún vann sitt fyrsta rall 20 ára gömul árið 1972. Hún var í fyrstu I Sp*«f B? pilote ■ Á fullri ferð á sænskum vetrar- vegum. Audi Quattroinn hennar Mi- chelle ætti að falla vel í það umhverfi, fjórhjóladrifinn og 325 hross undir húddinu. aðstoðarökumaður, eða „siglingafræð- ingur“, en faðir hennar blandaði sér í málin. „Ef þú ert í ralli, þá skal það vera alvörurall", sagði hann og keypti handa henni bíl eins og sigurbílarnir voru flestir í þá daga, Renault Alpine með öllum rallútbúnaði. Michelle sigraði í Evrópumeistaramótinu 1977 á Porche, og fyrir FIAT sigraði hún í Tour de France síðar sama ár. Árið 1980 skrifaði hún undir samning við Audi, nokkuð sem talið var vera auglýsingabrella hjá Audi, en síðar kom í ljós að þetta hafði mikið að segja. Gagnrýnisraddirnar þögnuðu þó þegar Michelle sigraði í San Remo rallinu, sem er eitt af erfiðustu rallkeppnunum sem fara að miklu leyti fram á malbikuðum vegum. Þetta var bylting í rallkeppnum heimsmeistara- keppninnar. Fyrsta konan hafði sigrað í keppni sem var liður í HM. Michelle sagði sjálf: „Áður en keppn- in í San Remo byrjaði, var ég kvíðin, grét og var mjög taugaóstyrk. En þegar ég var komin undir stýrið og byrjuð, hvarf allt óöryggi.“ Árið 1982 sigruðu þær Michelle og Fabrizia Pons þrjár keppnir í HM, í Portúgal, Grikklandi og Brasilíu. Þó að Michelle kjósi helst malbik eða möl undir hjólin, hefur hún tileinkað sér að stjórna hinum aflmikla Audi í snjó og á hálum vegum, eins og í sænska vetrar- rallinu nýlega þar sem hún varð í fjórða sæti. Og sænskur blaðamaður skrifaði í Dagens Nyheter: „Ef konur aka betur en karlmenn, verða guðirnir að bera ábyrgð á því. Michelle Mouton gerir það, að minnsta kosti betur en 99,99% karlmanna.“ ■ Michelle Mouton er venjulega hálfsúr þegar hún ekki sigrar í keppni. Hér er hún eftir sænska vetrarrallið sem var í febrúar. og 200 þátttakendur ^ á Öldungamóti BLÍ — Sífelld aukning þátttakenda á þessu vinsæla móti ■ Öldungamót Blaksambands íslands verður haldið um næstu helgi í Rcykja- vík. 20 lið taka þátt í mótinu, og líklega um 200 þátttakendur alls. Þetta er í áttunda sinn sem öldungamótið er haldið, og hefur þátttaka aukist með hverju árinu. Það er reyndar ekkert skrýtið að þetta mót njóti vinsælda, blakíþróttin nýtur nú meiri vinsælda sem bæði keppnis- og trimmíþrótt, og erlend- is þar sem blak er vinsælt eru slík mót algeng, og mjög vinsæl, nægir þar að nefna Finnland, og forsetann Mauno Koivisto, sem brá sér á öldungaæfingu meðan atkvæði voru talin, þcgar hann fyrst var kjörinn forseti. Öldungamót BLÍ 1983 verður sett í Hagaskóla á morgun klukkan 16.00. Leikir hefjast í íþróttahúsum Melaskóla og Hlíðaskóla klukkan 17.00, íþróttahúsi Háskólans klukkan 19.00. I Hagaskólanum verður leikið á tveim- ur völlum, og þar af leiðandi leikið á 5 völlum í öldungamótinu á morgun. Keppni á laugardag hefst klukkan 8.30 árdegis, og verður keppt í Hagaskólan- um og Melaskólanum til klukkan 18 þann dag, en þá lýkur mótinu, og lokahnykkurinn er hóf á Tióteli um kvöldið. Samtals verður leikinn 71 leikur á mótinu, tvöföld umferð í fyrstu deild karla, og einföld í hinum deildunum. Til þess að hafa þátttökurétt í Öldungamóti þurfa leikmenn viðkom- andi liða að hafa náð þrítugsaldri, og er liðið ætlað þeim sem ekki eru í fremstu víglínu í íþróttinni sem keppnisíþrótt. RNÓR FER TIL UÐS — skrifaði undir tveggja ára samning í fyrrakvöld ■ Já, ég skrifaði undir samning við Anderlecht til tveggja ára í gærkvöld“, sagði Arnór Guðjónsson knattspyrnu- kappinn snjalli í samtali við Tímann í gærkvöld, Arnór, sem hefur leikið í fjögur og hálft ár með Lokeren í Belgíu, en lék áður með Víkingi hér heima mun fara til Anderlecht að lokuu þessu keppn- istímabili í vor. „Já ég fékk mjög góðan samning við félagið, og þar sem Anderlecht er eitt besta kanttspyrnulið í Evrópuí dag, þá þurfti ég ekki að leita lengra sagði Arnór. - Voru mörg lið inni í myndinni? „Jú að vísu voru nokkuð mörg lið sem voru áhugaverð, og höfðu áhuga, en ég vil ckki tjá mig frekar um hvaða lið það voru, samningurinn við Anderlecht er gerður“. Arnór sagði að Lokeren hefði reynt allt sem það hefði getað til að fá samning sinn við liðið framlengdan. „En það var ákvæði í samningnum um að þeir gætu ekki haldið mér, vildi ég fara annað, þannig að ég var frjáls allra mála“. Faðir Arnórs, Einar Guðjohnsen var stoð Arnórs og stytta í samningagerðinni við Anderlecht, eins og reyndar þegar Arn- ór gerði samninginn við Lokeren á sínum tíma. „Faðir minn hefur alveg verið í þessu með mér, og mjög mikið honum að þakka hvernig mínir samning- ar hafa tekist“. sagði Arnór. „Og það má segja að maður sé alveg í sjöunda himni“. ■ Arnór Guðjohnsen á fullri ferð með íslenska landsliðinu. Hætt er við að Arnór eigi eftir að láta enn meir að sér kveða í Belgíu, en áður með hinu sterka liði sem hann nú er genginn til liðs við, Anderlecht, nokkuð sem kemur til með að skila íslenska landsliðinu arði. Evrópukeppni landsliða í gærkvöld: SOVÉTMENN RASS- SKELLTU PORTÚGALA! — og Peter Withe skoradi ffyrir England í 2-0 sigri á Ungverjum ■ Sovétmenn rassskelltu Portúgala í öðrum riðli Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu í gærkvöld í Moskvu, 5-0. Önnur helstu úrslit urðu að Englending- ar sigruðu Ungverja 2-0 í Lundúnum, og Spánverjar sigruðu íra 2-0 í Zaragoza, og stefna nú að sigri í 7. riðli, riðlinum þar sem landinn rekur lcstina. Sovéskir áhorfendur í Moskvu gátu nú loksins fengið sig til að gleyma vonbrigðunum í HM á Spáni þar sem Bjarni góður í Bretlandi varð þriðji á Opna breska meistaramótinu ■ Bjarni Friðriksson júdókappi náði mjög góðum árangri á Opna breska meistaramótinu í júdó um síðustu helgi. Bjarni varð þriðji í léttþungavigt, keppti 6 viðureignir og vann 5 þeirra á Ippon, eða fullnaðarsigri. Síðan tapaði Bjarni fyrir Hollendingnum Jam Papmund, með aðeins þremur stigum, og varð Rapmund annar í mótinu. Sigurvegari í þessum flokki varð Van de Walle frá Belgíu, en hann var einnig á Opna Hollenska meistarmótinu um daginn, þar sem Bjarni komst í 8 manna úrslit. Keppendur í flokki Bjarna voru 30 víða að úr heiminum, og margir af bestu júdómönnum heims. Þrír aðrir júdómenn frá íslandi kepptu á þessu móti, Kolbeinn Gíslason vann eina viðureign í sínum riðli í þungavigt, og komst ekki í úrslit, Magnús Hauksson náði sama árangri í -78 kg. flokki og Karl Erlingsson keppti í-65 kg. flokki og fékk ekki vinning. ■ Bjarni Friðriksson stóð sig vel í Bretlandi um síðustu helgi, hér á myndinni sést hann þjarma að einum af mörgum keppinautum sínum. Tímamynd Róbert Sovétmenn voru slegnir út í undan- keppni af frændum sínum Pólverjum. •Hrífandi sovéskt lið, með Oleg Blokhin þeirra frægasta knattspyrnumanna í far- arbroddi rúllaði upp portúgalska liðinu. Oleg Blokhin var arkitektinn bak við sigurinn, átti stórgóðan leik og lagði upp þrjú mörk, með frábærum sendingum eftir að hafa splundrað portúgölsku vörninni. Mörkin skoruðu Cherenkov á 16. og 63. mín., Rodionov á 40. mín, Demianenko á 53. mín og Larionov á 86. mín. Englendingar unu Ungverja sannfær- andt 2-0 í Wembley í stórgóðum leik. Tveir gamaldags, eins og enskir kölluðu þá, miðherjar, Peter Withe og Luther Blissett sýndu ekki einnar snertingar bolta eins og Ungverjarnir, en bættu það upp með dugnaði og góðum lokahnykkj- um. Mörkin gerðu Trevor Francis og Peter Withe og með þeirri frammistöðu sem enska liðið sýndi mun það komast í átta liða úrslitin í Frakklandi næsta sumar, að mati enskra. Ungverska liðið var ekki nógu sannfærandi. Belgar sigruðu Austur-Þjóðverja í Brússel 2-1, og unnu þar með sinn 18. sigur í röð á Heysel leikvanginum í Brússel. Þeir hafa nú fullt hús stiga í riðli 1. En Belgarnir byrjuðu ekki svb sann- færandi, þeir fengu á sig mark snemma í leiknum, þegar Joachim Streich skoraði með þrumuskot af 35 metra færi, skoti sem Jean Marie Pfaff réð ekkert við. Belgarnir komu þó upp aftur og skoruðu tvisvar fyrir hálfleik, þar voru að verki Jan Ceulemans og Ludo Coeck. Jeremy Charles varamaður Wales skoraði eina mark leiksins þegar Wales sigraði Búlgaríu í Wrexham. Charles kom inn á fyrir Ian Rush sem ekki hafði tekist að sk^ra. Charles skoraði 12 mínútum fyrir leikslok. Þjóðverjar og Austurríkismenn skildu jafnir í Vín ekkert mark var skorað. írar steinlágu á Spáni, þar skoruðu Santillana og Rincon fyrir heimamenn, og Danir lögðu Grikki í Höfn, þar skoraði Sören Busk eina mark leiksins. ■ Staðan í leikina í gær: 1. riðill Belgía Skotland Swiss A-ÞýBkaland 2. riðill: Sovétríkin Portúgal Pólland Finnland 3. riðill: England Danmörk Ungverjaland Grikkland Lúxemborg 4. riðill: Wales Noregur Júgoslavia Búlgaria 6. riðill: Austurriki Norður írland V-Þýskaland Tyrkland Albanía 7. riðill: Spánn Holland írland Malta ísland riðlunum er þessi eftir 4 4 0 0 10-4 8 4 112 6-7 3 3 1114-53 3 0 0 3 2-6 0 2 2 3 2 3 1 4 0 5 3 2 3 2 1 3 2 0 4 1 1 5 0 0 007-04 0 14-6 4 115-5 3 133-81 3 2 1 3 1 1 3 1 1 3 0 1 4 3 10 5 3 11 4 2 11 4 10 3 5 0 14 16-2 5-3 12-6 2-4 5-25 0 6-4 1 5-4 1 6-7 2 2-4 1 11-0 7 4- 3 7 5- 2 5 2-9 2 1-9 1 4 3 10 4 2 11 5 2 12 3 1 0 2 2-8 2 4 0 1 3 2-6 1 7-3 7 9-3 5 7-7 5

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.