Tíminn - 09.11.1962, Síða 8
Æ~ £j r< U í\j N /'-s t <
________Æ5KUNNAR
ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRA FRAMSÓKNARMANNA
RITSTJÓRI: DANÍEL HALLDÓRSSON
Ungir Framsóknarmenn hafna
allri aðild að Efnahagsbandalagi
Nokkuð a annað hundrað full-
trúar frá nær öllum sambandsfé-
lögum voru komnir til fundar við
setningu 9. þings S.U.F. í upphafi
þings minntist formaður, Örlygur
Hálfdánarson, látins stjórnar-
manns, Jóhannesar Jörundssonar,
og er þingheimur hafði vottað
minningu hans virðingu sína, hóf-
ust þingstörf með kosningu
starfsmanna.
Forseti þingsins var kosinn Jón-
as Jónsson, Hvanneyri og til vara
Sigurfinnur Sigurðsson, Árnes-
sýslu og Leifur Jóhannesson,
Stykkishólmi. Ritarar þingsins
voru þeir Ingi B. Ársælsson,
Reykjavík, Hermann Einarsson,
Vestmannaeyjum og Grétar Björns
son, Hvolsvelli. Einnig fóru fram
nefndarkosningar, en þær voru
sex talsins og störfuðu allan þing-
tímann, enda biðu þeirra fjölmörg
mál úrlausnar. Einstaka ályktana
verður getið hér síðar í Vettvang-
inum. Þó má minnast strax á það,
að þingið iagði áherzlu á, að að-
ild íslendinga að Efnahagsbanda-
laginu, kæmi alls ekki til greina
í neinni mynd.
Formaður Framsóknarflokksins
Eysteinn Jónsson, ávarpaði þingið
og óskaði þess, að þingið mætti
giftusamlega ráða fram úr þeim
málum, sem fyrir því lágu. Minnti
hann fulltrúa á fósturjörðina og
bað þá að varðveita sjálfstæði
hennar. En einmitt nú sem oftar,
ynnu vissir öfgamenn að því, bæði
Ijóst og leynt, að afsala því sjálf-
stæði, sem þjóðin fyrir skömmu
hefði unnið sér til handa. Minnti
Örlygur Hálfdánarson
hann á kommúnista sem vildu alls
staðar afnám frelsis enda hefðu
þeir sýnt það, þar sem þeir færu
með völd. Svo væru líka að'rir öfga
menn, sem vildu aðild íslendinga
að Efnahagsbandalagi Evrópu.
Mætti raunverulega segja, að að-
ild íslendinga að því bandalagi
væri sama sem endalok íslands
sem sjálfstæðs ríkis, og einnig
glötun íslenzks þjóð'ernis, tungu og
menningar. Mætti líka segja, að
sjálf stjórnarskipan bandalagsins
samrýmdist varla lýðræðishug-
myndum fslendinga. Þess vegna
væri einsýnt, að þessir öfgamenn
mættu alls ekki fá umboð í næstu
kosningum til þess að framkvæma
áform sín.
Þá flutti formaður skýrslu stjórn
ar. Rakti hann ýtarlega störf stjórn
ar og verkeíni, en þau voru marg-
vísleg. f fyrstu vék hann að fjár-
málum samtakanna og gerði ýtar-
lega grein fyrir þróun þeirra mála
frá þinginu 1960. Sambandsstjórn
hafði komið upp ýtarlegri félaga-
skrá og aflag margra annarra
gagna frá sambandsfélögunum
varðandi starf þeirra. Á tímabil-
inu höfðu þrír erindrekar starfað
um lengri eða skemmri tíma, þeir
Jónas Guðmundsson, stýrimaður,
Hörður Gunnarsson skrifstofumað-
ur og Már Pétursson, lögfræði-
nemi. Sambandið hafði sent unga
menn til ræðuhalda á fundum og
samkomum flokksins út um land
og þess utan sótt fjölda funda
sambandsfélaganna bæði almenna
félagsfundi, aðalfundi og stofn-
fundi. Sambandið hafði aðstoðað
við stjómmálanámskeið meðal fé-
laganna og bjálpa þeim í ýmsum
öðrum efnum. Utanfarir höfðu
orðið nokkrar á vegum samtak-
anna og greindi formaður jafn-
framt frá því, að sambandinu hefði
borizt boð um hópferð til nágranna
landana, hliðstæða þeirri, sem far-
in hefði verið á s.l. sumri og var
sú fyrsta sinnar tegundar af hálfu
hérlendra stjórnmálasamtaka.
Ferðaáætlun um ferð þessa mun
verða birt síðar hér í Vettvangin-
um. Sambandið hafði náið bréf-
legt samband við forystumenn sam
takanna í hverju kjördæmi og
gefið þeim þannig kost á að fylgj-
ast með þróun mála hverju sinni.
Fyrir atbeina sambandsstjórnar
var stofnaður félagsm.skóli Fram-
sóknarflokksins á tímabilinu og er
hann rekinn af miðstjórn Fram-
sóknarflokksins og sambandinu, en
það skipar þrjá menn af sex í
skólanefnd og kýs skólanefndar-
formann úr sínum hópi. Núver-
andi skólanefndarformaður er Már
Tétursson og skólastjóri hefur frá
upphafi verið Gunnar Dal. Aðal-
fundur sambandsstjórnar var hald-
inn 13.—15. apríl 1961 og var j
flutt skýrsla stjórnarinnar, lagðir
fram reikningar og rædd almenn
landsmál. Á tímabilinu fékk sam-
bandið skrifstofuhúsnæð'i í húsa-
kynnum flokksins Tjarnargötu 26
og var það til mikils hagræðis fyr-
ir öll störf þess að eiga sér fastan
samastað. Sambandsstjórn kapp-
Vettvangur æskunnar hefur
síðan á síðasf.a þingi SUF
komið 64 sinnum út. Það er ósk
Vettvangsins á þessum tíma-
mótum ag ungir Framsóknar-
menn notfæri sér þjónustu
hans í ríkari mæli en verið hef-
ur, því að í þjónustu þeirra er
hann að starfa.
Vettvangurinn fagnar því að
hefja enn á ný baráttu fyrir
stefnumálum Framsóknarflokks
ins. Stefna Framsóknarflokks-
i ins er stefna æskunnar. Fram-
sóknarflokkurinn einn ís-
lcnzkra stjórnmálaflokka á þá
fortíð, að framtíðin geti 'reyst
honum.
RITSTJÓRI
kostaði að undirbúa þingið sem
bezt og lagði fram í upphafi þings
sérstakar möppu; með margvísleg
um gögnum tilheyrandi þinginu.
Að lokum hvatti formaður þing-
fulltrúa til starfa, benti g marg-
vísleg verkefni, sem fyrir þinginu
lægju og minnti þá á, að það væri
i þeirra höndum að taka ákvarð-
anir.
Á eftir urðu umræður um skýrslu
stjórnar og stóðu þær fram yfir
miðnætti. Á laugardag voru um-
ræður og nefndarstörf og urðu all-
miklar breytingar á lögum sam-
bandsins og þær helztar, að fram-
kvæmdastjórn sambandsins er nú
í höndum Lólf manna og skulu
sex af þeim vera úr félögunum
utan af landi. Áður var fram-
kvæmdastjórnin í höndum sjö
Helgi Bergs
manna. Strax á sunnudagsmorgun
var umræðum haldið áfram, en eft
ir hádegi flutti ritari Framsóknar-
flokksins, Helgi Bergs ræðu.
Ræddi Helgi um hlutverk æsku-
fólks á stjórnmálasviðinu. Rakti
hann stjórnmálaþróun síðustu ára
og benti á torystuverk Framsókn-
arflokksins á mestu uppbyggingar-
árum þjóðarmnar. Vék hann að ut-
anríkismálum og greindi meðal
annars ýtartega frá þróun mála frá
Efnahagsbandalaginu frá fyrstu
tíð og var ræða Helga yfirgrips-
mikil og stórfróðleg. Síðan var
gengið til kosninga í stjórn og
sambandsráð sem kemur saman
einu sinni milli þinga, auk endur-
rkoðenda. Eftirtaldir menn voru
kosnir einróma:
Stjórn SUF
Formaður Örlygur Hálfdánar-
son, Reykjavík varaformaður Jón
A Ólafsson Reykjavík, ritari
Hörður Gur.narsson, Reykjavik,
gjaldkeri Kristinn Finnbogason,
Reykjavík. meðstjórnendur Eyj-
clfur Eysteinsson, Keflavík, Grét-
ai Björnsson. Rangárvallasýslu,
Halldór Hjartarson, Hafnarfirði,
Ingi B. Arsælsson, Reykjavík, Jón
as Jónsson, Borgarfirði, Markús
Stefánsson, Reykjavík, Páll Jóns-
son, Kópavogi, Sigurfinnur Sig-
urðsson, Árnessýslu.
Varamenn í stjórn SUF
Snorri Þorsteinsson, Mýrasýslu,
Rermann Einarsson, Vestmanna-
eyjum, Þorsteinn Ragnarsson,
Akranesi, Guðmundur Magnússon,
Kjósarsýslu. Páll Heiðar Jónsson,
Reykjavík, Jón Aðalsteinn Jónas-
son, Reykjavík, Theódór A. Jóns-
son, Reykjavík. Ásgeir Sigurðsson,
Seltjarnamesi.
Endurskoðendur
Eysteinn R. Jóhannsson, Rvík,
Skúli Sigurgrímsson, Reykjavík.
Varaendurskoðendur
Björn Gunnarsson, Reykjavík,
Haukur Bjarnason, Reykjavík.
SAMBANDSRÁÐSMENN
Reykjavík:
Aðalmenn: Már Pétursson, Mar-
vin Hallmundsson, Eysteinn R.
Jóhannsson, Steingrímur Her-
mannsson Einar Birnir,
Varamenn: Tómas Karlsson, Kári
Jónasson, Hjördís Einarsdóttir,
Dagur Þorleifsson, Óðinn Rögn-
valdsson.
Vesturlandskjördæmi:
Aðalmenn: Bjarni Guðráðsson,
Nesi, Reykholtsdal, Þórólfur
Ágústsson. Stykkishólmi, Finnur
Finnsson Skerðingsstöðum,
Hvammssveit, Ólafur J. Þórðarson,
Akranesi. Páll Guðbjartsson, Bif-
röst.
Varamenn: Haukur Engilberts-
son, Vatnsenda, Skorradal, Hauk-
ur Sveinbjörnsson, Snorrastöðum,
Steinþór Þorsteinsson, Búðardal.
Þorsteinn Ragnarsson, Akranesi,
Georg Hermannsson, Borgarnesi.
Vestfjarðakjördæmi:
Aðalmenn: Haraldur Sæmunds-
son, Kletti, Baldur Jónsson, ísa-
firði, Gunnsr Friðfinnsson, Þing-
eyri, Brynjólfur Sæmundsson,
Hólmavík, Pálmi Sæmundsson,
Borðeyri.
Varamenn: Jón Alfreð'sson,
Hólmavík, Theodór Nordkvist,
ísafirði Steingrímur Gíslason,
Patreksfirði, Guðmundur Hagalíns
son, Hrauni, Ingjaldssandi, Jónas
Jónsson, Stóra-Fjarðarhorni.
Norðurlandskjördæmi vestra:
Aðalmenn Brynjólfur Svein-
bergsson, Hvammstanga, Páll Pét-
ursson, Höúustöðum, Bogi Sigur-
björnsson, Siglufirði, Stefán Guð-
mundsson, Sauðárkróki, Gunnar
Oddsson, Skagafirði.
Varamenn: Sigurður Sigurðsson,
V-Húnavatnssýslu, Ari Einarsson,
A-Húnavatnssýslu, Benedikt Sig-
urjónsson, Siglufirði, Friðrik
Antonsson, Skagafirði, Magnús
Sigurjónsson, Sauðárkróki.
Norðurlandskjördæmi eystra:
Aðalmenn: Kristján Sveinsson,
Akureyri, Ingimundur Jónsson,
Húsavík, Ingimar Ingimarsson,
Sauðanesi, Björn Björnsson, Lauga
landi, Haukur Árnason, Akureyri.
Varamenn: Jónas Hólmsteins-
son, Raufarhöfn, Sigur’ður Jó-
hannesson, Akureyri, Björn Teits-
son, Brún, Edda Eiríksdóttir,
Kristnesi, Ævar Ólafsson, Akur-
eyri.
Jónas Jónsson
8
T f M I N N, föstudagurinn 9. nóvember 1962