Tíminn - 06.07.1983, Side 1

Tíminn - 06.07.1983, Side 1
íslendingaþættir fylgja blaðinu í dag George Bush, varaforseti Bandaríkjanna: ■ George Bush veifar til móttökusveitarinnar, fyrir framan hann eru frú Barbara Bush og Marshall Bremcnt sendiherra Bandankj- anna á íslandi. Tímamynd Árni Sæberg. Ræðir við íslenska ráðamenn á morgun ■ Á slaginu 16.00 í gær nam flugvél Georgc Bush varaforseta Bandaríkjanna staðar á Kefla- víkurflugvelli, þar sem mót - tökunefndin beið. Marshall Bre- ment sendiherra Bandaríkjanna á Islandi fór um borð og kom síðan út í fylgd með varaforseta- hjónunum. Brement kynnti Steingrím Hermannsson for- sætisráðherra og frú Eddu fyrir þeim og frú Edda afhenti frú Bush blómvönd. Því næst voru þjóðsöngvar landanna leiknir og að því búnu kynnti Steingnmur Hermannsson aðra úr mótttöku- nefndinni fyrir varaforsetanum, fyrst Geir Hallgrímsson utanrík- isráðherra og frú Emu Finns- dóttur, konu hans. Því næst hélt bflalestin til Reykjavíkur. Varaforsetahjónin höfðu þjóðhátíðarmóttöku í banda- ríska sendiráðinu síðdegis í gær, en í gærkvöldi sátu þau kvöld- verðarboð forsætisráðherra- hjónanna, Steingríms Her- mannssonar og frú Eddu á Hótel Sögu. Viðræður varaforsetans við ís- lenska ráðamenn hófust í morg- un kl. 9.10 og átti að ljúka kl. 10.30. Varaforsetinn mun í dag fara til Þingvalla og snæða þar hádegisverð í boði alþingis og síðan halda að Þverá í Borgar- firði með þyrlu Landhelgisgæsl- unnar og renna þar fyrir lax. í kvöld situr hann kvöldverðarboð forseta íslands, Vigdísar Finn- bogadóttur. I fyrramálið heimsækir vara- forsetinn Árnagarð og hefur síð- an fund með blaðamönnum. Að því búnu heimsækir hann her- stöðina á Keflavíkurflugvelli, en heimsókninni lýkur kl. 12.40 með kveðjuathöfn á flugvellin- um. Kona varaforsetans, Barbara Bush mun nú fyrir hádegi heim- sækja þjónustumiðstöð aldraðra við Daibraut, Árbæjarsafn og loks fara að Gljúfrasteini, þar sem Auður og Halldór Laxness taka á móti henni. Að þeirri heimsókn lokinni mun hún hitta varaforsetann og fylgdarlið hans og slást í förina til Þingvalla. -JGK Sjá nánar bls 2-3. ■ í gærkvöldi hélt George Bush varaforseti Bandaríkjanna hóf Pétri Sigurgeirssyni á Hótel Sögu. Hér sést hann taka á móti biskupi íslands herra Tímamynda Ámi Sæberg K0M I 0PINBERA HEIMSÓKN (GÆR Samningur um nýja flug- stöð á Keflavíkurflugvelli: BANDARÍKIA- MENN GREIÐA 70% K0STNAÐ- ARINSVIÐ FLUGSTÖÐINA! — Samtals 56 milljónir bandaríkjadala — sjá bls. 3 Ólgan á ferðaskrifstofumarkadnum: TILB0D FARSKIPS MED EDD- UNNI UPPTÖK UNDIRBOÐANNA? ■ Samdráttur í sólarlandaferð- um hefur verið greinilegur það sem af er ársins miðað við þær áætlanir sem ferðaskrifstofur gerðu fyrirfram. Þetta hefur orð- ið til þess að ferðaskrifstofur hafa þurft að aflýsa áður augiýst- um ferðum og auka sameiginlegt leiguflug. Suniar ferðaskrífstofur hafa einnig grípið til þess ráðs að bjóða sólarlandaferðir á vera- lega niðursettu verði eins og komið hefur fram í fréttum undanfarnar vikur. Það er hald margra í ferðaiðn- aðnum að þessi undirboð eigi rætur sínar að rekja í hagstæðum tilboðum Farskipa með Eddunni sem boðið var upp á í byrjun júní, einmitt á sama tíma og árleg lægð er í sólarferðamark- aðnum. Af hálfu Farskipa er því á hinn bóginn haldið fram að markaður þeirra sé ekki sam- bærilegur við sólarlandaferðir, og fólk leiti nú frekar að ódýrari leiðum til að ferðast á eigin vegum en hefðbundnar sólar- ferðir bjóða upp á. Sjá nánar á blaðsíðu 5. -GSH

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.