Tíminn - 12.07.1983, Blaðsíða 6
■ Þær eru léttar á fæti,
sparka hátt og kátar og hrcssar,
dansstúlkurnar í skemmtiþætti
Les Dawson í Bretlandi. Hann
er gamall grínisti, sem lengi
hefur skcmmt fólki þar í landi.
Honum datt í hug, að fá sér
öðruvísi dansstúlkur, en þær
sem vanalega sjást, bæði á
skemmtistöðum og í sjónvarpi,
þess vegna auglýsti Les eftir
vel feitum danspíum, sem voru
þó góðar og vanar dansstúlkur
og ekki óásjálegar, helst vildi
hann að þær væru kátar og
hefðu góða kímnigáfu, svo
hægt væri að nota þær í grín-
þætti með dansinum.
Það gáfu sig fram rúmlega
350 feitar danskonur á ýmsum
aldri. Eftir að hafa skoðað og
rætt við flestar þeirra, valdi
hann þær út, sem hér sjást á
myndinni. Þær hafa gert mikla
lukku í skemmtiþætti Les
Dawson.
Blaðamaður spurði konurn-
ar um aldur þeirra og vigt, en
þær sögðust vera á aldrinum
35-55, og nota stærð 14-28 af
fötum, - en um þyngdina var
ckkert sagt. Aöeins sögðu þær,
að þær mættu ekki missa af sér
pund, ef æflngarnar væru það
strangar, að þær færu að leggja
af, - þá yrðu þær bara aö borða
meira!
Sú feitasta, Mo Michty
Atom, dansar stcpp-dans og
vckur mikla hrifningu. Hún
segist borða mikið af kartöflu-
flögum, spaghetti og kökum.
Allar eru þær góðir dansarar,
og segjast hafa mikla ánægju
af að æl'a og dansa, og koma
fram.
■ Roly Polys-stúlkurnar eru stórmyndarlegar danserinnur, léttar og kátar og áhorfendur elska hvert pund þeirra!
STORAR
STELPUR FÁ
SÚKKULAÐI!
Danspíurnar í „Les Girls“ mega
ekki missa af sér eitt pund,
— það er í samningnum
.Lumpy, Lump, Lump“ (eða Bolla, bolla, bolla) heitir lagið sem þær syngja með þessum dansi.
Mo: „Leynívopnid raitt eru kleinu-
hríngir!
Audrey: „Ég er hreykin af að vera
Ann: „Ég fókk inni í flokknum )
vegna súkkulaðiáts"
Thea: „Ég geng fyrir Mars-súkku-
laði'V
Bea: „Mór finnst ég vera tággrönn,
-raiðað víð hinar!"
Marie: „Við verðum að gera æfingar
tU að halda okkur í þjálfun"
Sue: „Ég er sraábarnið í hópnum!"
T
EG HEF ALLTAF HAFT
ÁHUGAÁ GRASAFRÆÐI
— rætt við Eggert Pétursson myndlistarmann,
sem myndskreytti „Islensku flóruna”
■ Bókaforlagið Iðunn sendi á dögunum frá sér nýstárlega bók,
„Islensk flóra með litmyndum, einföld aðferð til að greina íslenskar
plöntur," eftir Ágúst H. Bjarnason grasafræðing. í bókinni er getið um
330 tegundir villtra plantna á íslandi, gerð grein fyrir vaxtarstöðum
þeirra, útbreiðslu, blómgunartíma og þeim notum sem almenningur
taldi sig hafa af þeim til lækninga, hressingardrykkja o.s.frv. Það er
einnig sérstætt við þessa bók að ungur listamaður, Eggert Pétursson,
hefur gert forkunnargóðar litmyndir af270 plöntum til prýði fyrir bókina
og hægðarauka þeim sem vilja nota hana við plöntugreiningu.
„Ég hef alltaf haft áhuga fyrir
grasafræði og þegar ég var strák-
ur safnaði ég blómum og þurrk-
aði svo ég er ekki alveg úti að
aka í þessu," sagði Eggert í
spjalli við Tímann.
Hvernig hefur þú unnið þessar
teikningar?
Þetta er unnið með þekju-
litum. Ég fékk lánaðar þurrkað-
ar plöntur frá Náttúrufræðistofn-
un og notaði þær sem fyrirmynd-
ir og þar að auki hafði ég mikið
■ Eggert Pétursson, myndlistarmaður.